Morgunblaðið - 13.01.1966, Síða 16
16
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 13. janúar 190
Æskuíýðsráð Rcykjavíkur
Námskeið í eftirtöldum greinum tómstundavið-
fangsefna hefjast í lok janúar:
Ljósmyndaiðja Postlínsmálun
Radiovinna Listmálun
Filtvinna Leðurvinna
Ryahnýting Mosaik vinna
Einnig geta nokkrir piltar komist að í sjóvinnunám-
skeið. — Innritun er hafin í skrifstofu Æskulýðs-
ráðs að Fríkirkjuvegi 11 kl. 2—8 virka daga, —
sími 15937.
Þér þurfið ekki að hafa óþægindi af
skemmdum hljóðkút eða púströri bifreið-
arinnar. Hjá okkur getið þér fengið kítti
eða plastrenning, sem á fljótlegan og
auðveldan hátt stöðvar óþægindin og veitir
góða endingu.
Garðar Gíslason hf.
bifreiðaverzlun.
s kíðabuxur
LONDON
dömudeild
Austurstræti 14.
Sími 14260.
HEIANCA
síðbuxur
HtlANCA
í ú r v a I i .
— PÓSTSENDUM —
LONDON, dömudeild
Þorsfeinn Gunnarsson
húsasmíðam. — Minning
í DAG verður til moldar borinn
Þorsteinn Gunnarsson, húsa-
smíðameistari, til heimilis að
Heiðargerði 25 hér í borg, en
hann andaðist í Landakotsspítala
7. þ.m. aðeins 48 ára að aldri.
Þorsteinn var fæddur að Mið-
dal í Laugardal, sonur Guðrún-
ar Guðmundsdóttur frá Sandlæk
í Gnúpverjahreppi og Gunnars
Þorsteinssonar frá Reykjum á
Skeiðum. Þorsteinn fluttist með
foreldrum sínum til Reykjavíkur
árið 1928, þar sem hann vann
ýmis algeng störf, eins og títt er,
unz hann hóf nám í húsasmíði
um tvítugsaldur hjá Sveinbirni
Kristjánssyni, byggingameistara.
Lauk hann sveinsprófi með góð-
um árangri og stundaði iðn sína
síðan alla tíð.
Árið 1956, í desember, réðst
Þorsteinn í það ásamt 5 öðrum
trésmíðameisturum að stofna
byggingafélagið Við s.f., og vann
hann við það fyrirtæki til hinztu
stundar. í fyrstu var farið hægt
af stað, en fyrirtækið blómgað-
ist brátt, og var það ekki hvað
sízt að þakka hagleik og atorku
Þorsteins.
Þorsteinn var bæði vel virk-
ur og atorkumaður mikill til allr
ar vinnu. Hann var prýðilega
gefinn maður, prúðmenni, svo
að af bar, og einstaklega gott
með honum að vera, hvort sem
var í vinnu eða utan hennar.
Getum við félagar hans í Við s.f.
gleggst um það borið.
Þorsteinn kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Sigrúnu Laufeyju
Gísladóttur, árið 1942 og eignuð-
ust þau 4 börn: Ástrós, gift Ólafi
Kristjánssyni, verzlunarmanni í
Stykkishólmi, Guðrún, gift Jóni
Richardssyni, útvarpsvirkja,
Gunnar, stundaði trésmíðanám
hjá föður sínum og Gísli Freyr,
10 ára. Dveljast synirnir báðir í
foreldrahúsum.
Að Heiðargerði 25 hafði Þor-
steinn byggt sér hús í frístund-
um sínum, og átti hann þar frið-
sælt heimili og athvarf, þegar
heim var komið frá erfiðu dags-
verki. Voru þau hjónin einkar
samhent um að hlúa að heimil-
inu, eins og bezt mátti verða.
Unni Þorsteinn fjölskyldu sinni
meir en nokkru öðru.
