Morgunblaðið - 06.07.1965, Blaðsíða 31
Þriðjudagur 6. júlí 1965
MOkGUNBLAÐlD
31
Annaff ntark Dana. Heimir er illa staSsettur og skot E. Hansen
lendir í netinu.
Heimis á síðustu stund. "En út-
hlaup hans skapaði hinum tæki-
færi til að komast á línuna og
þar stóðu þeir Árni og Magnús
Jónatansson til varnar er Egon
Hansen skaut. Og Magnús stóð
fyrir skotinu.
Stuttu síðar átti ísl. liðið ágætt
færi. Þórólfur sendi í eyðu fram
nriðjan völl. Baldvin vann kapp-
hlaup við miðvörðinn en mark-
vörðurinn var aðeins fyrri hon-
um að hlaupa út og bjarga.
• 3 mörk Dana
Á 10. mín. kemur fyrsta mank
leiksins. Madsen og Kaj Poulsen
fá komist í gegn nálægt markinu.
Sigurvin mistekst að grípa inn
í samleik þeirra og af stuttu ská-
færi skorar Madsen með föstu
skoti.
Á 29. mín. skorar Egon Hansen
2. mark Dana. Það kom einnig
eftir upphlaup hægri sóknararms
Dana. Heimir var heldur illa stað
settur í þetta sinn — og sé hægt
að ætlast til að hann hefði varið
nokkurt markanna var það þetta.
Á 43. mín. skora Danir þriðja
markið. Það var algerlega verk
Kjeld Pedersen. Hann komst
heldur ódýrt framhjá Magnúsi og
stóð pvaldaður við markið og
skoraði af stuttu færi.
• Mark fslands
Þrátt fyrir þessi mörk náðu
Danir aldrei öllum tökum á
leiknum og öll þessi þrjú
mörk fengust úr heldur ódýr-
um upphlaupum.
Og milli þeirra átti isl. lið-
ið vei uppbyggð upphlaup og
stóðu Eyleifur og Þórólfur vel
að uppbyggingu þeirra. Mark
Dana komst í hættu — en
ávalt skorti herzlumuninn.
Það var því vel verðskuldað
tnark ísl. liðsins á síðustu
mínútu. Ellert framkv. auka-
spyrnu út undir miðju og
sendi fyrir markið. Baldvin,
sem hafði dregið sig út til
hægri, hljóp að og skaut við-
stöðulaust. Danski markvörð-
urinn hélt ekki skotinu og
boltiittn fór yfir l>nu. Nýlið-
inn i miðherjastöðunni hafði
ekki komið til einskis i lands
leikinn.
ir LIDIN
Isl. iliðið fór með leik sínum
fram úr björtustu vonum. Það
imagnaðist við hróp áhorfenda
„Áfram ísland.“ Hraðinn í upp-
hlaupunum var ágætur og
keppnisskapið og ákveðin sömu-
lei'ðis. Bezti maður liðsins var
Ellert Schram, klettur í vörn og
stöðvaði mörg upphlaup Dana og
byggði vel upp. Hann var góð
fyrirmynd sem fyrirliði og hefur
aldrei sýnt svo ágæta frammi-
stöðu í landsliðspeysu.
Heimir markvörður átti og
mjög góðan leik. Sama má segja
um miðjutríóið. Hraði þess var
ógnandi og leikurinn beittur. En
þó skorti á hreyfanleik Ii'ðs-
manna er komið var upp í víta-
teig Dana. Þá var horft á þann
sem lék knettinum hverju sinni,
en ekki hjálpað með því að
skapa sér góða stöðu. Árni Njáls
son barðist mjög vel og Magnús
Jónatansson kom þægilega á
óvart og það var enginn nýliða-
braigur á leik hans.
Útherjarnir, einkum Sigurþór,
svo og Sigurvin í v. bakvarðar-
stöðu voru veiku hlekkir liðs-
ins. Skorti bá'ða ákveðni og ná-
'kvæmni og Sigurvin einnig rétt-
ar staðsetningar.
