Morgunblaðið - 06.07.1965, Síða 6

Morgunblaðið - 06.07.1965, Síða 6
6 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 6. júlí 1965 Útsvör og aðstöðugjöld á Akureyri 59,8 millj. kr. ■OTSVARSSKRA Akureyrar var lögð fram þriðjudaginn 20. júní. Alls nema álögð útsvör kr. 48.570.100,00 — á 2884 gjaldend- ur, og skiftast þannig milli ein- stakiinga og félaga, að 278« einst.l. bera kr. 44.310.300,09 96 félög bera kr. 4.259.800,00 Framteljendur voru alls 4301. 1417 framteljendur bera ekkert útsvar. Útsvör voru lögð á eftir gild- andi útsvarsstiga (sbr. og með- íylgjandi greinargerð framtals- nefndar), en voru síðan hækkuð um 15% til að ná áætlaðri heild- arfjárhæð útsvara að viðbættu Happdrætti D.A.S. A LAUGARDAGINN var dregið í 3. flokki Happdrættis DAS um 200 vinninga og féllu hæstu vinn- ingar þannig: fbúð eftir eigin vali kr. 500.000 kom á nr. 64280. Bifreið eftir eigin vali kr .200. 000 kom á nr. 39324. Bifreið eftir eigin vali kr. 150. 000 kom á nr. 56121. Bifreið eftir eigin vali kr .130. 000 kom á nr. 4914. Bifreið eftir eigin vali kr. 130. 000 kom á nr. 37807. Húsbúnaður eftir eigin vali fyr ir kr. 25.000 kom á nr. 8537. Húsbúnaður eftir eigin vali fyr ir kr. 20.000 kom á nr. 59146 og nr. 63938. Húsbúnaður eftir eigin vali fyr ir kr. 15.000 kom á nr. 21538, 33856 og 43396. Eftirtalin númer hlutu húsbún- 7,5% álagi vegna vanhalda. Eftirtaldir aðilar bera útsvör yfir kr. 100.000,00: Einstaklingar: Trausti Gestsson, Langholti 27 kr. 231.500,00; Tryggvi Gunnars son, Víðimýri 10, kr. 207.000,00; Oddur C. Thorarensen, Brekku- götu 35, kr. 168.700,00; Brynjar Skarphéðinsson, Lögbergsgötu 7 kr. 149.000,00; Baldvin Þorsteins- son, Löngumýri 10, kr. 148.200,00, Valgarður Stefánsson, Oddeyrar- götu 28, kr. 133.500,00; Helgi Skúlason, Möðruvallastræti 2, kr. 132.800.00; Árni Magnús Ing- ólfsson, Ránarg. 30, kr. 129.900,-; Ólafur Jónsson, Munkaþverár- stræti 21, kr. 119.600,00; Eyþór Helgi Tómasson, Ásvegi 32, kr. 118.900,00; Hans Ström, Gránu- féalgsgötu 53, kr. 113.000,00; Bald ur Ingimarssön, Hafnarstr. 107 b kr. 108.500,00; Þorsteinn Magnús- son, Byggðavegi 92, kri 104.600,-; Þorvaldur Pétursson, Stórhólti 4 kr. 104.200,00; Jóhannes Baldvins son, Byggðavegi 136, kr. 100.600,- Félög: Kr. Slippstöðin h.f. 1.113.400,00 Útgerðarfél. Kea. h.f. 448.400,00 Kaupfél. Eyfirðinga 406.100,00 Plasteinangrun h.f. 166.300,00 Byggingavöruverzlun Akureyrar h.f. 156.000,00 Amaro h.f. 123.800,00 Bifreiðaverkstæðið Þórshamar h.f. 111.700,00 Árið 1964 námu útsvör kr. 40.415.200,00. Heildarupphæð á- lagðra útsvara hefur því hækkað um 20% frá því í fyrra. Aðstöðugjöld. Aðstöðugjaldskrá Akureyrar var einnig lögð fram í dag þriðju daginn 29. júní. Álögð aðstöðugjöld nema kr. 11.357.500,00 á 347 einstaklinga og 144 félög. Eftirtaldir aðilar bera yfir kr. 100.000,00 í aðstöðugjald: Kaupfél. Eyfirðinga 3.114.600,00 Samb. ísl. Samv.fél. 1.530.900,00 Útgerðarfél. Útgerðarfélag Akureyringa 415.200,00 Amaro h.f. 253.200,00 Súkkulaði verksmið j an Linda h.f. 196.800,00 Kaffibrenhsla Ak 180.700,00 Slippstöðin h.f. 163.700,00 Bifreiðaverkstæðið Þórshamar h.f. 161.400,00 Valtýr Þorsteinsson, Fjólugötu 18 154.000,00 Byggingavöruverzlun Tómasar Bj. h.f. 130.900,00 Kaupfélag verkarn. 