Tölvumál - 01.06.2006, Qupperneq 36
3 6 | T Ö LV U M Á L T Ö LV U M Á L | 3 7
Stöðug tilraunastarfsemi
Allir geta notið efnisins en hægt er að gerast áskrifandi að vefnum. Nýverið
bætti Þorsteinn við virkni vefsins og geta nú áskrifendur sótt eldra efni,
horft á efni á vefnum í fullri skjámynd og hlaðið niður efni frá vefnum í i-pod
spilara. ,,Gott verkefni þarf stöðuga framþróun og þetta er bara liður í því.’’
Hann bætir því við að hann hafi upphaflega lagt upp með að efnið myndi
lifa stutt á vefnum en áskrifendur vildu geta komist í eldra efni þegar þeim
sýndist svo. ,,Það þarf stöðugt að prófa sig áfram og sjá hvað virkar.”
Þúsundþjalasmiður að störfum
Þorsteinn sinnir öllum störfum á fjölmiðli sínum, er allt í senn, fréttamaður,
þáttagerðarmaður, myndatökumaður, klippari og hljóðmaður. ,,Ég fór af
stað í þetta verkefni svo ég gæti unnið efnið á eigin forsendum, ég vildi
ekki þurfa að vera háður neinum sérstökum reglum um tímamörk eða
efnistökum, nú eða auglýsendum.” Þorsteinn hefur látið þennan vefmiðil
vaxa á orðsporinu einu saman og
með honum stendur harður kjarni
eitt hundrað áhugasamra áskrifenda.
,,Þetta dugar til þess að standa undir
kostnaði eins og til dæmis hýsingu
og mér finnst mjög mikilvægt að
vera ekki háður auglýsendum eða
styrktaraðilum. Ég geri mér jafnframt
góðar vonir um að áskrifendahópurinn
fari stækkandi, nú þegar tímaritinu vex
stöðugt fiskur um hrygg. Það voru
margir sem litu á þetta sem tilraun,
sem það er alls ekki. Þetta líf. Þetta líf.
er veruleiki! ”
Hröð tækniþróun
Í byrjun lagðist Þorsteinn í mikla vinnu í að velja spilara sem nýttur var á
vefsetrinu með það fyrir augum að gera upplifun notenda sem besta, enda
segir hann markaðinn vera afar kröfuharðan. Quicktime spilarinn varð fyrir
valinu hjá Þorsteini, bæði vegna þess að afspilun er í miklum gæðum og
hann byrjar að spila efnið um leið og notandinn setur spilun af stað. Þar
að auki hefur hann mikla útbreiðslu þar sem flestir tölvunotendur hafa sótt
Quicktime spilarann með i-tunes hugbúnaðinum frá Apple. ,,Ég er mikill
fjölmiðlunar á Netinu
Makkamaður en ég hefði kannski valið eitthvað annað ef Quicktime hefði
ekki verið með þessa útbreiðslu. Það er greinilegt að þróunin er mjög hröð
í þessum efnum á Netinu núna. Windows Media spilarinn hefur stórbatnað
og svo er Flash 8 spilarinn væntanlegur en margir hafa miklar væntingar til
hans. Það er hreint frábært hvað Quick time 7 spilarinn er að skila miklum
gæðum, með H.264 pressun og það skilar sér mjög vel í I-pod. Þá má
svo tengja beint við skjá eða sjónvarp og horfa á efnið þar. Ég held að sú
sjónvarpstækni sem við erum að sjá núna, sé bara byrjunin, líkt og þegar
fyrstu módemin komu og hringdu inn með tilheyrandi óhljóðum.”
Vill meiri djörfung hjá vefmiðlum
Að sögn Þorsteins eru fjölmörg ónýtt tækifæri í miðlun á Netinu hér á landi.
,,Mér finnst menn ekki gera nægilega mikið af því að prófa sig áfram með
þennan miðil. Menn leyfa ekki sérkennum miðilsins og möguleikum hans
að njóta sín. Á Netinu er hægt að framleiða og birta efni jafn óðum en það
ríkir mikið tregðulögmál að koma efni að í öðrum miðlum. Það getur til
dæmis tekið marga mánuði eða jafnvel ár
að koma efni í sjónvarp og framleiðendur
bera oft lítið úr býtum. Þannig var þetta
með umfjöllunina um Ásu ömmu, ég gat
sýnt efnið strax á vefnum um leið og ég var
búinn að klippa það.“
Þorsteinn telur einnig að fréttamiðlun
á Netinu ætti oft að vera beinskeyttari
og meira miðuð við að sýna atburði um
leið og þeir gerast. ,,Það er alltof mikið
að því að endurskapa einhverskonar
bókasöfn á fréttamiðlunum, segja ítarlega
frá bakgrunni atburða en það vantar oft
að fara á staðinn og segja frá atburðum
og túlka þá um leið og þeir gerast. Þetta hefur reyndar breyst verulega
með tilkomu NFS fréttastöðvarinnar, sem getur sent beint út af vetttvangi
fyrirvaralítið. En ég held að menn ættu að líta á netmiðla, sem sjálfstæðan
veruleika, en ekki bara sem aukabúgrein við annan rekstur. Þetta er að
renna saman við sjónvarpið og dreifingin er á heimsmælikvarða, það
gildir einu hvort ég er í Madrid eða smáíbúðahverfinu í Reykjavík, efnið
er tiltækt, núna.’’
Fjölmiðlamaðurinn Þorsteinn J. Vilhjálmsson hefur haldið úti eigin veffjölmiðli á slóðinni www.thorsteinnj.is
undir heitinu Þetta líf. Þetta líf. síðan í ársbyrjun 2005. Á vefsetrinu hefur Þorsteinn sett fram svipmyndir úr
mannlífsflórunni í stuttmyndaformi og tekið á málefnum sem ekki hafa alltaf átt greiða leið í hefðbundnari
fjölmiðla. Kunnust er sjálfsagt umfjöllun Þorsteins um Ásu ömmu en heimildarmynd hans sem átti uppruna
sinn á vefnum var sýnd í Ríkissjónvarpinu og vakti mikla athygli og umtal. Vefurinn hefur hlotið upphefð
erlendis, var tilnefndur til Prix Europa fjölmiðlaverðlaunanna í september í fyrra.
Í eilífri leit
// Viðtal: Jón Heiðar Þorsteinsson