Morgunblaðið - 17.06.1966, Qupperneq 3
Föstudagur 17. júní 190®
MORGUNBLAÐIÐ
3
skreiðina að ræða. Benti hann
á að Nígería er fjölbýlasta
land Afríku, með 56 milljcnir
íbúa, og því miklir markaðs-
möguleikar fyrir allskonar
fiskafurðir. Fiskneyzla færi
þar vaxandi og kæmi frysti
fiskurinn ekki í stað skreiðar,
heldur annarra fæðutegunda.
í>að hefur verið talsverðum
erfiðleikum bundið að dreifa
frysta fisknum um landið
vegna skorts á bæði geymsl-
um og flutningatækjum með
nauðsynlegum kælivélum, en
verið er að ráða á þessu
nokkra bót. Má í því sam-
bandi minnast á Chad vatn á
landamærum Nígeríu og Chad
sagði. Solberg. Þar veiðast ár-
iega 50—60 þúsund tonn af
fiski, en ekki hefur verið
unnt að koma þaðan nema
um sjö þúsund tonnum árlega
Nú er verið að byggja þarna
fiskiðjuver, sem mun auð-
valda mjög alla dreifingu.
Tíu fslendingar í Nígeríu
Rune Solberg er norskur að
ætt og uppruna, en hefur um
nokkurra ára skeið verið bú-
settur í Lagos, fyrst sem um-
boðsmaður norskra skreiðar-
útflytjenda, en síðustu þrjú
árin sem umboðsmaður fs-
lendinga. Hann var skipaður
ræðismaður íslands í Lagos
árið 1964. Það er ekki oft að
íslendingar heimsækja Níger-
íu, segir ræðismaðurinn, en
þó kemur það fyrir. Eru það
þá aðallega skreiðarkaup-
menn. Svo eru tíu íslendingar
búsettir þar landi, og hef.ur
ræðismannsskrifstofan stöðugt
samband við þá.
í byrjun maí s.l. flutti Sol-
berg í nýtt húsnæði á bezta
stað í höfuðborginni, þ.e. í
Ikoya-hverfi. Þetta er stórt,
nýbyggt hús, sem nefnist „ís-
landshús". Eru skrifstofur á
götuhæð, en íbúð ræðismanns
ins á efri hæðum. Og þarna er
oft annríki mikið, ekki ein-
göngu vegna viðskiptamála
og beinna ræðismannsstarfa,
heldur einnig vegna gagn-
kvæmrar landkynningar. Sol
berg hefur útvegað islenzkum
skólum landkynningarkvik-
myndir frá Nígeríu, og einnig
fengið kvikmyndir frá ís-
landi til sýninga í Nígeríu.
Segir hann að þar í landi ríki
mikill áhugi á „Sögueyjunni“,
sem margir hafi heyrt um, og
hafi hann því auk kvikmynd-
anna dreift ýmsum bækling-
um víða um land. Voru þeir
Momson og Solberg sammála
um að ísland og íslendingar
væru í miklum metum i
Nígeríu.
Ef talandi er um vandræði
eða erfiðleika í sambandi við
Framhald á bls. 21
Jslandshús* í h öfuðhorg
TVEIR góðir gestir frá
Nígeríu eru staddir hér á
landi um þessar mundir, en
halda heimleiðis á morgun,
laugardag. Eru það þeir Rune
Solberg, ræðismaður íslands
í höfuðborginni Lagos, og A.
A. Momson, stærsti skreiðar-
innflytjandinn í Lagos, og
framkvæmdastjóri samtaka
skreiðarinnflytjenda í Níger-
íu. t för með Solberg ræðis-
manni er kona hans, dr. Brita
Solberg, sem er þekktur barna
læknir i Lundi í Sviþjóð.
Þeir Solberg og Momson
komu hingað til lands á mánu
dag, og hér hafa þeir rætt við
útflytjendur og ráðherra. Á
meðan frú Solberg var að
skoða barnadeild Landspítal-
ans, gafst fréttamanni M'bl.
kostur á að ræða lítillega við
gestina frá Nígeríu. Skýrðu
þeir svo frá að þótt flutt hafi
verið skreið héðan til Nígeríu
fyrir um 245 milljónir króna
á síðasta ári, væri unnt að
selja þangað mun meira magn.
„Islandshúsið“ í Lagos.
Skreið þolir hitann.
Skreið er mjög hentug mat
vara og vinsæl, auk þess sem
hún er auðveld í meðförum
þarna i hitabeltinu. Segir
Momson innflytjandi að það
sé engum erfiðleikum bundið
að geyma skreið í einn til tvo
mánuði, jafnvel þegar hitar
eru hvað mestir. En það þýð-
Gestirnir frá Nígeríu: A. A. Momson, skreiðarinnflytjandi
(til vinstri), og Rune Solberg, ræðismaður íslands í Lagos.
