Morgunblaðið - 13.01.1966, Blaðsíða 28
Langstærsta og
fjölbreyiiasta
blað landsins
Helmingi utbreiddara
en nókknrt annað
íslenzkt blað
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, leikur fyrsta leikinn fyrir hönd
Böok, forseta finnska skáksam bandsins.
Línuvertíð rétt
Fréttír frá verstöðv untifin
byrja
a
VERTÍÐ er nú að byrja í ver-
stöðvum á Suður- og Vestur-
landi. Bátarnir eru að byrja að
róa með b'nu, en ekki gefur vel
þessa íyrstu daga. Aðeins fáir
bátar eru byrjaðir, en aðrir að
búa sig af stað, og maxgir virðast
reyndar ekki ætia að befja róðra
fyrr en þeir taka netin. Mbl.
hafði í gær samband við þá
fréttaritara sína, sem til náðist
Hnfnarijörður
Aðalfundur landsmálafélagsins
Fram í Hafnarfirði verður í
ktíöld 13. þ.m. í Sjálfstæðis-
húsinu kl. 8.30. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa og kosningar
fulltrúa í kjördæmaráð mun
Hafsteinn Baldvinsson, bæjar-
stjóri hafa framsögu um íjár-
hagsáætlun Hafnarfjarðarkaup-
staðar fyrir árið 1066.
Reykjavíkurskákmótið sett í gær
1 GÆR kl. 19 hófst í samkomu-
búsinu Lidó Reykjavíkurskák-
mótið. Ásgeir Þór Ásgeirsson
forseti Skáksambands íslands
flutti fyrst stutta ræðu, og rakti
í stórum dráttum sögu Skáksam-
bands íslands, en mót þetta er
helgað 40 ára afmæli sambands-
ins, og sérstaklega Ara Guð-
mundssyni, fyrsta forseta þess.
Síðan setti Geir Hallgrímsson,
borgarstjóri, mótið með stuttu
ávarpi, og iék fyrsta leikinn fyr-
ir hönd finnska meistarans, Eero
E. Böök, forseta finnska skák-
sambandsins, er tefldi gegn V-
Þjóðverjanum Kieninger.
Keppendur á Reykjavíkurmót-
inu nú eru 12 taisins eða tveimur
fæxri en á fyrsta Reykjavíkur-
mótinu, sem haldið var fyrir rétt-
um tveimur árum. Þar af eru
fimm erlendir skákmenn, stór-
meistararnir Vasjukov frá Rúss-
Viðgerð lokið á
Eiðasendinum
A ÞRIÐJUDAGSKVÖLD lauk
viðgerð á Eiðasendinum nýja,
sem hefur verið bilaður í viku
tíma. Bilað hafði spóla í send-
inum, og þótt viðgerð sú sem
fram hefur farið ætti að duga til
iangframa, hefur þegar verið
pöntuð ný sgwia og mun
hún væntanieg innan tiðar.
í gærkvöldi rofnaði simaiínan
austur á iand og sendirinn um
Jeið' en viðgerð á henni var lok-
ið kl. 21 í gærkvöldi og geta
Austfirðingar nú væntanlega
hlýtt á útvarp ótruflaðir í ná-
inni framtíð.
landi og O’Kelly de Galway frá
Belgiu, og alþjóðameistararnir
Wade frá Bretiandi, Kieninger
frá Þýzkalandi og Böök frá
Finniandi — ailt vel þekktir
skákmenn. Meðal ísl. þátttakend-
anna má nefna þá Friðrik Ólafs-
son, stórmeistara, Freystein Þor-
bergsson, skákmeistara Norður-
landa og Guðmund Sigurjónsson
skákmeistara íslands. Mótinu
lýkur 28. janúar.
ÚRSLITIN I GÆRKVELDI:
ÞEGAR blaðið fór í prentun í
gærkveldi stóðu leikar þannig
á Reykjavíkurmótinu, að Björn
Þorsteinsson hafði unnið Jón
Hálfdánarson, en jafntefli orðið
hjá þeim Guðmundi Sigurjóns-
syni og Guðmundi Pálmasynið
og hjá Böök og Kieninger. Þrem
ur skákum var því ólokið, skák
þeirra Vasjukov og Jóns Krist-
insson, en hinn fyrrnefndi átti
þar góða vinningsmöguleika,
skák Friðriks Ólafssonar og
Freysteins Þorbergssonar, en
Friðrik átti þar einnig góða
möguleika til vinnings, og skák
þeirra Wade og O’Kelly, en all-
ar líkur voru á því að hún færi
í bið. . o
í kvöld tefla saman:
Guðm. Pálmas. — Jón Kristinss.
Freysteinn Þorbergss. - Vasjukov.
Jón Háifdánars. — Friðrik Ólafss.
í verstöðvunum á svæðinu frá
Hornafirði norður fyrir Snæfeiis-
nes og fara vertíðarfréttir þeirra
hér á eftir.
Einn róður hjá bátum í Höfn
HÓFN, 11. jan. — Bátarnir hér,
sem eru þrír, ætiuðu að hefja
iínuveiðar strax upp úr áramót-
um, en ógæftir hafa verið og
komust þeir í fyrsta róður á
sunnudag. Höfðu þeir 7, 9 og 12
tonn í róðrinum.
