Morgunblaðið - 13.01.1966, Side 2
2
MORGU N BLAÐIÐ
Fimmtuclagur 13. íanöar 196t
Sovétstiórnin viðurkennir
hundtöku rithöfu ndonna
„Tertz" og „Ayzhak##
Izvestija kaliar þá „varúlfa44
Moskvu, 12. jan. — AP:
SO VÉTSTJÓRNIN hefur nú
loks viðurkennt að hafa hand-
tekið tvo sovézka rithöfunda
fyrir að hafa látið gefa út
verk sín á Vesturlöndum und-
ir dulnöfnum. Birtir stjórnar-
blaðið „Izvestija“ í dag harð-
orða árásargrein á rithöfund-
ana þar sem þeir eru kallaðir
ýmsum illum nöfnum, m.a.
„varúlfar“ og „svikarar" og
sagt að verk þeirra hafi verið
andsovézkur áróður sem ekki
verði hjá komizt að telja
f jandsamlegan föðurlandi
þeirra.
Rithöfundarnir, sem hér um
ræðir, eru þeir Andrei D.
Sinyavsky, sem þekktur er á
Vesturlöndum undir rithöfund
arnafninu „Abram Tertz“ og
Yuli M. Daniel, sem kunnur er
undir nafninu „Nikolai Arz-
hak“. Ekki kemur fram í grein
inni í Izvestija hvort eða hve-
nær mönnunum verður stefnt
fyrir rétt.
Fréttamenn í Moskvu eru
þeirrar skoðunar að framkoma
Sovétstjórnarinnar við þá
Sinyavsky og Daniel sé eitt
mesta menningarhneyksli er
upp hafi komið í Sovétríkjun-
um frá því Boris Pasternak
var neyddur til þess áð afsala
sér Nóbelsverðlaununum.
Sinyavsky hefur starfað við
bókmenntatímaritið „Novy
Mir“. Það fyrsta, sem út kom
eftir hann á Vesturlöndum
undir nafninu „Abram Tertz“
var hugleiðing um Sósíal-real-
isma, hina viðurkenndu lista-
stefnu í Sovétríkjunum. Var
hún gefin út í Frakklandi ár-
ið 1959. Sfðan hafa komið út
ýmis verk eftir hann, bæði í
og „svikara44
Bretlandi og Bandaríkjunum.
Þegar orðrómurinn um hand
töku rithöfundanna, sem báð-
ir eru um fertugt, fór að breið
ast út í Moskvu, risu rúsnesk
ir stúdentar upp til mótmæla.
Komu um 200 stúdentar sam-
an 5. desember sl. á Pushkin-
torginu í Moskvu til þess að
mótmæla handtökunni en lög-
reglan leysti upp fundinn í
skyndi. Þá hafa bandarískir
rithöfundar sent Sovétstjórn-
inni mótmæli gegn handtöku
rithöfundanna.
Báðir voru þeir Sinyavsky
og Daniel þekktir me'ðal frjáls
lyndari rithöfunda, listamanna
og menntamanna í Moskvu og
þeir birtu ýmislegt heima fyr-
ir, sem „Izvestija“ segir að
hafi verið til þess eins gert
að „hylja hatur þeirra á hinu
sovézka þjóðfélagskerfi“.
Stiqhækkandi afsláttur
af tryggingagjöldum
valdi bíleigandi engu tjóni
FORRÁÐAMENN Samvinnu-
trygginga héldu fund með blaða-
mönnum sl. þriðjud. Skýrðu þeir
frá því, að samkv. upplýsingum
sem nú liggja fyrir, virðist af-
koma ábyrgðartrygginga bif-
reiða á síðastliðnu ári þannig,
að iðgjöldin nægi fyrir tjónum
og kostnaði. Éndanleg útkoma
einstakra áhættuflokka liggur þó
ekki enn fyrir svo að gera má
ráð fyrir að þörf sé smávægi-
legra breytinga á iðgjöldunum
milli flokka. Bónuskerfið hefur
verið endurskoðað og hefur ver-
ið fallizt á tillögur Bjarna Þórð-
arsonar, tryggingafræðings, en
þessar tillögur hans gera
ráð fyrir stighækkandi afslætti
þannig:
Eftir 1 tjónlaust ár verði veitt-
ur 15% afsláttur.
