Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Page 39

Sagnir - 01.06.2006, Page 39
ric> fiorf cjsfen(finja tiícOúastnbóins iSyy-iyoz hvar í Evrópu, og meðal hluta almennings í Bretlandi var samúðin með Búum. Bretar voru víðast hvar harðlega gagnrýndir fyrir að sýna tveimur „siðmenntuðum“ smáþjóðum yfirgang. En hvemig litu Islendingar á málin? Viðtekin skoðun hefur löngum verið sú að stór hluti þjóðarinnar hafi verið mótfallinn stríðsbrölti Breta í Suður-Afríku. Hendrik Ottósson rifjaði það t.d. upp að í bamæsku sinni hefði ættjarðarástin miðast við Vesturbæinn. „Að vísu vomm við á móti Danskinum og í Búastríðinu á móti enskum."3 En var þetta afstaða meirihluta íslendinga? Hvaða ástæður höfðu íslendingar til að láta sér mislíka framganga Breta í Suður-Afríku? Hvað töldu þeir standa að baki styrjaldarrekstri Breta? Hvemig tengdust skoðanir Islendinga tilvemrétti smáþjóða? Töldu íslendingar að hugsanlegur ósigur Breta gæti haft víðtækari áhrif, jafnvel á íslandi? Auk þess að svara þessum spumingum, verður reynt að tengja blaðaskrif á íslandi við umræðuna á meginlandi Evrópu og á Bretlandi. Tcrsaqan Árið 16§2 stofnaði hollenska Austur-Indía félagið hafnarborg við Góðrarvonarhöfða. Þar settust einkum að hollenskir kalvinistar, þýskir mótmælendur og franskir húgenottar. Þessi sundurleiti hópur átti sér sameiginlegar andúð á Evrópu. Landnemamir nefndu sig „Afrikaners", íbúa Afríku, og töluðu sitt eigið mngumál, eins konar afbrigði af hollensku, sem þeir nefndu „Afrikaans". Hluti af landnemunum vom svokallaðir trekboers. Þeir vom fátækir bændur sem héldu norður í leit af nýjum sléttum og meira sjálfstæði. Árið 1806 geisaði stríð í Evrópu og sama ár lögðu Bretar undir sig Höfðaborg. Breska rikisstjómin reyndi að smðla að því að breskir þegnar tækju sér fasta búsetu á þessum slóðum, en án mikils árangurs. I huga flestra var þetta landsvæði sviðin auðn. Bremm var því nokkur vandi á höndum. Með yfirráðum sínum yfir Höfðanýlendunni réðu þeir siglingaleiðinni fyrir Góðrarvonarhöfða en nýlendan var byggð fólki sem hafði lítin áhuga á að láta Evrópuþjóð stjóma sér. Sá hópur sem lét hvað verst að stjóm vom Búamir. Árið 1834 hófst fyrsti flótti Búa frá nýlendunni. Ákvörðun Breta um að banna þrælaverslun fór fyrir brjóstið á þeim og leiðtogar þeirra boðuðu „Gönguna miklu“ (Great Trek), líkt og þegar Móses leiddi Israelsþjóð út úr Egyptalandi. Talið er að um 5000 Búar og álíka margir þeldökkir þjónar þeirra hafi lagt land undir fót og haldið yfir fljótin miklu, Vaal og Oranje, sem skildu Höfðanýlendu frá þurri hásléttu þar sem „villimannaþjóöfiokkar" höfðu ráðið um aldir.'1 Meðal þeirra fimm þúsund Búa sem þrömmuðu norður var ungur piltur að nafninu Paul Krttger. Hann á eftir að koma meira við sögu síðar. Búamir bám með sér vopn Evrópumanna og tóku til óspilltra málanna við að reka innfædda á undan sér. Þeir héldu ausmr á bóginn og bám sigurorð af Súlúmönnum. Bretar lögðu síðar undir sig þessi lönd og stoíhuðu árið 1843 nýlenduna Natal. Bretar héldu áfram og allt leit út fyrir að þeir myndu innlima landsvæði Búa í nýlenduveldi sitt í Suður-Afríku. En stjómarskipti í London komu í veg fyrir þær áætlanir. í staðinn viðurkenndu Bretar tvö sjálfstæð ríki Búa, Transvaal og Óraníufríríkið, með tveimur samningum 1852 og 1854. Hér hefði þessi saga getað endað ef ekki hefðu íundist demantar í iðmm hásléttunnar. Auðnin svonefnda var allt í einu orðin miklu verðmætari í augum Breta sem sýndu henni nú aftur mikinn áhuga. Bretar töldu sambandsriki besta kostinn og meðal Búa kom slík lausn til greina enda var fjárhagsstaða Transvaal slæm. Auk þess gerðu átök Búa við Súlúmenn það að verkum að ríkisstjóm Transvaal var tilbúin að ganga inn í slíkt ríkjasamband. Æstur múgur í Höfðaborg krafðist aftur á móti innrásar í landið. Bretar hemámu síðan Transvaal án mótspymu 1877 og sigmðu Súlumenn tveimur ámm seinna. Sigur Breta reyndist þó skammgóður vermir, því að Búar, undir forystu forseta Transvaals Pauls Krttgers, risu upp gegn Bretum og unnu frækinn sigur á herliði þeirra við Majuba-hæð árið 1880. William Gladstone, forsætisráðheixa Bretalands, ákvað að taka ósigrinum, kalla herinn heim og viðurkenna sjálfstæöi Transvaals að nýju, þó með þeim skilyrðum að Bretar fæm með yfimmsjón utanríkismála.5 ^E&drayancCi stri&s i ffu&ur-dTfjr'íffu Aðalhvatamaður að því að innlima lýðveldi Búa í Suður-Afríku var maður að nafni Sir Alfred Milner. Milner var Þjóðverji að faðemi og Englendingur að móðemi, fæddur