Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Page 91

Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Page 91
GUÐMUNDUR B. ARNKELSSON unarbundnum þáttum, er áreiðanlegt, þ.e. nákvæmt, í þeim skilningi að það er stöðugleiki í niðurstöðum þess frá einni mælingu til annarrar eða frá einu atriði þess til annars. Þótt hæfileikaþættir liggi til grundvallar frammistöðu á samræmdum prófum, geta einstakir prófhlutar (eða samræmd próf í einstökum námsgreinum) verið sér- hæfir. I því felst að prófhlutinn (eða prófið) er auk almennra þátta að verulegum hluta að mæla sérhæfa kunnáttu sem aðeins mælist á þessum prófhluta (eða prófi). Þannig er hugsanlegt að samræmdar einkunnir séu að miklum hluta háðar almenn- um námshæfileikum, eins og niðurstöður Sigríðar Valgeirsdóttur o.fl. (1988) gefa til kynna, en einstakir prófhlutar séu engu að síður að mæla umtalsverða sérhæfa kunnáttu. Sérhæfi samræmdra einkunna og einstakra prófhluta í samræmdum prófum er ekki þekkt og engar tölur virðast vera til um áreiðanleika þeirra. Þetta er bagalegt þar sem gildi prófanna eykst með vaxandi sérhæfi. Jafnvel þótt almennir námshæfi- leikar ráði miklu um niðurstöðuna, myndi mikið sérhæfi tryggja að samræmd próf væru að umtalsverðu leyti að mæla sérhæfa kunnáttu í einstökum námsgreinum eða kunnáttusviðum. MARKMIÐ RANNSÓKNARINNAR Ætlunin er að varpa nokkru Ijósi á ofangreind atriði. Tilgangur rannsóknarinnar er í grófum dráttum tvíþættur. í fyrsta lagi er ætlunin að gera nánari grein fyrir inn- byrðis tengslum samræmdra einkunna og tengslum þeirra við skólaeinkunnir. Kannað verður hvort lausn með háðum þáttum hentar gögnunum betur en óháðir þættir og hvort þáttauppbygging einkunna breytist yfir u.þ.b. sex ára tímabil. Einn- ig verður athugað hvort tengsl skólaeinkunna við samræmdar einkunnir séu háðar því hvort samræmd próf eru haldin í sömu greinum. Hér er leitað að lýsingu á tengslum einkunna með aðferð meginþáttagreiningar (principal component anal- ysis). I öðru lagi er ætlunin að átta sig á tölfræðilegri uppbyggingu samræmdra prófa. Þetta er gert með því að finna, með aðstoð meginásagreiningar (principal factor analysis), þætti sem skýra innbyrðis tengsl einstakra prófhluta samræmdra prófa.7 Einnig er metinn áreiðanleiki (innri samkvæmni) og sérhæfi samræmdra einkunna og einstakra prófhluta. 7 Munurinn á þessum tveimur tegundur þáttagreiningar (factor analysis) er fyrst og fremst tæknilegur. Megin- þáttagreining felur í sér að reynt er að finna sem fæsta þætti sem í sameiningu skýri bæði sem mest af dreifingu einkunna á viðkomandi prófum (eða prófhlutum) hverju fyrir sig og sem mest af tengslum milli einkunna á ólíkum prófum (eða prófhlutum). Meginásagreining leitast hins vegar aðeins við að gera grein fyrir innbyrðis tengslum einkunnanna og reynir að skýra þau með undirliggjandi (latent) þáttum sem eru hugsaðir sem áhrifa- eða orsakaþættir. í sameiningu skýra þessir þættir aðeins þá dreifingu sem er fóigin í innbyrðis tengsl- um einkunnanna meðan þættirnir f meginþáttagreiningu skýra alla dreifingu einkunnanna. Vægi (loading) í meginásagreiningu sýnir áhrif (eða orsakaáhrif) undirliggjandi þáttar á hverja einkunn fyrir sig en í megin- þáttagreiningu gefur vægið til kynna þá dreifingu sem er sameiginleg þættinum og viðkomandi einkunn. 89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.