Tölvumál - 01.06.2006, Síða 18
1 8 | T Ö LV U M Á L T Ö LV U M Á L | 1 9
Vaxandi sala á margbrotnum markaði
Greiningarfyrirtækið DFC Intelligence telur á árinu 2005 að sala á
tölvuleikjum og leikjatölvum hverskonar á heimsvísu hafi numið 28,5 milljarða
dollara. Tímaritið The Economist greindi nýverið frá því að sala á tölvuleikjum
í Bandaríkjunum einum hefði numið 20 milljörðum dollara á árinu 2004 og
er það meira en miðasala í kvikmyndahúsi nam þar í landi það árið. DFC
Intelligence telur að salan verði komin upp í 42 milljarða dollara árið 2010.
Leikjaframleiðendur reyna stöðugt að finna leiðir til að höfða til neytenda
og hægt er að spila ótal tegundir af tölvuleikjum, menn geta tekið þátt í
söngvakeppni, stýrt stórstyrjöldum eða einfaldlega lagt kapal.
Vaxandi hluti af nútímamenningu og lifnaðarháttum
Tölvuleikir hafa ekki notið sömu virðingar og tónlist eða kvikmyndir. Þetta mun
sjálfsagt breytast enda sýna bandarískar rannsóknir tölvuleikjaframleiðanda
að meðalaldur þeirra sem spila tölvuleiki er 30 ár. 43% þeirra sem spila
tölvuleiki eru á aldrinum 18 – 49 ára en 35% þeirra sem spila tölvuleiki eru
yngri en 18 ára. BAFTA verðlaunin bresku munu framvegis verða veitt fyrir
tölvuleiki og hið árlega World Cyber Games alþjóðamót í tölvuleikjum sem
síðast haldið var í Singapore í fyrra verður sífellt vinsælla. Meira en 1,2
milljón manns tóku þátt í forkeppninni í 67 löndum og verðlaunafé sem gefið
var af Samsung og Intel nam meira en 2,5 milljón dollurum. Ekki má gleyma
Cyberathelete Professional League (CPL) og CPL world tour þar sem lið frá
öllum heimshornum keppa um verðlaunafé sem getur numið upp í 1 milljón
dollara fyrir hverja keppnisgrein.
Talið er að 300 milljón manns um allan heim stundi tölvuleiki á Netinu og í
Nýjar leikjatölvur á leiðinni á markaðinn og
netspilun verður sífellt vinsælli
Það er ekki hægt að fjalla um stafræna miðlun, dreifingu og afþreyingu án þess að skoða
tölvuleikjaiðnaðinn. Íslendingar þekkja vel árangur íslenska leikjafyrirtækisins CCP með
fjölspilunarleik sinn EvE Online en tugþúsundir manna um allan heim stíga inn í annan heim
með því að taka þátt í geimævintýrinu íslenska.
nýlegri grein breska tímaritsins The Economist er talið að þessi fjöldi muni
tvöfaldast á næstu tíu árum. Nú líta auglýsendur þennan nýja miðil hýru auga
og frægt er orðið þegar Bandaríkjaher gaf út fullkominn tölvuleik, America´s
Army, til að fá ungt fólk til liðs við sig.
Vaxandi vinsældir á Íslandi
Hér á landi eru tölvuleikir vinsæl afþreying en eins og víðar í heiminum
virðast spilarar fremur vera karlkyns og í yngri kantinum. Innflutningur
á tölvuleikjum í formi geisladiska jókst um 62% á árunum 2000 – 2005.
Einungis eitt af hverjum tíu íslenskum heimilum er ekki með tölvu og fjögur
af hverjum tíu heimilum eru með leikjatölvu. Meira en átta af hverjum tíu
heimilum er með internettengingu. Næstum því átta af hverjum 10 karlkyns
internetnotendum á aldrinum 16-24 ára hafa spilað eða sótt sér tölvuleik,
náð í tónlist eða myndir af internetinu á árinu 2004. Samsvarandi hlutfall fyrir
kvenkyns notendur er 46%. Munur sem er á milli kvenna og karla hverfur í
aldurshópnum 55-74 ára.
Sveiflukenndur iðnaður
Tölvuleikjaiðnaðurinn er sveiflukenndur. Hver sveifla hefst með því að nýr
vélbúnaður, tölvur eða leikjatölvur eru settar á markaðinn. “Frumkvöðlar”
eru fyrstir til að tileinka sér nýja tækni og í kjölfarið fylgir fjöldinn og þá
lækkar verðið. Þegar mettun er náð hægist á sölu á vélbúnaði og leikjum
á meðan beðið er eftir nýjum leikjatölvum eða tækni. Stór hluti tölvuleikja
er framleiddur fyrir venjulegar heimilistölvur og mikið af endurnýjunarþörf
heimilistölva er vegna sífellt fullkomnari leikja.
Leikur einn
// Jón Heiðar Þorsteinsson