Morgunblaðið - 10.12.1964, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.12.1964, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐID Fímmtudagur 10. des. 1964 Sig. Bförnsson syngux undir stjórn Richters og í Mattheusarpassion ásamt heimsfrægum söngvurum Sigurður Björnsson SIGURÐITR Björnsson, söngvari, hefur um þessar mundir mikið að gera í Þýzkalandi og hefur þar stór verkefni. X.d. syngur hann næstkomandi laugardag og sunnu dag í fyrsta hluta Jólaoratorios eftir Bach í Stuttgart og 15. des. í sama verki í Aarhus í Dan- mörku, en þar söng hann í fyrra við mjög góða dóma. 10. janúar syngur hann í 2. hluta Jólaora- torios Bachs í Miinchen undir stjórn Karls Richters, sem er tal- inn einn af beztu Bachtúlkurum sem nú eru uppi. Umboðsmenn AGFA. Frá vinstri: Hilmar Helgason, framkvæmda stjóri Thorarensen forstjóri og Rolf Su hnold, verzlunarstjóri í Týli. söluumboðsins; Stefán (Ljósm.: Ól. K. M.) Þann 5. des. söng Sigurður Magnifikat eftir Bach og Te de- um eftir Bruckner í Kirchheim Teck undir stjórn Leuze. Og i febrúar verður upptaka á hljóm- plötu á kantötu eftir Bach, sem hann syngur. Loks ’hefur hann verið ráðinn til að syngja guð- spjallamanninn í Mattheusar- passioninni eftir Bach í Múnchen á föstudaginn langa undir stjórn Josefs Keilbert og með heims- AGFA sýnir nýtt Ijósmyndakerfi FYRIRTÆKIÐ Stefán Thoraren- ten h.f., sem hefur aðal söluum- boð hér á landi fyrir Agfa- Gevaert AG vörur, boðaði blaða menn til fundar í Þjóðleikhús- kjallaranum hinn 7. des. s.l. Tilgangur þessa fundar var að kynna blaðamönnum nýjungar þær, sem fyrirtækið hefur ný- lega fengið til sölu hér á landi. Hér var fyrst og fremst um að ræða ljósmyndavélar og filmur, sem hafa til að bera hið svo- nefnda Rapid-kerfi. Kerfi þetta er svipað og hið svonefnda Instamatic Ijósmyndakeifi hjá Kodak. Aðalkostur þessa kerfis, bæði véla og filmu, er að mjög auð- velt er að þræða vélarnar og þær eru einfaldar að allri gerð, svo hverjum sem er, á að vera auðvelt að taka á þær myndir, þótt hann annars kunni lítið sem ekkert til ljósmyndatöku. Agfa-Gevaert fyrirtækið hefur gefið öllum stærstu véla- og filmuframleiðendum heims kost á að nota sér kerfi þetta, nema Kodak, sem hafði reynt að koma einokun á sölu hins nýja kerfis síns jafnt vélum sem filmum. AGFA-fyrirtækið þakkar vel- gengni sína að mestu efnafræð- ingnum Dr. Momme Andersen, sem hóf þar starf 1887, en hann er höfundur margra nýjunga á sviði framköllunarefna. Ein af síðustu uppgötvunum AGFA er litfilman CT 18, sem margir hér á landi kannast við, — Alþingi Frh. af bls. 28 Þar stendur skráð í því sam- bandi: „Þá taldi Þórður gellir tölu um at Lögbergi, hve illa mönnum gegndi at fara í ó- kunn þing at sækja of vig eða harma sína, og taldi, hvað hon- um varð fyrir, áður hann mætti því máli til laiga koma, og kvað ýmissa vandræði mundu verða, ef eigi réðusk bætur á.“ Segja má, að saga sú, sem Þórður talar um, endurtaki sig á 20. öldinni, þótt ástæður hafi breytzt og menn þurfi ekki leng- ur að mæla eftir frændur sína, er vegnir hafi verið, sem í forn- öld. Vert er að athuga vel og ræki- lega, hvort endurtekningu sög- unnar frá fornöld á vándræðun- um, sem Þórður gellir talaði um, sé ekki ráðlegt að mæla með endurtekningu í höfuðatriðum á úrræðunum, sem þá var til grip- en hún hefur einkar skýra liti og ljósnæmi 15—21 din. Þess má um leið geta að AGFA filman var hin fyrsta, er notuð var til litkvikmyndatöku