Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.06.2012, Blaðsíða 17

Fréttatíminn - 15.06.2012, Blaðsíða 17
Sjáðu, Hverfisgötu 52, 101 Reykjavík Sími: 561-0075 - sjadu.is Sjáðu - Við erum flutt! 20% AFSLÁTTUR Á GLERJUM FÖSTUDAG & LAUGARDAG Fimmtán ára kasólétt/Það er fúlt og ógeðs- legt/Ég vildi ég væri Pamela í Dallas. Húsið á sléttunni. Bobby er nú húsbóndi á Southfork ásamt þriðju eiginkonu sinni Ann Ewing (Brenda Strong). Cristopher Ewing (Jesse Metcalfe), sonur hans, mætir hér til leiks með kærustunni Rebecca Sutter (Julie Gonzalo). J.R. klýfur síðan fylkinguna en honum á vinstri hönd eru fyrrverandi eiginkona hans, Sue Ellen, sonur þeirra John Ross Ewing (Josh Henderson) og unnusta hans og æskuást, Elena Ramos en til þess að bæta gráu ofan á svart í samskiptum frændanna þá var Elena áður með Christopher sem ber enn tilfinningar til hennar. Bobbys og Pamelu, er á svipuðu reiki og frændi sinn en hefur auð- vitað allt aðrar áherslur og einbeitir sér að umhverfisvænni orku. Um- hverfisvæn orka og ekki síður Chri- stopher er vitaskuld eitur í beinum J.R. sem barðist harkalega gegn því á árum áður að Christopher, sem ekki er hreinræktaður Ewing, fengi hluta í olíufélagi fjölskyldunnar. J.R. hefur að sjálfsögðu engu gleymt og skarar enn eld að eigin köku með bolabrögðum og stend- ur að baki syni sínum. Bobby, sem erfði milda taug móður sinnar, hennar Ellýar, hefur tekið sæti móð- ur sinnar sem húsbóndi á ættaróðal- inu, Southfork, og stendur sem slík- ur í vegi fyrir J.R. og syni sem vilja ólmir bora eftir olíu á landareign- inni. Þeir sem muna gamla tíma og þætti geta því séð fyrir sér að djöf- ulgangurinn í Dallas verður líklega engu minni nú en á síðustu öld. Svikráð á Southfork, þá og nú Ewing-fjölskyldan hélt til á hin- um glæsilega búgarði Southfork sem var miðpunktur þáttanna og atburðarásin hverfðist fyrst og fremst um J.R. sem keyrði drama- tíkina áfram með illvirkjum sínum og klækjabrögðum. Bobby, hjarta- hreini litli bróðirinn, var helsta hraðahindrun skúrksins sem hik- aði að sjálfsögðu ekki við að bregða fæti fyrir sína nánustu til þess að hámarka völd sín og gróða. Larry Hagman, Linda Gray og Patrick Duffy taka öll upp þráðinn í rullum sínum sem J.R., Sue Ellen og Bobby – ögn hrukkóttari og eldri en þegar við kvöddum þau fyrir 22 árum en þó sjálfum sér lík. John Ross, sonur Sue Ellenar og J.R., er orðinn fullorðinn maður og hyggst sanna sig með því að byggja upp sitt eigið olíuveldi, eins og afi hans forð- um. Christopher, ættleiddur sonur sjónvarp 17 Helgin 15.-17. júní 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.