Jón Stefánsson var í erfiðu
hlutverki með Madsen, en komst
betur frá leiknum en í upphafi
horfði.
Danska liðið var slappara en
maður bjóst við — kannski af
því að ísl. liðið veitti því svo
óvænta mótstöðu. En Danirnir
MESTA keppni sem fram hefur |
farið í míluhlaupi fór fram í |
London á laugardaginn. Peter
Snell, heimmethafi á vegaiengd-
inni og tvöfaldur Olympíumeist-
ari, varð að láta sér nægja 7.
sæið í keppninni.
Sigurvegari varð „silfurmaður
inn“ í 1500 m á OL í Tokíó, Tékk
inn Joset Odlozil, sem hljóp á
3:56.8. . Annar varð „bronsmað-
ur“ OL í 1500 m, Nýsjálending-
urinn John Ðavies á 3:56.7. Snell
varð 7. á 3:59.7 en átta menn
hlupu undir 4 mín — sem fyrir
örfáum árum var óskadraumur
og takmark allra millivegalengda
hlaupara.
Keppnin var afar hörð og tví-
sýn. Um mitt hlaupið hafði Snell
forystu og þegar klukkan
hringdi (fyrir sðasta hring) var
hann í 2. sæti á eftir Davies. En
hann hafði ekki nóga krafta á
síðasta hring — en hið gagn-
stæða hefur verið einkenni hans.
Hann sýndi þreytumerki og enda
sprettur hans var máttlaus mið-
að við fyrri daga. Ástæðuna
telja menn vera ofþreytu, vegna
æfinga.
fengu a'ð taka á öllu sínu, bæði
í vörn og sókn.
Ole Madsen var drifkraftur
framlínunnar, með sínar hröðu
„rispur“ og hættulegu skot.
Framverðirnir Bent Hansen og
Arentoft áttu og góðan leik svo
og markvörðurinn Max Möller.
Dómari í leiknum var Skotinn
Wharton og dæmdi mjög veL
A. St.
MOLAR
Norðmenn unnu Dani í ungl
ingalaudskcppni í frjálsiþrótt
um sem fram fór í Viborg.
Hlutu Norðmenn 105 stig
móti 86. Gat sigurinn orðið
stærri, því Norðmenn töpuðu
stigi er annar Norðmannanna
fór ekkj byrjunarhæð í stang
arstkki og norska sveitin var
dæmd úr leik í boðhlaupinu.
105 þús. manns voru á
Lenin-leikvanginum i Moskvu
á sunnudaginn og sáu viður-
cign Rússa og Brasilíumanna
í knattspyrnu. Brasilíumenn
sigruðu með 3—0. Lauk þar
með keppnisferðalagi þeirra í
Evrópu. Pcle þótti bezti mað-
ur á vellinum, sýndi frábærar
listir og skoraði 2 af mörk-
um Brasiliu.
Heimsmethafinn hafn-
aói í sjöunda sæti
*
Atta hlupu mlluna undir 4 minútum
Her skai! hurs nærri hæium. Ettir mistok Sigurvins á vinstri væng, missti Heimir einnig aJ
knettinum í úthlaupi. Egon Hansen (8) fékk skotfærið en Magnús Jónatansson (sér í koU harn
yfir Árna )fékk varið á marklinu.
A'Þjóðverjar vasa
mótmælissn á bug
Berlín, 3. júlí — NTB.
STJÓRN A-Þýzkalands vísaði í
gærkvöldi á bug mótmælaorð-
sendingu þeirri, sem Vesturlönd
sendu henni, þar sem undirstrik-
að var að fjórveldin bæru ábyrgð
á umferðinni á skurðum, sem
skipta A- og V-Þýzkalandi. Orð-
sending þessi var send eftir að
a-þýzkir landamæraverðir skutu
til bana v-þýzkan kaupmann á
skemmtisiglingu á skurði í
Berlín fyrir skemmstu.
