Morgunblaðið - 17.06.1966, Blaðsíða 19
Fostudagur Vf. júní 196P
MORGUNBLAÐIÐ
19
-Gaman og alvara
Framh. af bls. 15
eins manngrúi á fslandi". Síðan
var lagt upp í skrúðgöngu mikla
suður að leiði Jóns Sigurðsson-
ar í kirkjugarðinum. Horna-
flokkur gekk í fararbroddi og
þeytti lúðra, en þá kom land-
stjórnin, konsúlar erlendra
ríkja í einkennisbúningum, síð-
an alþingismenn, bæjarstjórn
Reykjavíkur og blómsveigaber-
ar, þá barnaflokkur (um 1000
Ibörn), sfðan Stúdentafélagið,
Iðnaðarmannafélagið, Verka-
mannafélagið og fleiri félög og
skólar, en að lokum ráku lest-
ina „allir þeir, sem ekki til-
heyrðu neinu af þessu, og þeir
voru flestir". í skrúðgöngunni
tóku þátt 6—7000 manns, og
Iþótti hún afar tilkomumikil,
„þótt ekki væri skipulagið sem
bezt“, segir Vísir. f göngunni
voru taldir á þriðja hundrað
fslenzkir fánar og átta danskir
fánar. Að stuttri athöfn í
kirkjugarðinum lokinni, var
gengið áfram suður Suðurgötu,
sveigt niður á Tjarnargötu og
gengið aftur á Austurvöll. Þar
ihélt Jón Jónsson, sagnfræðing-
, ur, ræðu, sem mjög var rómúð,
og einkum hafa blöðin orð á
því, hve vel heyrðist tii hans.
„Talaði hann svo hátt og skýrt,
að allir heyrðu vel til hans“,
segir í Reykjavík, enda voru
sí-bilaðir hátalarar þá ekki
Ikomnir til sögunnar, og ísafold
kallar hann „snjallrómaðastan
allra“. f>á söng Söngfélag stúd-
enta af svölum Hótel Reykja-
víkur nýtt kvæði eftir Þorstein
Erlingsson undir nýju lagi eftir
Árna Thorsteinsson og annað
nýtt kvæði eftir Hannes Haf-
stein (Sjá roðann á hnjúkunum
Iháu) við nýtt lag eftir Jón Lax-
dal. Þess má geta hér, að annað
mýtt kvæði eftir Hannes Haf-
stein (Þagnið dægurþras og ríg
ur!) var sungið þennan sama
dag vestur á Rafnseyri. Þrjú ný
kvæ'ði eftir Guðmund Guð-
mundsson voru sungin þennan
dag, tvö vestur á Rafnseyrj og
hið þriðja austur á Seyðisfirði.
Reykjavíkurblöðin gáfu öll út
hátíðablað, þ. á m. Vísir eitt
prentað í tveimur litum (blá-
um og brúnum), og ortu mörg
skáld í þau og tímarit landsins
um þetta aldarafmæli.
I — ★ —
f Kl. 16 hófst sérstök minning-
arsamkoma Hins íslenzka bók-
menntafélags í hátíðasal mennta
skólans. Á þeim fundi voru hin-
ar tvær deildir félagsins,
Reykjavikurdeildin og Kaup-
mannahafnardeildin, sameinað-
or og heimili þess flutt til
Reykjavíkur. Forseti Reykja-
víkurdeildarinnar, Björn M. Ól-
sen, sem varð síðan forseti alls
tfélagsins eftir sameininguna,
minntist Jóns Sigurðssonar og
starfs hans fyrir félagið, og lagt
var fram sérstakt hefti af
Skírni, sem helgað var minn-
ingu Jóns Sigurðssonar.
• íþróttavöllurinn vígður.
Kl. 17 hófst íþróttamót og
vígsluhátíð á hinum nýja
íþróttaleikvangi suður á Mel-
um, og voru þar um 3.000
manns. Þórhallur Bjamarson,
toiskup, hélt ræðu, og þrír flokk
«r sýndu fimleika, einn úr Ung
meyjafélaginu Iðunni, annar úr
Sþróttafélagi Reykjavíkur og
hinn þriðji úr Ungmennafélagi
Reykjavíkur.
