Morgunblaðið - 26.05.1966, Síða 16
16
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 26. maí 196<
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti S. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 95.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 5.00 eintakiff.
Hyggjast Búddistar ná
MEIN, SEM EKKI
völdum í S-Vietnam?
VERÐUR LÆKNAÐ
í EITT SKIPTI
FYRIR ÖLL
llir segjast vera á móti
verðbólgu og dýrtíð. All-
ar ríkisstjórnir síðustu ára-
tuga hafa reynt að hamla
vexti hennar. En þrátt fyrir
það hefur verðbólgan haldið
áfram að vaxa og afleiðing
hennar, dýrtíðin, bitnað á
þjóðinni.
Núverandi ríiksstjórn hef-
ur gert víðtækar ráðstafanir
til þess að hindra vöxt dýrtíð-
ar og verðbólgu. Henni tókst
að afstýra því hruni, sem við
blasti af völdum óðaverð-
bólgu, er var arfur frá vinstri
stjórninni. Jafnframt tókst
henni að skapa jafnvægi í
efnahagslífi þjóðarinnar og
tryggja bjargræðisvegunum
möguleika til þess að endur-
nýja tæki sín og taka tækn-
ina í þjónustu sína í stöðugt
vaxandi mæli.
En þrátt fyrir það að svo
vel tækist til undir forustu
Viðreisnarstjórnarinnar í
upphafi fór svo að ekki varð
til lengdar hamlað gegn vexti
verðbólgunnar. Hún tók að
vaxa að nýju og er í dag
alvarlegasta vandamálið sem
þjóðin stendur frammi fyrir.
Kjarni málsins er sá að
verðbólgan er mein, sem
aldrei verður læknað í eitt
skipti fyrir öll. Til þess að
henni verði haldið niðri þarf
samræmdar aðgerðir, og um
fram allt vilja þjóðarinnar
sjálfrar. En þrátt fyrir það
að allir segist vera á móti
dýrtíðinni fer því þó víðs
fjarri að sá vilji birtist alls
staðar í verki. Stjórnarand-
sfcöðuflokkarnir, Framsóknar-
menn og kommúnistar, hafa
t.d. lagt höfuðáherzlu á það
öll þau sjö ár, sem núverandi
ríkisstjórn hefur farið með
völd að torvelda baráttu
hennar gegn verðbólgunni.
Þeir hafa eftir fremsta megni
reynt að örva kapphlaupið
milli kaupgjalds og verðlags
og linntu ekki látúm fyrr en
vísitölufyrirkomulagið var
tekið upp að nýju, enda þótt
vitað sé að það hafi á liðn-
um tíma átt yerulegan þátt í
hinni óheilbrigðu efnahags-
þróun.
Það kemur því vissulega
úr hörðustu átt þegar Fram-
sóknarmenn og kommúnistar
skella skuldinni af vaxandi
verðbólgu á ríkisstjórnina,
sem barizt hefur af alefli
gegn henni.
EINFÖLD
STAÐREYND
rngum hugsandi manni get-
ur blandast hugur um það
að það eru hin stóru stökk í
kaupgjalds- og verðlagsmál-
um, sem átt hafa mestan þátt
í að hleypa verðbólgunni af
stað hvað eftir annað, og jafn-
an eftir að tekizt hefur að
halda henni niðri um skamm-
an tíma.
í þessu sambandi er það
ómaksins vert að gefa gaum
því sem gerist í þessum efn-
um meðal frændþjóða okkar
á Norðurlöndum, þar sem
víða er samið um kaupgjald
til þriggja ára, nú síðast í
Svíþjóð með 2% kauphækkun
á ári að meðaltali að viðbættri
nokkurri styttingu vinnutíma,
sem einnig er framkvæmd i
þremur áföngum.
Þetta gerist þrátt fyrir það
að Svíar eru ein ríkasta og
háþróaðasta iðnaðarþjóð í
Evrópu.
Það er vitanlega eðlilegt að
einstaklingarnir vilji bæta
lífskjör sín og verða þátttak-
endur í vaxandi arði, sem
aukin tækni og meiri fram-
leiðsla dregur í þjóðarbúið.
En þessar kröfur verða að
vera í einhverju samræmi við
raunverulega greiðsiugetu út
flutningsatvinnuveganna. —
Það hafa þær ekki verið hér
á landi síðustu árin. Þess
vegna hefur farið sem raun
ber vitni, og þess vegna á
fjöldi útgerðarfyrirtækja og
fiskiðnaðarfyrirtækja nú við
mikla erfiðleika að etja af
völdum stóraukins tilkostn-
aðar.
