Morgunblaðið - 13.01.1966, Qupperneq 21
FimmtudagUT 13. janúar 1966
MORCUNBLAÐIÐ
21
Fólk úr víðri veröld
' Herslhöifðingi nokkur, sem misst
Ihafði handlegginn í stríðinu, var
einu sinni í veizlu, þar sem hann
var settur til borðs með ungri
stúlku, sem ekiki gat haft augun
af þessari örkumlan hans. Loks
gat stú.lkan ek'ki stillt sig lengur,
en sagði áfjáð:
— Ég sé að þér hafið misst
handlegginn.
— Ha? Hvað segið þér, sagði
íhershöfðinginn kurteislega, og
leit á handlegginn, sem enginn
var. — Já, ég sé það líka núna
að þetta er rétt hjá yður.
Hornahljómsveitin hélt síðustu
tónleikana á starfsárinu og aug-
lýsti hljómleikana þannig dag-
inn áður:
—• A síðustu hljómleikunum,
sem eru annað kvöld, mun hljóm
sveitin leika mars, útsettan af
stjórnanda. Fleiri hljómleika get
ium við því miður ekki haldið uim
óákveðin tíma, vegna nauðsyn-
legra viðgerða, sem fram verða
að fara á salnum, strax á eftir.
Gárungi nokkur hér kom til
6Óknarprests sdns og sagði.
— Vitið þér það, prestur, að
fjandinn er dauð.:r?
— Nei, ungi maður, það vissi
ég ekki, svaraði prestur. Síðan
fór hann niður í seðlaveskið sitt
og dró þar upp 25 krónur, rétti
þær manninum og sagði:
— Þiggðu þetta, sem liitla
huggun — vesalings litli föður-
leysinginn.
' — Eru þetta ekki undarlegir
tímar sem við lifum á. Það tek-
ur alltaf styttri og styttri tíma að
fara til Bandaríkjanna, en lengri
og lengri tíma að komast í gegn
uni Miðbæinn í bifreið.
— Mikið ertu skrítinn — þú
eegir að þér þyki ekki vænt um
mig, en ert samit búin að taka
við blómasendingum frá mér á
hverjum degi í tvo mánuði.
— Já, mér þykir vænt um
blóm.
— Hann hefur ekki mikið hár
é höfðinu, hann Frikki nú orðið.
— Nei, hann þarf ekki einu
einni að taka ofan hattinn, þeg-
ar hann lætur klippa sig.
Leikhússtarfsemin gekk afar
illa, og leikhússtjórinn var að fá
taugaáfall af geðshræringu.
Hann fór til læknis, sem ráðlagði
honum að fá sér rólega vinnu í
nokkra mánuði.
Þegar einn af leikurunum
heyrði þessar fréttir, varð hon-
um að orði.
— Jæja, þá afgreiðir hann
ejálfur í miðasölunni næstu mán-
uði.
— Þarna sérðu, hvernig þið
karlmennirnir eruð. Þið nennið
ekki einu sinni að hreinsa disik-
ana ykkar, þegar þið eruð búnir
að borða.
Hræddar hvor við aðra.
Nú um þessar mundir eru
Frakkar að ljúka töku dýrustu
frönsku kvikmyndarinnar, sem
nokkru sinni hefur verið gerð.
í myndinni leika ásamt Banda-
ríkjamanninum George Hamilton
tvær þekktustu kvikmyndastjörn
ur Frakklands, Brigitte Bardot
og Jeanne Moreau. Myndin er
tekin í Mexíco og nefnist Viva
María. — Kvikmyndaunnendur
um víða veröld hafa fagnað því,
að samstarf þeirra Bardot og
Moreau hefur verið án allra
meiriháttar árekstra, en þær
kváðu hafa gerólíka skapgerð.
Brigitte lét svo um mælt, áð-
ur en taka kvikmyndarinnar
hófst, að hún kviði dálítið fyrir
að vinna með Jeanne — vegna
þess orðs, sem Jeanne hefur
áunnið sér sem alvarlega þenkj-
andi leikkona. Og Jeanne var
hrædd um að Brigitte með öll-
um sínum kynþokka mundi
„stela senunni". En George Mam
ilton stóð nákvæmlega á sama,
vegna bess að hann er maðurinn,
sem þær báðar verða ástfangnar
af.
