Morgunblaðið - 19.01.1967, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1967.
3
Bygging Sundahafnar hefur
tafizt nokkuð vegna tíðarfars
kvæðagreiðsSa
í Fraraska
Somalilandi
París, 16. janúar. NTB.
Þjóðaratkvæðagreiðsla mun fara
fram í franska Sómalilandi hinn
19. marZ n.k. Eiga ílbúar þessar-
ar einu nýlendu, sem Frakkar
eiga enn í Afríku, að ákveða,
hvort nýlendan fari fram á að
verða sjálfstæð utan franska lýð
veldisins eða hvort hún eigi að
vera áfram hluti af Frakklandi,
en fái endurbætur á stjórnsýslu
og stjórnarskipan sinni.
Samþykkt var í Frakklandi að
láta þessa þjóðaratkvæðagreiðslu
fara fram, eftir að miklar óeirð-
ir og mótmælaaðgerðir höfðu átt
sér stað, er de Gaulle forseti
kom í heimsókn til Somalilands
á s.L sumrL
— Hafnargarðuriim orðinn 130 metra langur
Frosthörkur í
UNNTÐ er af kappi við fyrsta
áfanga Sundahafnar. Er nú ver-
ið að sprengja fram og lækka
sjávarhamrana vestan Vatna-
garða og jafnframt er verið að
bygga hafnargarð til varnar
norðvestanáttinni, en hún getur
verið mjög slæm. Garðurinn er
kominn um 130 metra í sjó fram,
en alls á hann að verða 270 metra
langar og þá að beygja til aust-
urs um 30 metra.
Morgunblaðið ræddi litillega
við Bent FosSberg, verkfræðing
sænska fyrirtækisins, sem hefur
venkið með höndum, og sagði
hann að verkið hefði tafizt nokk
uð í vetur vegna slæms tíðar-
fars. Ekki hefði verið hægt að
vinna við boranir og annað slíkt
í vikunni, eins og ráðgert hafði
verið og lægi slík vinna niðri,
unz byggingu vesturgarðsins
væri lokið að mestu. Fossberg
sagðist gera ráð fyrir, að ef allt
gengi samkvæmt áætlun og tíð
yrði ekki þeim mun verri, yrði
stálþilið rekið niður í marz.
Grjótið í garðinn var fyrst tek-
ið í Breiðholti, en nú er verið
að reyna nýja námu við Bull-
laugar.
Nú vinna 1S Sviar og ia ís-
Þingið í Chile bannar Frei
forseta að heimsækja USA
Santiago, 1'8. jan: NTB.
FJÓRTÁN ráðherrar í ríkisstjóm
Chile lögðu í gærkvöldi fram
lausnarbeiðni, til þess að gefa
Frei forseta landsins frjálsar
(hendur, etfir að öldungadeild
þjóðþingsins hafi neitað honum
um leyfi tii að heimsækja Banda
rikin og Ihitta Johnson forseta að
máli. Neitaði Frei að taka lausn
arbeiðnirnar til greina, en þær
voru lagðar fram á sérstökum
rikisstjórnarfundi eftir atkvæða
greiðsluna í þinginu.
Stjórnarandstöðuflokkarnir
10 þús. tunnur
til Vestmanna-
eyja
t'M 10 þúsund tunnur síldar
bárust til Vestmannaeyja í fyrri-
nótt og í gær. Á síldarmiðunum
fyrir Áustfjörðum var bræla.
Nokkrir bátar sigldu með síld
til Færeyja, þar sem þeir lögðu
upp í nýja verksmiðju í Fugla-
firði þar sem þeir fá svipað verð
fyrir hana og hér heima. Síldar-
verksmiðja þessi hefur þróar-
rými fyrir rúm 2000 tonn, en
afköst hennar eru 1000 tonn á
sólarhring, en ekki 500 eins og
ranghermt var í Mbl. í gær.
sem hafa meirihluta í þinginu
héldu því fram, að heimsókn
Freis til Bandaríkjanna myndi
skerða heiður Chile og vísuðu til
yfirlýsingar frá Hvíta húíinu, þar
sem Johnson óskar eftir að heyra
þann árangur, sem náðst hefur
í stjórnartíð Freis. Sögðu þing-
mennirnir að enginn erlendur
þjóðhöfðingi hefði leyfi til að
krefja annan þjóðhöfðingja um
skýringu á því hvernig hann
stjórnar landi smu. Auk þess
sökuðu þeir Kristilega Jafnaðar-
mannaflokkinn um að ætla að
nota sér heimsókn Freis sem
áróðursatriði í kosningaabráttu.
