Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Síða 36

Sagnir - 01.06.2006, Síða 36
(Þab ujojoÞast, sem fiér er sajníð, er fitiís xirðijyrir afmenniny... bessaleyfi til að velja og hafna því sem endanlega birtist í bókinni. Tvístígandi Matthíasar við ritun sjálfsævisögunnar og sú gremja sem verkið olli honum er augljós. Þjóðskáldið Matthías, sem farið haföi hamförum í merkum þýðingum á ljóðum, hrist erfikveðskap út úr hægri jakkaermi og þjóðsöng úr hinni á meðan leikrit um útilegumenn og aðrar þjóðlegar vættar kom upp úr hvorum vasa, stóð agndofa gagnvart eigin sjálfi. Niðurstaða tvístígandans varð sú að Matthíasi varð orða vant er hann stóð frammi fyrir sjálfum sér, veglaus og týndur í margbrotnum heimi sálarinnar. Ef til vill gat ekki öðruvísi farið. Offi straumfivérýum í ísfensffu fféfjtienn tafíji Með sjálfsævisögu Matthíasar Jochumssonar var brotið blað í sögu íslenskrar bókmenntasögu. Hann var stórmenni í íslensku samfélagi á seinni hluta nítjándu aldar og fyrstu áratugum tuttugustu aldar og ruddi brautina fyrir sjálfsævisöguleg verk í nútímalegum skilningi orðsins. En þrátt fyrir stærð sína á sviði andans málefha skrifaði Matthías aldrei eitt samfellt bókmenntaverk, langan samfelldan texta sem kraföist yfirlegu, tíma og heildarskipulags. Þetta sést einna skýrast af handriti sjálfsævisögu hans sem hann ritaði á árunum 1905 til 1915. Þótt honum hefði verið í lófa lagt að beita fyrir sig skáldafáknum við ritun sjálfsævisögunnar, þá leitaðist hann við að gera það ekki enda yrði niðurstaðan lítið annað en óljós eftirmynd. Sá geysimikli fjöldi handrita sem eftir stóðu við ffáfall Matthíasar uróu þess valdandi að nauðsynlegt var að raða þeim svo mögulegt yrði að búa til bók. Það kom í hlut sonar hans og eiginkonu að ráðast í það verk. En frásögnin var ekki samfelld - þráðurinn var brotakenndur - og úr þeim varð að fella, skeyta saman og raða á nýjan leik. En hvað sýnir það? Matthías var ekki sáttur - mótsagnimar, sem hann taldi sig kljást við voru ókleifar og ósættanlegar. Vel má vera að þótt honum hefði enst aldur þá heföi hann aldrei lokið sjálfsævisögu sinni á þann veg sem honum líkaði. Hvort sem það var ákvörðun Steingríms Matthíassonar eður ei að gefa út sjálfsævisögu föður síns þá er engum blöðum um það að fletta að Sögukaflar afsjálfum mér ollu straumhvörfúm í íslensku bókmenntalífi. I kjölfar útgáfú Sögukafla af sjálfum mér leit fjöldi sjálfsævisagna dagsins Ijós. Strax árið 1923 kom út sjálfsævisaga Benedikts Gröndal, Dœgradvöl, sem hann skrifaði að mestu á ámnum 1893 til 1894. Hann bætti við hana um áratug síðar og afhenti hann landsbókaverði handritið til geymslu í 25 ár. Auðséð er að vinsældir sjálfsævisögu Matthíasar urðu til þess að tengdasonur Benedikts virti bann skáldsins að vettugi og bjó handrit hans til útgáfú. Leiðinlegt er hins vegar frá því að segja að kastað var til höndunum við útgáfuna enda var um að ræða uppkast Benedikts að sjálfsævisögunni. En