Alþýðublaðið - 24.12.1941, Blaðsíða 36
ALÞÝÐTJBLAÐSINS
Mussolini er lítill karl.
Svipaðar tilhneigingar virðast lýsa sér hjá þjóðum
óeim, er smávaxnar eru. Japanir eru manna kettlings-
íegastir og eru þeir þó allt að drepa í Austur-Asíu með
ofbeldi og yfirgangi.
Hér er listi yfir hæð nokkurra lítilla manna, sem
orðið hafa „risar“ í veraldarsögunni:
Fet. Þml.
Júlíus Cæsar 5 2
Napoleon Bonaparte 5 1
Alexander mikli 5 3
Lenin 4 11
Sun-Yat-Sen 5 0
Botha hershöfðingi 5 1
Eftirtektarvert er það, að Indverjar telja lágvaxna
menn hæfari til þess að þjálfa með sér sálarkrafta
Yogans, en til þess Þarf viljaþrek og einbeitingu frem-
ur en líkamskrafta. Og í Japan er talið, að litlir menn
séu yfirleitt leiknari í jiu-jitsu en stórir menn, en til
þess þarf ekki ýkjamikla krafta, heldur skynsamlega
beitingu ýmissa bragða.
En hvað er þá að segja um kvenfólkið? Stúlkur,
sem stunda dans og söng margar saman í leikhúsum
og kvikmyndum og þurfa að vera ásjálegar, eru flestar
háar og grannar. En kvikmyndastjörnurnar, sem hafa
þetta kringum £20,000 á ári, eru flestar litlar hnyðrur.
Merle Oberon, Vivien Leigh, Annabella, Janet Gaynor,
Joan Bennett, Sonja Henje og margar fleiri eru kring-
um fimm fet á hæð.
Loftur ríÞci
Framhald af bls. 9.
endileysu til að ná dýrum og réttum hætti. Vitandi
eða óafvitandi, k'klega vitandi, kallar hann fram
hætti fornskáldanna til að leiða þá til sætis á virðu-
legan bekk.
Kvæði Lofts er mjög misjafnt að gæðum. Mörg brot
úr vísum eru gullfögur og spakleg. Minna er af heil-
steyptum, góðum vísum, þótt margar séu mætavel
kveðnar. Frægust þeirra hefir Þessi vísa orðið:
Kyssumst, kæran, vissa,
kemur ein stund, sú er meinar,
sjáum við aldrei síðan
sól af einum hóli.
Meinendur eru mundar
mínir frændur og þínir.
Öllum gangi þeim illa,
sem okkur vilja skilja.
Kvæði Lofts sýna mann, er stendur föstum fótum
í innlendri menningu með fornan menningararf að
baki, hefir kynnst erlendri menningu, en vill ekki
kasta innlendum verðmætum fyrir útlent glingur.
GLEÐILEG JÓL! GLEÐILEG JÓL! Starfstúlknafélagið Sókn óskar öllum meðlimuin sin-
um og allri alpýðu
Verzlunin Höföi Laugaveg 76 Jón Mathiesen Gleðilegra jóla og farsæls nýjárs.
GLEÐILEG JÓL! Óskum öllum viðskiptavinum Gleðileg jöl og nýtt ár!
Teppagerðin Gleðilegra jóla! Verzlunin Málmur
Toledo. STEBBABÚÐ Hafnarfirði.