Morgunblaðið - 13.01.1966, Page 3
Fimmtudagur 15. janúar 1966
MORGU N BLAÐIÐ
3
GAGNFRÆÐASKÓLI Verk-
náms við Ármúla er hin veg-
legasta byggintg, jafnt hið
innra sem ytra. Væntanlega
stendur þó nánasta umhverfi
skólans til bóta, gangbraut
hefur að vísu verið lögð frá
endastöð áætlunarbílsins, sem
flytur skólapilta frá gagn-
fræðaskólanum í Brautar-
holti, en að öðru leyti vaða
piltarniir eðju í rigningaftíð.
Mikil nákvfmnisvinna liggur að baki prófstykkjanna. — Hér sjást nokkrir piltar við vinnu
sína í járnsmíðavinnustofu.
Nýr verknámsskúli viö Armúla
Skólahúsið er með afbrigð-
um smekklega innréttað, á-
herzla hefur sýnilega verið
lögð á hagraena innréttingu, að
koma sem flestu fyrir á sem
minnstu svæði, án iþess þó að
nokkur vandræði eða örðug-
leikar hljótist af. Á efri hæð
hússins eru trésmíðavinnustof-
ur fyrir skólapilta en á þeirri
neðri járnsmíðavinnustofa, —
vélaverkstæði, og einnig nokk
uð, sem telja má til algerrar
nýjungar í handavinnukennslu
á íslandi, en það er rafsuðu-
vinnustofa, þar sem sex piltar
geta samtímis unnið að raf-
suðu og logsuðu við sérstak-
lega útbúin vinnuborð. Mun
þessi vinnustofa verða tekin
í notkun nú á næstunni.
Að fengnu góðfúslegu leyfi
skólastjóra Gagnfræðaskóla
Verknáms, Magnúsar Jónsson-
Björgvin Jóhannsson
við vinnu sína í trésmíða-
vinnustofu.
ar, heimsóttu fréttamenn Mbl.
hið veglega skólahús við Ár-
múla, en þar fer fram öll
verkleg kennsla. B ó k 1 e g
kennsla fer hinsvegar fram í
skólanum við Brautarholt, og
læra piltarnir þar ýmis fræði,
sem auðvelda þeim verknám-
ið, m. a. efriisfræði, stærð-
fræði o. fl. og að sjálfsögðu
ensku og dönsku.
Sigurður Úlfarsson, sem
kennir trésmíði, beitingu og
meðferð verkfæra í sambandi
við hana, sýnir okkur tré-
smíðavinnustofuna. Enn sem
komið er verða skólapiltar að
notast við gamla hefilbekki,
en von er á nýjum og hent-
ugri hefilbekkjum í náinni
framtíð. Sigurður tjáir okkur,
að í skólanum hefjist kennsla
kl. 8.15 á morgnana og standi
til kl. 18 flesta daga. í hinum
nýja verknámsskóla eru ein-
ungis nemendur sem lengra
eru komnir, úr 3. og 4. bekk.
I trésmíðavinnustofunni er
samankominn álitlegur hópur
ungmenna, væntanlega verð-
andi húsgagnameistarar og
húsasmiðir, en á þeim er eng-
in vanþörf á íslenzkri ný-
bygginga- og framfaraöld.
Ingi Eyvinds við eitt rafsuðuvinnuborðanna.
Ingi Eyvinds, fyrrverandi
knattspyrnudómari og reyk-
vískum knattspyrnuunnend-
um að góðu kunnur, sýnir
okkur salarkynni á neðri hæð.
í járnsmíðavinnustofunni, þar
sem Ingi ræður ríkjum eru
u. þ. b. 10 piltar í óða önn að
ljúka af prófstykkjum fyrir
miðsvetrarprófið sem nú fer
í hönd. Prófstykkin eru litlir
járnbútar, sem piltar sverfa
kunnáttusamlega til í því
augnamiði að fá þá hornrétta
„plana þá“, eins og þeir kom-
ast að orði.
Á vélaverkstæðinu vinna
margar hendur ötullega að
því, að taka í sundur aflvélar
bifreiða og setja þær síðan
saman aftur, en engin leið er
betri til að kynnast hinni
flóknu samsetningu vélanna
og starfsemi hinna ýmsu véla-
hluta. Við einn vegginn
standa nokkrir ábúðarmiklir
glerskápar, sem í náinni fram-
tíð eiga að verða hirzlur undir
sýningartæki, vélar og verk-
STAKSniMR
Orvæntingaróp!
