Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Page 100

Sagnir - 01.06.2006, Page 100
Þó svo að jöfn réttindi verði bundin í lög er þó bjöminn ekki unninn. Eins og fyrmefnd dæmi um afstöðu sumra kirkjunnar manna sýna ríkir ekki um það fullkomin eining að jöfn réttindi samkynhneigðra og gagnkynhneigðra eigi að verða að vemleika. Það hlýtur því að vera von þeirra sem berjast fyrir jöfnum réttindum að þetta viðhorf eigi eftir að breytast í áranna rás. Mikið hefur breyttist í málefnum samkynhneigðra hér á landi, á tímabilinu milli 1975 til 2005. Hommar og lesbíur vom óviðurkenndur og ónefndur hópur samfélagsins og þessi orð vom skammaryrði sem naumast vom viðhöfð í návist bama. Að vissu leyti vom samkynhneigðir eins og holdsveikir á öldum áður, hinir ósnertanlegu. Nú mega samkynhneigðir staðfesta sambúð sína fyrir lögum og ættleiða böm maka sinna og kirkjan, sem áður fordæmdi þá, er með málefni samkynhneigðra á dagskrá, með semingi þó. Það tímabil sem hér hefúr verið tekið til utnfjöllunar markar upphaf sitt að mörgu leyti af því þegar Hörður Torfason lýsti því yfir að hann væri samkynhneigður í viðtali í tímaritinu Samúel árið 1975. Eins og leitast hefur verið við að varpa ljósi á hefúr mikið vatn mnnið til sjávar í umfjöllun um samkynhneigð og málefni henni tengdri, bæði hvað varðar orðalag og skoðanir almennings. Orðin samkynhneigð, hommi og leshía hafa á síðustu tveimur áratugum fest sig í sessi í tungumálinu á meðan orð á borð við kynvilla og kynvillingur þykja niðrandi. Skoðanakannanir sýna að almenningur hér á landi virðist almennt ekki vera fordómafullur í garð samkynhneigðra og meirihluti þjóðarinnar segist hlynntur því að samkynhneigðir megi gifta sig, ættleiða böm og njóta allra þeirra mannréttinda sem gagnkynhneigðir njóta. Þessar viðhorfsbreytingar má að stómm hluta þakka baráttumönnum og -konum fýrir auknum réttindum samkynhneigðra hér á landi, með starfsmenn Samtakanna '78 og annarra félaga samkynhneigðra fremsta í flokki. Auk þess gætir almennra viðhorfsbreytinga víða annarsstaðar í samfélaginu í átt að auknu frjálslyndi á ýmsum sviðum. Opnari umræðu um kynlíf má nefna í því samhengi. Baráttufólk samkynhneigðra gerði sér snemma grein fyrir því að sýnileikinn var þeirra helsta vopn í baráttunni, bæði gegn fáffæði og fordómum, enda hefúr árangurinn ekki látið á sér standa. Síaukin þátttaka almennings í Hinsegin dögum ár hvert er lýsandi dæmi um aukinn stuðning almennings við baráttumál samkynhneigðra. Ekki þarf að efast um þau áhrif sem aukinn sýnileiki í samfélaginu hefúr á fólk sem er að koma út úr skápnum. Margfoldun félagafjölda í Ungliðahópi Samtakanna '78 á árunum 2004 og 2005 sýnir að sýnileikinn verður seint ofmetinn hvað þetta varðar. Þegar alnæmi kom fram á sjónarsviðið á 9. áratugnum beindust spjótin að samkynhneigðum en vopnin til vamar voru þau sömu, sýnileiki og aukin umræða. Feluleikurinn og hræðslan við hinn óþekkta sjúkdóm viku fyrir opinni umræðu og auknu forvamarstarfi. Barátta samkynhneigðra fyrir því að fá að gifta sig, ættleiða og fara í tæknifrjóvganir til jafns við gagnkynhneigða hefúr verið helsta keppikefli Samtakanna '78 og annarra félagasamtaka síðan á 9. áratugnum. íslendingar hafa staðið framarlega í brautryðjendastarfi tengdu samkynhneigðum, á eftir Dönum og Hollendingum í röðinni en framar mörgum öðmm Evrópuþjóðum. Enn er þó talsvert í land þar til jafnrétti samkynhneigðra og gagnkynhneigðra telst hafa náðst fram hér á landi. Samkynhneigðir mega ekki gefa blóð í blóðbönkum, lesbíur mega ekki fara í tæknifrjóvgun og samkynhneigð pör mega ekki láta gefa sig saman í kirkjum. Verði fmmvarpið sem lagt verður fyrir Alþingi árið 2005 um aukin réttindi samkynhneigðra samþykkt í heild sinni má þó heita að samkynhneigðir hafi jafnan rétt á við gagnkynhneigða fyrir lögum. Þá yrði Island eitt af fyrstu löndum í heiminum að viðurkenna jafnan rétt samkynhneigðra og gagnkynhneigðra. Þó svo fmmvarpið verði að lögum em margir kirkjunnar menn sem mótmæla viðurkenningu á samkynhneigð sem eðlilegum hluta mannlífsins og enn heyrast raddir þeirra í þjóðfélaginu sem em ósáttir við þau réttindi sem samkynhneigðir hafa fengið og eiga að fá, verði títtnefnt fmmvarp að lögum. Baráttan stendur því enn yfir og er hvergi nærri lokið. Það er því í höndum samkynhneigðra og aðstandenda þeirra að halda merki sínu á lofti og hinna í þjóðfélaginu að taka vel á móti og halda umræðunni gangandi uns ekkert þykir eðlilegra en ástir samlyndra hjóna, sama hvers kyns þau em. cTífvísanir 1 „Gleðidagur á sorglegum gmnni.