Morgunblaðið - 09.10.1965, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Laugar'dagur 9. október 1965
ívíáiefni tanníækna
rædd í borgarstjórn
Á FUNDI borgarstjórnar sl.
fimmtudagskvöld svaraði Gunn-
laugur Pétursson fyrirspurn frá
Öddu Báru Sigfúsdóttur (K) um
það, hverjar væru tillögur nefnd-
ar, sem skipuð var skv. samþykkt
borgarstjórnar 14. maí sl., til þess
að gera tillögur um starfshætti
og skipulag barnaverndarmála.
Gunnlaugur kvað nefndina enn
vinna að söfnun upplýsinga og
gagna frá fjölmörgum aðiljuni,
Mundi nefndin skila áliti sínu og
niðurstöðum, áður en langt um
liðL
Þá kom til umræðu fyrirspurn
frá Guðmundi J. Guðmundssyni
(K) um það, hvenær gera mætti
ráð fyrir, að auglýst yrði eftir
umsóknum um leiguíbúðir borg-
arinnar við Kleppsveg og Aust-
urbrún. Gunniaugur Pétursson
svaraði því, að 36 íbúðir ættu að
vera tilbúnar til afhendingar 1.
desember næstkomandi og 18 í-
búðir 1. febrúar nk. Þær væru
fyrst og fremst ætlaðar til útrým
ingar heilsuspillandi húsnæðL
Mundi borgarráð því kanna að-
stæður þeirra, er byggju í lélegu
húsnæði í eigu borgarinnar, áður
en ákvörðun yrði tekin um það,
hvort og hvenær íbúðirnar yrðu
auglýstar til leigu.
Alfreð Gíslason (K) mælti fyr-
ir tillögu sinni um að rborgar-
stjórn skoraði á ríkisstjórn að
koma í veg fyrir, „að tannlækna-
deild Háskólans verði lokuð nýj-
um nemendum á þessu hausti".
Ástæða lokunarinnar væri ófull-
nægjandi húsnæði. Borgarstjórn
hefði heitið tannlæknanemum
styrkjum, ef þeir vildu ganga í
þjónustu borgarinnar að loknu
námi, og hér væri um almanna-
heill að ræða, svo að borgaryfir-
völd ættu að láta málið til sín
taka. Sig grunaði, að húsnæðis-
skorturinn stafaði meðal annars
af þvi, að fé Háskóla íslands
hefði farið í byggingu og tap-
rekstur kvikmyndahúss. Til mála
kæmi að taka húsnæði fyrir tann
læknakennslu leigunámi.
Þór Vilhjálmsson bar fram
svofellda dagskrártillögu:
„Þar sem menntunarmál tann-
lækna eru til meðferðar hjá
stjórnarráði og Háskóla íslands,
telur borgarstjórn ekki ástæðu
ta að gera ályktun um tann-
læknamál í háskólanum, en tekur
fyrir næsta mál á dagskrá".
Þór Vilhjálmsson benti meðal
annars á eftirfarandi:
í byrjun þessa skólaárs, sem
nú er nýhafið ,voru tannlæknar
við barnaskólana 5, auk yfirtann-
læknis, sem tók til starfa á sl.
sumri. í fyrra störfuðu 3 tann-
læknar við skólana, en nú sex
alls.
Af því starfsliði, sem starfar á
þessu skólaári, eru 3 tannlæknar,
sem lokið hafa námi nýlega með
námsláni frá borgarsjóði. Auk
þess starfa 5 aðstoðarstúlkur á
tannlæknastofum skólanna. t
Alls hafa 15 tannlæknanemar
fengið námslán, og er áætlað, að
þeir mæti til starfa, sem hér seg-
ir:
Þrír eru þegar teknir til starfa.
Þrír eru væntanlegir á næsta
ári.
5 eru væntanlegir á árinu 1967.
Fjórir eru væntanlegir á árun-
um 1968 og 1969.
Tannlæknanemum þessum er
veitt lán allt að í 4 ár, kr. 30.000.
— á árL ef nám er stundað innan
lands, en kr. 45.000.—, ef nám er
stundað erlendis.
Á árinu 1964 voru endurgreidd
ir reikningar vegna 5.092 barna,
g námu greiðslur kr. 1.628.046.00.
4rið 1963 var tala barnanna 3.188,
og námu endurgreiðslur það ár
kr. 1.063.000.00.
Á þessu skólaári hefur verið
tekinn upp sá háttur við skoðun
á tönnum skólabarna, að börnin
eru látin bursta tennur úr flúor-
upplausn undir eftirliti skóla-
tannlæknis. Er talið, að þetta sé
mikilsverð ráðstöfun, til þess að
koma í veg fyrir tannskemmdir.