IMígeríu
*
Tíu Islendingar búsettir þer
í landi
ir að hann getur haft allt að
45 tonnum á lager og dreift
skreiðinni jöfnum höndum til
kaupenda víða um land.
Talsverð aukning hefur und
anfarið orðið á neyzlu frysts
fisks í Nígeríu, en Solberg
ræðismaður taldi ekki að hér
væri um neina samkeppni við
En meira hafi ekki verið fáan
legt vegna skreiðarútflutnings
til Ítalíu. Er íslenzk skreið
mjög vinsæl í Nígeríu, og tals
vert verðmeiri á markaðnum
en skreið frá Noregi. Nemur
verðmunurinn um 5—6 shill-
ingum á hvern 45 kílóa pakka
að jafnaði. Ekki er þó fyrir-
sjáanleg nein aukning á út-
flutningnum tiF Nígeríu, en
það stafar eingöngu af því
hve franiboð er hér lítið.
STAKSTHNAR
Fagnað
samningatilraunum
Eins og kunnugt er lýsti komm
únistamálgagnið þvi yfir með ^
miklu brambolti, að slitnað væri
upp úr samningatilraunum full-
trúa Verkamannasambandsins og
vinnuveitenda, þegar hinir síðar-
nefndu töldu sig ekki geta fall-
izt á 5% grunnkaupshækkun til
hausts og fulla vísitölu, ásamt
nýjum kröfum eftir nokkra mán-
uði. Var augljóst af þessum skrif
um, að kommúnistar fögnuðu
þvi, að ekki næðist samkomulag.
Síðan var boðaður sambands-
stjórnarfundur Verkamannasam-
bandsins og þar var sem betur
fer breytt um stefnu, og fól sam-
bandsstjórn framkvæmdastjórn-
inni að vinna áfram að því að
ná samningum. — Vonandi
verða nú heilbrigðar viðræður
teknar upp að nýju og þeim hag-
að svo, að ekki sé vísvitandi
verið að hleypa af stað nýju ^
kapphlaupi milli kaupgjalds og
verðlags og auka á verðbólgu.
Hinir lægstlaunuðu
í ályktun Sambandsstjórnar
verkamannasambandsins er að
því vikið, að unnið sé að kjara-
bótum lægstlaunuðu stétta þjóð-
félagsins. Vissulega hefur Morg-
unblaðið og allur almenningur
samúð með því að reynt sé að
bæta kjör þeirra, sem lægst laun
hafa. Raunar hefur ríkisstjórnin
margsinnis reynt að stuðla að
hækkuðum launum og bættum
kjörum verkamanna, og atvinnu-
rekendur verða heldur ekki ásak
aðir fyrir það að hafa illa tekið
slíkum tilraunum. Þvert á móti
hafa þeir verið þátttakendur í
því að reyna að bæta kjör verka-
manna, án þess að allar aðrar
stéttir fylgdu' í kjölfarið. Stjórn
verkamannasambandsins verður 0
að gera sér grein fyrir því, að
þessar tilraunir hafa hvorki
strandað á ríkisvaldi né vinnu-
veitendum, heldur á forystu laun
þegasamtakanna, þvi að stjórn
Alþýðusambandsins hefur bein-
línis beitt sér fyrir því, að aðrar
stéttir fengju ekki minni kjara-
bætur en verkamenn, og raunar
oftast meiri en þeir. Það er
rangri stefnu launþegasamtak-
anna sjálfra að kenna, að þessar
tilraunir hafa farið út um þúf-
ur.
Stöðvun verðbólgu
Umræður i borgur-
sfijórn um „kvöldsölu-
múíin“
Á FUNDI borgarstjórnar Reykja-
víkur í gær urðu nokkrar um-
ræður um fyrirspurn Óskars Hall
grímssonar svohljóðandi:
„Hvað líður störfum nefndar
þeirrar, sem borgarráð, kaup-
mannasamtökin og V.R. tilnefndu
fulltrúa í og leita átti samkomu-
lags um að tekin yrði upp að
nýju nauðsynleg verzlunarþjón-
usta í borginni eftir að verzlanir
hættu kvöldsölu 1. des. 1965“.
Birgir ísleifur Gunnarsson svar
oði fyrirspurninni, en hann var
í fyrrgreindri nefnd kjörinn af
hálfu borgarráðs, ásamt Krist-
jáni Benediktssyni. Kvað hann
svipaða fyrirspurn hafa fram
komið í vetur. Rakti hann síðan
nakkuð kvöldsölumálin og þau
samkomulög, sem hefðu verið
gerð í þeim málum. Svo hefði
farið í marz í vetur að nefndin
hefði ekki náð samkomulagi um
framkvæmd kvöldsölumálsins og
hefði hann þá fyrir sitt leyti lit-
ið svo á að störfum nefndarinn-
ar væri lokið að svo stöddu, enda
hún skipuð að ósk þeirra aðila,
sem semja áttu sín á milli, þ.e.