þótt bókin hafi frá útgáfudegi fengið blendna dóma vegna hnýtingsháttar og uppivöðslusemi Benedikts Gröndals þá var góður rómur gerður að henni og varð hún geysivinsæl.40 Eftirútgáfuþessaratveggjabókavarðholskeflaíútgáfúsjálfsævisagna hér á landi. Hannes Þorsteinsson, fyrrverandi landsbókavörður, hóf ritun sjálfsævisögu sinnar. Hann afhenti hins vegar landsbókaverði handritið til geymslu og leit það ekki dagsins ljós fyrr en árið 1962.41 Þá var handrit sjálfsævisögu Ólafíu Jóhannesdóttur, Frá myrkri til Ijóss, tilbúið í kringum aldamótin þótt það hafi ekki litið dagsins ljós fyrr en árið 1925. Útgáfa hennar átti vinsældum Sögukaflanna margt að þakka.42 í kjölfarið hófú konur i auknum mæli að rita endurminningar sínar. Fleiri höfundar sjálfsævisagna stigu fram í sviðsljósið á þriðja tug aldarinnar og hefur fjöldinn margfaldast eftir það. Engu er líkara en að sérhver landsmaður hafi fúndið hjá sér þörf til að segja sögu sína, oft óháð því hvort um var að ræða þjóðþekktan einstakling líkt og Matthías Jochumsson eða bara þann sem hafði átt fjörugt eð áhugavert lífshlaup. Þá er ótalinn sá ógnarfjöldi sjálfsævisagna sem kemur út stuttu fyrir hver jól, situr á vinsældalistum langt fram eftir sumri og ber heim sanninn um það að áhugi landans á á forminu, jaðrar við að vera sjúklegur." 43 dfifvisanir 1 Guðmundur Amason: „Matthías Jochumsson. Aldarminning". Skáldið á Sigurhœðum. Safn ritgerða um þjóðskáldið Matthías Jochumsson. Davíð Stefánsson tók saman. Akureyri, 1963, bls. 246. 2 Guðmundur Finnbogason: „Matthías Jochumsson. Aldarminning". Skáldið á Sigurhœðum, bls. 252. 3 Sama heimild, bls. 256. 4 Guðmundur Hálfdánarson: „Biskupasögur hinar nýju. Um ævisögur fjögurra stjómmálamanna“. Saga, 31, 1993, bls. 189. 5 Á undanförnum tíu ámm hefur miklu lífi verið blásið í rannsóknir á sjálfsævisögum. Sjá m.a. Matthias Viðar Sæmundsson: „Upplýsingaröld 1750-1840“. IslenskbókmenntasagalII. RitstjóriHalldórGuðmundsson, Reykjavík, 1996, bls. 21-218. - Ragnhildi Richter: Lafað í röndinni á mannfélaginu. Um sjálfsœvisögur kvenna, Reykjavík, 1997. - Eirík Guðmundsson: Gefðu mér veröldina aftur. Um sjálfsœvisöguleg skrif lslendinga á átjándu og nitjándu öldmeð hliðsjón afhugmyndum Michels Foucault. Islensk fræði, Reykjavík, 1998. Þá em ónefndar rannsóknir Sigurðar Gylfa Magnússonar á sjálfsævisögulegum heimildum, s.s. Kraftbirtingarhljómur Guðdómsins: Dagbók, sjálfsœvisaga, bréf og kvœði Magnúsar Hj. Magnússonar, skáldsins á Þröm. Reykjavík, 1998. Auk þessa fjallar Sigurður ítarlega um sjálfsævisögur í tveimur bókum. Sjá Sigurð Gylfa Magnússon: Fortiðardraumar. Sjálfsbókmenntir á íslandi. Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar 9, Reykjavík, 2004. - Sigurður Gylfi Magnússon: Sjálfssögur. Minni, minningar og saga. Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar 11, Reykjavík, 2005. 