Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Page 34

Sagnir - 01.06.2006, Page 34
uJaö ujojokjast, sem nér er samiö, er JztiJs viröijyrir aJynenninj. slíkar hugrenningar er að finna í bréfum skáldsins, að fortíðin varð honum hugstæðari. Minningamar sóttu stöðugt á. En bæta varð úr heimildaskortinum og ári síðar (1906), hófst hann til við að rita annað uppkast sjálfsævisögunnar.16 Handrit Matthíasar frá árinu 1906 bætir nokkm við það sem hann skrifaði í þeim uppdrætti sem hann afhenti Þorsteini fyrir afmælisritið ári fyrr. Æskan er honum greinilega hugleikin enda fjallar þessi viðbót um nokkur atriði frá bemskuámnum. Kaflarnir em þrír: „Frá uppmna mínum og æsku“, „Bemskudraumar mínir“ og „Drengurinn í gráa klútnum.“17 Þessir kaflar íjalla um svipað efhi og birtist í handritinu frá 1905 en bæta við nákvæmari smáatriðum og gefa fyllri heildarmynd af Matthíasi sem ungum dreng. Hins vegar er greinilegt að um uppkast er að ræða- eða jafnvel æfingu í sjálfsævisögulegum skrifum, því í enda handritsins er að finna þýðingu skáldsins á smásögu eftir bandaríska heimspekinginn Ralph Waldo Emerson (f. 1803-d. 1882) og nokkur kvæði.18 Má því vel hugsa sér, að Matthías hafi velt fyrir sér ævinni þegar tími gafst, á milli þess sem hann hélt í ævistarfið, þýðingar og ljóðagerð. Hvað sem öðm líður þá var þetta önnur tilraun Matthíasar til að ráða í rúnir fortíðar og greinilegt að minningamar vom enn of óljósar til að hann gæti sökkt sér í efnið. Það er hins vegar greinilegt, að í beiðni Þorsteins var neisti sem dó ekki út enda var Matthíasi það eilift umhugsunarefni hvemig færa mætti liðin ár í orð.19 Þriðja tilraun skáldsins í þessa átt er lítil stílabók sem Matthías ritaði árið 1908. Þar greinir hann frá ferð sinni ásamt Herdísi, dóttur sinni, til Englands og Kaupmannahafnar árið 1907. En þetta er stutt frásögn, rétt um 40 þéttskrifaðar blaðsíður.20 í framhaldi af ferðinni lagði þjóðskáldið sig allt fram við ritun sjálfsævisögunnar. J\lCétun söquHaflanna ítarlegasta hancmtið að Söguþállum af sjálfum mér hóf Matthías Jochumsson að rita árið 1908 og lauk því ári síðar. Handritið, sem er í þremur stílabókum og myndar megingmnn Sögukafla af sjálfum mér, er töluvert ítarlegra en þau drög sem Matthías hafði áður ritað enda virðist hann gera ráð fyrir því að lesandinn setji þessi nýjustu drög ekki saman við drögin sem hann hafði áður skrifað. En þótt Matthías hafi byrjað verkið af eldmóði, með splunkunýjum inngangi og enn einu yfirlitinu yfir bemskuárin, þá lét skáldafákurinn á sér standa. Þessi vandi hans kemur fyrst fram í bréfi sem hann skrifaði Guðmundi Hannessyni, lækni, dagsettu 30. ágúst árið 1908. Matthías skrifar: „Ég hef samið nokkra kapitula af sögu, sem ég kenni við „mitt innra líf,“ en hvort það verður kver eða bók veit ég ekki; ég verð að ætla kröftunum of. Það er hreinskilnin, sem hver sem eitthvað er og getur ætti mest að virða - einkum í elli sinni, ef hann hefur áður svikið Guð og menn.“21 Þótt ekki komi fram hvaða „kapitula“ sjálfsævisögunnar Matthías á nákvæmlega við má ætla að hann eigi við flest þau drög sem hann skrifaði fram til 1908, þar með talið þá kafla sem fylla þrjár kompur sem áður var vitnað til en í þeim skrifar hann um ætt sína og uppruna, bamæskuna að Skógum og ævina ffam til undir þann tíma er hann sagði upp Oddabrauði á Rangárvöllum árið 1887. Það er greinilegt af handritum hans að sjálfsævisaga er í mótun og að hann hafi ætlað sér að stíga næstu skrefin til fulls. Þessa sömu byggingu og þama birtist í handritunum ffaman af að notaði Steingrímur Matthíasson, sonur skáldsins, sem grunn að endanlegri útgáfii Sögukafla af sjálfum mér. œsf[ustcðvum Ekkert bendir til þess að Matthías hafi ætlað að vinna ffekar að sjálfsævisögulegum skrifum eftir 1909. Það er ekki fyrr en árið 1912, nánar tiltekið á hvítasunnumorgni, sem visi að slíku er að finna. Þá vom liðin heil þrjú ár frá síðasta handriti. Greinilegt er að minningar liðins tíma urðu seint svæfðar og fann skáldið aldna hjá sér þörf til að skrifa starfsbróður sínum og vini, Valdimari Briem, presti að Stóra - Núpi, þennan hvítasunnumorgun árið 1912, og greina honum ffá tilraun sinn til að bæta úr þeim heimildaskorti og slitróttu minningum sem fram að þessu höfðu háð honum. Ætlun Matthíasar, sem þá var kominn fast að áttræðu, var að leggja upp í þriggja til fjögurra vikna ferð ásamt Steingrími syni sínum í þeim erindagjörðum að „finna mínar fomu æskustöðvar vestur í Breiðafirði,"22 eins og hann segir sjálfur frá í óprentuðum hluta bréfs til Valdimars. Ferðin hefur gert aldna guðsmanninum gott