Eftir 2 tjónlaus ár verði veitt-
ur 30% afsláttur.
Eftir 3 tjónlaus ár verði veitt-
ur 40% afsláttur.
Eftir 4 tjónlaus ár verði veitt-
ur 50% afsláttur.
Eftir 5 tjónlaus ár verði veitt-
ur 60% afsláttur.
Þeir, sem voru tjónlausir sl.
ár, fá þó 30% afslátt við endur-
nýjun í vor. Valdi bifreiðin bóta-
skyldu tjóni lækkar afslátturinn
um tvö stig. Jafnframt þessu
verða í ríkari mæli en áður
hækkuð iðgjöld þeirra, sem
valda endurteknum tjónum.
Breytingar þessar munu taka
gildi 1. maí n.k.
Eins og kunnugt er, er öku-
maður hvorki tryggður með
ábyrgðar- eða kaskótrygging-
unni og aðdragandi slyss getur
einnig verið þannig, að farþegi
fái ekki heldur tjón sitt bætt.
Hafa Samvinnutryggingar nú
ákveðið að taka upp sérstaka
Ökumanns- og farþegatryggingu
gegn kr. 250,00 gjaldi á ári.
Það færist nú mjög í vöxt, að
bifreiðaeigendur fari með bifreið
ir sínar til útlanda, en þá verða
þeir að hafa í höndum alþjóð-
legt tryggingarskírteini „Green
Card“.
Samvinnutryggingar hafa um
langt skeið útvegað viðskipta-
vinum sínum „Green Card“ sem
hefur kostað nokkurt aukaið-
gjald. Nú hefur verið ákveðið
að veita þeim viðskiptavinum
sem þess óska þessa þjónustu
án aukagjalds.
Mikilvæg ákvörðun um þotu-
kuup SAS væntunleg 21. jun.
Stokkhólmi, 12. jan. — (NTB)
ÞEGAR stjórr. SAS-flugvélasam
steypunnar kemur saman til
fundar í Ósló 21. janúar n.k. er
þess vænzt, að hún taki ákvörð-
un, sem telja má að marki tíma-
mót í sögu félagsins. Verður þá
endanlega ákveðið hverjar teg-
undir farþegaþota verði keypt-
ar til þess að leysa af flugvél-
arnar af gerðunum Caravelle og
Metropolitan, sem notaðar hafa
verið á skemmri flugleiðum og
meðallöngum leiðum. Þotuteg-
undirnar, sem um er að velja,
eru Douglas DC-9 og Boeing vél-
arnar 727 og 737. Hafa að und-
anförnu staðið yfir í Stokkhólmi
viðræður við fulltrúa beggja fé-
laganna.
Áður en fundurinn í Ósló hefst,
verður haldinn mikilvægur
fundur með ráðamönnum Sviss-
air, en við það félag hefur SAS
mikla og mikilsverða samvinnu.
Ræðast fulltrúar SAS og Swiss-
air við í Moritz á fimmtudag og
síðan í Zúrich á föstudag.
Swissair hefur þegar pantað
allmargar vélar af gerðinni DC-9
hjá Douglas, en mörg önnur
flugfélög, t.d. Lufthansa í V-
Þýzkalandi, hefur keypt Boeing
727 eða 737. Ennfremur er á það
bent, að SAS hefur alltaf keypt
vélar sínar fyrir langleiðir hjá
Douglas, en fyrir nokkrum ár-
um buðust Boeing-verksmiðj-
urnar til þess að taka við öllum
Douglas vélaflota SAS, ef fé-
lagið vildi taka upp Boeing vél-
ar í staðinn. Því tilboði var þá
hafnað, en taismenn SAS leggja
á það áherzlu, að þar með sé
ekki víst, að SAS hafni Boeing
þotum nú.
Vfirlýsing
f SAMBANDI við þessa frétt
barst blaðinu í gær eftirfarandi
yfirlýsing frá Samstarfsnefnd
bifreiðatryggingafélaganna.