Um kvöldið voru haldin sam-
sæti á þremur stöðum í bæn-
um, en hið fjórða (í Iðnaðar-
mannahúsinu) fórst fyrir og
dreifðust menn þaðan á hina
staðina. í Hótel Reykjavík
sCkemmtu sér nær 300 skart-
klæddir veizlugestir og hlýddu
é ræður Eiríks Brierns, dósents,
Andrésar Björnssonar formanns
Stúdentafélags Reykjavíkur og
Jóns Ólafssonar, alþingismanns,
sem mælti fyrir minni Vestur-
íslendinga. I KFUM skemmtu
sér „aðallega yngri menn“, en
í Goodtemplarahúsinu „voru
einkum templarar".
• Skammvinn gleði.
„Borið var við að dansa um
kveldið suður á íþróttavelli",
segir eitt blaðanna, „og var
spilað á harmonikku undir.
Gleðin var þó skammvinn, því
að tveir menn lentu í handa-
lögmáli, og sleit þar með dans
inum“.
• Öndunga-fjendur halda
fund.
Um kvöldið sóttu margir
merkilegan fund í „Forsamlings
bygningen BÁRAN“ eða Báru-
húsinu gamla við tjörnina. Þar
voru mættir tveir „öndunga-
fjendur", sem sýndu fram á
„blekkingar og sviksemi anda-
vissumanna“ eða andatrúar-
manna, sem nú kallast. Annar
þeirra var sjálfur „dr. Leo
Montagny, Kgl. græsk og
Kejerlig persisk Hofkunstner",
sem hélt fullkominn „andavissu
mannafuhd“, særði fram fram-
liðna menn, lét anda „materíali-
serast", sýndi borðdans o.fl.
„paa aaben scene under nþje
'kontrol af públikum". Síðan
sýndi hann fram á, að þetta
væru allt blekkingar, og út-
skýrði fyrir fólki, í hverju
blekkingarnar væru fólgnar
(„afslþring af alle de kmeb og
hjælpemidler som de spiritiske
svindlere bruger“). Fundurinn
vakti mikla athygli, umtal —
og blaðadeilur að sjálfsögðu.
Einkum var rifizt um borðdans
einn mikinn, þegar dr. Monta-
gny, að sögn blaðanna, lét borð
stofuborð hlaupa um alla sviðið
með Sigurbjörn Ástvald Gísla-
son, Einar Amórsson og Knud
Zimsen í efltirdragi en síðan
útskýrði doktorinn svindlið.
Fyrstu frésögn blaða af „borð-
dansinum mikla“ var mótmælt,
„Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason
var eigi við borðdansinn, en
Knud Zimsen var þar“. Þótti
„öndunga-fjendum", þ.e. and-
stæðingum spíritista, matur í
fundinum, en ,andavissumenn“
gerðu lítið úr brellum þeim,
er hirðfífl og galdrameistari
Persakeisara hefði sýnt í Bár-
unni.
Næstu daga var rætt og rif-
izt í blöðunum um hátíðina og
Bárufundinn, en í erlendum
fréttum var það helzt, þá eins
og nú, að „sjómannaverkfallið
mikla í Bretlandi“ væri að lama
ailt atvinnulíf þar.
• Hátíðin endaði undir
morgun.
Þrátt fyrir rifrildi um ein-
stök atriði voru blöðin sam-
mála um það, að hátíðin ihefði
tekizt afburðavel. I einu blað-
inu endar frásögnim um 17.
júní 1911 þannig: „Þar með var
þessari miklu og minnisverðu
minningarhátíð lokið, og luku
allir upp einum munni um það,
að hún hefði tekizt prýðilega í
alla staði — betri og bjartari
dag hefðu þeir aldrei lifað.
Annað blað segir: „Þessi mikla
þjóðhátíð endaði hjá fæstum
fyrr en undir morgun og mun
þeim, er hana sóttu, jafnan
minnisstæð".
• Engin kveðja frá
Hafnarskóla.
