Morgunblaðið - 26.05.1966, Blaðsíða 3
ílmmtuclagur 26. fflsí 1966
MORGUNBLAÐID
3
í KVÖLD og næstu daga
er að vænta stórviðburða í
tónlistarlífi borgar'búa. —
Hingað til lands er kominn
einn fremstri píanóleikari
heims. Wilhelm Kempff,
og mun hann leika á tvenn
um hljómleikum með Sin-
fóníuhljómsveitinni og á
laugardag mun hann halda
sjálfstæða tónleika í Há-
skólabíói. Þótt Kempff sé
nú orðinn 71 árs gamall er
hann afkastamikill konsert
píanóleikari og eru tónleik
ar hans skipulagðir tvö ár
fram í tímann. Hingað kom
Kempff frá Ítalíu, en þar á
undan var hann í tónleika-
ferð í Rúmeníu og þang-
að flaug hann frá San
Fransisco.
Wilhelm
Ferbafaskan hafnaði hinsvegar
I Píanoleikarinn og tónskáld-
j ?ð Wilhelm Kempff er faedd-
ur árið 189*5 í Jiiterborg í
I Þýzkalandi, en fluttist með
i fjölskyldu sinni til Potsdam,
þar sem faðir hans var ráð-
inn sem tóniistarstjóri. Hann
1 er af merku tónlistarfólki kom
inn og afburða tónlistarhæfi-
leikar hans komu snemma í
ljóe. Faðir hans var í senn
1 organleikari og söngstjóri og
I hjá honum hóf hann fyrst tón-
listarnám, en innritaðist síðan
í Músikháskólann í Berlín að-
1 eins 9 ára að aldri. Á unglings
i árum hlaut ihann Mendelsohns
j verðlaunin fyrir píanóleik og
tónsmíðar og um tvítugt var
1 hann ráðinn sem píanóleikari
og organleikari me'ð Dómkórn
um í Berlín í tónleikaför til
Norðurlanda. Um 5 ára skeið
1 var hann einnig forstjóri Kon-
J servatiorísins í Wiirtemberg,
l en varð að segja því starfi
^ lausu vegna tónleikahalds. —
| Ferill hans sem píanóleikari
j hófst um 1920 og hefur hann
i siðan ferðazt víða um heim,
austan hafs og vestan, og leik-
| ið með öilum beztu hljóm-
| sveitum heims.
, Welhelm Kempff hefur sam
ið fjölda tónverka og má þar
! nefna fjórar óperur, sinfóní-
í ur, píanókonsert, fiðlukonsert,
j kórverk og kirkjutónlist, og
auk þess allmikið af kammer-
I tónlist.
i Hér á landi, sem vfðar, er
i Kempff þekktastur fyrir
hljómplötur sínar, en hann
1 hefur m.a. leikið inn á plöt-
ur allar píanósónötur Beet-
hovens, sónötur Mozarts og
i Söhuberts, pianóverk Brahms
og Sehumanns, alla píanókon-
serta Beethovens og Brahms
og meiri hlutann af píanókon-
sertum Mozarts.
í kvöld mun Kempff leika
a-moll konsertinn eftir Schu-
mann. Önnur verk á efnis-
skránni, eru nýtt tónverk eft-
ir Jón Nordal, Adagio fyrir
strengjasveit, blásara, hörpu
og píanó, og Gullhaninn,
hljómsveitarsvíta eftir Rim-
sky Korsakoff. Á föstudags-
kvöldið mun Kempff leika
fjórða píanókonsert Beethov-
ens, en verk þetta er af mörg-
um talið vera meistarans bezti
konsert. Önnur verk á þessum
aukatónleikum, eru Diverti-
mento 2S1 eftir Mozart og
Sinfónía nr. 88 eftir Haydn.
Á laugardag kl. 17 mun
Kempff halda sjálfstæða tón-
leika í Háskólabíói. Á efnis-
skránni verða verk eftir
Mozart, Beethoven, Schumann
og Brahms.
Á fundi með fréttamönnum
í gær, gat píanósnillingurinn
þess, að nokkrum sinnum
hefði það komið Jyrir að
ihann hefði týnt kjólfötunum
sínum á ferðalagi. Það er að
segja, hann hefur nokkrum
sinnum glatað ferðatöskunni
sinni. Þetta skeði enn einu
sinni nú, því þegar Kempff
kom til fslands í fyrrakvöld
var taskan hans horfin. Sam-
kvæmt seinustu fréttum er
ferðataska Kempffs nú til
húsa í San Fransisco. Kempff
kvaðgt vonast til að fá tösk-
una í dag. Þess má geta að
það hefur komi’ð fyrir oftar
en. einu sinni að hann hefur
fengið töskuna hálftíma fyrir
i San Francisco
konserta.