Aðaláhugamál Þorsteins utan
vinnu var að leita á vit íslenzkr-
ar náttúru. Ferðaðist hann all-
mikið um nærsveitir með fjöl-
skyldu sína og dvaldi oft við
veiðiskap.
Við viljum að lokum votta
eftirlifandi konu þinni, börnum
og tengdabörnum okkar innileg-
ustu samúð, um leið og við
kveðjum þig, kæri vinur og
starfsfélagi, og þökkum þér fyr-
ir allt fyrr og síðar, og einkum
og sér í lagi þína tryggu vináttu.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Starfsfélagar.
í DAG verður gerð útför Þor-
steins Gunnarssonar húsasmíða-
meistara, en hann andaðist í St.
Jósefsspítala 7. janúar síðastl.,
aðeins 48 ára að aldri.
Þorsteinn Gunnarsson var
fæddur 27. júní 1917 að Miðdal
í Laugardal, en þar bjuggu þá
foreldrar hans, hjónin Guðrún
Guðmundsdóttir frá Sandlæk í
Gnúpverjahreppi og Þorsteinn
Gunnarsson frá Reykjum á Skeið
um, en bæði voru komin af kunn
um bændaættum í Árnesþingi.
Að Miðdal ólst Þorsteinn upp í
hinni fögru sveit, Laugardal, í
skjóli ástríkra foreldra ásamt
þremur systkinum, er undu glöð
og hamingjusöm við leik og starf
í faðmi íslenzkrar náttúru. Sann-
aðist þá sem oftar, að fljótt beyg
ist krókurinn til þess, sem verða
vill, því að þegar á ungum aldri
reyndist Þorsteinn óvenjulega
laghentur við allt, sem hann
lagði hönd að, fyrst í leik, en
síðar í starfi, enda átti hann til
mikilla hagleiksmanna að telja í
báðar ættir.
Árið 1928 brugðu foreldrar
Þorsteins búi og fluttust til
Reykjavíkur með börn sín. Slíkt
eru ávallt mikil umskipti, ekki
sízt á viðkvæmum æskualdri, en
sem betur fer, hefur sú yfirleitt
orðið reyndin, að æskufólk, sem
alizt hefur upp í sveitum lands-
ins, hefur haft þá staðfestu til
brunns að bera að þola slíka
breytingu á högum sínum. Og
staðfestu átti Þorsteinn 1 ríkum
mæli.
Tóku nú við ný störf, gerólík
hinum fyrri, í ys og þys borgar-
lífsins. Sýndi nú Þorsteinn enn
sem fyrr, að hann var ódeigur
að taka til hendinni, þótt ungur
væri, enda veitti ekki af í þá
daga, er efnin voru einatt lítil
og tímar erfiðir. Þar við bættist,
að fjölskyldan varð fyrir þeirri
miklu sorg, er Þorsteinn var ný-
orðinn sautján ára, að Gunnar,
faðir hans, veiktist skyndilega
og var andaður að tæpri viku
liðinni. Stóðu nú móðir og börn
ein uppi. En ekki létu þeir bræð-
ur samt hugfallast þrátt fyrir
æsku sína. Jafnframt því, sem
þeir sáu fjölskyldu sinni far-
borða, réðst Þorsteinn til náms
í húsasmíði. Lauk hann því
námi rúmlega tvítugur og hefur
stundað þá iðn síðan, fyrstu árin
sem sveinn, en síðar meistari.
Má fullyrða, að hæfileikar hans
hafi notið sín til fulls í því starfi.
Svo laghentur var hann, að allt,
er að srwíðum laut, lék honum
í höndutfí. Segja þeir, sem gerst
mega um vita, að hverju verki
hafi verið vel borgið, er hann sá
um. Hinn heiðarlegi og samvizku
sami maður undi ekki öðru en
standa í hvívetna við gerða samn
inag og leysa hvert verk svo vel
af hendi sem verklagni og kunn-
átta framast leyfðu.
