Morgunblaðið - 09.10.1965, Page 16

Morgunblaðið - 09.10.1965, Page 16
16 MORGU N BLAÐIÐ Laugardagur 9. október 1965 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjó.ti: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreíðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askríftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands. ' í lausasölu kr. 5.00 eintakið. FRAMKVÆMDIR VIÐ REYKJA VÍKURHÖFN Uofnin er lífæð borgarinnar er stundum sagt, og er það vafalaust rétt. Reykjavík- urhöfn er langstærsta höfn landsins, og um hana fara að mestu leyti vöruflutningar til og frá landinu, farþegaflutn- ingar á sjó milli landa, og nú á síðustu árum er Reykjavík- urhöfn að verða stærsta báta- liöfn landsins. Augljóst er því, að mikils- vert er, að allt skipulag hafn- arinnar sé svo fullkomið, sem tök eru á, og starfsaðstæður og vinnubrögð í samræmi við nútímakröfur. Á fundi borg- arstjórnar sl. fimmtudag voru samþykkt drög að fram- kvæmdaáætlun fyrir Reykja- víkurhöfn árin 1966 til 1970, og er þar gert ráð fyrir mik- ilvægum úrbótum á gömlu höfninni á þessu tímabili. En sém kunnygt er, er nú unnið að undirbúningi við fyrsta áfanga Sundahafnar, sem borgarstjórn hefur þegar tek- ið ákvörðun um að byggð verði. Greinilegt er því, að borgarstjórnin hefir vakandi auga með málefnum hafnar- Innar og fullan skilning á því, að skipulag hennar og vinnu- aðstaða sé með þeim hætti, sem bezt verður á kosið. En þær framkvæmdir, sem fyrirhugaðar eru, kosta mikið fé, og þótt Reykjavíkurhöfn sé nú skuldlaust fyrirtæki, verður ekki hjá komizt, að afla lánsfjár að töluverðu leyti til þeirrar uppbygging- ar, sem framundan er í Reykjavíkurhöfn. En lánsfé þarf líka að greiða, og til þess að standa straum af vöxtum og afborgunum væntanlegra lána, vegná hinna fyrirhug- uðu framkvæmda, var lögð fram á borgarstjórnarfundi sL fimmtudag tillaga um hækkun hafnargjalda, sem felur í sér, að heildartekju- aukning hafnarinnar, miðað við árið 1964, verður 22%. Hafnargjöldin hafa ekki ver- ið hækkuð síðan 1951, með gilidstöku 1. janúar 1962, en áætlað er, að fyrirhuguð hækkun nú taki gildi 1. janú- ar n.k. og hafa hafnargjöld því staðið í stað í fjögur ár, þótt miklar verðbreytingar hafi orðið á því tímabili. — T'ulltrúar allra flokka í bæj- arstjórn lýstu sig fylgjandi hækkun á hafnargjöldum til þess að standa straum af kostnaði við hinar miklu framkvæmdir við Sundahöfn og gömlu höfnina í Reykja- vík, en nokkur ágreiningur var um, hversu miklu hækk- unin ætti að nema. Fulltrúi Alþýðubandalagsins, Guðm. J. Guðmundsson, kvaðst óhik að styðja tillöguna um 22% heildartekjuaukningu hafnar sjóðs, en fulltrúar Framsókn- arflokksins og Alþýðuflokks- ins töldu nægilegt að hækk- unin næmi 15%, án þess þó að færa nokkur sérstök rök fyrir því. Þessarar hækkun- ar hafnargjalda verður lítið vart í vöruverði til neytenda, og má t.d. benda á, að vöru- gjalcjshækkunin, sem nemur 50%, hefur þau áhrif að eitt kíló af kaffi hækkar um 1,4 aura, og má því ljóst vera, að hér er ekki um umtals- verða hækkun á vöruverði til neytenda að ræða, enda lýsti Guðmundur J. Guðmundsson, varaformaður Dagsbrúnar, yfir því á borgarstjórnarfund inum, að hækkun hafnar- gjalda skipti engu máH í sam bandi vi ð dýrtíð og verð- bólgu. Greinilegt er, að á undan- förnum mánuðum hefur mik ið starf verið unnið á vegum hafnarstjóra við undirbúning að hinum margvíslegustu úr- bótum við Reykjavíkurhöfn, og ber vissulega að fagna þeim störhuga fyrirætlunum, sem nú eru uppi í hafnarmál- um höfuðborgarinnar. FORÐUM UM- FERÐARSLYSUM in fíðu umferðarslys, sem orðið hafa að undan- förnu, aðallega vegna ölvun- ar og of mikils hraða við akst- ur hafa að vonum vakið mik- irtn óhug með