Vísir - 24.12.1954, Side 13

Vísir - 24.12.1954, Side 13
JÓLABLAÐ VlSIS 1S Guðmundui* Ðaní elsson: Blindi maðurinn og skelin. ]3að yar orðið fámennt um- liverfis blinda manninn í fjör- unni, skipsfélagar hans allir bún- ir að gera að hlutnum sínum og gengnir heim. formaðurinn líka. peir höfðu komið til hans hver af öðrum jafnótt og þeir voru búnir og boðið honum að kippa upp á malarkampinn þéssum fiskum lians, jainvel slægja þá, og í hvert skipti, sem hann hafui heyrt fótatak þeirra nálgasl; hafði hann sparkað i fiskhrúg- una og hrópað reiðilega: „Er þetta Bima? Ertu komin. Birna? Onei, hún kemur ekki enn. pað vildi ég þetta væri allt kornið til andskotans, þangað sem það var!“ petta var á síðasta degi haust- vertíðar. Hann vissi þeir niymlu ekki kalla sig oftar, það var hú- ið. Iiann hafði verið blindur í fjörutíu ár og þó lengst af í skip- rúmi, þeir höfðu haft hann í and- ófinu, síðast í dag, en hann var ekki lengur sá sami, sem hann hafði áður verið — nema til sál- arinnar, fann engan billmg á sér þai’. Víst vissi hann að hann var þeiin ekki ^ lengui' til gagns á skipinu. ekki einu sinni í andófi eins og fyrrum, heldur átti hann það góðsemi formannsins að þakka að Iiann hafði fengið að fljóta með til þessa, hásetunum til ama, þeim öllum til tjóns og erfiðisauka. En í landi hafði hann hingað til getað bjargað sér — með hjálp stelpunnar. Hún var vön að standa í vörinni, þeg- ar þeir lentu til þess að bera upp fisltinn hans og hjálpa honum síðan að slægja hann og koma honum í verkun — frá því hún var tólf ára og fram til þessa dags. í átta ár. Fyrstu árin auð- sveip og vinnufús, kannske þakk- lát honnm fyrir að hafa tekið liana að sér munaðarlausa, en þegar tímar iiðu smátt og smátt tómlátari, eins og hún væri far- in að luigsa um eitthvað annað cn hann, eins og hún liefði ekki lengur neitt að þakka lionum fyrir; þannig langtímum saman fálát og þegjandaleg, en nú und- anfarið fjarlægzt enn meir sitt upphaflega dagfar, gerzt hyskin og þver, jafnvei hortug. eins og það væri hann, sem nú ætti að vera auðsveipur henni, ef ékki þakklátur í ofanálag, ekki nema það þó! Hann var viss um að það voru liðnar tvær stundir síðan þeir lentu, og enn var hún ekki lcomin. peir höfðu lent uffi nónbil og sjór þá tekinn að falla að, sjór nú að líkindum hálffallinn, eftir eina stund mundi flæða undir -fiskinn hans, ef hún yrði ekki komin, fiskurinn hans þá hverfa aftur til sinna heimlcynna: í saltan sjó. Óhjákvæmilega þann- ig. Gat ekki öðru vísi farið. Úr því hann hafði ekki þegið það af þeim strax að þeir kipptu hon- um upp á kampinn og úr þvi hann hafði a annað borð tekið það í sig að bíða hér eftir henni í stað þess að þreiía sig heim í kofann og sækja hana, þá skyldi fiskurinn liggja hér óhreyfður! Annað hvort bæri hún. hann upp. eða hann fengi að fljóta út aftur! Hann lieyrði ölduna hefjast æ ofar í flæðarmálinu, færast æ nær sér og fiskhrúgunni sinni, og urgandi skrið skeljasands og malar, seni fylgdi lienni eftir í útsoginu. Reiðin í brjósti lians nú í beinu sambandi við fall sjávarins, fór hækkandi án af- láts, grængolandi í djúpinu, með hvítum froðufaldi hið efra. Hann heyrði hrópað til sín ofan af kampinum, frá hjöllum og ver- búðum, háðsraddir stráka, hlát- ur og fliss. peir höfðu safnast þar saman til þess að horfa á hann fara í hundana, sjá lífsbar- áttu hans á landi og sjó fá sin hæðílegu endálok. .,Ert það þú, Birna?