í heiminum 1940. frægum söngvurum, svo sem Herthu Töpper, sopransöngkon- unni Antonie Fahberg, barryton- söngvaranum Kieth Eugen og bassasöngvaranum Gerd Nieu- sted. Var farið að selja miða á hljómleikana í sumar. Sigurður er sem kunnugt er fastráðinn við óperuna í Stutt- gart og hefur sungið þar í ýmsum óperum í vetur við góðan orðstír. í byrjun nóvember fóru íslend- ingar þeir sem dvelja í Múnchen í hópferð til Stuttgart til að heyra hann syngja í Othello og voru mjög hrifnir af frammistöðu landa síns. Á FUNDI Sameinaðs þings í gær var rætt um tillögu til vegaáætl- unar, innheimtu á stóreignaskatti, fjáraukalög 1963 og verðtrygg- ingu sparifjár. TILLAGA TIL VFGAÁÆTLUNAR Halldór E. Sigurðsson (F) kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í upphafi íuridar og beindi þeirri fyrirspurn til samgöngumálaráð- herra, hvað liði tillögu til vega- áætlunar, en samkv. vegalögum skal hún lögð f ram samtímis frumvarpi til fjárlaga. Ingólfur Jónsson, samgöngu- málaráðherra, varð fyrir svörum og sagði m.a., að ómögulegt hefði reynzt að leggja tillögu til vega- áætlunar fram um leið og fjár- lagafrumvarpið. Kvaðst hann vita það, að fyr- irspyrjandi væri sér sammála um það, að ekki væri sanngjarnt að ætlast til þess, að vegamála- skrifstofan hefði lokið samningu tillögunnar um það leyti, sem Alþingi kom saman. Rúmlega 3 vikur væru síðan tillagan kom til ráðuneytisins. Það væri að vísu nokkur tími, en það væri ekki þannig, að þessi tillaga væri eins og aðrar tillögur og á einu blaði, heldur væfi þetta þykk bók. Eðlilega hefðu ráðherrarnir því viljað lesa tillöguna yfir og prentsmiðjan hefði einnig þurft nokkurn tíma til þess að skila henni frá sér. Kvaðst ráðherrann hafa vonazt til að tillögunni væri útbýtt í gær, en vænta þess, að það yrði gert í dag, úr því að ekki hefði orðið af því í gær. LANDAFUNDIR Þingsályktunartillögu Þórarins Þórarinssonar um landafundi ís- lendinga í Vesturheimi var vísað til fjárveitinganefndar og 2. um- ræðuL INNHEIMTA Á STÓREIGNASKATTI ' Halldór E. Sigurðsson gerði grein fyrir fyrirspurn sinni um innheimtu á stóreignaskatti, en Gunnar Thoroddsen, fjármálaráð herra, svaraði. Urðu síðan nokkr- ar umræður um málið. Sagði Halldór E. Sigurðsson þá m.a., að hann áliti, að öðrum og mild- ari aðferðum væri beitt við inn- heimtu þessa skatts, en annarra skatta. Gunnar Thoroddsen, fjármála- ráðherra, kvaðst vera undrandi yfir því, að þessi fyrirspurn [skyldi vera kom in fram nú, þar eða hann hefði Igefið yfirlit um stóreignaskatt- Pfiinn fyrir stuttu eða 6. maí sl. Nú ||skýrðist þetta. Það væri ætlun- in að koma því að hér á Alþingi að ríkisstjórnin hefði beitt mild- ari aðferðum við innheimtu stóreignaskattsins en við inn- heimtu skatts hjá almenningi. Fjármálaráðherra kvaðst hafa gert grein fyrir þessu máli ítar- lega áður, og því væri gersam- lega ástæðulaust að bera fram þessar sakir. Rifjaði hann síðan upp, hvernig málið væri tilkomið, þar á með- al að málið hefði verið borið undir dómstóla af ýmsum aðilum, þar sem hver hæstaréttardómur- inn eftir annan hefði staðfest, að ýmiss ákvæði stóreignaskattslag- anna sem sett voru í tið vinstri stjórnarinnar, gætu ekki staðizt samkv. stjórnarskrá landsins. — Meðan dómstólar, skatta- og mats nefndir hefðu verið önnum kafn- ar undanfarin ár að hrinda ýms- um ákvæðum þessara' laga sem stjórnarskrárbroti, þá væri það eðlilegt, að innheimta slíks skatts hefði gengið treglegar