mönnum, og e.t.v. einnig orðið til þess, að opna augu fólks betur fyrir því, hver glæpur það er að setjast undir stýri bifreiðar undir áhrifum áfengis. Umferðarnefnd Reykjavík- urborgar og tryggingarfélög- in hafa að undanförnu haft uppi ýmsar aðgerðir til þess að hamla gegn umferðarslys- um, en talið er að ölvun og of hraður akstur valdi 95% umferðarslysa hérlendis. í sambandi við hin tíðu um- ferðarslys að undanförnu hef ur dómsmálaráðherra, Jó- hann Hafstein, birt ávarp, þar sem hann hvetur opinbera aðila og einstaklinga til sam- stilltra átaka um að forðast hin ógnvekjandi umferðar- slys og skapa hér umferðar- menningu, sem sómi er að. í ávarpi dómsmálaráðherra segir m.a.: „Þau sár, sem umferðar- slysin skilja eftir sig í þjóð- félaginu, sorg, örkuml ,ógæfa Leitaði heim til föðurhúsanna Li Tsung-Jen, fyrrum varaforseti Chiang Kai-sheks, nú í náðinni hjá Pekingstjórninni PRAVDA, málgagn kommún- istaflokks Sovétríkjanna, birti sl. sunnudag grein þar sem látin er í ljós unidrun yfir móttökum þeim, er Li Tsung- Jen hershöfðingi hefur hlotið í Kina, en þangað fluttist hann í júlí í sumar eftir um 16 áira dvöl í Bandarkjunum. Segir Pravda að Li sé fjand- maður kommúnismans og svik ari við kínversku þjóðina. Li Tsung-Jen er 75 ára, og var um skeið varaforseti í stjórn Chiang Kai-sheks á meginlandi Kína áður en kommúnistar hröktu þá stjórn í útlegð til Formósu. En Li fór ekki til Formósu, heldur til Bandaríkjanna. Og þar hef ur hann búið þar til í sumar. Vik komuna til Peking var Li ákaft fagnað, og hefur hann að undanförnu ferðast víða um land og haldið fyrirlestra þar sem hann ræðst á stjórn- ina á Formósu, Bandaríkin og kommúnistaflokk Sovétríkj- anna. Segir Pravda það furðu legt að málgagn kínverska kommúnistaflokksins, Dag- blað þjóðarinnar láni síður sínar manni, „sem er bezt geymdur á öskuhaugum sög- unnar.“ Blöð í Sovétríkjunum hafa ekki í rúmt ár notað slíkan munnsöfnuð í garð Kínverja, og telja margir að þessari þögn þeirra varðandi skoð- anaágreining Kína og Sovét- ríkjanna sé nú að verða lokið í bili. En þrátt fyrir þögn Rússa hafa blöð Peking-stjórn arinnar haldið uppi látlausum árásum á stefnu leiðtöga Sov- étríkjanna og afstöðu þeirra gagnvart Vietnam og deilu Indverja og Pakistana. Li Tsung- Jen, hershöfð- ingi, var sem fyrr segir um skeið varaforseti í stjórn Chiang Kai-sheks. Áður hafði hann verið landsstjóri Anwei- héraðs í Kína í um tvo ára- tugi frá 1920. Hann vann að því að sameina fylgismenn Chiang Kai-she>ks og komm- únista í baráttunni gegn inn- rás Japana á árunum fyrir síðari heimsstyrjöldina, og gat sér gott orð sem hershöfðingi. Að styrjöldinni lokinni ein- beitti hann sér að stjórnmál- um, og árið 1948 bauð hann sig fram sem varaforsetaefni gegn frambjóðanda, er Chiang Kai-shek studdi. Vann Li nauman kosningasigur og hlaut embættið. En nokkrum mánuðum síðar unnu komm- únistar lokasigur á hersveit- um stjórnarinnar, og kaus þá Li frekar að 'leita landvistar í Bandaríkjunum en fylgja Chiang í útlegð til Formósu. Li settist að í Englewood Cliffs, rétt utan við New York borg og bjó þar ásamt fjöl- skyldu sinni í 16 ár. Þar um- gekkst hann lítið nágranna sína og kynntist fáum. 1. júní sl. seldi hann hús sitt, og lét í veðri vaka að hann ætlaði að flytja. Sagði hann sumum að hann ætlaði að setjast að í Kaliforníu eða á Long Island, en öðrum að hann ætlaði til Sviss. Og hann fór raunar til Sviss, en hélt áfram þaðan til Peking. Við komuna til flugvallar- ins í Peking sagði Li að hann vildi bæta fyrir þann glæp sinn að hafa flúið land, og skoraði á landa sína á Form- ósu að snúa heim til ættjarð- arinnar til að berjast þar sameiginlega gegn yfirgangi Bandaríkjanna. Síðan hefur hann flutt