Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1919, Side 51

Skírnir - 01.12.1919, Side 51
Skírnir] Færeysk þjóðernisbarátta. 257 Merkust allra færeyskra kvæða eru þau, sem hljóða um Sigurð Fáfnisbana og ættmenn hans (Sjúrðar Tcvœði). Það er langur bálkur stakra kvæða, sem ekki eiga öll saman í upphafi, og eru kveðin eftir ýmsum heimildum, svo sem Volsungu og Þiðrikssögu. Vera má, að sum þeirra séu ort upp úr fornkvæðum, sem nú eru glötuð. Það hefir löngum þótt sómi fyrir forsöngvarann að geta haldið dansinum við sem lengst, og bezta ráðið til þess var að flytja löng kvæði. En kvæðunum hefir það ekki orðið neinn gróði. Frásögnin er stundum þynt út með efnislausum vísum, eða skotið inn köflum, sem koma efninu lítið við. Sama erindið er oft tvi- eða þrí- tekið með örlitlum breytingum, helzt að rímorðum er vik- ið við lítið eitt. Hættirnir eru fábreytilegir. Erindið er stundum tvö vísuorð með endarími, stundum fjögur með rími í öðru og fjórða. Hverju kvæði fylgir viðlag, sem stundum er ekki nema eitt vísuorð, stundum heilt erindi. Efni þess er oft lýriskt. Stuðlasetning kemur stundum fyrir, en er aldrei svo reglubundin sem íslenzkt eyra heimtar. Aftur eru kenn- ingar ekki mjög fátíðar, svo sem benjardögg (blóð), eggja- teinur (sverð). Efnismeðferðin minnir oft á fornaldarsögurnar íslenzku. Ykjur eru altíðar. Hetjurnar fremja þrekvirki, sem fara langt fram úr þvi, er nokkrum menskum manni er unt að leysa af hendi. í síðasta bardaga Kjartans Olafssonar gerir hann þrjár atrennur að andstæðingum sínum og veg- ur ekki minna en 15 manns í hverri. Einkum hafa skáld- in gaman af því, að lýsa æfintýralegum siglingum, og lýs- ir sér þar sjóþjóðin. Aldur kvæðanna er vafalaust harla misjafn. I einu þeirra (Frúgvin Margreta) er lýst svo greinilega atburð- um, sem urðu um 1300, og mönnum er þá voru uppi, að það er varla ort löngu síðar. Sennilega heflr 14. og 15. ■öldin verið blómaskeið þessa skáldskapar. Eftir siðaskift- in tóku dönsk kvæði að berast til Færeyja, en málið sýn- ir að þau eru yngri en hin. Stundum er hrært saman 17

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.