Það skyggði nokkuð á gieð-
ina yfir stofnun íslenzka há-
skólans að engin kveðja eða
heillaósk barst frá Kaupmanna
hafnarháskóla, þeirri menning-
arstofnun, sem íselnzkir stúdent
ar höfðu numið við hundruðum
saman á liðnum öldum. Þótti
mönnum yfirleitt anda kalt frá
dönskum menntamönnum
vegna þessa atburðar.
Hins vegar bætti það úr skák
að Friðrik konungur áttundi,
sendi stofnfundi Háskóla fslands
„samfagnaðarskeyti“, og hám-
ingjuóskaskeyti barst frá há-
skólanum í Kristjaníu (Osló).
9 Kveðja frá konungi.
Konungur sendi og lands-
stjóninni á íslandi eftirfarandi
skeyti: „Um leið og ég á iþess-
um minningardegi hugsa með
öllum íslendingum til ins mikla
leiðtoga Og göfuga málsvara
þjóðarinnar, bið ég yður að
bera fram óskir mínar um það,
að háskóli sá, sem til minning-
ar um hans mikla ævistarf er
stofnaður á þessum degi megi
verða til heiðurs fyrir vísindin
og til gagns fyrir land og lýð“.
• Laumaðist varðskipið út?
Foringjum á danska varðskip
inu „Islands Falk“, sem lá í
Reykjavíkurhöfn 16. júní, hafði
verið boðið til vígsluhátíðar
háskólans, en skv. frétt í einu
blaðanna „laumaðist“ skipið út
aðfaranótt 'hins 17. júní og kom
ekki aftur fyrr en 18. júní, svo
að yfirmennimir losnuðu við
að taka þátt í þessum hátíða-
höldum, og til þess að sleppa
við hugsanleg óþægindi af nær-
veru danskra sjóliða þennan
dag.
Fánar blöktu um allan bæinn
þennan dag. Taldir voru 137
ísílenzkir fánar (þ.e. Hvítblá-
inn). 62 danskir og 17 annarra
þjóða. Eins og fyrr segir, voru
á þriðja hundrað íslenzkra fána
í skrúðgöngunni en átta dansk
ir.
- / Hafnarfirði
Framh. af bls. 3.
konunnar, söngur skemmtiþátt-
ur, Ómar Ragnarsson skemmtir,
Þrestir syngja og handknattleik-
ur. Klukkan 5 verða kvikmynda-
sýningar fyrir börn í báðum bíó-
unum. Kl. 8 um kvöldið hefst
svo kvöldvakan við barnaskól-
ann. • Þar flytur bæjarstjórinn,
Hafsteinn Baldvinsson, ræðu og
svo verðúr ýmislegt til
skemmtunar. Kl. 10 hefst dans-
inn við barnaskólann.
- SAS
Framh. af bls. 1
einróma samþykkt óðalsþingsins
um gerðardóminn, væri forsenda
verkfallsins niður fallin. Að
halda verkfallinu áfram, og
hafna að bíða endanlegs úrskurðs
í formi laga, myndi aðeins geta
talizt óvirðing við Stórþingið og
þjóðina.
Innanlandsflug í Noregi er að
sjálfsögðu ekki komið í sama
horf aftur, en búizt er við því
að það verði í síðasta lagi g
laugardag.
í Danmörku og Svíþjóð hafa
ýmsir stjórnmálamenn, þar á
meðal Aksel Larsen, formaður
danska SF-flokksins, hvatt til
þess að ríkisstjórnir landanna
fari sömu leið og Norðmenn varð
andi flugmannaverkföllin þar.
— Nanking
Framh. af bls. 1
rektor Pekingháskóla sömu
útreið.
Pekingútvarpið sagði, áð á-
kvörðun um brottvikningu Ku-
angs hefði verið tekin á fundi
flokksnefndar kommúnistaflokks
ins í Chiansu-héraði 12. júní sl.
Tilkynnt var um ákvörðunina á
fundi 10,000 stúdenta og prófess-
ora samdægurs.