Eitt sinn var ferðinni heitið
á Wagnersfestival í Bayreuth.
Taskan týndist rétt einu sinni
og fannst um síðir í Beirut í
Líbanon.
Árin 1017—18 dvaldi Kempff
í Svíþjóð og bjó þá hjá hin-
um þekkta guðfræðingi Natan
Söderblom. Kempff hafði frá
mörgu skemmtilegu að segja í
sambandi við dvöl sína í Sví-
þjó'ð og gat þess að í gamni
hefði hinn þekkti guðsmaður
oft verið_ nefndur Satan Nöd-
erblom. Á þessum árum komst
Kempff í kynni við merkt lista
fólk í Svíþjóð, þ.á.m. Selmu
Lagerlöf.
í gærmorgun æfði Kempff
með hljómsveitinni og sagði
Ihann fréttamönnum með
mörgum fögrum orðum hve
undrandi hann hefði veri'ð yf-
ir ágæti hennar.
Eftir að blaðamannafundin-
um lauk, ræddi fréttamaður
Mbl. við píanósnillinginn í
nokkrar mínútur um starf
hans sem kennari. — Ég er
ekki góður kennari, sagði
Kempff, en hef þó fengizt við
kennslu frá því 1924. Ég stofn
aði á sínum tíma tónlistar-
skóla með nokkrum vinum
mínum, þeim Max Schillings,
Edwin Fischer, D’Albert og
Giseking. Síðar stofnaði ég
skóla í Positano me'ð snillingn
um Alfred Cortot. Þar hefi ég
ennþá um 15 nemendur ár-
lega. Það er í rauninni ekki
píanókennsla í venjulegum
skilningi, sem þarna fer fram.
Þangað er boðið afburðafólki
af yngri kynslóðinni. Fóiki,
sem þegar hefur getið sér
góðan orðstír víða um heim.
Margir nemendanna hafa unn
ið fyrstu verðlaun í ýmsum
píanósamkeppnum t.d. í
Brússel, Yarsjá og vfðar. Það
sem ég legg mesta áherzlu á
við kennsluna í Positano, er
túlkun á verkum eftir Beet-
hoven. Meðal nemenda minna
hafa verið margir af þekkt-
ustu ungu píanóleikurunum í
dag, t.d. Júrge Demus og
bandaríski píanóleikarinn
Daniel Pollak. Þeir hafa víst
báðir komið hingað. Frábærir
píanistar báðir tveir.
Einnig hefur verið (hjá mér
tyrknesk stúlka, Idyl Byret að
nafni. Hún er sannkallað
undrabarn. Hún er aðeins 22
ára gömul en hefur leikið
bæði í Bandaríkjunum og í
Evrópu og hvarvetna hlotfð
frábæra dóma, sem hún og
á skilið. Idyl Byret hefur
fengið leyfi yfirvaldanna í
Tyrklandi til að búa í París. i
Þegar hún leikur píanókon-
serta með hljómsveitum, er
jþað algengt að hún „impróvis
eri“ kadensurna og gerir hún
það mjög vel. Jé, Byret er
óneitanlega undrabarn. Annar
góður nemandi, sem ég man
eftir í svipinn, er Edward
Auer. Hann hlaut þriðju verð l
laun í Varsjársamkeppninni /
fyrir skömmu, en pólsku á- \
heyrendurnir voru þó á þeirri
skoðun, að hann héfði átt a’ð
fá fyrstu verðlaun. Auer býr
nú í Kaliforníu.
Þegar hér var komið sögu,
kvaðst Wilhelm Kempff þurfa
að fara að æfa sig, ef hann
finndi einhversstaðar slag-
hörpu, því hann ætti að spila
á Bach festivali i Leipzig í
næstu viku.
Sendiherror Bandoríkjonna
og Kína ræðasl við í Vorsjó
Varsjá. 25. maí. — AP—NTB.
SENDIHERRAR Kína og Banda-
rikjanna í Póllandi, ræddust við
í þrjár stundir á miiðvikudaginn.
Skiptust þeir á skoðunum stjórna
sinna á ástandinu í suðaustur-
Asíu og sambandið milli Banda-
rikjanna og Kma.
Eftir fundinn sagði bandariski
aendiherrann, John Gronusky, að
viðræður sem þessar væru mjög
þýðingarmiklar fyrir bæði rikin.
Frá iþví árið 1954 hafa sendiherr-
arnir átt 131 futid.
— Við munum halda þessum
fundum áfram, sagði Gronusky,
— ef það má verða til að minnka
spennuna milli landanma. Kín-
verskl sendiherrann, Wang Kuo
Ghuan, sagði er hann var spurð-
ur álits um ástandið í suðaustur
Asiu, að meðan Bandaríkjamenn
breyttu ekki stefnu sinni þar,
myndi spemnan ekki minnka.