í sunnudagspistli Framsóknar-
málgagnsins sl. sunnudag mátti
lesa örvæntingarfullt kall gam-
alla og afturhaldssamra manna til
æsku landsins um að bregðast nú
ekki Framsóknarflokknum í neyð.
Áður en Framsóknarmenn snúa
sér að því að leita fylgis hinna
nýju kjósenda væri þeim hollt
að huga fyrst að því. unga fólki,
sem einhverra hluta vegna hefur
þegar snúið sér að Framsóknar-
flokknum en hlotið þar hina
hraklegustu meðferð. Á sama
tíma og Tíminn og Eysteinn
Jónsson höfða til unga fólksins
um stuðning við afturhalds-
stefnu sína múlbindur Framsókn
arforustan og handjárnar yngri
menn flokksins eins og henni
framast er unnt.
Ungliðasamtök flokksins eru
sundruð vegna innbyrðis átaka
eldri mannanna og nokkrir hinna
yngri þingmanna flokksins voru
handjárnaðir þrátt fyrir harða
mótspyrnu í alúmínmálinu.
Þannig fer Framsóknarflokkur-
inn með sína yngri menn. Þeir
verða að sitja og standa eins
og hinum gömlu og afturhalds-
sömu forustumönnum þóknast.
Það er ekki að skapi íslenzkrar
æsku að hljóta slíka meðhöndl-
un. Það er ekki að skapi íslenzkr
ar æsku að fylgja stjórnmála-
flokki sem er gjörsneyddur öll-
um skilningi á því sem framtíð
íslands krefst. Það er ekki að
skapi nýrrar kynslóðar að mega
ekki láta í ljósi skoðanir sínar
þótt þær fari ekki saman við
skoðanir forustumanna stjórn-
málaflokkanna.
Unga fólkið skilur þörf nýrra
tíma. Unga fólkið skilur að
djörfung og framsýni verður að
ríkja í stjórn landsins. Unga
fólkið gerir sér fullkomlega grein
fyrir því að Framsóknarflokkur
inn er þröngsýnasti stjórnmála-
flokkur á þessu landi, sannkallað
ur afturhaldsflokkur. Slíkur
stjórnmálaflokkur er ekki að
skapi íslenzkrar æsku. Þess
vegna eru örvæntingaróp Fram-
sóknarmanna til unga fólksins
þýðingarlaus og það munu hinir
afturhaldssömu forustumenn
Framsóknarflokksins sannreyna
Tveir verðandi vélvirkjar skrúfa hér í sundur gamla aflvél
úr strætisvagni.
færi, piltunum til lærdóms og
augnayndis.
Við yfirgefum skólahúsið
með þá ósk í huga, að allir
gagnfræðaskólar á landinu
verði þess umkomnir áður en
langt um líður, að veita nem-
endum sínum jafn fullkomin
og ákjósanleg vinnuskilyrði og
verknámsskólinn við Ármúla.
innan tíðar.
Hámark hræsninnar
Það mun mörgum þykja það
hámark hræsninnar, þegar komm
únistar hér á landi tala um það,
að prentfrelsi sé í hættu á ís-
landi vegna fjárhagserfiðleika
nokkurra dagblaða. Þeir menn,
sem í málgagni sínu hafa stundað
þá þokkálegu iðju í áratugi að
verja kúgun og ofbeldi í komm-
únistaríkjunum austan járntalds
og réttlæta að prentfrelsi hefur
verið afnumið í þeim löndum,
sem búa við kommúnískt skipu-
lag, og að þar eru ekki gefin út
önnur blöð og bækur en þau,
sem valdhöfunum þóknast telja
sig nú umkomna þess að birta
aðvörun í blaði sínu um það, að
prentfrelsi á íslandi sé í hættu,
þótt þeirra eigið blað eigi við
dvínandi vinsældir að stríða. Þá
er skörin vissulega farin að fær-
ast upp á bekkinn, þegar komm-
únistar, sem banna allar aðrar
skoðanir á prenti en sínar eigin,
þar sem þeir ráða rikjum, en
njóta þess frelsis í lýðræðislönd-
um að beita blöðum og öðrum
málgögnum til þess að grafa und
an því sama lýðræði, sem veitir
þeim þennan rétt, tala um það
að prentfrelsi sé í hættu á ís-
landi.