Morgunblaðið - 13.01.1966, Blaðsíða 8
8
MORGU NBLAÐIÐ
Fimmtudagur 13. Januar 1966
Gömlu sjómennirnir, sem nú eru á Hrafnistu, hafa ekki alveg slitið sig frá sjónum og störf-
unum kringum fiskveiðarnar. Þarna sitja þeir við að setja upp Ióð.
— Lmuvertlð
Framhald á bls. 24
byrja fljótlega, en alls verða
gerðir hér út fimm bátar í vetur,
40—60 tonna bátar. Verða varla
nema 2—3 tilbúnir nægilega
snemma til að komast á línuna.
Línuvertíð hefur líka yfirleitt
verið léleg undanfarin ár, svo
sjómenn eru ekkert sérlega á-
hugasamir um hana. í fyrra var
mjög mikil nótaveiði. Nú brá svo
við að nær enga ýsu var að fá.
Standa vonir til að á vertíðinni
taki hér til starfa fiskverkunar-
hús, Fiskiver sf., og taki í salt
og skreið. Það er í byggingu og
er að verða tilbúið. — óskar.
Stokkseyrarbátar á línu fyrst
STOKKSEYRI, 11. des. — Einn
bátur hefur þegar hafið róðra
héðan frá Stokkseyri. Fékk hann
um 5 tonn í fyrsta róðri. Vænt-
anlega byrja næstu daga 3 bát-
ar til viðbótar og sá fimmti síð-
ar í mánuðinum.
Allir þessir bátar fara á línu
til að byrja með. Búast sjómenn
við að nýja fiskverðið gefi þeim
nokkuð gott fyrir það. Yfirleitt
finnst mér heldur gott hljóðið í
þeim sjómönnum, sem ég hefi
talað við, varðandi það.
— Steingrímur.
Hraðfrystihúsið stækkað
í Þorlákshöfn
Frá Þorlákshöfn verða gerðir
út 7 bátar, sem róa með línu.
Einnig verða þar fleiri með net.
Þykir sjómönnum bagalegt að
hafa ekki fengið bátakvína fyrir
vetrarvertíð, sem búið var að
gera ráð fyrir, en stærri bátar
þurfa alltaf að flýja úr höfninni,
ef eitthvað verður að veðri. Einn
línubátur er byrjaður, og fleiri
bíða eftir veðri til að komast
fyrir Reykjanes og heim, eftir
að hafa verið í slipp í Reykjavík.
Síldarverksmiðja er nú í bygg-
ingu á Þorlákshöfn og tekur
væntanlega til starfa í febrúar.
Á hún að bræða 2500 mál á
sólarhring og hafa 20 þús. mála
þróarrými.
Hraðfrystihúsið á staðnum hef-
ur verið bætt mjög fyrir þessa
vertíð, og hefur afkastageta þess
aukizt um helming.
35 Grindavíkurbátar á vertíð
GRINDAVÍK, 11. janúar. —
Gert er ráð fyrir að hér verði 30
stærri bátar í vetur, 50—200 tonn
að stærð, auk smærri bátanna.
Þar af verða 10 bátar gerðir út
á línu til að byrja með. Síðar
munu þeir allir fara á net. Verða
allir bátarnir þá með net þegar
kemur fram í febrúar eða 35
bátar alls, stórir og smáir.
Þessir bátar eru gerðir út frá
10 fyrirtækjum og auk þess gera
nokkrir einstaklinga út. Hér
hafa bætzt nokikur ný útgerðar-
fyrirtæki. Flesta báta hafa þess-
ir: Þorbjörn með 7 báta, Hrað-
frystihús Grindavíkur 6 og Hrað-
frystihús Þórkötlusta'ða með 4.
Auk þess leggur fjöldi báta úr
nærliggjandi verstöðvum upp
afla hér í febrúar, marz og apríl
mánuði, svo sem úr Sandgerði,
Keflavík, Njarðvíkum, Hafnar-
firði og Reykjavík, svo að á þeim
tíma er höfnin að jafnaði full af
bátum og er tala þeirra, sem í
höfnina koma daglega á um-
ræddu tímabili að jafnaði 40—70
bátar.