124.700,00 Valbjörk h.f. 115.300,00 Bílasalan h.f. 115.300,00 Útgerðarfélag Kea h.f. 102.800,00 Valgarður Stefánsson, Oddeyrargötu 28 100.500,00 Bátur smíðaður í Stykkishólmi Laugardaginn 26. júní s.l. bauð Skipavík h.f. í Stykkis- hólmi, fréttariturum í reynsiu- ferð skips sem þessi skipasmiða- stöð hefir lokið smiði i. Voru roargir með í þessari ferð og tók fréttaritari Mbl. þessar myndir í tilefni þesa atburðar, en smíði þessa báts er merkur áfa rgi í sögu Stykkishólms. Var farið víða um nágrenni Stykkishólms milli eyja og reyndist vél bátsins sem er 320 ha. Kelvin ljómandi vél og hraði bátsias að meðaltali 10 mílur miðað við klst. Þegar að iandi kom var öllum viðstödd- um boðið í kaffi á vegum félags- ins í Sumarhótelinu í Stykkis- hólmi og var það góður fagn- aður. Þar lýsti skipasmíðameist- arinn Þorvarður Gpðmundsson smíði bátsins í öllum greinum og tildrögum að smíði hans. Hafa margir haft atvinnu við smíði hans. Báturinn er um 70 tonn að stærð, með öllum ný- tízku útbúnaði til fiskveiða og leiðsögu. Vistarverur náseía eru frammi í bátnum og eru þær mjög þægilegar og góður frá- gangur svo sem bezt verður á kos ið og smíði hin vandaðasta. All- ar innréttingar voru unnar í Stykkishólmi. Kæliskápur er þarna frammí fyrir matvæli mjög rúmgóður. Lestin er rúmgóð og stýrishúa vandað og skipstjóraklefi og svefnskáli yfirmanna þar. Sltip- ið verður eign hlutafélagsins Rá í Stykkishólmi og skipstjóri Jó- hannes Guðvarðarson. Niðursetn ing véla hefur verið framkvæmd af vélsmiðju Kristjáns Rögn- valdssonar og er sú vinna öil vel af hendi leyst og yfirleitt má segja um þessa smíði í heili að hún er eftirtektarverð fyrir hversu vönduð hún er. — Fréttaritarl að fyrir kr. 10.000 hvert: 7206, 17237, 17411, 24568, 31177, 32174, 50074, 55273, 56570 og 59655. (Birt án ábyrgðar) Fréttir úr Kjósinni Valdastöðum 1./7. — ’65 HAFINN er vegarlagning á svo- kölluðum Kjósarskarðsvegi, milli Hjalla og Möðruvalla. Vegleysan í þessum kafla hefiu1 valdið töf- um og óþægindum, sérstaklega að vetrarlagi. Mun haía komið til álita, að brúa Laxá milli Viðidals og Möðruvalla, og beina umferð- inni norður fyrir ána, og þaðan áfram frameftir um Kjósar- skarðsveg. En hvor leiðin verður farin, veit ég ekki með vissu. En því ber að fagna, að umbætur verði gerðar á þessari leið Borið á beitiland. Nýverið hefir verið borinn til- búinn áburður á hjá nokkrum bændum sér í sveitinn. Hefir svo verið gert í tvö undanfarin ár, og er talið, að það hafi borið góðan árangur. — St. G. • Umferðin og bömin Kona, sem nefnir sig „Bíl- stjóra móður“, skrifar: „Reykjavík, 1. júlí 1965. Kæri Velvakandi! Eg er nú ekki ein af þeim, sem hleypur til að skrifa í blöð in á hverjum degi. En þegar: ég las um alla bifreiðaárekstr- ana í Mbl. í dag, 1. júlí, tók ég sérlega eftir einu, sem mér blöskraði framar