Morgunblaðið - 26.05.1966, Side 31
Fimmlucfagur 26. maí 1966
MOkGU NBLAÐIÐ
31
Hið nýja netaverkstæði.
Nýtf netaverkstæði
á Neskaupstað
Fundi Erhards og Wiisons lokiö
—Bonnstjórnin vill tá aðild að stjórn kjarn-
orkumála — Michael Stewart neitar
Neskaupstað 23. maí.
NÝTT netaverkstaeði var opnað
hér á Neskaupstað s.l. laugardag
og- í því tilefni bauð eigandi þess,
Friðrik Vilhiálmsson, fréttamönn
um blaða og útvarps að skoða
hin glæsilegu húsakynni.
Húsið stendur við Strandgötu
og er 5030 rúmmetrar og 460 fer
metrar að stærð á tveimur hæð-
iim, með risi. Hófust framkvæmd
ir við bygginguna í júní 1964. Á
jarðhæð er netageymsla mjög
stór og er þar öllu haganlega
fyrir komið. >ar er einnig ætl-
unin að verzla með ýmsar vörur,
sem notaðar eru í bátum. Á ann-
arri hæð er vinnusalur, stór-
glæsilegur. >ar er einnig kaffi-
stofa starfsfólksj skrifstofa og
snyrtiherbergi.. A efstu hæð, í
risinu, verður laigerpláss. Verða
inótirnar hífðar upp og niður
um lúgu á gólfiinu og í þeim
tilgangi no'taðar rafknúnar blakk
ir. Suður af húsinu er ætlumin að
J'ej.sa bryggju.
Húsið er teiknað af Jóni Bergs
syni arkitekt úr Hafnarfjrði, en
Jón Einarsson byggingameistari
í Neskaupstað byggði húsið og
amnaðist jafnframt yfirstjórn
Skólabörn
á ferðalagi
Akranes, 25. maí.
LANGFERÐABÍLL hlaðinn af
skólabörnum úr Kópavogi (þar
eru í 3-400 börn og skólastjóri
Gunnar Guðmundsson). Lagði
af stað heim héðan rétt fyrir kl.
19 í kvöld. Bílsjórinn hýreygur
með bros á vör og börnin öll í
sólskinsskapi. >au fóru að heim
an árla morguns og ókú eins og
leið liggur fyrir Hvalfjarðarbotn
því enn er ekki ibrú komin
yfir fjörðinn. Skoðuðu þáu Saur
bæjarkirkju og legstað séra Hall
gríms Péturssonar. Óku síðan
jnn Svínadal á Geldingardraga
yfir Skorradal og upp í Reyk-
holt. Sáu sögustaði og sátu
veizlu og síðan hingað út á
Akranes. — Oddur.
Athugasemd
frá Grindavtk
BtABINU barst I gær eftirfar-
»ndi orðsending til Grindvik-
Inga frá fráfarandi hreppsnefnd
Grindavíkurhrepps:
,,A5 gefnu tilefni viljum við
undirritaðir lýsa því yfir að sögu
burður sá, sem gengur hér í
jþorpinu, um að tveir nafngreind
ir hreppsnefndarmenn hafi stað
ið gegn því, að fjölskyldunni frá
Vík yrði leyft að endurbyggja
hús sitt á Víkurtúninu hefur við
engin rök að styðjast, og er því
Ósannur með öllu.
Einar Kr. Einarsson (sign.)
Eirtkur Alexandersson (sign.)
Hragi Guðráðsson (sign.)
Svavar Árnason (sign.)
Þórarinn Péturssou (sign.)“
með framkvæmdum á því. Um
20 manna starfslið vinnur nú
að staðaldri hjá fyrirtæki Frið-
riks Vilhjálmssonar, og mun
fleiri yfir sumartímann. Áætlað
kostnaðarverð nýbyggingarinnar
er um 6 millj. kr.
Við opnun hússins voru stadd-
ir um 200 gestir og þáðu þeir
rausnarlegar veitingar, en á eftir
var stiginn danís.
— Ásgeir.
Kalt vor
v/ð Djúp
ísafirði, 24. maí.
HÉR er óvenju gróðurlítið enn
þá. Sauðburður stendur sem
hæst og eru allar tvílemdar ær
á fullu fóðri en einlembur eru
úti við á daginn, en þeim er
gefið bæði hey og fóðurbætir.
Sauðburður gengur vel en er
annasamur mjög og er erfitt að
hýsa margt lambfé, en um annað
er ekki að ræða.
