Morgunblaðið - 13.01.1966, Blaðsíða 26
MORCU NBLAÐIÐ
Fimmtudagur 13. j'anuar 1966
26
Lið Hauka að unnum sigri yfir FH
Óvænt úrslit i upphafi íslandsmóts:
Haukar sigruðu íslands-
meistara FH með 18:17
IMáðu um tíma 6 marka for-
skoti gegn kærulausu og
sigurvissu FH-liði
ÞAÐ hefur oft verið sagt, að í handknattleik geti allt gerzt, en
varla hafa margir haft trú á þessari speki, þegar lið Hauka og FH
hiupu inn á litla völlinn á Hálogalandi í fyrrakvöld. FH hafði þá
að baki tvo giæsilega sigra á móti Noregsmeisturunum Fredens-
horg, en um styrkleika Hauka var fátt eitt vitað, og þeir því ekki
taldir líklegir að eiga neitt erindi í klærnar á samborgurum sínum
úr Hafnarfirði.
• FH svaf á verðinum
En margt fer á annan veg, en
ætlað er í fyrstu, því að „litli“
bróðir fór þarna með eftirminni-
legan sigur af hólmi eftir að
hafa haft yfirhöndina allan leik-
inn, að fyrstu 5-10 mínútunum
undanskildum. í hálfleik var
staðan 10-8 fyrir Hauka. Mestur
var markamunurinn er um 17
mín. voru af seinni hálfleik, eða
16-10, en þá sáu leikmenn FH
loks hvert stefndi og tóku á hon-
um stóra sínum, og tóku smátt
og smátt að sax-a á forskotið. En
allt kom fyrir ekki, því að þeg-
ar dómarinn, Valur Benedikts-
son, flautaði leikinn af, voru
þeir ennþá einu marki undir, svo
að lokatölur urðu 18 mörk gegn
17 — Haukum í viL
• Góður leikur Hauka
Það má segja um leikinn í
heild að hann hafi verið
skemmtilegur og ágætlega leik-
inn af báðum aðilum, enda þótt
hann væri ekki verulega spenn-
andi nema síðustu mínúturnar.
Leikur Hauka einkenndist af
öryggi og yfirvegun, og það var
auðséð, að hver einstakur leik-
maður var ákveðinn í að gera
sitt bezta til þess að fella „ris-
ann“. í>eir léku mjög sterkan
varnarleik, og tókst furðu vel að
balda stórskyttum FH niðri, auk
þess sem markvarzlan hjá Loga
(hann lék áður með FH) var
mjög góð. Viðar átti og mjög
góðan leik og skoraði nær helm-
ing af mörkum Hauka, eða átta
mörk. Það sama má segja um
Ásgeir — hann er frábær skytta,
og er það geysilegt öryggi fyrir
eitt lið, að eiga jafn örugga
skyttu úr vítaköstum og hann
er. Þá voru þeir Matthías og
Stefán báðir góðir — hinn fyrr-
nefndi átti margar skemmtileg-
ar línusendingar, og er ómetan-
leg stoð fyrir Hauka bæði í vörn
og sókn. Hinn ágæti línuspilari,
Sigurður Jóakimsson, olli mönn-
um nokkrum vonbrigðum í þess-
um leik — því að honum mis-
tókst a.m.k. þrisvar sinnum 1
opnum tækifærum, sem hefðu
getað orðið dýrmæt fyrir lið-
ið.
• Kæruleysi FH
Um FH er það að segja, að
þeir léku oft skemmtilega fyrir
framan vörnina, skutu mikið,
en nýtingin var vægast sagt
slæm. Manni virtist einhver
kæruleysisbragur vera yfir leik
liðsins, alveg þar til að þeir
tóku lokasprettinn, og tókst að
minnka sex marka forskot nið-
—wmammíiiwi i umn, nwaw——tmmwa
FH og Dukla
lenda saman
— dregið var í París í gær
í GÆR var dregið um það í Paíís, hvaða lið leika ■
saman í 3. umferð Evrópukeppni meistaraliða karla
í handknattleik. Þau urðu úrslitin gagnvart FH, að
liðið á að mæta meistaraliði Tékkóslóvakíu, Dukla í
Prag. Voru löndin dregin í þessari röð:
R.K. Zagreb Júgóslavía — D.H.F-K. Leipzig
Fimleikafél. Hafnarfj. — Dukla, Prag
Honved, Budapest — Grasshoppers, Zurich
Retbergslid, Gautaborg — SLASK, Póllandi.
Þau lið sem á undan eru talin eiga rétt á heimaleik fyrst.
Næsta umferð verður að fara fram á tímabilinu 39. jan.
til 27. febr.
Dukla Prag hefur lengi verið meðal þekktustu félagsliða
heims. Það ná engin viðvaningalið meistaratitli í Tékkó-
slóvakíu þar. sem handknattleikur stendur á gömlum og
traustum grunni. Til þess að komast í þessa umferð keppn-
innar þurftu Dukla-menn að „slá út“ meistara V-Þýzka-
lands, og slíkt er ekki heiglum hent. Það gerðu Tékkarnir
með samtals 32—17 (11—7 og 21—10).