Aðrir þrír bátar ætia að vera
áfram á sild. Minni bátar byrja
svo seinna, á handfæri og troll,
— Gunnar.
I
Nýtt fiskverkunarhús
á Eyrarbakkn
EYRARBAKKA, 11. jan. —
Einn bátur, Þorlákur helgi, er
tiibúinn og ætlar að byrja með
h'nu. Hann er búinn að fara
einu sinni út, en gat ekki lagt
línuna. Annar bátur mun svo
Framhald á bls. 8
Tjón «a cflráttar-
sleða geysimilcið
Wade — Björn Þorsteinsson.
Kieninger — O’Kelly.
Guðmundur Sigurjónss. — Böök. gátu gefið um málið hafa nú
SJÓPRÓFUM er ekki að fullu
lokið i máii varðskipsins Þórs,
er fór á hliðina í Slippnem í
Reykjavíkurhöfn þriðjudaginn 4.
janúar. Mun þó sjóprófum iokið
varðandi þá hlið máisins, sem
snýr að varðskipinu sjáifu, en
þeim þætti þessa máls, sem
varðar dráttarsieðann er enn ó-
lokið.
Skemmdir á varðskipinu eru
með öliu ókannaðar og verður
ekkert um þær vitað, fyrr en
skipið verður aftur tekið í siipp
í Reykjavíkurhöfn, en það gerist
væntanlega um næstu helgi.
Aliir þeir, sem upplýsingar
verið yfirheyrðir, en ekkert hef-
ur komið fram, sem varpað gæti
ljósi á orsakir þess að skipið
féil á hiiðina.
Teinninn, sem dráttarsleðinn
rennur á er kengboginn, en ekki
er ljóst, a.m. k. enn sem komið
er, hvort það sé orsök eða af-
ieiðing slyssins. Talið er að
dráttarsieðinn sé ónýtur, og ef
það reynist rétt, nemur tjónið
miiijónum króna. Von er á sér-
fræðingum frá Englandi á næst-
unni til þess að kanna tjón
á dráttarsleðanum, og kemur þá
væntanlega í ljós hversu mikið
tjónið er.
Svavar Guðnason við tvö málverka sinna, sem væntanlega verða sýnd í Charlottenborg.
Happdrætti
Styrktarfélags
vangefina.
DREGIÐ var ; Happdrætti Styrkt
arfélags vangefinna á Þorláks-
messu, en vinningarnir tveir eru
enn innsigiaðir bjá borgarfógeta,
þar til skil bafa borizt utan af
landi. Vinningarnir verða vænt-
anlega auglýstir einhvern tím-
ann 1 næstu viku.
Svavar Gu&nason sýnir
í Charlottenborg
UM næstu helgi mun Svavar
Guðnason listmálari halda ut-
an til Danmerkur og taka þar
þátt í samsýningu myndlistar-
manna í sölum Charlotten-
borg, sem - Grönningen - fé-
iagsskapur myndlistarmanna,
gengst fyrir. Nefnir þessi fé-
lagsskapur sig eftir sýnángar-
skála í Kaupmannahöfn. Skáli
þessi - Gröuningen - var
lengi athvarf róttækra
danskra myndlistarmanna, er
ekki fengu inni með sýningar
sínar í Charlottenborg, en
þessi félagsskapur hefur nú
samninga við Charlottenborg
um sýningar þar.
Blaðið hafði samband við
Svavar Guðnason og grennsl-
aðist nánar fyrir um hina
fyrirhuguðu samsýningu. Fór-
ust Svavari orð á þessa leið:
— Sýningin hefst ekki fyrr
en á laugardag 22. janúar, en
þann vikutima, sem ég hef
til stefnu ætla ég að nota til
þess að hengja upp málverk
og ganga frá ýmsum atriðum
í sambandi við sýninguna.
Ég mun að þessu sinni hafa
með mér til Danmerkur um
20 málverk, öll ný af nálinni,
flest máluð á siðasta ári og
hafa aldrei á sýningu komið
utan eitt, sem sýnt var í Am-
eríku. Hitt er svo annað mál,
að það er ailsendis óvist, hvort
ég sýni þau öll, það er undir
því komið hvernig þau fara
saman á veggjunum. Manni
getur alltaf snúizt hugur, jafn
vel á síðasta augnabliki.
— Þetta er 51. samsýning
hjá Grönningen — og að sjálf-
sögðu sýna þarna margir
verk sin, mestmegnis þó
danskir Jistamenn. Hátíðar-
sýning „Grönningen" var á
síðastiiðnu ári í tilefni hálfr-
ar aldar afmælis félagsskap-
arins, en í henni gat ég því
miður ekki tekið þátt. Ég var
þá að byggja nýja vinnustofu
og átti ekki heimangengt.
— Á þessu stigi málsins get
ég því miður lítið sem ekkert
sagt um þessa fyrirhuguðu
sýningu, en vonandi þeim
mun meira, þegar ég kem
heim aftur. Ég vona einungis
að allt gangi að óekum og að
maður „skandaiiseri“ ekki á
svo virðuiegri sýningu, sagði
Svavar að lokum.