Skírnir - 01.12.1919, Page 70
276
Færeysk þjóðernisbarátta.
[Skírnir
Norðraenn á annað borð vildu vera að senda bækur til
Færeyja, gátu þeir eins haft þær á dönsku, var sagt.
Andreas Christian Evensen (1874—1917) tók próf í guð-
fræði 1901 og varð árið eftir prestur í Sandey. Þegar
Friðrik Petersen dó, varð hann prófastur Færeyja, en var
þá orðinn heilsulaus og lézt tveim mánuðum síðar. Hann
var hinn mesti föðurlandsvinur, brann af áhuga fyrir öllu
færeysku. Þegar hann var nýorðinn kandídat, tók hann
að gefa út færeyskt tímarit, sem nefnt var Búreisingur.
Það íiutti ýmsar fræðandi greinar, meðal annars dálítið
yfirlit yfir mannkynssöguna eftir Evensen sjálfan. En því
miður kom ritið ekki út nema eitt ár; þá er Evensen var
orðinn prestur, brast hann tíma til að rita í það svo mik-
ið sem þurfti. — Fyrir skólana vann hann mikið verk
og þarft. Hann sá, að eigi tjáði að heimta, að börnin
lærðu móðurmál sitt í skólunum, ef engin bókin var til
handa þeim að lesa í. Handa barnaskólunum gaf hann
út prýðilegt stafrófskver (1907) og tvær lesbækur, aðra
fyrir eldri, hina fyrir yngri börn (1906 og 1908). Og
handa kennaraskólanum kom loks út stór bók (1911), þar
sem ekki er að eins úrval færeyskra bókmenta fram að
þvi ári, heldur einnig kaflar úr íslenzkum fornritum á
frummálinu. Fyrir íslending, sem kynnast vill bókmeut-
um frændþjóðar sinnar, er Lesibök sennilega bezta ritið,
en þó hvergi nærri fullnægjandi, einkum er til hinna
nýrri bókmenta kemur.
Um aldamótin hafði verið stofnað félag til að styrkja
samningu og útgáfu góðra bóka á færeysku, og var kall-
að Foroya bókafelag. Það gaf meðal annars út ArsbóJc
(1900); þar var færeysk þýðing á Gunnlaugs sögu orms-
tungu eftir Jakob Jakobsen, o. fl. En það félag sofnaði
brátt út af. Evensen gekst nú fyrir því 1907, að nýtt
félag var stofnað í sama skyni og nefnt Hitt foroyska
bókmentafelag. Heldur ekki það stóð nema nokkur ár;
eftir að stríðið hófst hefir ekkert frá því heyrst. En á
þeim árum gaf það út ýms góð rit. Vaíalaust færðist það
of mikið í fang; sumt af því, sem það lét prenta, hefði