Aðalatriði málsins væri þó það,
sagði Þór Vilhjálmsson, að mál
tannlæknamenntunar væri í
höndum Háskóla íslands ,Alþing-
is og ríkisstjórnar, en ekki í hönd
um borgarstjórnar. Væri tillaga
þessi því fram borin á röngum
stað, þar eð annað stjórnvald
ætti um hana að fjalla. Afskipti
borgarstjórnar af almennum
landsmálum gerðu ekki gagn. Há
skólinn væri að vísu stofnun allr-
ar þjóðarinnar, og borgarstjóm
ætti að efla þá stofnun, þar sem
það ætti við, svo sem í lóðamál-
um. Hins vegar ætti borgarstjórn
alls ekki að taka að sér mál,
sem væru til afgreiðslu hjá öðr-
um stjórnvöldum.
Sízt væri akkur í því, að hrá
og illa unnin mál væru borin
fram í borgarstjórn, eins og til-
laga Alfreðs Gíslasonar. í tillögu
hans væri talað um „tannlækna-
deild“, sem ekki væri til; heldur
væri „tannlækningafræði" einn
þátturinn í Læknadeild Háskóla
íslands.
Dagskrártillaga Þórs Vil-
hjálmssonar var samþykkt með
níu atk'væðum gegn fimm.
Kínverjar saka
um yfirgang
Klögnmálin ganga á víxl vegna landa-
mæra Tíbets og Sikkim
Peking og Nýju Delhí, 6. okt.
— NTB — AP —
KÍNVERSKA stjórnin af-
henti í dag indverska sendi-
ráðinu í Peking orðsendingu,
þar sem því er fram haldið að
Indverjar hafi gerzt sekir um
„síendurtekna vopnaða á-
reitni við kínverska menn“ á
landamærum Tíbets og Sik-
kim. Segja Kínverjar að einn
kínverskur landamæravörður
hafi særzt.
Kínverjar segja að 2. október
sl. hafi flokkur indverskra her-
manna þrengt sér inn á kín-
verskt landsvæði í Yala-fjalla-
skarðinu, og hafi Indverjarnir
hafið ákafa skothríð á kínverska
landamæraverðL Hafi Indverjar
skotið a.m.k. 200 skotum, og sært
einn kínverskan landamæravörð.
Þá segja Kínverjar að 4. október
sl. hafi indverskir hermenn tví-
Frá aðalfundi Verzlunarráðsins.
Aðalfundur Verzlunarráðs
íslands
AÉALFUNDUR Verzlunarráðs
íslands var haldinn í gær, föstu-
daginn 8. október og hófst kl. 10
f.h. í Leikhúskjallaranum.
Formaður ráðsins, Þorvaldur
Guðmundsson, setti fundinn og
minntist þeirra kaupsýslu-
manna, sem látizt hafa síðan
aðalfundur var haldinn 1964.
Fundarmenn heiðruðu minningu
þeirra með því að rísa úr sæt-
um.
Fundarstjóri á morgunfundin
um var kjörinn Árni Árnason,
kaupmaður og Þorsteinn 3ern-
harðsson, framkvæmdastjóri, á
síðdegisfundinum. Fundirritar-
ar voru tilnefndir Guðmundur
Áki Lúðvígsson og Daníel Jónas
son.
Þá fór fram kosning í nefnd-
ir til að starfa að þeim málum,
sem voru til umræðu á fundin-
um.
Eftirtaldar nefndir voru kosn-
ar:
Viðskipta- og verðlagsmála-
nefnd: Þorvaldur Guðmundsson,
Hilmar Fenger, Gunnar J. Frið-
riksson, Sigurður Óli Ólafsson,
Sigurður Magnússon, Pétur Sig-
urðsson, Hjörtur Hjartarson og
Höskuldur Ólafsson.
Allsherjarnefnd: Birgir Ein-
arsson, Sigurður Helgason, Val-
týr Hákonarson, Björn Guð-
mundsson, Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson, Sveinn Björnsson,
Haukur Eggertsson, Axel Krist-
jánsson og Birgir Kjaran.
Skattamálanefnd: Gunnar
Guðjónsson, Hannes Þorsteins
son, Magnús Víglundsson, Ön-
undur Asgeirsson, Leifur Sveins
son, Guðm. Guðmundsson, Stef-
Indverja
fór fram
án G. Björnsson og Sveinn
Valfells.
Síðan flutti dr. Gylfi Þ. Gísla
son, viðskiptamálaráðherra, er-
indi um þróun efnahags- og við
skiptamála að undanförnu og
ný viðhorf, sem skapazt hafa.
Að erindinu loknu svaraði ráð-
herrann fyrirspurnum frá fund
armönnum. Er tveggja atriða
úr ræðu ráðherrans getið ann-
ars staðar hér í blaðinu í dag,
þ.e.a.s. varðandi íslenzkan land
búnað og Fríverzlunarbandalag
Evrópu.
Eftir hádegisverð hófst fund-
ur með því að formaður Verzl-
unarráðs flutti ræðu, er fjallaði
um þróun í viðskipta- og verð-
lagsmálum og hvatti hann fé-
laga til aukinnar þátttöku í
starfsemi Verzlunarráðsins.
Því næst flutti framkvæmda-
stjóri ráðsins, Þorvarður J.