V.R. og Kaupmannasamtökunum.
Frá þeim hefðu engar tillögur
komið um breytingar á sjálfri
reglugerðinni. Hins vegar fælust
í samningum þessara aðila, sem
gerðir voru í vetur, möguleikar
til að hafa allar búðir opnar
til kl. 10 á föstudögum, og hafa
þá einskonar markaðsdag. Fram
kvæmd þessi væri hins vegar
háð vilja samningaaðilanna.
Óskar Hallgrímsson þakkaði
svörin við fyrirspurninni. Hann
taidi þó rétt að rekja forsögu
þessa máls að nokkru og gerði
það. Taldi kvöldsölu, sem orðið
hefðj til fyrir eigin hvatir ýmissa
verzlunarmanna, hafa verið vin-
sæia með almenningi á sínum
tima, en Kaupmannasamtökin
fundið þeim ýmislegt til foráttu.
Hefði síðan komizt á samkomu-
lag um skiptiverziun, sem þó
varð ekki til frambúðar. Væru
borgarbúar nú sviptir þeirri þjón
ustu, sem hefði komið sér eink-
ar vel, þar sem á tiðum allir
meðlimir, fjölskyldunnar væru
að störfum á venjulegum verzl-
unartíma. Fyrirspyrjandi kveðst
að lokum áskilja sér rétt til að
flytja tillögu um að borgarstjórn
afnæmi þá óframkvæmanlegu
reglugerð er nú gilti um þessi
mál.
Kristján Benediktsson kvaðst
vera sammála Birgi ísleifi um að
raunverulega hefði störfum
nefndarinnar verið lokið er ekki
var hægt að koma á samkomu-
lagi í vetur, enda þá ekki horfur
á að neitt áynnist með störfum
hennar. Kvað hann þetta mesta
leiðindamál ekki hvað sízt fyrir
borgarstjórn. Kvað hann það
valda sér vonbrigðum að sá aðil-
inn, sem fylgt hefði málinu fast
eftir á fyrstu stigum þess, hefði
ekki gert það á hinum síðari, en
þar væri um að ræða Kaup-
mannasamtökin. Frekar kvaðst
hann ekki ræða þessi mál á þessu
stigi þar sem fyrirspyrjandi hefði
boðað framhald umræðna um
þessi mál í borgarstjórn á næst-
unni.
HÁTÍÐAHÖLDIN í Hafnarfirði
verða með svipuðu sniði og í
fyrra, en að þessu sinni veröur
kvöldvakan við barnaskólann
(lækjarskóla). — Klukkan 1 30
leikur Lúðrasveit Hafnarfjarðar
við Þjóðkirkjuna og síðan verð-
ur helgistund í kirkjunni. Kl.
2.25 verður skrúðganga frá
kirkju að Hörðuvöllum, þar sem
hátíðahöldin fara fram. Þorgair
Ibsen setur hátíðina, en ræðu
dagsins flytur dr. Finnbogi Guð-
mundsson landsbókavörður, pá
verður fánahylling, ávarp fjall-
Framhald á bls. 19
Skilningur fer nú stöðugt vai-
andi á nauðsyn þess að stöðva
verðbólguna, staldra við og
treysta atvinnulífið og atvinnu-
óryggið- Menn gera sér í æ rík-
ara mæli grein fyrir því, að
lengra verður ekki haldið á braut
víxlhækkana kaupgjalds og verð
lags, ef atvinnulífinu á ekki að
stefna í voða. Kauphækkanirn-
ar undanfarin ár hafa byggzt á
hinu gífurlega aflamagni og
hækkandi verðlagi íslenzkra af-
urða á erlendum mörkuðum. Nú
er verðlag því miður lækkandi
á sumum okkar útflutningsaf-
urða, og engar likur til þess að
afli aukist frá því, sem var sl.
ár. Nýjar kaupkröfur verða því '
ekki byggðar á mikilli nýrri auð-
legð, sem skyndilega skapast, og
þess vegna er það þjóðarnauð-
syn, að allir geri sér grein fyrir
þvi, að kröfugerð verður að
stilla í hóf í ár, hvað sem siðar
kann að verða. Þessi skilningur
er grundvöllur þess, að samkomu
lag geti náðst milli vinnuveit-
enda og launþega.
Hátiðahöldin
í Hafnarfirði