Ekki er hægt að telja nokkurn
gróður kominn ennþá, en snjó-
laust með öllu er vestan Djúps-
ins. Nú er verið að ryðja snjó
af Bæjarhlíð á Snæfjallaströnd.
>orskafjarðarheiði er snjóþung
enniþá og ekki byrjað á snjó-
mokstri þar. Annars eru vegir
orðnir góðir meðfram Djúpinu
hér innanvert.
Minkaveiðar eru nú byrjaðar
og hefur Gísli Kristjánsson veiði
maður þegar fengið allmarga
minka. í Hrútey náði Gísli strax
einum mink en líklega er mink-
ur ekki í hinum eyjunum. Æðar
varp er hafið. Búist er við að
tófur liggi nálægt byggð að þessu
sinni, sökum klaka og snjóa all-
staðar til fjalla. Vonandi fer nú
þessu kalda tíðarfari að linna.
— P.P.
— Ferðalog
Framhald af bls. 31
en akvegur þangað er ófær sem
stendur. >á verður gengið á Víf-
ilfell annan hvítasunnudag, að
tilhlutan félagsins.
Að vanda efna Farfuglar til
ferðar í >órsmörk um hvíta-
sunnuna. Verður bæði lagt af
stað kl. 10 árdegis á laugardag
og síðan kl. 2 Komið verður
aftur til borgarinnar annan hvíta
sunnudag. >átttakendur í ferð-
inni eru á annað hundrað.
Innanlandsþjónusta ferðaskrif-
stofunnar Lönd' og leiðir efnir
til þriggja daga ferðar á Snæ-
fellsnes um hvítasunnuna. Far-
arstjóri er Guðmandur Jónsson.
Eins og tíðkast hefur undanfar-
in ár hjá ferðaskrifstofunni
verður farið með útlendinga á
vhisæla ferðainannastaði, að
Gulfossi og Geysi og víðar.
London, Bonn, 25. maú
— (AP-NTB) —
UNDANFARNA daga hafa
staðið yfir í London viðræð-
ur milli Ludwigs Erhard,
kanzlara V-Þýzkaiands og
Harolds Wilson um framtíð
NATO, afstöðu Frakka til
samtakanna, kostnaðinn við
brezka herliðið sem staðsett
er í V-Þýzkalandi, efnahags-
bandalagið og Vietnamdeil-
una. í sameiginlegri yfirlýs-
ingu, sem gefin var út að
fundunum loknum, kom
fram, að Erhard og Wilson
vonast til þess að Frakkar
verði áfram í NATO og að
fullt samkomulag muni von-
andi nást um það mál á ráð-
herrafundinum sem haldinn
verður í Brússel í júní n.k.
Gerhard Schröder, utanríkis-
herra V-Þýzkalands, fór þess
á leit við Michael Stewart,
Meiraprófsnám-
skeið í Búðardal
BÚÐARDAL: — f vor var hér
haldið meiraprófnámskeið fyrir
bifreiðastjóra, sem lauk í enduð-
um aprílmánuði sl.
Á námskeiðinu voru 25 nem-
endur. Forstöðumaður nám-
skeiðsins var Geir Bachmann,
bifreiðaeftirlitsmaður í Borgar-
nesi. Kennsla fór fram í Félags-
heimilinu í Búðardal. Kennt var
á kvöldin og um helgar. Allir
nemendur, sem á námskeiðinu
voru stóðust prófið.
— Fréttaritari.
Góð giásleppu-
veiði Skagabáta
Akranesi, 25. maí.
GRÁSLEPPUVEBDI er nú hér
meiri en verið hefur í fjölda
mörg ár. Bjami og Lilli veiddu
í fyrradag, mánudag, í 8 trossur
360 grásleppur. Guðmundur Guð
jónsson, miðunarstöðvarstjóri,
fékk og rokveiði á mánudaginn.
Hióð hann bát sinn, sem er eins
og hálfs tonna trilla. Veiddi hann
170 grásleppur og varð að raða
þeim í bátinn. Á leið í land
þurfti hann að andæfa, ein.s og
stóru skipin stundum á Halamið-
um og sigldi á tæplega hálfri
ferð í land svo báturinn sykki
ekki. Úr grásleppunum fékk
hann 140 lítra af hrognum. Leif-
ur & Co. veiddi í fyrradag 113
grásleppur og tvo rauðmaga o<g
í gær 150 grásleppur og 28 rauð-
maga. — Oddur.
