Tímarit lögfræðinga - 01.10.1979, Qupperneq 48
7. RÖK FYRIR ÁBYRGÐ VEGNA VERKTAKA, LAUSLEGUR
SAMANBURÐUR VIÐ NORRÆNAN IÍÉTT OG GAGNRYNI Á
BANDARlSKAR REGLUR
Reglur um skaðabótaábyrgð verkkaupa á sök sjálfstæðs verktaka
leiða til víðtækari ábyrgðar en sakarreglan og reglan um ábyrgð vinnu-
veitanda. Verkkaupi ber nefnilega ábyrgð á sök af hálfu sjálfstæðs
verktaka eins og verktaki væri starfsmaður hans. Þegar skylda er
„óframseljanleg" er litið svo á, að verkkaupa beri að ganga úr skugga
um, að verktaki og starfsmenn verktakans sýni ekki af sér sök í starfi
sínu.82 Slík skylda er vitanlega nær alltaf óframkvæmanleg.
Þegar verkkaupi ber skaðabótaábyrgð á sök af hálfu sjálfstæðs
verktaka og ekki er jafnframt um að ræða sök verkkaupa eða starfs-
manna hans, á verkkaupi að jafnaði framkröfu á hendur verktaka
fyrir skaðabótum, er hann hefur greitt vegna þessarar ábyrgðar sinnar.
Reglur um ábyrgð á sjálfstæðum verktökum fela því í reynd í sér, að
verkkaupi gegnir hlutverki ábyrgðarmanns, ef verktaki getur ekki
greitt tjónþola skaðabætur.
Fyrst svo rík ábyrgð hefur öðlast fastan sess í bandarískum og
breskum rétti, er ekki óeðlilegt, að ýmsar spurningar komi upp um
rök fyrir henni, hlutverk hennar, kosti og galla. Verður nú vikið að
þessu í örfáum orðum.
Hér að framan hefur komið fram, hve sundurleit mörg þau tilvik
eru, er sæta undantekningum frá almennu reglunni um að menn beri
eigi bótaábyrgð vegna athafna sjálfstæðra verktaka. Tilraunir til að
finna sérstök einkenni, sem tengja öll þessi tilvik, hafa ekki tekist vel.
Stundum er sagt, að undantekningarreglunum sé einkum beitt um aðila,
sem hafa með höndum starfsemi, er hefur verulega hættu í för með
sér fyrir almenning, þegar aðstæður eru þannig, að eðlilegt sé að láta
slíka starfsemi bera kostnað af tjóni því, sem af henni hlýst.33 Heldur
er þetta óljóst og til lítillar leiðbeiningar. Virðist skorta sameiginleg
rök, sem réttlæta ríka bótaábyrgð í óskyldum hópum tilvika.34 Er rétt
að skoða lauslega nokkra helstu hópana hvern fyrir sig.
Mörg af þeim atvikum, sem hafa í för með sér ábyrgð á sök sjálf-
stæðra verktaka, varða vinnu við húsbyggingar eða aðrar framkvæmdir
32 „A duty not merely to take care, but a duty to provide that care is taken,“ eins
og enskumælandi lögfræðingar orða þetta oft.
33 Sjá t.d. Henderson og Pearson, The Torts Process, Boston 1975, bls. 125—6.
34 Sbr. Rest. 2nd, bls. 394 og Henderson og Pearson, bls. 125.
142