Fréttablaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 131
LAUGARDAGUR 20. desember 2014 | MENNING | 103
Kvikmyndir
20.00 Jólasýning Svartra sunnudaga í
Bíói Paradís. Edward Scissorhands og
The Nightmare Before Christmas í
þrívídd.
Bókmenntir
21.00 Camerarctica heldur sína árlegu
kertaljósatónleika í Hafnarfjarðarkirkju.
Aðgangseyrir er kr. 2.500 og kr. 1.500
fyrir nemendur og eldri borgara. Frítt er
inn fyrir börn.
23.00 Magnús R. Einarsson, Ásgeir
Óskarsson og Tómas M. Tómasson
halda tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da.
Síðustu forvöð
13.00 Opið í Tveimur hröfnum listgall-
eríi og síðan verður lokað yfir jólin.
Verk til sýnis & sölu eftir Hallgrím
Helga, Húbert Nóa, Jón Óskar, Óla G.,
Ragnar Þórisson, Steinunni Þórarins,
Guðbjörgu Lind, Huldu Hákon, Söru
Oskarsson, Nínu Tryggvadóttur ásamt
Kristjáni Davíðssyni.
15.00 Lokahóf sýningar Daníels Björns-
sonar, Bismút, í Kling & Bang galleríi.
Einnig verður fagnað útgáfu á ritinu
Hugleiðingar um verk Daníels Björns-
sonar og annað, sem byggt er á við-
tölum sem Ingibjörg Sigurjónsdóttir tók
við Daníel í tilefni sýningarinnar.
Opið hús
12.00 Jólaþorp Hafnarfjarðar opnað.
Kór Öldutúnsskóla syngur klukkan hálf
tvö og Gaflarakórinn klukkan tvo. Jóla-
sveinar verða á rölti til fjögur, klukkan
hálf þrjú syngur Stefán Hilmarsson, frá
þrjú til fjögur er útijólaball og svo spilar
Kvartett 105 klukkan fjögur.
18.00 Opið hús í Aðventkirkjunni í
Reykjavík á Ingólfsstræti 19. Sýningin
Hvíld, söngur, heitt að drekka og smá-
kökur í safnaðarheimilinu.
Tónlist
22.00 vRONG þeytir skífum á Brooklyn
Bar.
23.00 Curver Thoroddsen, dj. flugvél
& geimskip, DJ. Myth and Lazybones,
Fufanu og it is magic þeyta skífum á
Paloma.
Bækur
14.00 Notaleg sögustund fyrir yngstu
börnin og fjölskyldur þeirra í Borgar-
bókasafninu. Katrín Ósk Jóhannsdóttir
rithöfundur mun lesa úr bókum sínum
Karólína og eggið og Karólína og týndu
skórnir. Boðið verður upp á heitt kakó
og smákökur.
Myndlist
14.00 Duldýrabazar opnar í Bíói Para-
dís. Hægt er að kíkja á málverkin eða
næla sér í bækur og prentmyndir.
14.00 Fyrsta árs nemar í myndlist sýna
ýmis verk frá haustönn í Kaffistofunni á
Hverfisgötu.
16.00 Teiknimessa í Týsgalleríi. Verk
á pappír til sýnis og sölu eftir Baldur
Geir Bragason, Björk Guðnadóttur,
Davíð Örn Halldórsson, Guðnýju Guð-
mundsdóttur, Harald Jónsson, Kristínu
Eiríksdóttur og Steingrím Eyfjörð. Fleiri
bætast við.
Markaðir
11.00 POPUP VERZLUN heldur nú upp
á hátíðarnar með veigamiklum jóla-
hönnunarmarkaði í Porti Hafnarhússins
um helgina. Mismunandi blanda hönn-
uða verður um helgina og því úr mörgu
að velja í jólapakkann í ár. Reykjavík
Fashion Festival mun kynna hátíðina
sína sérstaklega, Reykjavík Roasters
setur upp kaffihús, Blómanáttúra mun
vera með blómaskreytingar, jólavættir
og góðir tónar verða einnig á staðnum.
14.00 Götumatarmarkaður KRÁS í
Fógetagarðinum. Básar verða settir upp
þar sem veitingamenn selja gestum
götumatarútgáfur af þeim mat sem
þeir eru þekktir fyrir á stöðunum.
14.00 Ferðaleikhúsið Light Nights er
með stóran flóamarkað að Baldursgötu
37, á jarðhæð, gengið inn Lokastígs
megin. Fatnaður á alla fjölskylduna,
skór, leikföng, skrautmunir, skartgripir,
verkfæri, myndir, antíkmunir, frábærar
jólagjafir og fleira.
16.00 Komið er að síðasta aðventuupp-
lestri vetrarins á Gljúfrasteini. Þeir höf-
undar sem koma fram að þessu sinni
eru þau Hjörtur Marteinsson, Oddný
Eir Ævarsdóttir, Soffía Bjarnadóttir,
Þórarinn Eldjárn og Þórdís Gísladóttir.
Ókeypis inn.
Tónlist
17.00 Andrea Jónsdóttir leikur og
kynnir jólalög úr ýmsum áttum á Ob-
La-Dí-Ob-La-Da.
Leiðsögn
14.00 Leiðsögn um sýninguna Silfur
Íslands í Þjóðminjasafninu í allra síð-
asta sinn. Sýningunni lýkur um áramót
en það er Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir
sýningarstjóri sem veitir leiðsögnina.
Við gerð sýningarinnar var leitast við
að beina sjónum að hinum mismun-
andi aðferðum við silfursmíði en um
leið að setja búningasilfur, borðbúnað,
silfurskildi og kaleika fram á nýstár-
legan hátt.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt
að skrá þá inni á visir.is