Athugosemd
TIL að fyrirbyggja misskilning
í sambandi við grein Sveins Guð
mundssonar „Er tímabært að
stofna síldarsölusam.band?“, sem
birtist í blaðinu í gær, skal það
tekið fram, að í Síldarútvegs-
nefnd eiga sæti eftirtaldir menn:
Erlendur >orsteinsson, formaður,
kosinn af Alþingi; Jón L. >órð-
arson, varaformaður, kosinn af
Alþingi; Jón Skaftason, kosinn af
Aiþingi; Sveinn Benediktsson, til
nefndur af félögum síldarsalt-
enda á Norður- og Austurlandi;
Ólafur Jónssom frá Sandgerði. til
nefndur af félögum síldarsalt-
enda á Suðvesturlandi; Valtýr
>orsteinsson, tilnefndur af L.Í.Ú.
O'g Hanniibal Valdimarsson, til-
nefndur af Alþýðusambandi ís-
lands.
utanríkisráðherra Breta, að
Þjóðverjar fengju, sem önn-
ur aðildarríki, aðild að yfir-
stjórn kjarnorkumála NATO.
Stewart er sagður hafa neit-
að. —
Ludwig Erhard flaug til Bonn
í dag, eftir að hafa undanfarna
tvo daga rætt við Harold Wilson
og aðra ráðherra í London um
ýmis mál varðandi NATO. Sam-
kvæmt sameiginlegri yfirlýsingu,
sem gefin var út að fundum
þeirra loknum, munu þeir eink-
um hafa rætt ýmis fjárhagsleg
atriði varðandi brezka herliðíð,
sem staðsett er á vegum NATO
í V->ýzkalandi. Wilson hefur
farið þess á leit við V->jóðverja,
að þeir leggi meira fé af mörk-
um varðandi kostnaðinn við að
hafa brezka herli'ðið í >ýzka-
landi, en til þessa hafa V->jóð-
verjar greitt tvo þriðju kostnað-
arins. Wilson og Erhard komust
ekki að samkomulagi um þetta
atriði, en samþykktu að setja á
stofn sérstaka nefnd til að kanna
allar leiðir í þessu sambandi og
skyldi hún skila skýrslu fyrir
15. séptember n.k. Erhard og
Wilson voru sammála um að
Explorer 32
skotið á loft
Kennedyhöfða, 25. maí —
AP-NTB —
Á MIÐVIKUDAG var skotið
upp frá Kennedyhöfða gervi-
hnetti, sem ber nafnið „Explorer
32“ (Könnuður). Verkefni þessa
gervihnattar, sem er á stærð við
fótknött, er að rannsaka efstu
lögin í lofthjúpi jarðar.
45 mínútum eftir að Könnuð-
ur fór á loft, tilkynntu vísinda-
menn á Kennedyböfða, að hann
hefði farið 320 km hærra en
hann hefði átt að gera. Sérfræð
ingarnir sögðu að þetta gæti
haft einhver áhrif á tæki hnatt-
arins, en það mundi taka nokkr-
ar klukkustundir að fá úr þvi
skorið.
Vísindamenn á Kennedýhöfða
ununu daglega vinna úr upplýs-
ingum sem Könnuður sendir til
jarðar. >eim er mest í mun að
kynnast sem bezt þeim breyting-
um, sem eiga sér stað í efstu
lögum lofthjúpsins, og er það
einkum vegna væntanlegra
tunglferða.
— S-Vietnam
Framliald af bls. 1
sendu stúdentar , Hué bréf til
Rauða krossins, sem þeir höfðu
skrifað með eigin blóði. >ví
næst settust þeir fyrir utan
bandaríska sendiráðið og lýstu
því yfir að þeir væru farnir í
hungurverkfall til að mótmæla
herstjórn Kys. Trúverðugar
heimlidir 1 Vietnam segja, að
Thich Tri Quang, leiðtogi Búdda
trúarmanna, hafi tilkynnt banda
rísku herstjórninni, að hann
muni herða á mótmælaaðgerð-
um gegn Ky, ef Bandaríkjaþing
samþykki ekki hið bráðasta til-
lögu þess eðli-s að Bandaríkin
styðji ekki lengur núverandi
stjórn í S-Vietnam.