Talsmaður a-þýzka utanríkis-
ráðuneytisins lýsti mótmælunum
svo, að þau væru tilraun til þess
að hafa afskipti af innanríkis-
málum A-Þýzkalands. ,
Orðsendingin sem send var af
Bretum, Bandaríkjunum og
Frökkum, var svar þeirra við
nýjum reglum um umferð á
— Erlend aðstoð
Framhald af bls. 1
Boumedienne hét því að inn-
leiða „sannan sósíalisma" í Alsír,
og stefna að því og nýta náttúru
auðæfi landsins sem fyrst og
bezt. En hann kvaðst þiggja með
þökkum hverja þá erlenda að-
stoð, sem veitt væri án skilyrða.
Hins vegar kærðu Alsírbúar sig
ekki um neina aðstoð, sem veitt
væri til þess eins og viðkomandi
ríki hæfi afskipti af innanlands-
málum. Hann lofaði styrkri og
staðfastri stjórn, og sagði að í
ráði væri að kalla saman sér-
stakt þing hinna „heilbrigðu afla“
þjóðarinnar til að semja drög að
nýrri stjórnarskrá. Á sú stjórnar-
skrá að koma í stað þeirrar, sem
Ben Bella átti frumkvæði að og
tók gildi 1963. En þá stjórnar-
skrá braut Ben Bella sjálfur og
nam síðar úr gildi.
Meðal ráðherra í stjórn
Boumediennes eru Abdelaziz
Bouteflika, utanríkisráðherra;
Bachir Boumaza, efnahagsmála-
ráðherra, og Mohamedi Said, að-
stoðar forsætisráðherra, sem allir
áttu sætf i stjórn Ben Bella.
Philip
Framhald af bls. I
kæmi að meirihluti þjóðarinnar
fengi að ráða. „Nokkur ár skipta
ekki máli ef árangurinn næst á
friðsamlegan hátt“, sagði Philip
prins, og skoraði á menn að sýna
þolinmæði.
Murumbi utanríkisráðherra á-
telur prinsinn fyrir þessi ummæli
og segir þau mjog ótímabær ein-
mitt nú þegar fyrirsjáanlegt er
að miklar deilur eru framundan í
brezka þinginu um málið. Kveðst
Murumbi undrandi yfir því að
Philip prins skuli taka málið að
sér eftir að deilan um framtíð
Rhódesíu kom í veg fyrir einingu
á nýafstaðinni samveldisráð-
stefnu í London.
Hann benti á að brezka kon-
ungsfjölskyldan ætti samkvæmt
stjórnarskránni að halda sig utan
við öll stjórnmál, og með fullri
virðingu fyrir Elisabetu drottn-
ingu og samveldinu, sem Kenya
vildi ekki án vera, yrði hann að
gagnrýna augljósan stuðning
prinsins við hættulega stefnu Ian
Smiths, núverandi forsætisráð-
herra Kenya.
„Vitað er að allar yfirlýsingar,
sem frá konungsfjölskyldunni
koma, hljóta að hafa talsverð á-
hrif. Þessvegna verður að líta
ræðu Philips prins alvarlegum
augum. Sérhver tilraun til að
gera lítið úr ágreiningnum með
því að hvetja til „þolinmæði"
hlýtur að vera tilgangslaus núna
þegar þjóðir Afríku stefna ákveð
ið að því að endurheimta frelsi
sitt og stofna sjálfstæð ríki. —
Ætla mætti að þær nytu aðstoð-
ar til að ná þessum göfuga til-
gangi sínum, en lögmæt barátta
þeirra ekki gerð erfiðari með ó-
þörfum ummælum eða aðgerð-
um“,
skurðunum, sem a-þýzk yfLrvöld
tilkynntu fyrir skömmu.
