Jökull - 01.12.1983, Blaðsíða 163
vörtum var svo haldið að Þórðarhyrnu. Þar sem
færið var nú orðið afar þungt vegna sólbráðar fórum
vtð vestan við hrygginn, sem Hyrnan er upp úr og
skildum farangurinn eftir er komið var á móts við
Hyrnuna og brunuðum á lausum sleðunum alveg
upp að efstu brekku suðvestan megin og gengum
upp. Af Þórðarhyrnu var geysimikið útsýni, enda
telur Pétur Þorleifsson hana „eitt allra besta út-
sýnisfjall á Vatnajökli", og sáum við í litlum sjón-
auka allt vestur á Botnssúlur, Hlöðufell og fjöllin við
Langjökul. I austri sáum við Mávabyggðir, Mikil
og Þuríðartind, Oræfajökul og Skaftafellsfjöll voru í
þoku, en hreinsuðust áður en haldið var niður. Með
berum augum sáum við skálann og nýja mastrið á
Svíahnúk eystri, en Kverkfjöll sáum við ekki vegna
þoku er lá norðan til á jöklinum. A Þórðarhyrnu
dvöldum við í 2-3 klst. í sólbaði og við landslags-
skoðun. Síðan var haldið niður að farangri og tjald-
að því að ekki þótti ráðlegt að halda áfram í svo
þungu færi. Lögðum við okkur í um 2 klst. en ekki
tókst öllum að sofna. Um kl. 18 byrjaði að frysta og
var ákveðið að taka sig upp og halda á Grímsfjall.
Ekið var eftir áttavita því að þoka var lögst yíir og
komið snjóíjúk. Rétt um leið og stefnubreyting var
gerð norðan Háubungu rákumst við á slóð eftir
Grímsvatnaleiðangur Jörfi, se'm var á ferðinni rúmri
viku áður og gátum við fylgt henni það sem eftir var
að skálanum á Svíahnúk eystri.
A þriðjudaginn voru íshellarnir við Saltarann
skoðaðir og fundum við þar gufubað er þeir Jörfa-
menn höfðu útbúið. Eitthvað hafði inngangurinn í
hellana breyst því að við gátum ekki fylgt göngustíg
í hellunum sem hafði greinilega verið aðalinn-
gangurinn rúmri viku áður. Sést á því hve fljótt
þetta getur breyst. Síðan var ekið niður í Vötn að
Vatnshamri. Undir honum var allstór tjörn og lá
gönguslóð þvert yfir norðurhluta á henni um sex
metrum sunnan við enda hennar. Hafði vatnið því
stækkað talsvert frá því þarna hafði verið gengið
fyrir um hálfum mánuði. Um kvöldið varsvoekið til
Kverkfjalla og tók ferðin um 3 1/2 klst. Ekið var eftir
áttavita því þoka var yfir jöklinum fyrstu tvo þriðj-
ungana af leiðinni, en eftir það fór að móta fyrir
Kverkfjöllum. Um miðnætti gengum við niður í
ketilinn austan við skálann. Brekkan niður að vatn-
inu var mikið til auð og reyndist auðveld niður-
göngu. Neðan við hana tók við nokkuð breitt, flatt
fjöruborð er vætlaði sjóðheitt vatn upp úr. Handan
vatnsins blasti við þverhníptur ísveggur sem hrundi
úr annað slagið með tilheyrandi hávaða og gusu-
gangi. Láta mun nærri að samfelldur ísveggur hafi
umlukið um helming vatnsins eða rúmlega það, en
Mynd 4. Setið að snæðingi í hinum vistlega skála
JÖRFI í Kverk§öllum. Ljósm.: Bragi Hannibals-
son.
hinn helminginn brattar auðar hlíðar. Sjálft vatnið
var íslaust að kalla.
A miðvikudag, sem var 17. júní, ókum við yfir á
Austurfjöllin, gengum á 1920 m hnjúkinn og hnjúka
nvrst á Austurfjöllunum. Einnig var ekið um
Vesturfjöllin og gengið á hnjúka við Kverkina.
Valdimar ók svo hringinn í kringum ketilinn og var
aðeins örmjór hryggur milli sprungna frá katlinum
annars vegar og Kverkjökulsins hins vegar. Að lok-
um var gengið í Hveradalinn efri og upp á hrygginn
vestan hans. Svo var snjórinn lítill við skálann að
aka varð yfir 15-25 m autt haft vestan undir bæjar-
hólnum, til þess að komast norður á Vesturfjöllin og
er þetta verulegur munur frá því er ég kom þarna
um mánaðamótin maí-júní 1977. Þá varaðeins koll-
urinn á hólnum auður og vatnið í katlinum alþakið
jökum svo að hvergi sá í auða vök. Um kvöldið var
svo ekið eftir slóðinni okkar frá kvöldinu áður á
Grímsfjall oggist þarog tóksú ferð um 2 l/4klst. Kl.
5 var vaknað og búist til ferðar heim. Hrímþoka var
þegar litið var út fýrst, en rétt áður en við lögðum af
stað birti og sást þá vel til Öræfajökuls og Esjufjalla.
Heimferðin gekk vel af því að við höfðum slóð Jörfa
að aka eftir. Ekki þótti ráðlegt að fylgja slóðinni alla
leið svo við breyttum um stefnu er við höfðum ekið
um 35 km frá Svíahnúk eystri og komum á okkar
slóð eftir um 3 1/2 km akstur og fylgdum henni það
sem eftir var og tók ferðin frá Svíahnúk niður á
jökulrönd um 4 klst. Er við höíðum komið sleðum og
farangri fyrir var ekið í Jökulheima og borðað. Síðan
var ekið heirn og skoðaður gígur norðaustan Þóris-
tinds og Hrauneyjafoss hinn nýi í leiðinni. Komið
var til Reykjavíkur um kl. 21 eftir mjög skemmtilega
og velheppnaða ferð.
Bragi Hannibalsson.
JÖKULL 33. ÁR 161