>að sem mesta athygli vakti
á miðvikudag í Saigon, var að
leiðtogi kaþólikka, faðir Hoang
Quynh, sem til þessa hefur and-
mælt öllum mótmælaaðgerðum
Búddatrúarmanna, tilkynnti að
héðan í frá styddi hann stjórnar
andstæðinga. 1 bréfi, sem meðal
annarra var undirritað af Fað-
ir Quynh, og birtist í dagblaði
Búddista í Saigon, var þess kraf
ist, að Ky hershöfðingi segði af
sér „vegna tilmæla yfirgnæf-
andi meirihluta þjóðarinnar."
nauðsyn bæri að hafa brezka
herliðið áfram í >ýzkalandi, þar
til samkomulag hefði náðst um
afvopnun Evrópu. Sama máli
gegndi um franska herliðið, sem
de Gaulle hyggst draga út úr
varnarkeðjunni 1. júlí. >eir voru
ennfremur sammála um nauðsyn
þess að styrkja samtökin og
kváðust vona áð Frakkar breyttu
afstöðu sinni.
Valdamennirnir visuðu algjör-
lega á bug þeirri tillögu Rússa
að stofna til Evrópufundar um
öryggismál, án þátttöku Banda-
ríkjanna. Erhard og Wilson
sögðu að þáttur Bandaríkja-
manna í varnarsamtökum vest-
rænna ríkja væri það mikill, að
óhugsandi væri að ræða um ör-
yggi Evrópu án þeirra. í yfir-
lýsingu valdamannanna sagði,
að þeir hefðu mikinn hug á að
bæta sambúðina milli austurs og
vesturs og að þeir myndu einsk-
is láta ófreistað til að það mætti
takast.
Erhard og Wilson eru sagðir
hafa rætt Vietnam-málið, en ekk
ert var látið uppi um það í yfir-
lýsingunni.
Gerhard Schröder, utanrikis-
ráðherra V->ýzkalands, var með
Erhard í London og að því er
AP fréttastofan segir, hafði
Schröder farið þess á leit við
Michael Stewart, utanríkisráð-
herra, að V->jóðverjar fengju,
sem önnur ríki í NATO, aðild að
yfirstjórn kjarnorkumála sam-
takanna. A'ð þvi er fréttastofan
segir kvaðst Stewart ekki geta
orðið við þessum óskum, en
kvaðst vilja leggja áherzlu á það
nú, sem hingað til, að Bonnstjórn
in yrði að gera sig ánægða með
að fá a'ðild að skipulagningu
kjarnorkumála.
— Uganda
Framhald af bls. 1.
fjögurra furstadæma landsins,
sem kjörinn var til forseta yfir
þeim öllum þegar landið hlaut
sjálfstæði, en Dr. Milton Obote
varð fyrir valinu í embætti for-
sætisráðherra.
Ekki féll vel á með Dr. Obote
og furstanum Mutesa og voru
jafnan með þeim nokkrar vær-
ingar þótt hljótt færi, en í febrú
ar í ár tók Dr. Obote af skarið
og veik furstanum úr forseta-
embættinu, og tók við því sjálf-
ur og nam um leið úr gildi
stjórnarskrá þá sem landinu
hafði verið sett 1962.
Mótleikur Mutesa var sá að
krefjast þess nú fyrir nokkrum
dögum, að landstjórinn hyrfi á
brott með allt sitt hafurtask frá
borginni Kampala, sem er i
furstadæminu Buganda, því er
Mutesa ræður í lögum og lofum
enda „Kabaka" eða kóngur í
ættir fram. Obote hugsaði málið
en ákvað svo í gær að svara
kröfum Kabakans með árásinni
er áður sagði frá á höllina, á
þeim forsendum að kröfur
Mutesa væru tilraun til þess að
grafa undan valdi landstjórnar-
innar og einingu Uganda.
Neyðarástandi hefur verið
lýst í Uganda og útgöngubann er
í Kampala.
Seinustu fréttir herma, að frá
stuðningsmönnum Mutesa sé
kominn á kreik sá orðrómur, að
hann sé hvorki dauður né fangi
Obotes, heldur frir og frjáls og
að öllum líkingum kominn úr
landi. Opinberlega hefur engin
tilkynning verið gefin út um
aðsetur eða afdrif Mutesa.
— Utan úr heimi
Framhald af bls. 16
legu skipulagi. Annað hefur þó
komið á dagimin. >að eina sem
munkarnir hafa til þessa sýnt
sig færa um að gera, er að skipu
leggja mótmælafundi með huindr
uð þúsunda þátttakenda, haf-
andi aðeins eitt markmið í huga,
sem , sé að steypa núverandi
stjórn af stólL