Ef íslenzka þjóðin vill í
raun og sannleika lækna mein
verðbólgunnar verður hún
að sýna meiri ábyrgðartil-
finningu og líta af meira
raunsæi á hag sinn heldur en
hún hefur gert um skeið. Það
er fásinna að halda að hið
íslenzka þjóðfélag og bjarg-
ræðisvegir þess geti risið
undir t.d. 15—20% kaup-
hækkunum á ári á sama tíma
sem ríkustu þjóðir Evrópu
telja hagvöxt sinn leyfa að
meðaltali 2—4% kauphækk-
un á ári.
Þetta er svo einföld stað-
reynd að hún ætti að vera
öllum auðskilin. Ef íslend-
ingar halda áfram að neita
því hreinlega að viðurkenna
HVERT er takmark Búddistanna
í Vietnam? Eru ítök >eirra meðal
fótksins eins mikil og af er látið?
— Svör við þessum spurning-
um er að finna í grein, sem ný-
lega birtist í vikuritinu U.S.
New & World Report. Grein
þessi fjallar um trúmálin í Viet-
nam og birtist hún hér lauslega
þýdd.
Faðir Hoang Quynh
Stjórnmálabaráttan í S-Viet-
nam síðustu vikurnar hefur leitt
það í ljós, að Búddistar hafa
mikinn hug á að ná yfirtökunum
í stjórn landsins. Búddisminn í
Vietnam er af mörgum og ólíkum
gerðum og er áhugi Búddatrúkr-
manna á stjórnmálum og völdum
mjög mismunandi. Hin „Samein-
aða Búddaregla“ telur um eina
milljón manna, en íbúar S-Viet-
nam eru taldir vera um 15
milljónir. Hinir „Sameinuðu“
telja sig hafa mikið fylgi meðal
„óháðra“ í Saigon og i fjölmörg-
um öðrum borgum og bæjum.
í landinu eru 1,9 miiljón ka-
þólikka og eru margir þeirra
flóttam-enn frá N-Vietnam. Þar
að auki eru fjölmargir Montagn-
ard ættflokkar, sem trúa á stokka
og steina; illa og góða anda í
hæðum, hólum, fjöilum og fljót-
um. Um fjórar milljónir Viet-
nambúa, sem flestir eru bændur,
tilbiðja sálir forfeðra sinna. Tvö
afsprengi af Búddatrúarflokkn-
um eru Cao Dai, sem telur 2,5
milljónir og Hoa Bao, sem telur
um 2 milljónir. Þessii; tveir síðast
nefndu trúarhópar lúta ekki að
neinu leyti stjóm hinna „Sam-
hana, getur enginn mannleg-
ur máttur komið í veg fyrir
stöðugt vaxandi verðbólgu
og dýrtíð.
Ef þjóðin hins vegar gerir
sér þetta ljóst og miðar kröf-
ur sínar við raunverulega
greiðslugetu framleiðslunnar
og eðlilegan hagvöxt, verður
verðbólgan stöðvuð og áfram
haldið því mikla uppbygg-
ingar- og umbótastarfi, sem
nú stendur yfir í hinu ís-
lenzka þjóðfélagi.
FISKIRÆKT
í FJÖRDUM
íslendinga greinir ekki á um
það að eitt þýðingarmesta
verkefni framtíðarinnar er
einuðu“, en :þeir em sem kunn-
ugt er undir stjórn Thich Tri
Quangs, sem harðast hefur barizt
gegn herstjórn Kys.
Búddamúnkar þeir, sem hávær
astir eru þessa dagana, hafa
áva'llt verið flöktandi í stjór-n-
málum. Þeir hafa ýmist verið
hlynntir eða á móti Bandaríkja-
mönnum og sömuleiðis ýmist and
vígir eða hlynntir kommúnist-
um. Talið er að Thich Tri Quang
sé ekki eins valdamikill nú og
hann hefur verið, og hefur hann
að undanförnu átt í útistöðum
við Búddatrúarmenn í Saigon.
Einnig þykir víst, að ef her-
stjórnin í Saigon uppfyllir ein-
hverjar af óskum Quangs, þá
muni það leiða af sér versnandi
aðstöðu Bandaríkjamanna í Viet-
nam. Quang hefur sagt, að hann
vilji ekki að bandaríska herliðið
verði kvatt á brott að svo stöddu.
Thich Tri Quang
Þó era margir Bahdaríkjamenin
þeirrar skoðunar, að þegar nýtt
þing verður kvatt saman eftir
hinar væntanlegu kosningar,
muni Quang verða fyrstur manna
til að bera upp tillögu um að
bandaríska herliðið hverfi á
brott.