Hvað fiskverðið snertir, þá
hafa menn ekki almennilega átt
að sig á því ennþá, þar sem
grunnurinn fyrir þessari 17%
hækkun liggur ekki nákvæmlega
fyrir meðal almennings. Því er
ekki hægt að segja hvernig sjó-
mönnum lízt á það á þessu stigi
málsins. En hinsvegar er ljós sá
mismunur, sem gerður er nú, eins
og sl. 2 ár milli þeirra sem hrað
frysta sinn fisk annars vegar og
hinna sem verka í salt hins veg-
ar. Þeir sem hraðfrysta fá upp-
bætur, sem nema 22 aurum á kg.
af fiski upp úr sjó. Þeir sem
verka í skreið fá væntanlega
nokkra uppbót, en þeir sem
verka í salt verða þess ekki að-
njótandi nú frekar en undan-
gengin ár. Hafa þó margir óum-
deilanlega lagt geysimikið fé í
að endurbæta hús sín og kaupa
ný og fullkomin tæki til þeirrar
vinnslu, jafnvel ekki síður en
hinir gera, sem styrksins verða
áðnjótandi. Grindavík er nú
seinni árin að verða ein af
stærstu saltverkunarverstöðvum
landsins og er því þungur hugur
manna til þessara aðgerSa, þar
sem um svo langvarandi mis-
ræmi er að ræða.
Tíð hefur veri'ð hér afar slæm
og umhleypingasöm frá því fyrir
hátíðir og hefur því lítið eða
ekkert verið farið á sjó að heitið
geti frá því fyrir jól, en menn
búast nú almennt af kappi undir
vertfðina og munu róðrar hefjast
strax og lægir. Verður þá ýmist
að menn fara á línuveiðar, netja
eða síldveiðar með nót.
Línubátarnir að byrja
í Sandgerði
Sandgerði, 11. jan.: — Línu-
bátarnir eru að byrja að róa
Stóru bátarnir, Jón Garðar, Sig-
urpáll, Víðir, Guðbjörg og Ell-
iði eru enn á síld og verða fram
eftir. En smærri bátarnir reru
fyrst í gær á línu. Voru 3 bátar á
sjó og höfðu frekar lítið. Munu
aðrir 9 bátar róa með línu. Ein-
hverjir bátar verða svo eingöngu
á netum. Auk þess koma aðkomu
bátar, þegar líður á.
Sjómenn eru ekki enn búnir
að átta sig á hvernig 17% hækk
unin með nýja verðinu verður
komið fyrir og hvaða áhrif það
hefur á þeirra veiðar hér. — P.P.
22 línubátar bíða tilbúnir.
KEFLAVÍK, 11. jan. — Fyrir
áramót voru 6 bátar byrjaðir
línuveiðar frá Keflavík og aðrir
bátar, sem ætla að stunda línu-
veiðar fram í febrúar, eru til-
búnir og munu hefja veiðar
strax og veður leyfir. En þeir
munu vera 22 talsins. Einn bátur
hefur þegar lagt net, sem er
óvenjulega snemma. Hann hefur
einu sinni vitjað um, en aflaði
mjög lítið.
Sex af stærstu síldarbátunum
eru farnir suður fyrir land á
síldveiðar og munu halda aust-
ur fyrir, ef síldar verður þar
vart áfram. — h.s.j.
Bíða eftir hagstæðu veðri
Hafnarfirði. — Bátarnir liggja
nú flestir hér í höfn eða síðan
fyrir áramót og bíða betra veðurs
til að hefja aftur síldveiðar fyrir
Austurlandi, áð minnsta kosti
sumir þeirra. Það verður þó tæp
ast um langan tíma, veður rysjótt
og erfitt að stunda veiðarnar á
þessum árstíma, sérstaklega ef
síldin stendur mjög djúpt. —
Loðnutíminn fer líka senn í hönd
— og svo auðvitað seinna í vetur
þorskanótavei'ðin.
Aðeins tveir bátar, Sigurjón
Arnlaugsson og Blíðfari, eru
gerðir út á línu, en hafa enn
sem komið er lítið sem ekkert at
hafnað sig sökum óhagetæðs veð
urs. Nokkrir áðrir minni bátar
munu stunda línuveiðar héðan í
vetur. Er nú verið að útbúa þá.
Sveinn Halldórsson
leikari 75 ára
FLESTUM mun svo finnast,
tem til þekkja að fullvegið væri
framlagið hans Sveins okkar
Halldórssonar til leiklistar með
því sem hann hafði snarað á
vogirnar hjá þeim Bolvíkingum
og síðan nábýlingum okkar í
Garðinum. Að stóra verkið og
ævistarfið væri þegar unnið er
hann settist að hér í Kópavogi.
Sagðar hafa mér verið sögur af
því þvíyíkur risi Sveinn hafi
verið til verka og sköpunar fyrr
á árum, að hefði ég ekki seinna
reynt sannleika þess í kynnum
við leikarann Svein Halldórsson
hefði mér verið næst að halda
að þverbrestur væri í sögunni.