öðru og veld- ur þvi, að ég skrifa yður. Þrjú böm á aldrinum tveggja til fjögurra ára fara í mannlausan bil við Sölvhóls- götu, og þau koma honum af stað. Út af fyrir sig er auð- vitað alveg ófyrirgefanlegt að skilja bílinn eftir opinn, en hvað hugsa þær mæður, sem hafa þrjú börn á þessum aldri aðgæzlulaus á þessum stað borgarinnar? Ég ek oft um borgina, og allt af verð ég jafn undrandi á því, hversu taugasterkar þær mæður geta verið, sem skilja algjöra óvita eftir úti á götu, jafnvel á götum, þar sem mikil umferð er um. Og það er ekk- ert svar, að þær komi börnun- um ekki á barnaheimili eða leikvelli; þá verða þær bara að ganga út með þau sjálfar, — finnst þeim það ekki betra en að hafa þau í stöðugri hættu? • Því trampar fólk á grasinu? Svo er það smáathugasemd um fegrun borgarinnar, sér í lagi sunnan tjarnarinnar. Af hverju gengur fólk upp brekk- una fyrir neðan Ráðherrabú- staðinn, þar sem tré hafa verið gróðursett, og því myndast „fjárgata“ milli hríslnanna? Það færi alla vega betur með skóna að ganga gangstéttar- hellurnar, — að ekki sé talað um gróðurinn! 3ilstjóri + móðir". • Sammála, sammála, sammála! Velvakandi þakkar bréfið og er .konunni alveg sammála í fyrsta lagi á aldrei að skilja bíl eftir opinn og aðgengilegan hverjum sem er. Það skiptir ekki máli, þótt bílstjórinn ætli að bregða sér stutta stimd frá, eins og sást bezt um daginn, þegar drukkni unglingurinn stal bílnum við Eimskipafé- lagshúsið, meðan eigandinn skrapp til þess að fá sér pylsu, og stórskemmdi margar bif- reiðar í ölæðisakstri sínum. Börn hafa gaman af bílum og setjast gjarnan undir stýri, þeg ar enginn fullorðinn er nær- staddur. Þá er voðinn vís. í öðru lagi er ófyrirgefan- legt af mæðrum að skilja lítil böm eftir úti við umsjárlaust. Vandræðalaust er að koma börnum fyrir á leikvöllum und ir eftirliti í þessari borg, enda mun Réykjavíkurborg búa einna bezt að þessu leyti allra borga á Norðurlöndum, og er þá miðað við hlutina, þar sem þeir gerast beztir. Gera má betur hér, enda verður gert betur, en óvíða gefur að líta jafn mörg og ung börn úti á götum eins og hér í Reykjavík, þrátt fyrir alla leikvellina og dagheimilin. Kunningi Velvak anda hefur búið langa hríð bæði í Parisarborg og Lundún- um. Segir hann mér, að ein- kennilegt sé að koma hingað heim og þurfa að aka um göt- ur, sem krökar eru af krökk- um. Þó eru tiltölulega miklu færri garðar og heimili handa börnum í þessum tveimur borg um. Við það bætist, að hér eru yfirleitt húsagarðar nokk- uð stórir, þannig, að óþarft ætti að vera fyrir börnin að leita út á götuna, Sumar götur virðiast verri en aðrar; þannig þarf Velvakandi nokkuð oft að aka bíl sínum eftir Bræðra- borgarstíg milli Öldugötu og Túngötu (og Holtsgötu). A þessum stutta götukafla eru alltaf mörg, ung börn á hlaup- um, þótt rúmgóðar séu bak- lóðirnar við húsin. Má þar stundum litlu muna á þessari miklu umferðargötu. Nýtt símanúmer: 38820 BRÆÐURNIR ORMSSON h.f. Vesturgötu 3. —— Lágmúla 9.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.