því afraksturinn var eftir því ágætur. Þegar heim var komið setti hann úr minnispunktum sínum saman greinamar „Gamlir náungar úr Breiðafirði" og „Ferð um fomar stöðvar1'23 árið 1912 og vom þær prentaðar í aftanmál við endurútgáfu Sögukaflanna árið 1956. Vinna Matthíasar við ritun sjálfsævisögu sinnar var stopul og em engar heimildir til fyrir því hvað hann hugðist gera við punkta sína utan ritgerðanna sem hann skrifaði um æskustöðvar sínar. Ekki er ljóst hvað varð til þess að hann gerði ítrekað hlé á ritun sjálfsævisögunnar. En hitt er víst að heimkominn úr ferð um fomar stöðvar á Breiðafirði gerði Matthías enn og aftur hlé á rituninni og settist hann ekki niður við skriftir fyrr en tveimur ámm síðar, í marsmánuði 1914.24 Fullvíst er að þegar hér var komið sögu var ritun sjálfsævisögunnar orðið eitt það tímafrekasta verk sem Matthías hafði nokkm sinni lagt fyrir sig. Þrátt fyrir ítrekuð hlé, sem skýrlega drógu úr sköpunarferlinu, hélt Matthías dauðahaldi í vonina um að ljúka verki sínu í nánustu framtíð. En aldurinn færðist hratt yfir og skáldið vissi að skammur tími var til stefnu. Þrátt fyrir tímann sem ritun sjálfsævisögunnar tók og alla þá erfiðleika sem sóttu að Matthíasi við vinnuna þá leitaði hann ekki til margra eftir aðstoð. Þvert á móti virðist sem hann hafi aðeins leitað til þeirra sem unnu að afmælisriti hans árið 1905. Af afmælisritinu að dæma var það Guðmundur Finnbogason prófessor sem best þekkti til skáldskapar Matthíasar enda hafði hann skrifað um erfikveðskap skáldsins í afmælisheftinu 1905.25 Matthías leitaði ítrekað til hans á ámnum 1909 til 1914. í nóvembermánuði 1912 skrifaði Matthías Guðmundi bréf og tjáði hann honum að þrátt fyrir löng ritunarhlé og efasemdir hafi hann ákveðið að halda áfram skrifunum. Matthías skrifaði: „Ég hripaði Pétri Halld. Og segi honum [...] frá plani mínu á Endurminningunum - hvað á ég að kalla kverið? - og mun hann láta þig renna augum yfir það. Ég er [nýlega] byrjaður, og áfram gengur draslið, likt og skjögrandi skektusigling á Breiðafirði."26 Möguleikinn á því að ljúka handritinu er hér fyrir hendi í huga skáldsins því greinilegt er að hann langar veginn á enda. Líta ber til þess að hann hefur leitað utan hringsins, þ.e.a.s. til Péturs Halldórssonar, sem átti í viðræðum um kaup á eigna- og útgáfurétti á verkum skáldsins á þessum tima. I ofanálag hafði Matthías skrifað töluvert hjá sér og handrit sjálfsævisögunnar tekið að skýrast umtalsvert. Það var því vart komist hjá útgáfú. Engum blöðum er um það að fletta að Guðmundur Finnbogason var ekki einasta stoð og sfytta Matthíasar Jochumssonar á meðan ritun sjálfsævisögunnar stóð heldur hvatti hann skáldið stöðugt til áframhaldandi skrifa. Svo mikill var hvatinn að Matthías skrifaði starfsbróður sínum, séra Valdimari Briem, rúmum mánuði síðar þar sem fram kemur að hann sé með ævisögu í smíðum. En stutt er á milli stríða, því þrátt fyrir glaðhlakkalegan inngang með fréttum af væntanlegri sjálfsævisögu tjáir hann Valdimari, að í versta falli verði bókin aldrei fúlltíða, heldur vart meir en „bam í brók.“27 Ekki miklar væntingar það eftir sjö ára vinnu. Fortíðin lét semsagt á sér standa og því skiljanlegt að Matthías sveiflaðist oft á milli þess að leggja annaðhvort handritið alfarið á hilluna og þess að koma því í útgáfúhæft form. Hvað sem vangaveltum hans leið þá var ljóst að sjálfsævisagan var Matthíasi svo hugleikin ffá fyrstu drögum að hann vann að því sleitulaust að skilja og skýra fortíð sina. Það er gleði sem skín úr bréfi skáldsins til Guðmundar Finnbogasonar, dagsettu 12. janúar 1913 en í því kemur fram að þeir hafi hist sumarið áður og þakkar Matthías fyrir ábendingar og áskomn um að halda rituninni áífam.28 Skömmu síðar kveður hins vegar við annan tón. Matthías vildi gefa sem sannasta mynd af lífi sínu en var óhægt um vik sökum heimildaskorts. Þá var hann óánægður með framgang skrifanna - ekki síst eldri handrit: Fyrst vantar mig minnis- og dagbækur nálga gersamlega; þar næst kemur minnisskortur nær áttræðs manns. I þriðja lagi hefúr æfiferill minn verið æði slitróttur og vafsamur, ofllega fúllur óróa og eirðarleysis [...] Ég ætla ekki að rita neina skáldsögu heldur kýs að reita þá smákafla, sem hér fylgja sem einfaldast og óbrotnast [...] Sé ég nú, að það uppkast, sem hér er samið, er lítils virði fyrir almenning, enda kýs nú heldur, ef eitthvað sögubrot af æfi minni ætti að prenta, þá væri réttara að geyma þetta uppkast í handriti, en gefa heldur út það uppkast, sem ég samdi í fyrra.29 JZ ^Sajnir Z006
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.