Fréttablaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 93

Fréttablaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 93
KYNNING − AUGLÝSING Leiga og eignaumsjón20. DESEMBER 2014 LAUGARDAGUR 3 Páll Þór Ármann, markaðs-stjóri Eignaumsjónar, segir að mikil umræða hafi verið um fasteignamarkaðinn og stór- ir aðilar verið að fjárfesta í íbúð- arhúsnæði. „Mikill vöxtur hefur verið á fasteignamarkaðinum undanfarið. Sú umræðan hefur að okkar mati þó mikið mótast af fasteignamarkaðinum sem fjár- festingarkosti,“ segir Páll Þór og bætir við að hjá Eignaumsjón líti menn á aðra hlið málsins. „Við horfum á þetta þannig að til þess að fjárfestingin skili arði þurfi að halda vel utan um viðhald og rekstur,“ segir hann. Margra ára reynsla „Eignaumsjón hefur ekki farið varhluta af þessari þróun á fast- eignamarkaði en félagið hefur sérhæft sig í að þjónusta fast- eignaeigendur á margvísleg- an hátt með heildarlausnir í rekstri og rekstrarumsjón fast- eigna. Eignaumsjón hefur ára- langa reynslu í rekstri fasteigna og félaga sem tengjast fasteign- arekstri og er fyrsta fyrirtæk- ið sem sérhæfir sig í rekstri fjöl- eignahúsa. Við hófum starfsemi árið 2001 og erum því að nálgast 15 ára starfsafmæli. Með reynslu okkar má segja að við þekkjum til flestra þeirra mála sem upp geta komið við rekstur fjöleignahúsa, hvort sem um er að ræða íbúð- arhúsnæði eða atvinnuhúsnæði og komum að faglegri lausn fjöl- margra ólíkra mála. Markmið okkar er að gera rekstur hús- eða rekstarfélagsins markvissari og ódýrari og auðvelda stjórnunar- störf með því að spara tíma þeirra sem að rekstrinum standa,“ segir hann. „Meginþjónustusvið okkar er umsjón með rekstri sameignar í fjölbýlishúsum, það er rekstrar- umsjón húsfélaga, en við erum einnig með atvinnuhúsnæði í rekstrarumsjón á fjölmörgum stöðum. Einnig bjóðum við upp á umsjón með leigufélögum en slík- um félögum hefur fjölgað mikið,“ segir Páll Þór. Rekstur húsfélaga „Þjónusta við rekstur húsfélaga hefur aukist mikið og almennt viljum við meina að stærri hús- félög eigi að hafa utanaðkomandi aðila eins og Eignaumsjón til að halda utan um ákveðna þætti í rekstrinum, fagaðila sem þeir geta treyst við daglegan rekstur og leit- að til við lausn ýmissa vandamál sem upp koma. Húsfélög nýta sér mismunandi þjónustuleiðir en við bjóðum upp á þrjár mismunandi leiðir allt eftir hversu mikilli þjón- ustu menn kalla eftir. Sífellt f leiri kjósa að hagnýta sér þjónustuna og þann stöðugleika sem henni fylgir.“ Rekstur atvinnuhúsnæðis Páll Þór segir að mikill vöxtur hafi verið í þjónustu við atvinnuhús- næði, bæði hvað varðar húsfélög eigenda en einnig rekstrarfélög notenda. „Við höfum stigið inn í slíkan rekstur og boðið félögum að vera undir okkar handleiðslu og í raun nokkurs konar fram- kvæmdastjórn. Slíkt léttir veru- lega á fyrirtækjunum sem geta þá einbeitt sér að sinni starfsemi og látið okkur um rekstur sameign- arinnar.“ Umsjón leigufélaga „Eignaumsjón hefur sérhæft sig í umsjón leigufélaga með þekkingu á þörfum þessara aðila. Markmið- ið er að auðvelda og einfalda fast- eignaeigendum útleigu og rekstur fasteigna og hámarka þannig arð eignarinnar,“ segir Páll Þór. Rekstur fasteigna er mikilvægur Mikil gróska hefur verið á leigumarkaði undanfarið og fjölmörg leigufélög orðið til sem leigja út húsnæði, jafnt íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Eignaumsjón er fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í umsjón slíkra félaga með þekkingu á þörfum þessara aðila. Markmiðið er að auðvelda og einfalda fasteignaeigendum útleigu og rekstur fasteigna og hámarka þannig arð eignarinnar. Páll Þór Ármann segir að halda þurfi vel utan um viðhald og rekstur til að fasteign skili arði. Páll Þór Ármann hjá Eignaumsjón. Páll Þór Ármann segir að Eignaumsjón sérhæfi sig í umsjón leiguíbúða og atvinnuhús- næðis. MYND/STEFÁN Við lánum 1.500.000 kr. aukalega til þeirra sem eru að kaupa sér húsnæði í fyrsta skipti.* Að kaupa húsnæði er stór ákvörðun og því um að gera að vega og meta alla kosti í stöðunni. Húsnæðislána- ráðgjafarnir okkar hafa víðtæka reynslu og góðan skilning á aðstæðum ungra fasteignakaupenda og geta því gefið þér góð ráð. Ræddu við húsnæðislánaráðgjafa í næsta útibúi. *Heildarlánveiting bankans að meðtöldu viðbótarláni er þó að hámarki 90% af kaupverði. Lántakandi þarf að standast greiðslumat og uppfylla aðrar útlánareglur bankans. Veittur er helmingsafsláttur af lántökugjöldum til þeirra sem eru að kaupa í fyrsta sinn. Lántakandi þarf að greiða kostnað við greiðslumat, skjalagerðargjald, þinglýsingargjald og, ef við á, kostnað við veðbanda- og lánayfirlit. Á www.islandsbanki.is getur þú reiknað mánaðarlegar afborganir, árlega hlutfallstölu kostnaðar og heildarkostnað. islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook Ertu að hugsa um að kaupa þína fyrstu fasteign? Húsnæðislán 50% afsláttur af lántökugjöldum við kaup á fyrstu eign er veittur til áramóta E N N E M M / S ÍA / N M 6 3 9 4 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.