Júlíusson, hagfr. skýrslu stjórn
arinnar og las upp reikninga
V.í. fyrir árið 1964 og skýrði þá.
Sá kafli ræðu hans, sem fjallar
um þróun efnahags- og við-
skiptamála, er birtur í heild
annars staðar í blaðinu í dag.
Nefndir þær, sem starfað
höfðu að málum fundarins,
skiluðu áliti. Voru tillögur
nefndanna samþykktar af fund
inum með nokkrum orðalags-
breytingum.
Síðan voru gerð kunn úrslit
stjórnarkosninga. Formaður
kjörnefndar lýsti yfir, að í
stjórn Verzlunarráðs íslands
hefðu eftirtaldir menn hlotið
kosningu:
Úr Reykjavík og Hafnarfirði:
Magnús J. Brynjólfsson, Stef-
án G. Björnsson, Birgir Kjaran,
Björn Hallgrímsson Ólafur O.
Johnson, Egill Guttormsson,
Othar Ellingsen og Arni Árna-
son.
Varamenn: Pétur Pétursson,
Bergur G. Gíslason, Hallgrímur
Fr. Hallgrímsson, Kristján Jóh.
i gær
Kristjánsson, Magnús Þorgeirs-
son, Sveinn Helgason Þorvaldur
Guðmundsson og Önundur As-
geirsson.
Kosningu utan Reykjavíkur
og Hafnarfjarðar hlutu Jónatan
Einarsson og Sigurður Ó. Ólafs
son.
Eftirtaldir fulltrúar hafa ver-
ið tilnefndir af félagssamtök-
um: Félag ísl. iðnrekenda: Gunn
ar J. Friðriksson og Sveinn
Valfells. Varamenn: Sveina
Guðmundsson og Árni Krist-
jánsson. — Félag ísl. stórkaup-
manna: Hilmar Fenger og
Kristján G. Gíslason. Vara-
menn: Sigfús Bjarnason og PáH
Þorgeirsson. — Sérgreinarfélög;
Fél. bifreiðainnflytjenda: Gunn-
ar Ásgeirsson. Félag byggingar.
efnakaupmanna: Haraldur
Sveinsson. Vararrienn: Félag
raftækjaheildsala: Jón A Bjarna
son. Apótekarafélag íslands:
J3irgir Einarsson.
Endurskoðendur voru kosnir
þeir Magnús Helgason og Otto
A. Michelsen. Varamenn: Valtýr
Hákonarson og Ágúst Hafberg;
og í kjörnefnd þeir Árni Árna-
son, Guido Bernhöft og Páll
Jóhannesson.
Fundurinn var mjög fjölsótt-
ur og margir fundarmenn tóku
til máls.
í lok fundarins þökikuðu
Gunnar Ásgeirsson og Egill
Guttormsson Þorvaldi Guð-
mundssyni fyrir vel unnin störf
fyrir Verzlunarráðið, en Þor-
valdur hafði tilkynnt á stjórnar-
fundi fyrir nokkru, að hann
óskaði ekki að eiga sæti I
stjóminni áfram, en hann hefði
gegnt formannsstörfum undan-
farin þrjú ár. Þakkaði hann
stjórn og starfsfólki fyrir gott
samstarf.
Ennfremur voru Magnúsi J.
Brynjólfssyni þökkuð störf í
þágu Verzlunarskólans.
Fjarvistir barna úr
skólum ræddar á
borgarstjórnarfundi
vegis skotið af vélbyssum og
sprengjuvörpum á kínverska her
menn, sem hafi verið í varð-
stöðvum sínum á kínversku
landssvæði.
í orðsendingunni aðvarar Pek-
ingstjórnin Indland við afleið-
ingum þess að þessum hætti
verði upp haldið, og segir að
Kínverjar geti ekki hjá því kom-
izt að auka á viðbúnuð sinn og
landamæragæzlu.
Af hálfu Indverja er því hald-
ið fram að Kínverjar hafi haft í
frammi vopnaða áreitni í Yala-
skarði 4. október. í orðsendingu,
sem sendiherra Kína í Nýju Delhí
var afhent í dag, segir að kín-
verskir hermenn hafi haldið inn
í Sikkim og reynt að sækja fram
alla leið að indverskri landa-
mærastöð alllangan spöl inn-
an landamæranna. Saka Indverj-
ar Kínverja einnig um að hafa
skotið á indverska hermenn.
Á FUNDI borgarstjómar sl.
fimmtudag urðu nokkmr um-
ræður um tillögu, sem borgar-
fulltrúamir Guðmundur Vigfús-
son (K) og Kristján. Benedikts-
son (F) höfðu borið fram í borg-
arráði um byggingu heimavistar-
skóla fyrir born, sem eru mikið
fjarvLstum úr skóla án leyfis.
Adda Bána Sigfúsdóttir (K) tók
tillögu þessa upp og urðu um
þetta mál nokkrar umræður.
Auður Auðuns (S) kvaðst
vilja undirstrika það sjónarmið
sitt í þessu máli, að fyrst og
Framh. á bls. 31