en venju- legra álaga. Ef ætti að telja, að þessi skattur hefði innheimzt of slælega, þá væri það sök þeirra manna, sem sett hefðu þessi lög, sem væru einsdæmi í íslenzkri löggjafarsögu. f þessum umræðum tók Ey- steinri Jónsson einnig máls. FJÁRAUKALÖG Gunnar Thoroddsen, fjármála- ráðherra, gerði grein fyrir frum- varpi til fjáraukalaga. Ekki urðu neinar umræður um frumvarpið og var því vísað til 2. umræðu og fjárveitinganefndar. VERÐTRYGGING SPARIFJÁR Jón Skaftason (F) gerði grein fyrir þingsályktunartillögu um verðtryggingu sparifjár, sem hann er flutningsmaður að ásamt fjórum þingmönnum Framsókn- arflokksins. Ólafur Björnsson (S) sagði, að hér væri hreyft mikilvægu máli, )g kvaðst vona, ið það fengi já- kvæðar undir- tektir á Alþingi. Margar tillögur fih, stjórnarandstöð- unnar hefðu ver fH ið til þess falln- ar, að veiða at- kvæði hinna ó- þroskaðri kjós- enda, en allt öðru máli gegridi um þessa tillögu, hún væri ekki með þessu marki brennd. Vís- aði Ólafur síðan til þingsálykt- unartillögu, sem hann hafði flutt fyrir tveimur árum svipaðs eðlis og þessi og samþykkt hafði verið. Kvaðst hann því sammála, sem fram hafði komið hjá Jóni Skafta syni, að það yrði verulegt spor til þess, að koma á jafnvægi á lánamarkaðnum, ef komið yrði á verðtryggingu sparifjár. Slík verðtrygging myndi hins vegar mæta miklum örðugleikum, en þeir væru þó engan veginn óyfir- stíganlegir og þetta hefði verið gert í ýmsum löndum. Lúðvík Jósefsson (Alþbl) tal aði næstur og sagði m.a., að hann áliti, að þessar ráðstafanir yrðu ekki til þess að leysa vandann. Jón Skaftuson sagði, að allar ríkisstjórnir frá stríðslokum hefðu átt við verðbólguna að - - ' ■ I stríða og hefðu orðið að láta I minni pokann vegna hennar. Einar Olgeirsson (Alþbl) sagði að það yrði að lækka vextina. Á þeim góðu og gömlu tímum, þeg ar íslendingar hefðu verið fá- tækir, hefði verið hægt að fá lán til 42 ára með 414% vöxtum. Þá líkti hann hinu íslenzka þjóð félagi við sænskt auðfélag, sem hann tilgreindi og sagði, að væri svo vel rekið, að við mættum taka það til fyrirmyndar. B.jarni Benediktsson forsætis- ráðherra sagði, að þessar umræð ur hefðu verið hófsamari en oft áður. Lúðvik Jósefsson hefði spurt, hvera vegna verðbólva ykist meir á ís- landi, þegar jafn mikið af lífs- kosti íslendinga væri flutt inn og raun bæri vitni og þessar vörur hefðu ekki hækkað, heldur stað ið í stað. Hefði Lúðvík sagt, að þetta stafaði af of miklum milli liðakostnaði. Það væri viðurkennt af öllum, að álagning í verzlunum hér væri minni en víðast annars staðar og því gæti of há álagning ekki ver- ið ástæðan. Það sem opinberir áðilar tækm til sín væri einnig minna hér en annars staðar, svo að það fervgi ekki stáðizt að sú væri ástæðan. í okkar landi væri ekki um herkostnað að ræða, en þar kæmi á móti allur tilkostnaður viS að búa svo fámennir, sem við værum, í stóru landi. Eins gæti verið, að skýringin væri sú, að tilkostnaður við einka fyrirtæki hér væri einmitt meiri en annars staðar af sömu ástæð- um og að framan er greint. Forsætisráðherra kvaðst vilja leggja áherzlu á það, að óhaggan leg rök væru fyrir því, að verka lýðurinn hefði fyllilega fengið sinn hluta af vexti þjóðartekn- anna undanfarin ár. Baráttan við verðbólguna hér hefði verið þeim mun erfiðari, vegna þess að meðal allra stétta hefðu þeir verið til, sem hefðu haft hag af verðbólgunnL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.