Alþýðublaðið - 24.12.1948, Page 25

Alþýðublaðið - 24.12.1948, Page 25
Jólablað, Álþýðublaðsins ............. satt eða lygi. Að svo mæltu gekk Margrét út, og var Jón þá kominn heim á hlað. \ Eftir það er Jón hafði tekið við embajtti, þótti hann hinn mesti höfð- ingi. Hann var gestrisinn, ljúfur og' lítillátur, en strangur kennimaður og harður við þá, er risu upp. á móti honum. Jón biskup var rnjög bráður og réiddist illa, en fús var liann til að bæta það, er hann hafði brotið, þegar honum rann reiðin. Einu sinni réri biskup fyrir Land- eyjasandi, og drógu skipverjar vel um daginn, en biskup varð ekki líís var. Seint og síðar meir dró hann þó ýsu, og var hann þá orðinn svo reiður, að hann barði hana upp til agna á borðstokknum. Þegar biskup kom til lands var honum runnin reiðin; bað hann þá guð og skip- verja grátandi fyrirgefningar og brýndi fyrir þoim að varast aðra éins fólsku og sér hefði orðið á. Jón biskup bar ávallt lcorða við hlið sér, eins og þá var títt meðal fyrirmanna. Einu sinni vantaði smalamann hans margt fé, og varð biskup þá svo reiður, að hann brá korða sínum og ætlaði að reka smal- ann í gegn, en hann hljóp undan. Biskup elti hann að jarðfalli einu, og skildi þar með þeim, því að smal- inn hljóp ofan í jarðfallið, og varð biskup frá að hverfa. Jón biskup Vídalín kvæntist Sig- ríði frá Leirá, dóttur Bauka-Jóns, sem áður var biskup á Hólum. Hún var svinn mjög, og þótti hún ekki bæta um fyrir manni sínum, en oft fór biskup sínu fram, þvert á móti vilja konu sinnar. Einu sinni rak lival á reka biskups, og var hart mjög í ári, en samt seldi bislcup all- an hvalinn dýrum dómum. Margrét móðir hans frétti þetta og þóttu henni tíðindin ill. Hún tók sér ferð á hendtir og nam ekki staðar fyrr en hún kom að Skálholti. Þegar biskup frétti að móðir hans væri komin, gekk hann til dyra og ætlaði að fagna henni, en kerling rak hon- um utan undir, jafnskjótt og hún sá hann og sagði um leið, að hann mætti ekki láta skurðgoðið írá Leirá draga sig til helvítis. Að svo mæltu reið Margrét leiðar sinnar, en biskup mælti: „Reið er móðir vor nú“. Hann vissi vel, hvað móðir hans hafði átt við, og iét hann sér orð hennar að kenningu verða. Skömmu seinna rak aftur hval á reka hans, og gaf biskup þann hval allan. Eitt sinn sendi Margrét, móðir biskups, til hans og bað hann að ggfa sér í pípustúf sinn, en hann rendi henni tóbakspund; ict hún þá færa sig á fund biskup:.. sló hann löðrung mikinn, er hún hitti hann, og' kvaðst svo skyldu kenna lionum kvikindisskap. Að svo mæltu reið hún ieiðar sinnar, en biskup mælti: „Hún er reið núna, hún móðir mín“, og þótti það rnikil stiliing af svo skapbráðum manni. Eitt sinn kom bláfátækur maður að Skálholli og barmaði sér mjög. Biskup sá aumur á honum, gaf hon- um mal upp á hest og léði honum hestinn til að flytja rnatinn heim á honum. Um leið og maðurinn var að ieggja af stað heirn til sín, kom frú Sigríður út og sá lil mannsins. Hana grunaði lwað um var að vera, og spurði hún mann sinn, hvort hann hel'ði gefið manninum upp ú hest- inn. Hann já-taði því, Frúin glotti og spurði: „Því gafstu honum ekki hest inn )íka?“ Biskup kallaði á eftir manninum, og sagði, að konan sín segði, að hann skyldi ciga hestinn líka. Maðurinn hélt lélðar sinnar og þóttist hafa veitt vel, þar sem hann eignaðist bæði mat óg hest í ferð- inni. Einu sinni kom íátækur maður að Skálholti, sem haíði nýmisst einu kúna, sem hann átti. Biskup kenndi í brjósti um manninn, fór með hann út í fjós og gaf honum eina kúna sína. Þegar frú Sigríður frétti þetta, varð hún fokvond, og ávítaði mann sinn mjög fyrir örlæti hans. „Það var mikið að þú gafst honum ekki hest líka“, sagði hún. „Þá er að gera það“, sagði biskup. Að svo mæltu fór hann til mannsins og gaf honum hest þann, sem konu hans þótti vænzt um; lét hann þess getið, að konan sín gæfi honum hann. Aðrir segja svo frá, að frú Sigríður hafi komið út um leið og maðurinn var að fara, hún hefði spurt mann sinn, hvort hann hofði gefið manninum kúna, og játaði hann því. Þá sagði frúin: „Því gafstu honum ekki beztu kúna okkar?“ Biskup kallaði á mann inn og bað hann að snúa heiní aftur. Hann sagði honum, að konunni sinni hefði ekki þótt kýrin, sem hann gaf honum, nógu góð handa honum, og hefði hún sagt sér að láta hann hafa beztu kúna þeirra. Maðurinn fékk nú beztu kúna, sem til var á staðn- um, og hélt með hana heim til sín, en sagt er að frú Sigríður hafi ekki skipt sér af því eftir þelta, þótt biskup gerði fátæklingum gott o'g gæfi þeim. Jón biskup Vídalín og Oddur lög- maður Sigurðsson voru miklir fjand- menn, eins og kunnugt er. Einu sinni ætlaði Jón biskup að halda ræðu á alþingi. Oddur lögmaður fékk sét’ ekki geð til að hlusta á ræðuna, cn sendi svein sinn til kirkju og“ bað' hann að segja sér inntakið úr ræð- unni, þegar úti væri. Ræða sú, sem biskup hélt í þetta sinn, er orðlögð, en svo var hún harðorð, að mörgum þótti nóg um. Sumir ætluðu jafnvel að ganga út úr kirkjunpi undir miðri ræðu, en þegar biskup varð þess vís- ari, vék hann máli sínu að afdrifum Satans þjóna og bað jörðina að opn- ast og svelgja guöleysingjana, sem ekki vildu hlýða guðs orði. Við þetta brá svo, að kirkjan tók að nötra og skjálfa, og leizt þeim ekki á blikuna, sem út höfðu ætlað; þorðu þeir ekki annað en seljast niður aftur og bíða ræðuloka. Þegar úti var, fór sveinn Odds lögmanns til húsbónda síns, en honum var svo mikið niðri fyrir, að hann féll á kné fyrir framan hann og las ræðu biskups orðrétta upp úr sér. Þegar sveinninn hafði lokið ræð- unni, sagði Oddur; „Mikill kjaftur er á honum Jóni“. Biskup heyrði sagt frá atburði þessum, en trúðl því ekki, að sveinninn hefði getað þulið upp úr sér alla ræðuna. Hann fékk hana því hjá honum uppskrif- aða og bar hana saman við sína ræðu; komst hann þá að raun um, að ekki munaði einu orði . . .

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.