“ Morgunhlaðið. 1. júlí 1998. Bls. 52. 2 Stefán Jónsson „Um kynjarannsóknir“. Skímir: ný tíðindi hins íslenzka bókmenntafélags. 96. 1922. Bls. 98. 3 „Kynvilla á Islandi.“ Mánudagsblaðið. 23. nóvember 1953. Bls. 1. 4 „Kynvilla á íslandi", bls. 1. 5 Illugi Jökulsson o.fl. Island í aldanna rás 1900-2000. Saga lands og þjóðar ár frá ári. Sigríður Harðardóttir (ritstjóri) Ég held héma eigi að vera svigi, athugið hvort það er ekki rétt.. Reykjavík, 2003. Bls. 183- 84. 6 Þorvaldur Kristinsson. Hinsegin dagar. „Brot úr sögu samkynhneigðra a Islandi." Vefslóð: this.is/gaypride —> Hinsegin dagar —> Brot úr sögu samkynhneigðra á Islandi. 7 Þorvaldur Kristinsson. Samtökin '78. „Að hasla sér völl. Stutt ágrip af sögu samkynhneigðra á Islandi." Vefslóð: www.samtokin78.is. —> Greinar —> Að hasla sér völl.... 8 Stefán Jónsson. „Um kynjarannsóknir", bls. 98-99. 9 Illugi Jökulsson o.fl. Island í aldanna rás..., bls. 183-84. 10 „Það verður sprenging" Samúel. 3. tbl. 7. árgangur. Agúst 1975. Bls. 2-3, 20-21 og 26-27. 11 „Enginn tekur mark á skugganum," Tímarit Morgunblaðsins. 28. ágúst 2005. Bls. 19. 12 „Enginn tekur mark á skugganum.", bls. 19. 13 Þorvaldur Kristinsson. Samtökin '78. „Að hasla sér völl. Stutt ágrip af sögu samkynhneigðra á Islandi." Vefslóð: www.samtokin78.is. —> Greinar —> Að hasla sér völl.... 14 Þorvaldur Kristinsson. Samtökin '78. „Að hasla sér völl. Stutt ágrip af sögu samkynhneigðra á Islandi." Vefslóð: www.samtokin78.is. —> Greinar —> Að hasla sér völl.... 15„Kynvillingaveislurfærastmjögí vöxtíborginni. Afam/riag.s'ú/ad/V). 7. mars 1977. Bls. 2. 16 „Hommar virðast hafa meiri þörf fyrir fleðulæti en aðrir.“ Helgarpósturinn. 6. ágúst 1982. Bls. 17. 17 „Þessi fúndahöld em óæskileg.“ Helgarpósturinn. 16. júní 1983. Bls. 20 og 21. 18 „Varnauðgað afhomma“ Timinn. 29. júní 1986. Bls. 4 og 5. 19 Þorvaldur Kristinsson. Samtökin '78. „Að hasla sér völl. Stutt ágrip af sögu samkynhneigðra á íslandi." Vefslóð: www.samtokin78.is. —> Greinar —> Að hasla sér völl.... 20 „Konur sem elskast". Mannlif. Desember 1987. Bls. 66. 21 Hafliði Kristininsson, Samúel Ingimarsson, Eric Guðmundsson, Knut Gamst, Friðrik Ó. Schram, Asmundur Magnússon, Gunnar Þorsteinsson, Magnús Bjömsson og Halldór Gröndal. „Löggjöf sé byggð á kristnu siðferði." Morgunblaðið. 14. febrúar 1996. Bls. 11. 22 „Meirihluti hlynnúar hjónaböndum samkynhneigðra". Moigunblaóið. 22. júlí 2003. Bls. 9. 23 Gallup. Vefslóð: www.gallup.is —> Viðhorfsrannsóknir —> Þjóðarpúls —> 2004 —> Meirihluti vill leyfa giftingar samkynhneigðra. - „Viðhorfið til hjónabands samkynhneigðra". Morgunblaðið. 1. júlí 2004. Bls. 22. 24 „Það sem ekki er talað um er ekki til.“ Morgunblaðið. 1. mars 2005. Bls. 9. 25 „Samkynhneigð til skoðunar í aðalnámsskrá.“ Morgunblaðið 5. mars 2005. Bls. 6. 26 Stefna Háskóla Islands gegn mismunun. Samþykkt á Háskólafundi 18. febrúar 2005. Háskóli Islands. Vefslóð: www.hi.is —> Um H.I. —*> Stefnumál Háskóla Islands —> Stefna gegn mismunun. Bls. 6. 27 Þóra Björk Hjartardóttir. „Baráttan um orðin. Orðanotkun tengd samkynhneigð". Islenskt mál og almenn málfræði. 26. árgangur. Reykjavík, 2004. Bls. 83-84. 28 Þóra Björk Hjartardóttir. „Baráttan um orðin.“, bls. 104. 29 Þóra Björk Hjartardóttir. „Baráttan um orðin.“, bls 101-105. 30 „Orðið kynvillingur ekki notað.“ Morgunblaðið. 12. apríl 2005. 9S ‘^Saanir doo6 Bls. 2.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.