Til ófullkomins samanburðar má minna á leik tékkneska
liðsins Karvina og FH í íþróttahöllinni fyrir jólin. Honum
lauk með jafntefli — en lengi höfðu FH-menn yfir. Karv-
ina var þá í 4. sæti í Tékknesku keppninni. Sjálfsagt er ekki
breitt bilið milli efstu liða Tékka, en þess er og að minnast
að aðalskytta Karvinaliðsins kom ekki. Þetta verður því
erfið raun fyrir FH, en um leið skemmtilegt viðfangsefni.
ur í eitt mark. Þá þekkti maður
fyrst FH fyrir sama lið. Flestir
leikmanna FH léku langt undir
getu, nema Guðlaugur, en þess
ber að geta, að tvo leikmenn
vantaði, þá Geir og Ragnar, og
vissulega munar mikið um þá
báða.
• Þrjár ástæður?
En ef til vill eru þrjár höf-
uðástæður fyrir tapi FH, þ.e.
a.s. vanmat á andstæðning-
um í byrjun, þreyta hjá leik-
mönnunum, en eins og kunn-
ugt er hafa þeir strítt í
ströngu undanfarið, bæði við
æfingar og leiki, og loks þá
hljóta það að vera nokkur
viðbrigði fyrir liðið að koma
aftur á litla völlinn á Há-
logalandi eftir að hafa bæði
og leiKio a
undanfarið.
Dómari í leiknum var Valur
Benediktsson og dæmdi hann
naeð ágætum.
ALÞJÓDA sundsambandið
hefur á - nýafstöðnum fundi
sínum sem haldinn var í
Tokíó staðfest 32 ný heims-
met í sundi sem sett voru á
árinu 1965.
EIN mesta skautakona allra
líma, Inga Veronia (Sovétríkj
unum) er látin, samkv. Tass-
fregn í gær .Veronia hefur
unnið sigur á heimsmeistara-
móti kvenna í hraðhlaupi á
skautum fjórum sinnum, síð-
ast 1965. Hún á fjögur heims-
met í hraðhlaupi.
Ný glímulög í gildi, sem
miöa að níðlausri ísl. glímu
IVforg nýmæli á dagskrá hjá
Glímusambandinu
Stjórn Glímusambandsins
ræddi við fréttamenn í gær
vegna margra breytinga og nýj-
unga sem af starfi sambandsins
hefur leitt. Skýrði formaður sam
bandsins Kjartan J. Bergmann
frá samþykkt nýrra glímulaga,
frá nýrri reglugerð um búning
glímumanna, frá undirbuningi
að nýrri glímubók og starfi sér-
stakrar nefndar sem vinnur að
heimildasöfnun um allt það er
skrifað hefur verið um ísl.
glímu. Verður nánari frásögn af
þessu að bíða næstu blaða, en
hér skal vikið að hinum nýju
glímulögum.
• Nýju lögin
Kjartan Bergmann sagði það
skoðun stjórnar GLÍ, að hin
nýju glímulög mörkuðu tíma-
mót í sögu glímunnar. Sérstök
nefnd hefði unnið að samningu
þeirra síðan i maí 1963 og eru
hin nýju lög árangur af starfi
hennar.
Kjartan kvað margar greinar
glímulaganna efnislega óbreytt-
ar, en vék að nokkrum megin-
atriðum hinna nýju laga og höf-
uðbreytinga frá þeim gömlu.
Nefndi hann fyrst og fremst
15. grein laganna er fjallar um
byltuákvæðin. Kvað hann þessa
grein hafa verið mjög mikið
rædda og niðurstaðan varð sú
að miða byltu við það, að sig-
urvegarinn í glímunni, héldi
jafnvægi eftir að hafa lagt and-
stæðinginn. Áður hefðu ákvæðin
um þetta verið á víð og dreif
í mörgum lagagreinum og fram-
kvæmdin því misjöfn hjá dómur
um.
Höfuðmarkmiðið væri að koma
í veg fyrir níðið og fá fram létt-
ari og fallegri glimu. Því marki
yrði bezt náð að dómi nefndar-
innar með því að kveða svo á
um, að þeim er sigurinn er
dæmdur, sé gert að halda jafn-
vægi er hann leggur keppinaut-
inn.
Kjartan kvað hlutverk dómara
verða mikið og stórt og GLÍ
myndi efna til dómaranámskeiða
svo og námsikeiða fyrir glímu-.
kennara.
Þá benti Kjartan á nýtt á-
kvæði um „tregðuvörn“ en með
því væri reynt að koma í veg
fyrir að litlir kunnáttumenn í
glímu en rammir að afli géti
með þunglamalegum tilburðum
eyðilagt léttleika glímunnar.
Þá er í nýju reglunum breytt
aldursskiptingu glímumanna og
tekinn upp nýr flokkur — flokk
ur sveina og ekki mega menn
yngri en 14 ára taka þátt í kapp
glímum.