Tölvumál - 01.06.2006, Blaðsíða 41
4 0 | T Ö LV U M Á L T Ö LV U M Á L | 4 1
Á dögunum fékk Eyður upphringingu frá tengdamóður sinni sem var í miklum
vandræðum. Hún hafði nýlega fengið sér áskrift að stafrænu sjónvarpi hjá öðru
fyrirtækinu sem býður slíkar útsendingar en núna átti hún í vandræðum. Hún
gat ekki lengur nýtt VHS myndbandstækið sitt sem var af fínustu og flottustu
gerð fyrir nokkrum árum síðan, ekki heldur gat hún með góðu móti nýtt sér
DVD mynddiskaspilara sinn. Verst þótti henni að hafa misst út möguleikann á
því að horfa á aðra af ókeypis innlendu stöðvunum sem sjónvarpsunnendur á
höfuðborgarsvæðinu geta fylgst með.
Mágar Eyðs höfðu báðir gert atlögu að því að tengja VHS myndbandstækið
og ná inn fríu stöðinni en ekki haft erindi sem erfiði. Tengdamóðirin hafði lagst
í nokkra rannsóknarvinnu og taldi líklegt að það vantaði svokallað SCART
snúru á milli myndbandstækisins og sjónvarpsins.
Rétt er að taka fram að tengdamóðir Eyðs er lunkin við að nýta sér tæknina
og á til dæmis heimilistölvu með öflugri nettengingu sem hún nýtir sér við leik
og störf af miklum þrótti.
Kvíðahnútur myndaðist í maga Eyðs enda sá hann fram á mikla baráttu við
snúrur og græjur, eitthvað sem hann er ekkert sérstaklega fær í. En forsjónin
greip inn í, tengdamamma virtist skynja óróleika Eyðs og læddi út úr sér að
hugsanlega væri best að fá fagmann til að líta á þetta. Eyður jánkaði því enda
sjálfur í mestu vandræðum með að fá stafrænar útsendingar hjá sér til að
virka. Talið var leitt að öðru og sjónvarpssorgir voru geymdar þar til síðar.
Þjónusta sjónvarpsstöðva og símafyrirtækja hefur stóraukist þar sem hægt
er að fá fjölda innlendra og erlendra stöðva með því að fá afruglara sem
ýmist eru tengdir við örbylgjuloftnet eða við símalínu í gegnum beini (e.
Router). Nýlega kom myndveita (VOD) á markaðinn sem kemur í staðinn
fyrir heimsókn í myndbandaleigur. Myndveitur á Netinu eru einnig komnar til
sögunnar og lengi hafa netverjar stundað að dreifa og sækja mislöglegt efni
á Netinu.
Íslendingar eru duglegir að kaupa sér nýjustu tækni og horfa mikið á sjónvarp
og fjölmiðlafyrirtækin hafa mikla trú á getu hins almenna viðskiptavinar til
þess að nýta sér ýtrustu möguleika stafrænna sjónvarpsútsendinga. Fleiri
ætla sér inn á þennan markað með einum eða öðrum hætti. Internetfyrirtækið
Hive ætlar sér að hefja sjónvarpsútsendingar samkvæmt vefsetri þess
sjónvarpið
og Orkuveitan og Síminn vinna eða hafa unnið að breiðbandsvæðingu
heimilanna á höfuðborgarsvæðinu.
Eyður heyrði það meira segja haft eftir markaðsstjóra eins fjölmiðlafyrirtækjanna
að neytendur vildu fá fleiri myndlykla inn á heimili sín. Hvort þetta sé alveg rétt
haft eftir skal ósagt látið en tæknivæðingin heldur áfram af miklum krafti með
tilheyrandi fjölda nýrra tækja sem þarf að kunna á og tengjast. Eyði létti því
nokkuð þegar tilkynnt var um samkomulag 365 miðla og Símans um að dreifa
innlendum stöðvum hvors annars.
Fleiri en einstakar tengdamæður eiga væntanlega í vandræðum með að láta
tæknina virka eins og lagt er upp með. Flest heimili eiga VHS tæki, DVD tæki
og síðan bætast við afruglarar fyrir Digital Ísland frá 365 eða Sjónvarp yfir ADSL
sem Skjárinn býður. Í fyrrnefnda dæminu þarf að tengjast örbylgjuloftneti en í
síðarnefnda er tengst beini (e. Router). Mynd- og hljóðgæði ráðast af ýmsum
þáttum, til dæmis má nefna útstendingarskilyrði, tengingu við loftnet, virkni
búnaðarins sem nýttur er, tengingar í gegnum allskonar snúrur eða styrk og
gæði ADSL sambands ef við á.
Lendi sjónvarpsunnendur í vandræðum með þessi atriði og nái þeir
ekki að leysa úr þeim sjálfir þá þurfa þeir að leita á náðir fagmanna eða
þjónustufyrirtækja með tiheyrandi kostnaði og fyrirhöfn.
Það má heldur ekki gleyma því að þegar tengingu hefur verið náð þurfa
notendur að átta sig á notendaskilum fyrir stafrænt sjónvarp en Eyður
sem hefur bæði notað Skjáinn og Digital Ísland var í nokkra stund að átta
sig á hvernig þau áttu að virka. Í báðum tilfellum höfðu sveiflur vegna
útsendingarskilyrða fyrir örbylgjuloftnet og flökt á ADSL sambandi áhrif á
virkni viðmótsins, mynd- og hljóðgæði.
Eyði grunar í ljósi þessa að þeir sem nái að einfalda virkni, uppsetningu og
notendamiðmót stafræns sjónvarps fyrir sjónvarpsglápurum þessa lands
muni ná mestum árangri á markaðnum. Í ljósi þeirrar keppni sem er um hylli
neytenda hlýtur þetta verkefni að vera fjölmiðlafyrirtækjunum ofarlega í huga
eða hvað?
Það vonar Eyður að minnsta kosti enda bíður hann á milli vonar og ótta eftir
að heyra næst í tengdamömmu.
Að þurfa próf á
Eyður skrifar: