Morgunblaðið - 13.01.1966, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 13. 'anúar 190
Annast um SKATTAFRAMTÖL Tími eftir samkomulagi. . Friðrik Sigurbjörnsson, lögfræðingur, Fjölnisvegi 2 Sími 16941.
Kaupið 1. flokks húsgögn Sófasett, svefnsófar, svefn- bekkir, svefnstólar. 5 ára ábyrgð. Valhúsgögn, Skóla vörðustíg 23. — Simi 23375.
Klæðum og gerum við hólstruð húsgögn. 1. flokks vinna. Sækjum og sendum. Valhúsgögn, Skólavörðu- stíg 23. Sími 23375.
Smálönd Laghenta konu eða stúlku vantar okkur í leðurvöru- gerðina hér. Sími 60080.
Keflavík Tvö herbergi og eldhús óskast til leigu. Uppl. í síma 1693 frá kl. 6—7 eftir hádegi.
Keflavík Leigjum út 100 manna sal fyrir fundarhöld og veizlur. Aðalver Sími 1516. á
Keflavík Þeir, sem pantað hafa þorrablót og fermingar- veizlur, hafi samband við okkur sem fyrst. Aðalver, sími 1516.
Þrjár reglusamar stúlkur óska eftir herbergi sem fyrst í Reykjavík. Barna- gæzla 1—2 kvöld í viku, ef óskað er. UppL í síma 41128.
Ung kona óskar eftir atvinnu frá 1-6, hefur unnið í banka, margt kemur til greina. Uppl. í síma 41261.
Rúmgóð 3ja herb. íbúð til leigu í 1 ár. Sími, ís- skápur og teppi á stofu geta fylgt. Tilboð sendist Mbl., merkt: „8243“ fyrir laugardag.
Ráðskona óskast Ráðskona óskast á fá- mennt heimili. Uppl. eftir kl. 8 í síma 36958. ?
Geirungsskurðarhnífur til sölu. Upplýsingar í síma 17558.
Trésmiðaflokkur getur bætt við sig verk- éfnum. Uppl. í síma 34098.
Keflavík — Suðurnes Fótasnyrtingar. Sími 2250. Hringbraut 50.
Gott herbergi
óskast til leigu strax.
Upplýsíngar gefur Friðrik
Sigurbjörnsson, lögfræðing
ur, Morgunblaðinu.
Ur Islendingasögunum
ÞOBMÓÐUR KOLBRÚNABSKÁLD DREPUR ÞORGRÍM
EINARSSON
„Nú gengr Þormóð fram fyrir búðina ok þar at, sem Þorgrímr
sat. Hann mælti: „Hvat sögu var þat, er þú sagðir áðan?
Þorgrímr svarar: „Eigi getr þat í fám orðum sagt, stórmerki
þeirrar sögu. Eða hvert er nafn þitt?“ Hann svarar: „Ótryggr
heiti ek“. — Hvers son ertu? segir Þorgrímr. „Ek em
Tortryggsson." — Þá vildi Þorgrimr upp rísa af stólnum.
Þormóðr höggr þá í höfuð honum ok klýfr hann í herðar niðr,
brá síðan öxinni undir feld sinn ok sezt undir herðar Þor-
grími ok kallar: „Farit þér hingat, á er unnit Þorgrími“.
(Fóstbræðra saga).
að hann hefði lagt af stað í
morgunljómann í gærmorgun og
flogið út á Seltjarnarnes, og
síðan settist ég stundarkorn á
Gróttuvita og leit hinn fagra
fjallahring og eyjarnar á Kolla-
firði, sem svo eru kallaðar.
Þarna hitti ég mann, sem sat á
stórum fjörusteini, og virtist í
góðu skapi.
Storkurinn: Þér er rótt hjá
Gróttutöngum, maður minn?
Maðurinn hjá Gróttu: Já, já,
ég er nefnilega nýbúinn að' lesa
grein í því stórfróðlega riti
„Animals" um náttúruvernd og
friðiýsingu svæða. Sjálfsagt er
það meira vandamál meðal stór-
þjóða, heldur en í fámenninu hér,
að forða fallegum stöðum frá
húsbyggingum og öðru, sem til-
heyrir menningarþjóðfélagi, og
eftir greininni að dæma, þarf
víðtæk almenningssamtök til að
hindra þessa þróun, að byggja út
hinni frjálsu náttúru og ósnortnu.
Við hérna eigum marga góða
staði, sem heppilegt væri að friða
t.d. strandlengjan hér á nesinu
og Grótta, og raunar eru til stað-
ir mýmargir í grend við borgina,
sem ætti að friða fyrir byggíng-
um. Það er ómetanlegt áð eiga
slíka staði nærri borginni, Það er
alls ekki nóg að eiga Heiðmörk,
við þurfum líka að friða strend-
ur, svo að fólk geti í næði virt
í dag er fimmtudagur 13. janúar og
er það 13. dagur ársins 1966. Eftir
lifa 352 dagar. Geisladagur.
Tungl á síðasta kvarteli.
Árdegisháflæði kl. 10:14.