fjölda fyrirlestra og erinda víða um Kína, og marg sinnis sakað Bandaríkin um að reyna að neyða Kínverja út í styrjöld. Gamlir kunningjar og ná- grannar Li hjónanna í Engle- wood Cliffs hafa átt erfitt með að trúa þessari stefnu- breytingu hershöfðingjans. En þeir benda á að hann sé aldr- aður orðinn kona hans þjáist af ólæknandi krabbameini og hann hafi viljað bera sín bein meðal ættingja. og fjárhagslegir stórskaðar samborgaranna, hljóta að knýja okkur öll til að beita viðnámi og aðgát. Mér er ljóst, að þungi ábyrgðarinnar hvílir ekki hvað sízt á opin- beru stjórnvaldi, fulltrúum sveitarstjórnarmála, lög- gæzlu og annarra greina rík- isvaldsins. Ég legg ekki dóm á, hvort þar hefur verið stað- ið á verðinum sem skyldi, hitt veit ég, að þar hafa margir lagt gott til mála af einbeitt- um áhuga og góðvild til þess að bæta úr misferlum og koma góðu til leiðar. En ljóst er, að betur má, ef duga skal, og að því skal stefnt. En ég bið jafnframt um samúð, samstarf og samstilltan ásetn ing einstaklinganna, hvers og eins, til þess að ráðast gegn og sigrast á þeim vanda, sem við okkur blasir.“ í lok ávarps síns, segir dómsmálaráðherra: „Það er ósk mín og von, að rísa megi alda samstilltra átaka þess opinbera og ein- staklinga um gjörvallt land, er að því stefni að forðast hin ógnvekjandi umferðar- slys. Að okkur- megi öllum lánast að skapa þá umferðar- menningu, aðhald og festu, er leiði skugga sorgar og só- unar hjá dyrum borgaranna.“ Undir þessi orð dómsmála- ráðherra, Jóhanns Hafsteins er fyllsta ástæða til að taka. Umferðarslysin og afleiðing- ar þeirra hafa verið svo hörmuleg og sorgleg að und- anförnu, að augu almennings hljóta að opnast fyrir þeim hættum, sem ofsahraði og ölvun við akstur óhjákvæmi- lega hefur í för með sér fyrir umferð og umhverfi. Morgun- blaðið hvetur landsmenn alla til þess að taka höndum sam- an um að auka öryggi í um- ferð, draga úr umferðarslys- um, og koma þar með í veg fyrir svo sorglega atburði, sem við höfum orðið að horfa upp á síðustu daga. Ársbirgðir smjörs Fram hefur komið í fréttum, *■ að smjörbirgðir í landinu nema nú sem svarar árs- neyzlu smjörs. Reynt hefur verið að selja eitthvað af þessu smjöri á erlendum markaði, en óvíst er um verð, og verður nú gripið til þess ráðs að draga úr smjörfram- leiðslu á næstunni, en auka framleiðslu annarra mjólkur- afurða í staðinn, og þá sér- staklega framleiðslu osta. Margt bendir til þess, að framleiðsla jurtasmjörlíkis, sem hér var hafin um síðustu áramót, hafi orðið til þess að draga úr smjörneyzlu, enda er jurtasmjörlíki miklum mun ódýrari vara. Ef svo er, er það landbúnaðinum nokk- ur vísbending um, að hann þurfi að bæta samkeppnisað- stöðu sína frá því sem er. ís- lenzkar landbúnaðarafurðir hafa yfirleitt ekki átt í sam- keppni við aðrar framleiðslu- vörur að nokkru ráði, en nú virðist sem framleiðsla jurta- smjörlíkis hér innanlands hafi dregið mjög verulega úr smjörneyzlu, og ætti það að verða bændum, forustumönn- um bænda og framleiðsluf r- irtækjum þeirra nokkur i- hugunarefni. Olíubruní á Kýpur Lernaca, Kýpur, 7. okt AP-NTB. Skemmdarverkamenn kveiktu í dag í fimm olíugeymum Shell olíufélagsins í Larnaca á Kýpur og ollu tjóni sem nemur u.þ.b. 20 milljónum íslenzkra króna. Mennirnir voru fjórir saman Réðust þeir á vopnaða herverði olíustöðvarinnar og særðu skot- sárum og vörpuðu síðan íkveikju sprengjum á tankana. í þeim voru u.þ.b. 7000 lestir af olíu. Slökkvistarf reyndist miklum erfiðleikum bundið, — var allt slökkvilið eyjarinnar kallað til, en ekki tókst að ráða niðurlögum eldsins, fyrr en þyrlur yoru send- ar á vettvang og frá þeim spraut- að froðuefni á tankana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.