Fréttablaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 77
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚAR Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Sláturhúsið Hellu hf. og Kaupfélag Skagfirðinga svf. óska eftir að ráða markaðs- og sölustjóra fyrir
Suðurland með aðsetur á Hellu.
Upplýsingar veita:
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Sigurjón Þórðarson
sigurjon@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 5. janúar nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Umsókn þarf að fylgja ítarleg
starfsferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir hæfni í
starfið og ástæðu umsóknar.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Byggja upp viðskiptasamband við sunnlenska bændur með
reglulegum heimsóknum
• Gera samninga við birgja sem bjóða vörur til bænda
• Móta markaðs-, kynningar- og auglýsingamál fyrir starfsemina
• Þróa og innleiða viðskiptamannakerfi sem hentar
• Taka þátt í stefnumótun sölustarfs KS samstæðunnar í
þjónustu við bændur
• Árangur af starfinu sé mælanlegur og framsettur mánaðarlega
í tölum og myndum
• Kynna sér og viðhalda þekkingu á afurðum hefðbundins
búskapar og helstu rekstrarvara sem hann notar
Markmið starfs:
Efla afurðaviðskipti við sunnlenska bændur fyrir Sláturhúsið Hellu hf. Auka þjónustu og vöruframboð rekstrarvara fyrir
landbúnað. Byggja upp þekkingargrunn og viðskiptasögu við bændur.
Kröfur um hæfni (þekking, færni, eiginleikar):
• Þekking og brennandi áhugi á landbúnaði
• Mikil reynsla af sölustjórnun og sölumennsku
• Samstarfs- og samskiptahæfni
• Frumkvæði, þjónustulund, skipulagshæfni og ögun í
vinnubrögðum
• A.m.k. stúdentspróf, iðnmenntun eða sambærileg menntun
• Menntun á sviði búfræði, verkefnastjórnunar, markaðsfræði,
dýralækninga eða ráðunautastarfs er kostur
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Markaðs- og sölustjóri
Íslandsstofa leitar að verkefnisstjóra á svið iðnaðar og þjónustu/ráðgjafar og fræðslu.
Upplýsingar veita:
Katrín S. Óladóttir
katrin@hagvangur.is
Kristín Guðmundsdóttir
kristin@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 8. janúar 2015.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Kraumar í þér kraftur?
Hlutverk Íslandsstofu er að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja
samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum og
laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins. Jafnframt veitir
Íslandsstofa fyrirtækjum faglega aðstoð við sölu á vörum, þjónustu
og þekkingu erlendis og styður við kynningu á íslenskri menningu ytra.
Kröfur um menntun og hæfni
• Háskólapróf og reynsla sem nýtist í starfinu
• Góð tungumálakunnátta – gott vald á skrifuðu máli,
bæði á íslensku og ensku
• Reynsla af verkefnastjórnun, markaðssetningu og
alþjóðasamskiptum
• Sjálfstæði, frumkvæði, samskiptahæfni, jákvæðni og
hugmyndaauðgi
• Reynsla af og hæfni til að halda kynningar og námskeið
Ábyrgð og helstu verkefni
• Ber ábyrgð á skrifuðum texta sviðsins á vef Íslandsstofu
• Ber ábyrgð á mælingum sviðsins á vef Íslandsstofu
• Umsjón með gagnaöflun og textavinnu á öllu útgefnu markaðsefni sviðsins
• Umsjón með samskiptum við sendiráð Íslands og viðskiptafulltrúa
• Tengiliður Íslandsstofu í Evrópuverkefninu Enterprise Europe Network
• Tengiliður með aðgengi að gagnabönkum og svörun fyrirspurna
• Umsjón með námskeiðum og vinnustofum
Verkefnisstjóri
Verkefnisstjóri tekur þátt í að efla útflutnings- og kynningarstarfsemi sviðsins.
Síðumúla 5 108 Reykjavík sími 511 1225 www.intellecta.is
ráðgjöf ráðningar rannsóknirÓskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs. Þökkum viðskipti
og samstarf á árinu.
Ráðgjafar Intellecta