Samstarfið milli leikkvennanna
gekk árekstrarlaust, eins og fyrr
greinir, þrátt fyrir að myndin
var tekin við erfiðar aðstæður,
endalaus ferðalög miíli skítugra
mexíkanskra smábæja og óþol-
andi hita.
Jeanne lifði þó í vellystingum
með sex svefnherbergjum og
ítölskum matsveini. Ríkulegar
sendingar af frönskum vínum
og matvörum voru sendar henni
daglega. Brigitte lifði fábrotnara
lífi, bjó í einum kvikmyndavagn
anna og tók hlutunum með ró.
Hitt er annað mál, að Brigitte
kann vel að meta munað, þegar
hún er í París, en hún segir:
— Ég þarfnast ekki svona mik
illa peninga, hvers vegna ætti
ég þá að þræla mér út fyrir þá?
mikilvæagsta atriðið í lífi mínu!
Jeanne virðist kunna að lifa
sem leikkona og hún byrjaði að
leika í leikhúsum eins og Brigitte
og kom þaða’i í kvikmyndaver-
in. Það er líklega það eina, sem
þær eiga sameiginlegt, og í Viva
María, sem fjallar um tvo
skemmtikrafta, sem finna upp
nektarsýningar um aldamótin,
skapa þessar ólíku leikkonur
skarpar og athyglisverðar and-
praktuglega, leigði sér lúxusíbúð Framaferill minn er mér ekki stæður.
JAMES BOND
James Bond
8Y IAN FLEMING
DRAWINS BY JOHN McLUSKY
Eítir IAN FLEMING
Hjólbarðarnir hljóta að vera brynvarð- Þarna náði Quarrel annarri framlugt- staðar Quarrels ................
ir! — inni! Þá þýtur blár eldstólpi með gulu ivaK
Kjaftur drekans hlykkjast í átt til felu- gegnum loftið.
—-K— Teiknari: J. M O R A
Loksins fékk Júmbó ótvíræðar sannanir
fyrir því, að það var ekki um að ræða
neinn töframann, sem hafði töfrað þá aft-
ur um fleiri aldir. Dvöl þeirra á þessari
eyðieyju hafði hreinlega verið sett á svið.
— Þið voruð fluttir hingað á venjulegu
gufuskipi, sagði Fögnuður, en áhöfn þess
hafði dulbúið sig á meðan á ferðinni stóð.
Allt þetta forneskjulega sem þið sáuð,
voru aðeins leiktjöld og leikbúningar. Á
höfninni fannst reglulega gaman að gera
sig óþekkjanlega og þessir tveir auðkýf-
ingar, sem ég sagði ykkur frá, mæltu svo
fyrir að allt skyldi líta sem eðlilegast út.
Og það var ekki verið að spara peningane
til þess að svo mætti verða, því að t.d.
voru það þeir sem útbjuggu óveðrið ægi-
lega, sem þið hélduð að hefði verið or-
sökin fyrir því að þið urðuð skipreika hér
á eynni. En ég skal segja ykkur, hvernig
það gerðist í rauninni.
KVIK SJÁ
-x- — ■-k—
Fróðleiksmolar til gagns og gamans
Afnám bannlaganna í Banda
ríkjunum hindraði ekki á nokk-
urn hátt hið ólöglega brugg
sterkra drykkja, sem bannárin
höfðu haft í för með sér. Enn
þann dag í dag mörgum árum
eftir afnám bannlaganna finn
ast ólöglegar biuggunarstöðv-
ar hundruðum saman víðsvegar
í skógum Bandaríkjanna. Til
þess að gera þeim „skógar-
mönnum", sem notuðu þykkan
skógargróður til að hylja brugg
hús sín, sem erfiðast um vik,
setti bandaríska þingið þau lög
árið 1958, að hvern þairn mann,
sem fyndist í námunda við slík-
ar bruggunarstöðvar, skyldi
handtaka og dæma. Hæstarétt-
ardómi ríkisins, Georgiu, mót-
mælti þessum lögum á þeim for
sendum, að í ríki hans fyndist
öðru hvoru slík brugghús, og
„hugsið ykkur þann möguleika,
að ég yrði handtekinn í nám-
unda við slíka bruggstöð, ein-
hvern tíma þegar ég er að veið-
um“, sagði dómarinn. Annar
dómari bætti því þurrlega við,
að t.d. í Alabama hefðu 1059
brugghús fundizt árið 1963 og
619 bruggarar verið liandteknir.