Tvívegis varð Þorsteinn fyrir
miklum áföllum í starfi. Fyrir
mörgum árum meiddist hann svo
á vinstri hendi, að hún varð
honum aldrei söm sem áður.
Má nærri geta, hve slík meiðsl
hafa bagað hinn kappsama mann,
þótt ekki léti hann þau á sig
fá og ynni sem áður. En fyrir
nokkrum árum varð hann fyrir
því slysi á vinnustað að falla af
vinnupöllum niður á steinstétt,
og brotnaði hann þá svo illa, að
hann var rúmfastur lengi á eftir.
Beið hann raunar aldrei bætur
þessa slyss þau fáu ár, sem hann
átti ólifuð, þótt kapp hans og
kjarkur og hans létta lund fleytti
honum yfir alla erfiðleika.
Árið 1942 gekk Þorsteinn að
eiga heitkonu sína, Sigrúnu
Laufeyju Gísladóttur. Þeim hjón-
um varð fjögurra barna auðið,
tveggja dætra, sem báðar eru
nú giftar konur, og tveggja sona,
sem enn eru í heimahúsum, hinn
yngri barn að aldri. Sambúð
þeirra hjóna var hin farsælasta,
svo að aldrei bar skugga á, enda
samhent um velferð heimilisins
og hag barna sinna.
Síðastliðið vor kenndi Þor-
steinn heitinn þess sjúkdóms, er
varð banamein hans. Varð hann
þá að láta sér lynda — að lækn-
isráði — að fara sér hægar um
sinn. Ekki varð það hlé þó langt,
og að líkindum hefur hann of
fljótt hafið erfitt starf sitt að
nýju. Milli jóla og nýárs þyrmdi
skyndilega yfir, og var hann þá
hið bráðasta fluttur í sjúkrahús.
Þar lézt hann eftir fárra daga
legu hinn 7. janúar, eins og fyrr
segir.
Sannarlega er hörmulegt að
sjá á bak góðum drengjum á
bezta aidri og óbætanlegt tjón
okkar fámennu þjóð. Sárastur
harmur hlytur þó ævinlega að
vera kveðinn að eiginkonu og
börnum, systkinum og öðrum
ástvinum hins látna manns. En
vegir guðs eru órannsakanlegir.
Þessi orð koma manni ósjálfrátt
í hug við andlát Þorsteins Gunn-
arssonar. En nú við kistu hans
leita ótal fagrar minningar á
hugann um ógleymanlegar sam-
verustundir, ekki sízt á bernsku
og æskuárum. Sú, er þetta ritar,
átti því láni að fagna að dvelj-
ast nokkur sumur hjá frænd-
fólki sínu austur í Miðdal, æsku
heimili Þorsteins. Var þá margt
sér til dundurs gert. M. a. lékum
við börnin okkur að lurkum, sem
þeir Þorsteinn og bræður hans
höfðu telgt til og skorið í alls
konar kynjamyndir. Og þó að
stundum kastaðist í kekki með
okkur krökkunum, eins og verða
vill, var enginn fljótari til sátta
en Steini frændi. Með blíðu sinni
og óviðjafnanlegu brosi eyddi
hann allri misklíð okkar barp-
anna, svo að allir sættust heil-
um sáttum. Hefur mér oft síðar
fundizt, að hið fagra umhverfi
hafi mótað manninn svo í sinni
mynd, að eigi breyttist ævina
alla.
Vinir Þorsteins heitins Gunn-
arssonar votta fjölskyldu hans
og öðrum ástvinum innilega sam
úð í sorg þeirra. — En minn-
ingin lifir um hinn góða dreng.
G. G.
Atvinna
Kvenfólk og karlmenn óskast
til verksmiðjustarfa strax.
Dósaverksmiðjan hf.
Borgartúni 1 — Sími 12085.
Vinna
Oss vantar stúlku til skrifstofuvinnu
nú þegar.
KJÖTVER HF.
Dugguvogi 3 — Sími 31451.