“ Onei. Hann var nú hættur að gera sér vonir um að hún kæmi, engin von til þess meir. Hún hafði jafvel sagt honum þetta fyrir í morgun meðan liann var að búa sig á sjóinn — hótað því þá að fara frá honum, en liann hafði ekki tekið mark á því, tæplega léð því eyra, en hlegið á sinn hátt — og reynt að grípa hana. „Ég ætla að láta þig vita, Jón blindi, það skal verða einhver önnur en ég, sem þú spýtir á næsta daginn,“ hafði hún sagt. >,Spýtti ég á þig?“ hafði hann svarað. „Er það mér að kenna? peir vari sig sem sjónina hafa.“ Og hió við og reyndi að ná taki um leið og liún svipti sér undan. Síðan hurðarskellur og hratt fótatak sem fjarlægðist, síðan þögn. Máfarnir .svífa gargándi vfir höfði hans og gerast nú nærgöng- ulir, svartbakurinn, rita og fýil, hann finnur af þeim hrælyktina, heyrir drit þeirra falla. á klapp- irnar umhverfis, liljóðið iíkast því sem kossi sé kastað til hans af fingri, eða tungu skellt í góm. Blindi maðurinn hefur ekki skynjað slíkt áður, aldrei fyrr uppgötvað sjófuglinn í hópi ó- vina sinna, sjófuglinn hingað til ekki verið honum annað en níein- laús þytur í lofti, ekki annað en marklaus tónn í laglausu skvaldri dægranna, en nú ekki lengur: nú hlakkandi og illkvitt- inn; hann tekur upp smástein og kastar honum á hljóðið, heyrir að steinninn keniur í vatn. „Allt er þegar þrennt er,“ dett- úr honUm í hug: fyrst svikinn af manneskjunni, þá höfuðsetinn aí fugli. og loks fer sjálft hafið að honum í ránshug. Með öðrumT orðum: sá hlutur er ekki lengur, til, sem ekki hefur svarizt gegú honum og þessum fiskbrönduut hans — allir gegn honum einums af því þeir halda að nú sé hann! ekki lengur fær um að verja sig, að nú eigi þeir alls kostar við hann, blindan og örvasa. Kannske er hann svo sem á valdi þeirra, það getur vel verið, en að hann verði þeim þægur ljár í þúfu eðaj nánar sagt: auðsveipur meðferö-. ar — það kynni hins vegar að orka tvímælis. ' „peir vari sig sem sjónina! hafa,“ segir hann byrstur, hlust< ar eftir hvar munntóbaksspýtán! kemur niður, einnig hún kemur, i vatn! Og ekki að furða: nú sleikir flóðtungan fætur hans, sölt og vot og umlandi, og gref- ur undan þeim sand, hún h'efiu} ÖSXSÍÍIKKSISOtttÍötiOÍÍSiíinSOOOOöaOtXiöííOÖOÖOOÍÍOÍÍíSGtÍÍÍKOÖKOílöíÍííÖOOÍSÍinOStSÍÍOOOÍiOÍSÍStSÍÍOSSÍÍÍÍÍÍOÍÍSÍÍSOOOÍÍÍSttSÍtiÖÍÍSiíÍíStSöOítííSSrií i? HEÐINN Utvegsmenn! Vanti vindu í bátinn þá farið að ráðum beirra vandlátu. Semjið við okkur pm vökva- vindu, það tryggir bátnum góða afkomu. ♦ Bátarnir með = HÉÐINN = vindunum fara sigrandi um miom. HRÍNGNÓT ARVIND A LÍNUVINDA VÉLSMIÐJAIM HÉÐIIMIM H.F. REYKJAVIK OOOOOOOOOOOOOOOOSSOOOOOOOOOOÍiOOOOi;

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.