Pekingútvarpið bar í dag svip-
aðar ásakanir á Kuang og flesta
menntamenn aðra, sem orðið
hafa fyrir barðínu á hreinsun-
inni í Kína, sem farið hefur þar
eins og logi um akur síðustu vik-
urnar undir nafninu „Menningar-
bylting öreiganna", þ.e. að hann
væri andflokkssinni, andsósíalisti,
gagnbyltingarmaður. Hinsvegar
var ekki minnzt á „endurskoð-
unarstefnu" í þessu sambandi.
Þá var Kuang rektor sakaður
um áð hafa staðið að „sviksam-
legu samsæri sem miðað hefði að
því að kæfa byltingarhreyfing-
una innan veggja Nankinghá-
skóla“.
Pekingútvarpið dró enga fjöð-
ur yfir, að örlög Kuangs myndu
hitta fleiri fyrir. Sagði útvarpið,
að þeir, sem í reynd hefðu stutt
brottvikningu Kuangs, hefðu far
ið þess á leit að mega fletta ofan
af fleiri „skrímslum" innan
veggja háskólans.
„Skrímsli" er hið opinbera við-
urnefni menntamanna í Kína,
sem sekir virðast hafa gerzt um
að gagnrýna hið mjög svo mis-
heppnaða „Stóra framfarastökk“
(5 ára áætlun) Mao Tse Tung frá
1958.
Rumlega 140 norrænir
lögreglumenn ú söng-
móti í Reykjovík
N. K. MÁNUDAG hinn 20. júní,
hefst í Reykjavík 3. söngmót
norrænna lögreglukóra. Er það í
fyrsta sinn, að slíkt mót er hald-
ið hér á landi, en sams konar
mót voru haldin í Stokkhólmi
1950 og Otsló 1961. Hingað koma
nú lögreglukórar frá hinum
Norðurlöndunum fjórum og verð
ur samsöngur þeirra, sem fram
á að fara fyrir utan Menntaskól-
ann í Reykjavík á þriðjudags-
kvöld mikilvægasti þáttur þessa
söngmóts.
Framkvæmdastjóri söngmóts-
ins verður Páll Kr. Pálsson, en
það verður sett í Sjómannaskól-
anum kl. 18.30 á mánudag. Mun
lögreglustjórinn í Reykjavik,
Sigurjón Sigurðsson setja mótið
með ávarpi. Samanlagður fjöldi
meðlima kóranna allra er 144 en
auk hinna erlendu lögregluþjóna
verða eiginkonur margra þairra
með i ferðinni. Mun þetta fólk
búa í Sjómannaskólanum, á með
an á dvöl þess stendur hér.
Helzti þáttur söngmótsins
verður eins og að framan gre:nir
samsöngur fyrir utan Mennta-
skólann. Verður fyrst gengið í
skrúðgöngu frá Snorrabraut nið-
ur Laugaveg og Lækjargötu að
Menntaskólanum. Þar hefst sam-
söngurinn á lagi eftir Pál ísólfs-
son, sem hann hefur sérstaklega
tileinkað þessu móti, en síðan
munu kóramir syngja hver fá-
ein lög, en siðan syngja a'llir
saman 5 lög, eitt frá hverju
landi.
Þá munu kóramir enn frem-
ur syngja í Háskólabíói á
fimmtudag með breyttri söng-
skrá. Hefur þeim, sem stutt hafa
þetta söngmót, verið boðið á þá
hljómleika og eru þessir aðilar
það margir, að miklum meiri
hluta sæta í húsinu hefur þegar
verið ráðstafað.
íslenzka sjónvarpið mun taka
þætti frá söngmótinu og Óskar
Gíslason hefur verið ráðinn til
þess að gera kvikmynd af þvL
Tiio og Nasser
hittast í haust
í Nýju Delhi
Nýju Delhi, 15. júní NTB: —
★ Frú Indira Gandhi forsæt-
isráðherra Indlands, sagði
blaðamönnnum í Nýju Delhi í
dag, áð hún færi til Moskvu 12.
júlí n.k. til viðræðna við sov-
ézka ráðamenn og mundi dvelj-
ast þar fjóra til fimm daga.