Varðandi yfirlýsingu forráða-
manna Samvinnuitrygginga í
dagblöðunum í gær vilja undir-
rituð tryggingafélög taka eftir-
farandi fram:
Tryggingakerfi það, sem Sam-
vinnutryggingar hafa boðað, að
þeir taki upp, hefur verið unn-
ið fyrir samstarfsnefnd trygg-
ingafélaganna, og var enginn
ágreiningur hjá félögunum um
framkvæmd þess.
Samvinnutryggingar hafa hins
vegar valið þá leið að segja sig
úr samstarfi við undirrituð fé-
lög, og tileinkað sér framkomið
tryggingakerfi, sem það væri
þeirra eigið.
Frá því síðastliðið haust hafa
tryggingafélögin sameiginlega
látið Bjarna Þórðarson trygg-
ingafræðing framkvæma um-
fangsmiklar rannsóknir, sem
kerfi þetta er byggt á. Slysa-
trygging farþega og ökumanns
er ekki nýmæli en hefur verið
seld sem sérstök trygging vegna
ákvæða í reglugerð um bifreiða-
tryggingar, sem heimilar ekki,
að öðrum tryggingum sé bætt við
lögboðna ábyrgðartryggingu.
Samstarfið við Samvinnu-
tryggingar strandaði því ekki á
ágreiningi um iðgjöld né skil-
mála, heldur á þeirri staðreynd,
að skilningur Samvinnutrygg-
inga á samstarfi og samvinnu er
annar en vor.
Til þess að breiða yfir þetta
hafa Samvinnutryggingar kosið
að eigna sér sameiginlegt fram-
komið tryggingarkerfi.
Undirrituð tryggingafélög
munu um næstu helgi skýra frá
iðgjaldakerfi því, sem þau munu
nota næsta tryggingarár, en það
'kerfi býður gætnum ökumönn-
um betri kjör en Samvinnu-
tryggingar bjóða nú.
Almennar. Tryggingar h.f.
Sjóvátryggingafélag fslands h.f.
Verzlanatryggingar h.f.
Vátryggingafélagið h.f.
Tryggingafélagið Heimir h.f.
Trygging h.f.
Brunabótafélag íslands.
★
Þá skýrði Baldvin Einarsson,
forstjóri Almennra Trygginga,
blaðinu svo frá, að vegna samn-
ingsslita Samvinnutrygginga hafi
nú skapazt þeir möguleikar, að
lækka enn meira iðgjöld víða úti
á landi þar sem fá og engin tjón
hafa orðið. _
1
Maðurinn, sem benti
á Tinu afþakkar laun
vill ekki ldta nafns síns getið opinberlega
Kaupmannahöfn, 12. jan. —
NTB: —
TÍNA LITLA Wiegel, sem í gær
komst aftur í hendur foreldra
sinna, virðist vera við beztu
heilsu. Er ekki sjáanlegt, að
henni hafi orðið neitt meint af
dvölinni hjá frú Anderson, hinni
ólánsömu konu, er barninu
rændi.
Ekki hefur enn verið tekin um
það ákvörðun, hvort frú Ander-
son verður látin gangast undir
géðrannsókn.. Hún dvelzt nú í
kvennafangelsi í Kaupmanna-
höfn og áttá þar erfiða nótt og
órólega. Eiginmaður hennar, Leif
Andersen sem er rétt tvítugur,
var í nótt í Vestre-fangelsinu.
Bæði hafa þau verið fangelsuð
til tveggja vikna til að byrja
með.
Peter Wiegel, faðir Tínu sagði
í dag við fréttamenn, að hann og
kona hans bæru engan kala til
frú Andersen: „Hún er sjúk og
óhamingjusöm", sagði Wiegel og
bætti því við að ekki væri held
ur um að sakast, þótt maðurinn
hefði trúað því, að hún ætti
barnið sjálf. „En við höfum ekki
hugsað mikið um þetta — Tína er
komin aftur heil á húfi og það
er hið eina sem okkur skiptir
máli. Við vildum helzt gleyma
þessu öllu sem fyrst — einnig
Andersen fjölskyldunni“. Wiegel
| 20 fórust í
eldsvoðu í USA
j — þar af 18
( börn
/ New York, 12. jan. - AP:
J ÁTJÁN börn og tvær fullorðn \
1 ar konur biðu bana í eldsvoð-
t um, sem urðu í fjórum ríkjum
/ Bandaríkjanna í dag. Fjórtán
7 f jölskyldur misstu heimili sín.