í bænum Giessen í Þýskalandi. Hann var nokkuð klofinn í afstöðu til uppmna síns. Hann hélt mikið upp á Otto von Bismarck og Friðrik mikla, en einnig Oliver Cromwell og William Pitt yngri. Hann stundaði ungur nám við Oxford-háskóla, þar sem hann hlaut mikið lof. Að námi loknu gerðist hann embættismaður og tókst á undra skömmum tíma að klifra upp metorðastigann. Hann var að flestra mati áreiðanlegur, opinber embættismaður, sem naut fullkomins traust beggja stóm fylkinganna í breskum stjómmálum. Milner taldi mikilvægt að Bretar sfyrktu stöðu sína í Suður-Afríku. Þar byggju hvítir menn og í ljósi þess að aðrar nýlendur byggðar hvímm mönnum væru að fjarlægjast Bretland væri mikilvægt að Suður-Afríka færi ekki sömu leið.6 I íslensku blöðunum fór lítið fyrir umfjöllun um Sir Alfred Milner. Hann féll algjörlega í skuggann á nýlendumálaráðherranum, Joseph Chamberlain, sem oftast var kennt um upphaf Búastríðsins. Chamberlain hafði komið ár sinni vel fyrir borð, áður en hann gerðist stjómmálamaður en hann var verksmiðjueigandi í heimaborg sinni, Birmingham. I Austra var sagt að hann hafi verið „einn af helztu og atkvæðamesm borgarbúum“ Birmingham en svo hafi hann gerst svo ráðríkur, að það hafi orðið að orðtaki „að Joseph Chamberlain væri Birmingham og Birmingham Joseph Chamberlain.“7 Árið 1898 bjuggu um 36.000 „útlendingar“ í Transvaal en um 30.000 Búar. Samkvæmt lögum frá 1888 þurftu aðkomumenn að hafa búió og starfað í Transvaal í 15 ár til að öðlast ríkisborgararétt. Eigendur gull- og demantanáma á hásléttunni (Rand) vom aðkomumenn sem vildu nýta mátt „útlendinganna" til að ná völdum i Transvaal. Þannig mátti koma til leiðar lækkun á ýmsum sköttum sem Búar höfóu sett á námafyrirtækin. Kruger forseti var tilbúinn að koma til móts við hluta af kröfur þeirra, m.a. þá að fimm ára dvöl í Transvaal myndi tryggja ríkisborgararéttindi og námahéruðin fengju hærra hlutfall af þingsæmm á þjóðþingi Transvaals, þó að Búum væri eftir sem áður tryggður meirihluti sætanna.8 I þeim tilgangi að innlima ríki Búa í nýlenduveldi Breta í Suður- Afríku, tóku Bretar upp málstað „útlendinga" (Uitlanders) í Transvaal. Hugmynd Milners, sem Chamberlain smddi, var að setja forseta Transvaal, Paul Krtíger, skilmála um réttindi aðfluttra í Transvaal sem Búar gætu aldrei gengið að. Markmið Chamberlains og Milners var það sama: Innlima ríki Búa í nýlenduveldi Breta í Suður-Afríku. En aðferðin var ólík. Milner vildi fara hemaðarleiðina, á meðan Chamberlain vildi fara samningaleiðina.9 Öfugt við það sem íslensku blöðin töldu, þá var Chamberlain ekki sá sökudólgur sem þau töldu hann vera. Milner tókst ítrekað að hindra að vilji Chamberlains um samkomulagi við Transvaal næði fram að ganga. Um átta þúsund breskir hermenn vom sendir til Natals, sem átti landamæri að Transvaal, í von um að það mætti hræða Krttger til hlýðni. Þegar komið var fram á haust 1899, hafði Krttger gert upp hug sinn: Það þýddi lítið að semja við Breta, þeir virtust sjálfir ekki hafa samninga í huga. I október sendi hann bresku ríkisstjóminni úrslitakosti, sem hann vissi að Bretar gætu ekki sæst á, og frá 11. október 1899 vora Bretar, Transvaal og nágrannaríkið Óraníufríríkið í stríði.10 Leikaðferð Milners gekk fullkomlega upp, þ.e. að láta Búa ráðast inn í Natal að fyrra bragði. Chamberlain og bresku ríkisstjóminni var aftur á móti bragðið.11 Chamberlain var því líklega að ósekju sakaður um að vera upphafsmaður átakanna í íslensku blöðum. Maðurinn á bak við tjöldin, Milner, slapp við gagnrýni þeirra. ísafold uppnefndi Chamberlain prangarann og sagði hann geta „orðið mikilmenni alt í einu fyrir ófrið, sem er svo lymskulega vakinjn], að þjóðin enska fær ekki að vita sannleikann um upptök hans fyr en um seinan.“ ísafold bætti því svo við að Chamberlain væri „tól í höndum guðsins Móloks, tól, sem er ólatt af hégómagimi, mjúkt af þrái, lipurt af drambi, haglegt af heimsku."12 Chamberlain var nefndur rólegur, heiðvirður þúsundamorðingi i Arnfirðingi 1901, og því var við bætt að honum munaði „ekki um þó hann sendi enn þá nokkrar þúsundir í dauðann til þess að breiða yfir þá lýgi, að stríðið stæði ekki um gullnámumar."13 frramy any ur TJ)ú astnðóins cy foffjoess Of langt mál yrði að rekja einstaka atburói í Buastríðinu en nauðsynlegt er að rekja gang átakanna í grófum dráttum. Búar hófu sókn sina inn í nýlendur Breta þann 12. október 1899 þegar herlið þeirra settist um ^Saynir 2.006
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.