5. jan. árið 1957 er Leikfélag
Kópavogs stofnað. Frá þeim degi
og til þessa er Sveinn virkur fé-
lagi í þvL í stjórn hefur hann
setið löngum.
Öll störf hans sem stjórnar-
manns hafa verið til mikillar
blessunar og góðs. Sveinn Hall-
dórsson er ásamt frú Huldu
Jakobsdóttur gerður að heiðurs-
félaga L. K. árið 1961. Var það
mjög verðskuldað og stórt gleði-
efni okkar allra félaganna að
hann hlyti sæmd þá. Mörg verða
spor hans líka á sviðinu eftir að
hann setur bú hér, hefur unnið
stór verk og sigra og heggur
vítt til fanga. Ég leyfi mér að
nefna leik hans í Alvörukrón-
unni, léttur og ótrúlega leikur.
Þá lítið en skemmtilega unnið
hlutverk í Útibúinu í Árósum.
Síðan fylgir stórt og vandasamt
hlutverk lögregluforingjans í
Gildru Roberts Thomas. Afburða
glæsilega gert. Annan búálfinn
í barnaleikritinu Húsið í skóg-
inum tókst honum að lifa svo
að mér er ekki grunlaust að slík
ir búi á hanabjálkalofti hugans
hjá mörgu barni síðan. Það er
reyndar ekki frítt við að mér
sýnist sjálfri ég síðan verða vör
við sitthvað ekki alveg trúlegt
á mínu lofti. Þá eru það síðustu
afrekin hans hér í Kópavogi,
Arngrímur holdsveiki í Fjalla-
Eyvindi og síðast flutningur hans
á köflum úr minningum Matthías
ar, er haldið var hér í Kópavogi
fyrr í vetur til kynningar á skáld
verkum og leikritaþýðingum
Matthíasar Jochumssonar. Þeir
sögðu upplestur, það var enginn
lestur, mér fannst klerkurinn frá
Akureyri kominn þar, gnæfandi
hátt, sem jötunn og skuggar ris-
ans flökta um loft og veggi, tal
hans eldur og logi. Þannig verður
skáldskapur lifandi. Eldur sem
öllu yljar, öllu lýsir og öllu
brennir.
Mér finnst, sem haldi ég tveim
fagurskyggðum perlum í sín
hvorri hendi, er ég hugsa um
þessar tvær síðustu gjafir hans
til okkar hinna. Ég kreppi hnefa
og opna til skiptis, hrædd og
forviða hvort hverfa muni ger-
semarnar. En djásnin eru þar og
munu alltaf verða, sem gjöf frá
þér Sveinn og eign okkar, dýr-
mæt eign okkar, sem höfum séð
þig vera á sviðinu, lifað þar og
starfað með þér og við segjum
hafðu hjartans þökk.
Ekkisen fjandans bull er í
stelpunni, ætlar hún ekki að
hætta nú er nóg komið, hugsar
Framhald á bls. 19.
Áform Akranesbáta á vetrarver-
tíð.
AKRANESI, 11. jan. — Hjá
Heimaskaga h.f. eru Ásmundur
og Skipaskagi. Þeir fis-ka á
línu og í þorskanet, er til kem-
ur. Sólfari verður með þoraka-
net. Bátar Haraldar Böðvars-
sonar & Co: Haraldur er í smá-
viðgerð. Höfrungur II. kominn
ti-1 Færeyja á leið til Aarhus til
klössunar, Höfrungur III. er á
síld, Skírnir bíður byrjar á síld,
Ver, Höfrungur I. og Reynir hafa
fiskað á línu og nú er verið að
útbúa Keili. Sigurður Hallbjarn-
arson h.f.: Ólafur Sigurðsson er
á síldveiðum, Rán er á línu og
fiskar í net þegar til kemur,
Anna fer á síld strax og gefur,
síldarnót Sigurborgar er í
lamasessi, og óákveðið hvað hún
gerir. Haförn verður á línu, eins
og áður, tekur síðar upp net. Nú
er hún að fá nýan radar og ver-
ið að lagfæra vélina. Búið er að
selja eitthvað af bátum Fiski-
vers og lítið starfað þar í augna-
blikinu. Ekki er vitað hvað Sig-
urfari gerir. — Oddur.
4 fiskverkunarstöðvar og 20
bátar.