Síðdegisháflæði kl. 22:50.
Með hverju getur ungur maður
haldið vegi sínum hreinum? Með
því að gefa gaum að orði þínu.
(Sálmarnir, 119, 9).
Upplýsingar um læknaþjön-
ustu í borginni gefnar í sím-
svara Læknafélags Reykjavíkur,
Símin er 18888.
Slysavarðstofan i íleilsuvfrnd-
arstöðinni. — Opin allan sóUr-
hringinn — sími 2-12-30.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
IÐUNN vikuna 8. jan. til 15. jan.
Næturlæknir í Hafnarfirði að-
faranótt 14. janúar er Eiríkur
Björnsson sími 50235.
Næturlæknir í Keflavík 13.
jan. til 14. jan. Jón K. Jóhanns-
son sími 1800, 15. jan. til 16. jan.
Kjartan Ólafsson sími 1700, 17.
jan. Arinbjörn Ólafsson sími
1840, 18. jan. Guðjón Klemens-
son sími 1567 og 19. jan. Jón K.
Jóhannsson sími 1800.
Kópavogsapotek er opið alla
virka daga frá kl. 9:15—20. laug-
ardaga frá ki. 9:15—16, helgidag*
frá kl. 13—16.
Framvegis verb'ur tekið & möti þelm.
er gefa vilja blóS 1 Blóðbankann, sem
hér segir: Mánudaga, þriðjudaga,
fimmtudaga og föstudaga frá kl. 9—11
f.h. og Z—4 e.h. MIÐVIKUDAGA fr*
kl. 2—8 e.h. Laugardaga fra kl. 9—11
fJi. Sérstök athygll skal vakin á miS-
vikudögum, vegna kvöldtimans.
Holtsopótek, Garðsapótek, Soga
veg 108, Laugarnesapótek og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka daga kl. 9. — 7., nema
laugardaga frá kl. 9 — 4 og helgi
daga frá kl. 1 — 4.
Upplýsingaþjónusta AA samtak
anna, Hverfisg. 116, sími 16373.
Opin alla virka daga frá kl. 6-7
Orð lífsins svarar 1 síma 10000.
o EDDA 59661147 = 3
□ GIMLI 59661137 = I.
I.O:O.F. 11 = 147113834 = 9. I.
I.O.O.F. 5 = 14711381/4 = E. I.
fyrir sér hið fjölbreytta
dýralíf þar, í fjörunni og um
þetta þarf að hugsa í tíma, þ.ví
að fyrr en varir, getur það orðið
of seint.
Storkurinn var manninum al-
veg sammála, og með það flaug
hann út í Viðey, og þar er svo
sannarlega staður, sem ætti að
gera að þjóðgarði. Þar um slóð-
ir er ólýsanleg fegurð, hvert sem
litið er. Síðan flaug storkurinn
aftur í land og skríkti af kátínu
yfir lífinu.
LÆKNAR
FJARVERANDI
Eyþór Gunnarsson fjarverandl ó-
ákveðið. Staðgengill: Erlingur í>or-
steinsson, Stefán Ólafsson, Guð-
mundur Eyjólisson, Viktor Gestsson
og Björn JÞ. Þórðarson.
Gunnar Guðmundsson fjarv. um
ókveðinn tíma.
Ólafur Þorsteinsson fjv. frá 10. jan.
til 22. jan. Staðgengill: Stefán Ólafs-
son.
Ragnar Arinbjarnar fjarv. 12. jan.
til 23. jan. Staðgengill: Ólafur Jónsson.
Sveinn Pétursson fjarverandi um
óákveðinn tíma. Staðgengill Úlfar
Þórðarson.
Valtýr Bjarnason fjv. óákveðið. Stg.
Hannes Finnbogason.
VÍSLKORIM
HÁTEIGSKIRKJA
51., 52. og 53 vísukorn.
Háteigskirkja horfir á mig
og hofið sterkra virkja
himins til hún teygir sig
turnaglæsta kirkja.
Fagna ljórar frelsisóð
flæðir sjórinn stefja
trúarstórir „Tindastól“
tónakórar hefja.
Fyrr má ekki hætta hér
hjartans bæna kliðnum
en ljómar næstum nagli hver
sem náðargeisli í viðnum.
Oddur.
sú NÆST bezti
Kaupmenn tveir, Jens og Þórður, verzluðu fyrir löngu á fsa-
firði. Mikil samkeppni var á milli þeirra. Eitt sinn tók Jens upp
á því að selja hænueggið á 19 aura, en annars voru þau seld á
20 aura. Þórður lækkaði þá einnig um einn eyri, og þannig héldu
þeir áfram, þangað til eggið var komið niður í 10 aura.
Þá fer Jens tii Þórðar og segir, að þetta dugi ekki, þeir séu að
selja langt undir innkaupsverði. Þórður læzt verða undrandi og
spyr, hvort hann sé farinn að tapa á eggjasölunni.
„Þykist þú kanski ekki tapa?“ spyr Jens. „Nei,“ segir Þórður.
„Ég kaupi eggin hjá þér.“
w
lll
’Oói