iifáliri' og skipa-
ssmiðir gera aftur
sálarhrings-
verkfall
MORGUNBLAÐINU l
hefur borizt þessi fréttatilkynn-
ing frá Málm- og skipasmidasam
bandi íslands:
„Félögin innan málm- og skipa
smíðasambands íslands hafa
undanfarið veri'ð í samningavið
ræðum, en lítið miðað í sam-
komulagsátt. Hafa félögin því, til
þess að leggja enn frekari á-
herzlu á kröfu sínar, ákveðið að
lýsa yfir sólarhrings vinnustöðv
un n.k. fimmtudag, þ.e. frá kl.
24 miðvikudaig 7. þm. til kl. 24
fimmtudag 8. þ.m. Meðlimafélög
sambandsins eru: Félag járni'ðnað
armanna, Reýkjavík, Félag bif-
vélavirkja, Reykjavík, Félag
blikksmiða, Reykjavík, Sveina-
félag skipasmiða, Reykjavík,
Járniðnaðarmannafélag Árnes-
sýslu, Selfassi, Málm- og akipa-
smiðafélag Neskaupstaðar,
Sveinafélag járniðnaðarmanna,
Akureyri, Sveinafélag járniðnað-
armanna, Vestmannaeyjum.
— Veðurbliða
hiti á Þingvölum og í Síðumúla.
Það sem veldur þessujn hita
er háþrýstisvæði, sem nú liggur
'yfir landinu. Sígur þá loft
ofan og hitnar yfir landi, en verð
ur hins vegar svalt, þar sem það
kemst í snertingu við hafflötinn.
Þessi hiti er ekki einsdæmi, en
þó hefur hann sjaldan mælzt
jafnhár í Jökulheimdm.
Þoka var með ströndum fram
um allt ísland í gær nema fyrir
Norðurlandi, en yfirleitt bjart í
innsveitum. Á Akureyri var eng-
in þoka í gær og ekki heldur í
fyrrinótt. Þokan he'fur náð upp
í 300 metra hæð og hindraði m.a.
flugumferð í Reykjavík í gær-
dag.
Gunnar Sigurðsson í Selja-
tungu í Gaulverjabæjarhreppi
sagði í samtali við blaðið í gær,
að hiti hefði mælzt 22 stig þar
um slóðir um hádegi á sunriu-
dag þrátt fyrir hafgolu. í fyfra-
kvöld mældist þar 19 stiga hiti
kl. 21.30. Heyskapur er nú al-
mennt hafinn í sveitum Árnes-
sýslu og voru þess dæmi, að
bændur hirtu af túnum allan
sunnudaginn, en aðrir sneru heyi,
sem lá flatt. Sárafáir voru heima
í héraði, því að menn fjölmenntu
almennt á mótið að Laugarvatni.
Gunnar sagði að lokum, að hinn
4. júlí fyrir tveimur árum hefði
verið geysilegur hiti og logn í
sveitum austanfjaHs og þá hefði
tæpast verið hægt að sitja sunn-
an í móti án verulegra óþæginda.
— Breskir
Framhald af bls. 32
til miðnættis og hélt svo að
skála Jöklarannsóknarfélagsins.
Um kl. 3 á mánudag kom hann
að bænum Kvísker og gerði við-
vart um hvernig komið væri.
Þaðan -fóru bræðurnir Flosi og
Sigurður Björnssynir til leitar að
slúdentunum.
Seint í gærkvöldi spurðist. að
stúdentarnir hefðu fundizt og
höfðu þeir haldið kyrru fyrir af
ótta við að villast í þokunni.
Voru þeir vel á sig komnir að
því er bezt var vitað í gærkvöldi.
Sjö jarðfræðistúdentar frá h,á-
skólanum í Glasgow hafa að und-
anförnu verið við jarðfræðirann-
sóknir í Austur-Skaftafellssýslu.