ÓLAFSVÍK, 11. jan. — Út-
gerðarmenn og sjómenn eru nú
sem óðast að búa báta sína á
vetrarvertíð. Nokkrir hinna
smærri báta hafa þegar hafið
vertíð O’g róa með lxnu. Hefur afli
verið sæmilegur. Stærri bátarn-
ir munu róa með net og er lík-
legt að þeir fyrstu byrji upp úr
miðum þessum mánuði. Búist er
við að 20 bátar verði gerðir út
héðan frá Ólafsvík i vetur. Eru
sjómenn og útgerðanmenn bjart-
sýnir á góða vertíð, eins og und-
anfarnar vertíðar, ef tíðarfar
verður hagstætt. Enn mun vanta
nokkuð á að nægilegt fólk fáist
til starfa í fiskverkunarhúsum.
staðarins og mun aðallega vanta
stúlkur til frystihúsastarfa og
vana flakara og aðra vana fisk-
verkun.
Fjórar fiskverkunarstöðvar
verða starfræktar hér á vertíð-
inni. Eru þær Hrói h.f., sem
verkar aðallega fisk í salt og hef-
ur skreiðaverkun, Kirkjusandur
h.f. með frystingu, söltun og
skreiðarframleiðslu, Hraðtfrysti-
stöð Ólafsvíkur með .frystingu,
söltun og skreiðarframleiðslu og
ný fiskverkunarstöð, sem verkar
fisk í salt og skreið.
Hið nýja fiskverð, sem yfir-
nefnd ákvað á dögunum hefur, að
ég held verið vel tekið, þó ekki
liggi ljóst fyrir eins og er hvern-
ig verðhækkunin skiptist í ein-
staka flokka. Þó er viðurkennt,
að aldrei hafi orðið eins miikil
hæikkun í einu, eins og orðið
hetfur í þetta sinn. — Hinrik.
Fást ekki beitingamenn.
HELLISSANDI, 11. jan. —
Fimm heimabátar verða gerðir
hér út auk smærri báta og svo
eitthvað að aðkomubátum, lík-
lega 5—6. Einn er byrjaður á
línu og aflinn tregur. Annars er
sáralítili áhugi á línuútgerð.
Menn bíða eftir að komast á
net. Ekki er það þó fiskverðinu
að kenna. Sjómenn eru sæmilega
ánægðir með það. En þeir eru
búnir að stilla sig inn á þetta og
orðið ómögulegt að fá menn til
að beita. Annar bátur ætlaði á
línu, en hætti við það því engir
enx til að beita línuna.
Á haustvertíð reru 5 bátar,
stórir og smáir. Þá voru afla-
brögð allgóð. Hæsti báturinn,
sem byrjaði síðast í október og
reri fram í miðjan desember,
fékk 400 tonn, sem þykir mjög
góður afli hér. Það var 53 tonna
bátur, Hamar. Með hann er ung-
ur og duglegur maður, Sævar
Friðþjótfsson.
í byggingu í Rifi eru núna 3
nýjar fiskvinnslustöðvar, sem
hyggjast taka á móti fiski í vet-
ur í salit og skreið.
— Rögnvaldur.
10—11 bátar í Stykkishólmi.
STYKKISHÓLMI, 11. jan. —
Gert er ráð fyrir að hér verði
10—11 bátar. Tveir eru byrjaðir
á línu, Straumnir og Þróttur.
Þeir komu úr fyrsta róðrinum í
gær, en afli var þá fremur treg-
Affkomufólk farið að koma.
GRUNDARFIRÐI, '1. jan. —
Héðan verða gerðir út 7 bátar,
sem er svipuð tala og undanfar-
in ár. Þrír þeirra eru þegar
byrjaðir róðra með línu, en hinir
munu bráðléga byrja veiðar
með þorskanetum. Aflinn á lín-
una hefur verið tregur það sem
aa er. Var hinsvegar all sæmileg-
ur á haustvertíð.
Nokikuð er farið að koma af
aðkomufólki og fleira mun bæt-
ast við þegar allir bátar hafa
hafið róðra. — Emil.
Vertíðarfólk að byrja að kornia
koma til Eyja.
VESTMANNAEYJUM, 11. jan.
— Vertíð er hér varla byrjuð
enn. Stærri bátarnir eru enn á
síld og verða það þangað til þéir
taka þorskanótina. í dag liggja
hér 10 stórir aðkomubátar, sem
hafa verið á síldveiðum í Skeið-
arárdýpinu.
F'jöldinn af minni bátunum
verður á trolli í vetur. Þeir sem
eru byrjaðir á línu, sem eru fáir,
eiga beitt, en ekki gefur á sjó.
Fátit vertíðarfólk er hér ennþá.
Fyrstu Færeyingarnir komu með
Herjólfi í gær.
Vertíð er varla byrjuð, sem
fyrr er sagt, Ef reikna má með
sama fjölda og í fyrra, þegar allt
er komið í gang og allir aðkomu
bátar komnir, þá verða hér 80—•
90 bátar þegar mest er.