Forsætisráðherrann sagði, að
efnahags- og hemaðaraðstoð
Sovétríkjanna við Indland yrði
rædd mjög ýtarlega og væri
ráðgert, að Asoka Mehta, skipu-
lagningar- og áætlanaráðherra
Indlands, færi til Maskvu 21.
júní tdl þess að undirbúa við-
ræðurnar í júlí.
Indira Gandhi skýrði eirnnig
frá því, að í október n.k. væri
fyrirhugaður í Nýju Delhi fund-
ur æðstu valdaimanna Arabíska
Sambandslýðveldisins og Júgó-
slavíu. Ekki vildi hún segja
nánar, hvað þeir hygðust ræða
þar, en stjórnmálafréttaritarar
í Nýju Delhi telja ekiki ósenni-
legt, að viðræðumar snúist um
versnandi samskipti ýmissa Afr-
íku og Asíu ríkja og þá tilhneig-
ingu margra ríkja að varpa fyr-
ir borð hlutleysisstefnunni í ut-
anríkismálum, sem Nehru, fyrr-
um forsætisráðherra Indlands og
faðir* Indiru bar svo mjög fyrir
brjósti
Merki söngmóts norrænna lög-
reglukóra í Reykjavík 1966.
17. júní
í Kópavogi
EINS og undanfarin ár verða
hátíðahöld í Kópavogskaupstað
17. júní. Kl. 1,30 hefst hátíðin
við Félagsheimilið.
Þaðan verður gengi'ð í Hlíðar-
garð. Formaður þjóðhátíðarnefnd
ar, Sigurjón Ingi Hilaríusson,
æskulýðsfulltrúi, setur hátíðina.
í Hlíðargarði verður margt
til skemmtunar. Hjálmar Ólafs-
son bæjarstjóri flytur ræðu,
Helga Harðardóttir flytur ávarp
Fjallkonunnar, leikararnir Árni
Klemenz og Bessi skemmta og
ýmislegt fleira verður til skemmt
unar.
Kl. 4.80 verður dans yngri bæj-
arbúa í Æskulýðsheimilinu að
Álfhólsveg 32.
Um kvöldið hefst hátíðin aftur
\ið Kópavogsskóla kl. 8,30. Þar
flytja leikarar gamanþætti. Ríó-
tríó leikur og syngur þjóðlög,
og tvöfaldur kvartett syngur und
ir stjórn Kjartans Sigurjóns-
sonar.
Síðan verður dansað úti við
Kópavogsskóla og einnig í Fé-
lagsheimilinu til kl. 1 e.m.
„5 PENS“ og Stuðlatríó leika
fyrir dansi.
17. júní í
Mosfellssveit
17. JÚNÍHÁTÍÐARHÖLD i
Mosfellssveit munu hefjast á
því að safnazt verður saman við
vegamót Reykjalundar hjá Mala
túni. Þaðan verður gengið i
skrúðgöngu kl. 13.30 og leikur
lúðrasveit drengja undir stjórn
Birgis D. Sveinssonar leika I
fararbroddi. Gengið verður að
Varmárskóla.
Við Varmárskóla mun Matt-
hías Sveinsson, sveitarstjóri setja
hátíðina. Þá verður guðsþjónusta
og predikar séra Bjarni Sigurðs-
son, sóknarprestur, en kirkjukór
Lágafellssóknar syngur, undir
stjóm Hjalta Þórðarsonar. Þá
flytur Aðalsteinn Eiríksson,
námsstjóri minni dagsins og
Karlakór Kjósarsýslu syngur
undir stjórn Odds Andréssonar.
Ávarp fjallkonunnar flytur Ólöf
Sjötfn Gísladóttir. Þá mun fara
fram leikfimi stúlkna og stjórn-
ar henni Hlín Árnadóttir.
Síðar fer fram sundkeppni og
ýmislegt annað verður gert fólki
til skemmtunar.
Um kl. 21 mun hefjast kvöld-
skemmtun í Hlégarði og mun
dansað þar til kl. 2 eftir mið-
nættL ■'" '