Tíminn - 23.12.1944, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.12.1944, Blaðsíða 1
I 1 Enn einu sinni eru blessuö jólin komin. Á hverju ári hefir pessi hátíð komið til okkar með birtu og yl og gleðiríkar stundir, mitt í dimmasta skammdegi vetrarins. Við höfum öll fengið að njóta jólanna sem börn, meðan við áttum pann eiginleika að geta fundið óumrœðilega gleði við litla tilbreytingu á fábreyttum kjörum og kringumstœðum. — Það er sagt, að fáir vilji sína barnœsku muna, og satt er pað, að mörg hugðarefni og tilfinningar bernskuáranna vilja dofna með hœkkandi aldri og árum, víkja úr huga^ okkar fyrir viðfangsefnum fullorðinsáranna. Og ýmsir hugsa víst sem svo, að ekkert af pví, sem mest áhrif hafði á pá í bernsku, geti komið aftur í sömu mynd og með sama krafti á fullorðinsárunum. En petta er ekki rétt. Til eru peir atburðir og til eru pœr stundir, sem mega verka með sama og sams. konar áhrifakrafti á okkur um œvina alla, jafnt á fullorðinsárum og efri árum sem á bernskuárunum, — ef við ekki harðlœsum hjörtum okkar fyrir peim. Slíkur atburður, slík stund, er jólahátíðin. Það má vera, að menn geti látið veraldarvafstrið deyfa áhrif hennar á huga sinn um lengra eða skemmra tímabil œvinnar. En áhrif hennar eru g eym<jl, en ekki gleymd. Þau segja til sín, pótt síðar sé. Þau koma, pau gagntaka okkur að nýju, áhrif jólanna, pegar hugur okkar öðlast pann nœmleika, sem hann áður átti. Jólaprá og jólahugur býr í djúpi hjart- ans hjá okkur öllum, um alla œvi, hvort sem við ger- um okkur pað Ijóst eða ekki. Hvað eru jólin? Hvað er hún, pessi hátíð, sem hefir markað áhrif sín dýpra í hjörtu mannanna en nokkur önnur helgistund okkar? Ég held, að enginh maður sé svo vitur og djúpskyggn, að hann geti til fulls útlistað hin leyndardómsfvllu áhrif jólanna. Jólin eru heilög haldin á milljónum heimila um víða veröld og svo hefir verið um aldaraðir. Þau eru haldin heilög við hin ólík- ustu kjör, meðal hinna ólíkustu manna og pjóða. Hinn ytri blœr peirra getur pví verið með mjög mismunandi móti. En dýpstu og varanlegustu einkenni peirra hafa alltaf verið hin sömu. Þegar ég nú sé jólagleði Ijóma á svip peirra, sem eiga við pœgindi og allsnœgtir að búa, pá minnist ég pess, að alveg jafn skœr og Ijómandi gleði skein í augum peirra, sem á löngu liðnum tímum lifðu sín jól í lágum bœ og fengu enga aðra jólagjöf en lítið kerti. Ytri viðhöfn fer jólunum vél, sé hún í hófi. Hún er viðleitni til að gefa jólunum sama blœ í hinú ytra, eins og pau háfa sjálf skapað hið innra í hjörtum okk- ar. Þegar við minnumst jólanna, eins og við höfum lif- að pau bezt, pá finnum við, að pau eru ímynd lífsins, eins og við getum hugsað okkur pað fegurst og full- komnast. Gleði og friður hið innra, samhugur og kœr- leiki meðal manna, pað er sú mynd af lífinu, sem jólin hafa skapað í huga okkar. Og yfir öllu hvílir æðri feg- urð. Það er sem Ijós og máttur streymi til okkar frá himindjúpum tilverunnar. Og pá kemur boðskapur jól- anna ósjálfrátt fram í huga okkar, sá boðskapur, sem hljómað hefir til mannanna á hvexjum jólum: Sjá, ég boða yður mikinn fögnuð. Jólin eiga sinn uppruna og sinn áhrifamátt að rekja til pess atburðar, er œðsta prá mannsandans var upp- fyllt, pegar himnarnir opnuðust okkur jarðarbörnum og lífi okkar var gefin ný fegurð, nýtt eilíft lífstakmark, sem áður var hulið sjónum okkar. Jól kristinna manna voru stofnuð sem minningarhátíð um fœðingu Jesú Krists, og pað eru pau enn í dag. Við sjáum í anda barn- ið, sem var lagt í jötu. Úti grúfa nœturmyrkrin, en gegnum pau brýzt himneskt Ijós og dýrð guðs er ná- lœg jörð okkar. Og í fullum Ijóma birtist dýrð guðs okkur í lífi hins unga sveins. í hjarta Jesú Krists, í kenningu hans, í öllu starfi hans og framkomu Ijómar sjálfur hinn eilífi kœrleiki guðs. „Ég og faðirinn erum eitt“ voru einkunnarorð lífs hans, og um leið var bœn hans til föðurins, okkur til handa, pessi: „Ég vil, að einnig peir séu hjá mér, par sem ég er, til pess að peir sjái dýrð mína, sem pú hefir gefið mér.“ Dýrð lífsins, sem Je'sú Kristur opinberaði okkur, hefir verið að birt- ast mönnunum, œ að nýju, gegnum aldirnar. Hið heil- aga líf hans hefir verið áhrifamesta aflið til að glœða allt hið fagra og góða í sálum mannanna. Með fœðingu \ hans voru myrkrin rofin og Ijósbrú byggð frá pessum heimi til æðra heims. Dagsins Ijós hylur marga himinrós sjónum okkar. En í kyrrð.og húmi hinnar hélgu nœtur getum við öll séð pá Ijósbrú, sem tengir jörð við himin, petta líf við hið eilífa. Þannig megum við nú á pessari hátíð finna pað fagnaðarefni, sem jólin boða. Guð gefi, að svo megi verða. Guð gefi, að við megum öll finna, að jólabarnið Jesú Kristur er hið skœrasta vegferðarljós pessarar veráldar, að hann einn getur sýnt okkur hina œðstu fegurð lífsins og hinn sanna tilgang pess. Við biðjum, að pau sannindi megi verða augljós öllum mönnum, svo að hin undursamlegu áhrif jólanna megi gagntaka líf peirra állt. Guð gefi okkur öllum gleðileg jól.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.