Tölvumál - 01.06.2006, Qupperneq 6
6 | T Ö LV U M Á L T Ö LV U M Á L | 7
Efnisgáttir Og Vodafone og Símans nefnast annars vegar Vodafone live! og
hins vegar Dælan en grunnurinn á bak við tæknina er svokölluð EDGE tækni
- Enhanced Data Rates for Global Evolution - sem margfaldar flutningsgetu
í farsímum viðskiptavina. „Til að senda og sækja efni frá farsímum er notast
við nokkrar mismunandi gerðir af burðarlagi. SMS hefur hingað til verið
mikilvægasta burðarlag fyrir gagnaflutning í GSM og þjónað mörgum gerðum
af þjónustu. Á síðustu árum hafa bæst við nýir möguleikar eins og GPRS
og Edge – EGPRS - sem bjóða mun hraðvirkari flutning á gögnum. Ofan
á þessi tvö burðarlög eru sett „hærri“ samskipti eins og samskipti við vafra,
flutningur á MMS skeytum eða samskipti við önnur forrit í GSM tækinu. Með
GPRS og EDGE eru símtækin að tengjast við Internetið yfir pakkaskipta
samskiptamáta IP og þá má segja að Internetið sé komið í farsímann.
Næsta kynslóð farsímakerfa, þ.e. 3. kynslóðin, mun svo hafa ennþá hraðari
gagnaflutning,“ segir Eva.
Mismunandi leiðir eru í boði til að kaupa þá afþreyingu sem símafyrirtækin
bjóða upp á í gegnum GSM síma. Viðskiptavinir Símans geta t.d. sótt efni
segja upplýsingafulltrúar Og Vodafone og Símans
Í samræmi við aukna tækni á sviði GSM síma hefur vöruframboð á ýmis konar þjónustu fyrir
notendur vaxið til muna síðastliðin misserin. Efnisgáttir fyrir GSM síma gera notendum kleift
að ná í fjölbreytta þjónustu í gegnum GSM símann, svo sem myndskeið, fréttir, tölvuleiki, MP3
hringitóna og margt fleira. Að sögn þeirra Evu Magnúsdóttur, upplýsingafulltrúa Símans, og
Gísla Þorsteinssonar, upplýsingafulltrúa Og Vodafone, njóta efnisgáttir fyrir GSM síma mikilla
vinsælda á meðal fólks í ýmsum aldurshópum og sjá þau fram á spennandi tíma á þessu sviði
þar sem þróunin sé afar hröð.
gegnum Netið í GSM símanum, með VIT valmynd eða sent SMS á ákveðið
þjónustunúmer til að panta þjónustuna en Eva segir að mesta úrvalið sé í
gegnum Netið, annað hvort í GSM símanum eða í tölvunni. Og Vodafone
er hins vegar með sérstaka Vodafone live! GSM síma sem þarf til þess að
notfæra sér þjónustuna. „Um er að ræða hefðbundna GSM síma nema að
þeir gera notendum sínum einnig mögulegt að tengjast Vodafone live!. Með
Vodafone live! er hægt að sækja mikið úrval af innlendum og erlendum MP3
hringitónum, skoða mörk úr ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu,
nýjustu farsímaleikina, fréttir frá NFS og margt fleira,“ segir Gísli.
Hæsta verð 499 krónur
Spurð um verð á þjónustunni segja Eva og Gísli að hringitónar, skjá- og
hreyfimyndir kosti að hámarki 199 krónur en hæsta verð á leikjum sé 499
krónur. „Verðið er í raun misjafnt eftir um hvaða efni er að ræða og í hvaða
gæðum það er,“ segir Eva og að sögn Gísla eru oft tilboð til notenda sem geri
þeim mögulegt að kaupa þjónustu á lægra verði.
Efnis
// G
ísl
i Þ
or
ste
ins
so
n h
já
Og
Vo
da
fon
e
// E
va
M
ag
nú
sd
ótt
ir h
já
Sí
ma
nu
m
njóta mikilla vinsælda
//Viðtöl: Halldór Jón Garðarsson