Áætlað er að sendiherrarnir
hittist á ný 7. september n.k.
Trúverðugar heimildir í Varsjá
álíta, að bandaríski sendiherrann
hafi fært þriðju kínversku kjarn
orkusprenginguna í tal við þann
kínverska. Wang Kuo Chuan
mun aftur á móti hafa borið
fram mótmæli vegna flugs banda
rískra þota yfir kínverskt land,
er þær gerðu sprengjuárásir á
N-Vietnam fyrir skömmu.
Tilkynning
um bólusólt
ÞAR sem enn hefur ekki tek-
ið fyrir bólusóttina í héraðinu
Staffordshire í England, eru
ferðamenn áminntir i™ að láta
bólusetja sig í tæka tíð, áður
en þeir fara til Englands.
(Frá landlækni)
STAKSTFINAR
St j ómarm yndun
í Finnlandi
Stjórnarmyndun í Finnlandi
með þátttöku sósíaldemókrata,
miðflokksins, kommúnista og
simonita er nú loks að ljúka.
Finnska blaðið Hufudstadsblad-
et segir um þessa stjórnarmynd-
un fyrir nokkru:
„Aðilar hinnar fyrirhuguðu
ríkisstjórnar sem væntanlega
verður mynduð í vikulokin láta
ekki í ljós neina sérstaka hrifn-
ingu gagnvart hver öðrum í mál-
gögnum aðildarflokkanna. Aðal-
málgagn sósíaldemókrata leggur
áherzlu á efnahagsvandamálin
og nauðsynlegar ráðstafanir í
þeim efnum og í grein í sama
blaði er því lýst yfir að nú hefj-
ist i Finnlandi tímabil mikilla
áhrifa sósíaldemókrata, og að
kommúnistar og miðflokkurinn
verði að sætta sig við það, ef
ekki eigi að taka við pólitisk
óstjórn í Finnlandi. Málgagn
miðflokksins í höfuðstaðnum
hefur takmarkaða trú á starfs-
hæfni hinnar fyrirhuguðu ríkis-
stjórnar og lætur í Ijós sterkar
efasemdir um að Jafnaðarmanna
flokkurinn og Paasio, formaður
hans, sé því hlutverki vaxinn að
veita forystu rikisstjórn, sem
augljóslega er sundruð frá byrj-
un. Kommúnistar eru mjóg
óánægðir og telja að þrjú ráð-
herraembætti séu ekki nægilega
mörg fyrir þá. Símonítarnir
skamma sósíaldemókrata og lýsa
því yfir að hinir síðastnefndu
hafi látið undan kröfum mið-
flokksins og þess vegna sé ekki
um að ræða þá vinstri stefnu,
sem kjósendum hafi verið lofað.“
Urslitin krufin
til mergjar
Á næstu vikum og mánuðum
munu stjórnmálaflokkarnir hér á
landi kryfja til mergjar úrslit
borgar- og sveitarstjórnarkosn-
inganna sl. sunnudag. Vafalaust
munu niðurstöður þeirra hafa
áhrif á stefnu flokkanna í þing-
kosningum þeim, sem fram eiga
að fara að ári. En þótt borgar-
og sveitarstjórnarkosningum sé
nú lokið er enn tiðinda að vænta
af stjórnmálasviðinu. 1 júni
renna samningar verkalýðsfélag-
anna út og vafalaust eiga for-
ystumenn verkalýðssamtaka og
atvinnurekenda erfitt samings-
tímabil fyrir höndum. Sl. tvö ár
hefur tekizt að koma á kjara-
samningum án verkfalla, og yfir-
leitt hafa menn talið það spor
í rétta átt. Verkalýðsfélögin hafa
einnig farið inn á nokkuð nýjar
brautir í samningamálum sínum
og hafa menn einnig talið það
vera spor í rétta átt. Eftir stend-
ur þó sú staðreynd að þrátt fyrir
tiltölulega hófsamlega kjara-
samninga siðustu tvö ár hefir
ekki reynzt fært með sameigin-
legu átaki verkalýðsfélaga, at-
vinnurekenda og ríkisvalds að
takmarka verðbólguna. En það
hlýtur að verða meginmarkmið
þessara aðila.
Eigum margt ólært
Sumum kann e.t.v. að þykja
það fullreynl að slíkt sé ekki
hægt eftir reynslu kjarasamn-
inga síðustu tveggja ára, en á
það má þó benda að með þeim
hefur töluvert áunnizt, og þess
er ekki að vænta áð við ráöum
niðurlögum verðbólgunnar á
stuttum címa. Til þess eigum
við ýmislegt ólært, en miklu
máli skiptir að sú stefna, sem
verið hefur að þróazt í kjaramál-
um síðustu árin haldi áfram og
er þess að vænta að svo verði
einnig að bessu sinni.