6 Á síðustu ámm hefúr nokkuð verið ritað um samanburð á þróun sjálfsinsogendurspeglanirþeirrarþróunarádagbókarskrifhérálandi.Sjá m.a. Davíð Ólafsson: „Að skrá sína eigin tilvem. Dagbækur, sjálfsmynd og heimsmynd á 18. og 19. öld“. Einsagan - ólíkar leióir. Átta ritgerðir og eitt myndlistarverk. Ritstjórar Erla Hulda Halldórsdóttir og Sigurður Gylfi Magnússon, Háskólaútgáfan, Reykjavík, 1998, bls. 51-88. 7 Sjá m.a. Sigurð Gylfa Magnússon: Menntun, ást og sorg. Einsögurannsókn á islensku sveitasamfélagi 19. og 20. aldar. Sagnfræðirannsóknir 13, Reykjavík, 1997. - Brœður af Ströndum. Dagbœkur, ástarbréf, almenn bréf sjálfsœvisaga, minnisbœkur og samtíningurfrá 19. öld. Sigurður Gylfi Magnússon tók saman. Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar, Reykjavík, 1997 - Davíð Ólafsson: „Að skrá sína eigin tilveru". Einsagan - ólíkar leiðir. bls. 51-88. 8 Einar H. Kvaran: „Nokkur minningarorð“. Skáldið á Sigurhœðum, bls. 147. 9 Davíð 0stlund, „Til séra Matthíasar Jochumssonar," Matthías Jochumsson 11. nóv. 1835 - 11. nóv. 1905. 1 tilefni af 70 ára afmœli hans. Reykjavík, 1905, bls. 5. 10 Lbs 1543 4to - Matthías Jochumsson, „Um æfi mína, einkum bamæsku og vaxtarár", bls. 2. 11 Þótt Þorsteinn vitni til þess nokkmm sinnum að hann hafi „yfirlit“ Matthíasar við höndina er hann samdi umfjöllunina er athyglisvert að þessi fyrstu drög Matthíasar Jochumssonar að sjálfskönnun sinni em skrifúð að öllu leyti á Þorstein. Sjá: Þorstein Gíslason: „11. nóv 1835 - 11. nóv. 1905.“ Matthias Jochumsson 11. nóvember 1835 - 11. nóvember 1905, bls. 7-51. 12 Það er öllu merkilegra að Matthías var við sama heygarðshomið í öðmm handritum sjálfsævisögunnar. Nöfh foreldra hans koma hvergi við sögu nema í neðanmálsgrein sonar hans í endanlegri útgáfú Sögukaflanna. Sjá Matthías Jochumsson: Sögukafla af sjálfum mér. Reykjavík, 1959, bls. 33. 13 Lbs 2803 4to - Matthías Jochumsson: „Söguþættir af sjálfúm mér, 1. þ.“, bls. 1; Matthías Jochumsson: Sögukaflar af sjálfum mér, bls. 11. 14 Lbs 2803 4to - Matthías Jochumsson: „Söguþættir af sjálfúm mér III“, bls. 1-2; Matthías Jochumsson: Sögukaflar af sjálfum mér, bls. 15. 15 Lbs 1543 4to - Matthías Jochumsson: „Um æfi mína, einkum bamæsku og vaxtarár", bls. 1. 16 Lbs 2804 4to - Matthías Jochumsson: „Smávegis 1906“. 17 Lbs 2804 4to - Matthías Jochumsson: „Smávegis 1906“, bls. 1 - 18. 18 Ritið er í heild 69 blaðsíður. Ljóðin em öll prentuð í Ljóðmœlum Matthíasar. Sjá: Matthías Jochumsson: Ljóðmœli. Urval. Ólafúr Briem bjó til prentunar. Reykjavík, 1980. 19 Þetta minnir óneitanlega á forvitnilegar vangaveltur Guðbergs Bergssonar í inngangsorðum hans að Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar. Guðbergur fríar sig hins vegar frá þessari afgerandi tvískiptingu með því að skeyta samanraunverulegum sjálfsævisögulegum atburðum og skáldskap. Hann segir: „Skáldskapur er ekki sannur vegna þess að efhið sem hann fjallar um hafi gerst í raun og vem og sé rétta jZtf. ^Sayttir Z006
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.