Kirkjuritið - 01.09.1948, Blaðsíða 76
250
KIRKJURITIÐ
lestrar, framsetningin óskipuleg, málfar þannig, að þýðing af
öðrum tungum leynir sér ekki, og víða yfir þreytandi oflát-
ungsblær, er lítt sæmir sönnum vísindamanni.
„Ég sé eftir pappírnum," varð Þórhalli biskupi eitt sinn að
orði. Sama mætti ekki síður segja um þessa bók. Og ég sé líka
eftir þeim tíma, sem duglegur kennari og vísindamaður í
læknisfræði hefir varið til að setja hana saman. En ef það
verður honum hjálp til að losna við fáránlegt ofstæki, sem
hann virðist hafa „fengið á heilann," þá verður þetta líklega
að teljast betur farið. Annað gagn skil ég ekki að geti orðið
að bókinni.
Á. G.
★
Fréttir.
Embættispróf í guðfræði.
Tveir menn luku embættisprófi í guðfræði við Háskólann
26. maí og hlutu þessar einkunnir:
Hermann Gunnarsson, I. einkunn, 137% stig og
Þórarinn Þór, II. einkunn betri, 117% stig.
Prestsvígsla
fór fram í Dómkirkjunni í Reykjavík sunnudaginn 11. júlí,
og framkvæmdi biskupinn, dr. Sigurgeir Sigurðsson.
Þessir voru vígðir:
Andrés Ólafsson, settur prestur að Stað í Steingrímsfirði, og
Þórarinn Þór, settur prestur að Stað á Reykjanesi. Mun
hann sitja að Reykhólum.
Utanför biskups.
Dr. Sigurgeir biskup fór til Englands flugleiðis til þess að
sitja biskupaþing ensku kirkjunnar í Lambeth höll. Sótti hann
þingið í boði erkibiskupsins af Kantaraborg.
Biskup var í utanförinni 22. júní til 9. júlí.
Séra Valdimar J. Eylands,
frú hans og börn þeirra fóru aftur vestur um haf í júlímán-
uði. Þeim voru áður haldin samsæti og færðar góðar gjafir.