Atkvæðagreiðsla um það mál
yrði vafalaust tvisýn. Þótt úr-
slitin yrðu Bandaríkj amöninum í
vil myndu þeir án efa íhuga
hvort ekki væri heppilegast að
hverfa á brott. Þetta er trúlega
það sem Quang vill: að Banda-
ríkjamenn yfirgefi Vietnam, án
þess að Búddistarnir þurfi að
krefjast þess. Þó eru engar líkur
verndun fiskimiða land-
grunnsins. í þeim efnum hef-
ur Alþingi og ríkisstjórn
markað stefnuna; Takmark
íslendinga er yfirráð lands-
grunnsins • alls og hagnýting
fiskimiða þess í þágu íslend-
inga einna. .^Að þessu tak-
marki er unnið af festu og
árvekni. En margt fleira er
hægt að gera til þess að
vernda fiskistofnana og halda
þeim við. Sigurður Bjarna-
son, alþingismaður, benti t.d.
á það í útvarpsræðu á Al-
þingi í yor að nauðsyn bæri
til þess að íslendingar tækju
að undirbúa fiskirækt í fjörð-
um, þar sem skilyrði eru fyr-
ir hendi.
Óhætt er að fullyrða að
hinir djúpu firðir í strand-
lengju ísiands séu sumir
taldar á því, að Quang hyggíst
ganga kommúnistum í N-Viet-
nam á hönd.
Kalþólikkar eru þeirrar skoð-
unar, að frjálsar kosningar séu
nauðsynlegar, og að komið verði
á góðri stjörn í landinu. Þeir eru
þó ekki eins áfjáðir og Búddist-
arnir í kosningar þegar í stað.
Faðir Hoang Quynh, leiðtogi
þeirra 700 þús. kaþólikka, sem
flýðu frá N-Vietnam árið 1954,
er kommúnistar tóku þar völd,
er helzti talsmaður þeirra, sem
ekki vilja frjálsar kosningar þeg
ar í stað. Quynh álítur, að meira
en 4 milljónir Vietnambúa séu
einlægir fylgjendur herstjórnar-
innar, en að 7 milljónir lúti her-
stjórninni að degi til en Viet-
Cong á nóttunni. Quynh óttast
að kosningar nú muni verða tii
þess að allmargir málaliðar og
næturáhangendur Vietcong muni
komast á þing og jafnvel ná
meirihluta. Hvað munu kaiþólikk
ar þá taka til bragðs? „Við vilj-
um fyrir alla muni komast hjá
trúarstyrjöld, — en munum þó
aldrei selja land okkar í hendur
kommúnista" segir Quynh.
Ekki er loku fyrir það skotið
að trúarstyrjöld brjótist út í
Vietnam. All margir Búddatrúar
menn líta hornauga á kaþólskuna
og álíta hana óvelkominn inn-
flutnjng. Þær skipulagsbreyting-
ar, sem orðið hefur vart við hjá
Búddatrúarmönnum á síðustu ár-
um, hafa allar verið stjórnmáia-
tegs, en ekki trúarlegs eðlis.
Kenningar Búddistanna um
friðsamlega hegðun hafa verið
lagðar til hliðar og nýjar ketnn-
ingar, sem leyfðu mótmælaað-
gerðir í misríkum mæli, teknar
uþp í staðinn. Búddamúnkar hafa
lagt blessuin sína yfir „hæfileg“
uppþot unglinga á mótmælasam-
komum, en þegar munkarnir hafa
viljað hafa röð og reglu á fund-
unum hafa þeir kallað út eins
konar iögreglulið til að fjarlægja
ólátaseggi, sem of langt hafa
gengið að þeirra dómi.
Búddamunkarnir tala fjálgiega
um „byltingu“ sem muni eiga
sér stað innan skamms. Þeir vilja
að Búddatrú verði logskipuð rík-
istrú og kennd í öllum skóium,
einnig í þeim kaþólsku.
Munkarnir hafa hlotið nokk-
urn stuðning frá erlendum aðil-
um, þar sem margir hafa álitið
að þeir berðust fyrir lýðræðis-
Framhald á bls. 31.
hverjir hentugir til slíkrar
fiskiræktar. Til þess ber þess
vegna brýna nauðsyn að við
kynnum okkur hið fyrsta það
s^rn aðrar þjóðir aðhafast á
þessu sviði. Hér er um mikið
framtíðarverkefni að ræða.
Hin stórvirku veiðarfæri og
aukin tækni gengur stöðugt
nær fiskistofnunum við
strendur landsins. Þess vegna
væri það fásinna, sem bæri
vott mikilli skammsýni að
aðhafast ekkert til viðhald3
fiskistofnunum. — Aukin
möskvastærð er út af fyrir
sig góðra gjalda verð. En
hún hrekkur alltof skammt,
Með því að hagnýta nútíma
vísindi og tækni til fiskirækt-
ar í einstökum fjörðum á að
vera hægt að ná miklum og
heillaríkum árangri.