1 í Pierre í South-Dakota t
í brunnu inni kona og sjö börn; !
I — fjögur börn brunnu til /
bana í nágrenni Massillon í J
O'hio; — fimm börn fórust í I
nágrenni Howard City í t
Michigan og í Albany í New /
Yorkríki fórust öldruð kona
og tvö barnabörn hennar í
eldsvoða.
ÍÞá vahð mikill bruni í San
Fransico í dag og missti þar
fjöldi manna heimili sín, en
tjón mun ekki hafa orðið á
mönnum. Hinsvegar skemmd-
ist í eldinUm hin aldargamla /
ÍSt. Mary kirkja, sem stóð af 1
sér jarðskjálfana miklu og f
eldsvoðann árið 1906. /
Skemmdirnar á kirkjunni \
einni eru metnar á 300.000 \
dali. \
bætti því við, að lokum, að senni-
lega myndu þau hjónin þiggja
eitthvert hinna mörgu boða, ep
þeim hafa borizt frá ferðaskrif-
stofunum dönsku um að taka sér
ferð á hendur. „Við viljum
gjarna komast í burtu dálítinn
tíma — því að við þörfnumst þess
mest nú að fá frið“.
Ekki hefur enn verið tekin
nein ákvörðun um hvað gera
skuli við peningana, 27.000 dansk
ar krónur, sem heitið var þeim
er gefið gætu upplýsingar, er
leiddu til þess, að barnið fynd-
ist. Maðurinn, sem hringdi til
lögreglunnar og benti á barnið
hjá frú Andersen, hefur óskað
eftir því, að nafns hans verði
hvergi getið og afþakkaði pen-
ingana. Ennfremur er ennþá ó-
ljóst, hvað gert verður vi'ð 100
þúsund krónurnar dönsku, sem
forstjóri einn í Kaupmannahöfn,
Willy H. Hvilsby, hét barnsræn-
ingjanum, ef hann skilaði barn-
inu heilu og höldnu.
„Ég vildi ógjarna stinga pen-
ingunum aftur ofan í kassa'Y
sagði forstjórinn í dag og bætti
því við að hann hefði helzt viljað
skipta þeim milli lögreglumann-
anna, sem unnu áð leitinni eða
láta þá renna til einhverrar
stofnunar sem veitir bágstöddum
börnum eða mæðrum aðstoð. —■
Lögreglustjórinn í Kaupmanna-
höfn hefur afþakkað, að pening-
unum verði skipt milli lögreglu
manna, — sagði hann Hvilsby i
lag, að lögreglumenn þægju laun
sín af ríkinu fyrir að vinna að
slíkum málum og gætu ekki tek-
ið við neinum aukaþóknunum.
Hinsvegar væru þeir þakklátir
þeim góða hug, sem að baki
boðinu lægi.
— Ljóð á að
innihalda
Framhald af bls. 1
„Við Svíar stöndum eins og
Norðmenn í mikilli þakkar-
skuld við íslendinga í bók-
menntalegu tilliti".
„Hvert er álit yðar á þróun
ljó'ðsins?"
Ekelöf svaraði:
„Bókstafsæðið (okstavs-
raseri) sem stefnir að einfald-
leik á ekki framtíð fyrir sér.
í þess stað á ljóðið áð inni-
halda innra æði (innre raseri)
sem túlkar ástand heimsins.
Ég hef valið Byzants sem tákn
fyrir það sem er að gerast í
heiminum í dag“.
Að lokum skýrði Ekelöf frá
því að hann vonaðist til þess
að komast til Kaupmanna-
hafnar að veita bókmennta-
verðlaunum Norðurlandaráðs
vi’ðtöku. Ég er að vísu lasinn
sem stendur, sagði hann -— en
það er hálfur mánuður til
stefnu.
enn nærri kyrrstæð og suð- horfur á verulegum veðra-
austanáttin ríkti á landinu brigðum í gær.
með góðri hláku. Hitinn var