Leiðtogar Jafnaðanmannafloks
ins hvöttu í gær verkamenn til
að fara í hópgöngur og mót-
mæla ákvörðun öldungadeildar-
innar og beindi þeim tilmælum
til forsetans að hann sýndi festu
og hörku í því ástandi, sem nú
ríkir í landinu. Stjórnmálafrétta-
ritarar telja að stjórnarandstað-
an hafi veitt Frei sterkt vopn
í hendur með þessari ákvörðun,
og að hann myndi ef til vill láta
fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu
um ýmis atriði, sem hafa valdið
deilum miili stjórnarinnar og
stjórnarandstöðunnar á s.l. á i.
Fregnir hafa borizt af átök n
I Santiago og ýmsum öðru: í
borgum í landinu, og hópgöngur
hafa verið farnar til stuðnings
Frei.
lendingar hjá fyrirtækinu, en
þegar öll vinna er komin í fullan
gang munu 20 til 25 Islendingar
vinna við verkið. Er nú verið að
byggja vistarverur handa Svíun
um rétt fyrir ofan gamla flug-
skýlið.
Blaðið kom að máli við nokkra
starfsmenn og líkaði þeim vinn-
an vel, nóg að gera og engin telj-
andi óhöpp komið fyrir. Voru
þó ýmsir gamlir menn búnir að
vara við því að sprengja Köll-
unarklettinn, og töldu að fátt
gott hlytist af því að má burt
stað byggðan álfum. En ekkert
gerðist, svo að líklega hafa álf-
arnir verið fluttir burt, áður en
kletturinn hvarf.
N-Afríku
Chicago, 18. jan. — AP
MTKLAR frosthörkur skullu á i
morgun í Mið-Kanada og í miðj
um Bandaríkjunum. Þannig
komst frostið niður í mínus 45
C í norðurhluta Ontario. í Norð-
ur-Dakota komst frostið í min-
us 40 C og 30 stiga frost og
mieira var ríkjandi alls staðar í
Dakota, Minnesota og Wisconsin.
Kalda loftið kom frá Kletta-
fjöllunum um nóttina og teygði
sig æ lengra austur á bóginn eft-
ir því sem á daginn leið. Olli
kalda veðrið feiknarlegri eftir-
spum eftir alls kyns skjólfatn-
aði á þvi svæði, sem það hafði
lagzt yfir.
Babette (Steinunn Jóhannesdótt ir) og Biedermann (Sigurgeir
Hilmar).
AIEir fimmburarnir dánir
Diisseldorf, 18. janúar NTB.
HJNN síðasti af fimmburunum,
sem hin 30 ára gamla frú Rose-
marie Januschek fæddi seinni
hluta dags í háskólasjúkrahús-
inu í Diisseldorf dó í kvöld. Dán
arorsökin var truflun í blóðrás-
inni og öndunarerfiðleikar sams
konar og hinir fjórir höfðu þjáðst
af. Var það drengur, sem lengist
liffSi.
Fimmburarnir voru fjórir
drengir og ein telpa. Einn drengj
anna dó í morgun og telpan og
annar drengjanna einnig seinna
um morguninn. Síðan dó enn
einn drengjanna, en hinn fjórði
þeirra, sem ennþá lifði virtist
vera að frískast. Heilsu hans
hrakaði hins vegar sáðar í kvöld.
Fimmburarnir voru fyrstu
börn Januschekshjónanna. í>au
áttu ekkert barn eftir þriggja
ára hjónaband, en eftir að kon-
an hafði hlotið hormónameðferð
gegn ófrjósemi varð hún þung-
uð.
MA sýnír Orennuvargana
Akureyri, 18. janúar.
LEIKFÉLAG M.A. frumsýndi
á fimmtudagskvöldið var sjón-
leikinn Biedermann og brennu-
vargarnir, eftir Max Frisch í ís-
lenzkri þýðingu Þorgeirs Þor-
geirssonar. Leikstjóri var Erling
ur E. HaUdórsson. Að öðru leyti
störfuðu nemendur einir við sýn
inguna og gáfu út vandaða leik-
skrá.
Með stærstu hlutverkin fóru
Sigurgeir Hilmar, Steinunn Jó-
hannesdóttir, Sverrir Páll Er-
lendsson, Einar Karl Haraldsson
og Margrét Sigtryggsdóttir. —
Leiksviðsstjóri var Konráð Er-
lendsson og ljósameistari Guð-
mundur Þórðarson.
Leikstjóra og leikendum var
óspart klappað lof í lófa að lok-
inni sýningunni, sem þótti tak-
ast afar vel í alla staði.
Næstu sýningar verða á föstu
dags- og laugardags- og sunnu-
dagskvöld, en úr því tekur sýn-
ingum að fækka. Ráðgert er að
fara leikför til Ólafsfjarðar og
Siglufjarðar um mánaðamótin.
— Sv. P.
STAKSTEIiAR
Gagnrýni nauðsynleg
1 gær var í þessum dálki drep-
ið á þrjú stór verkefni, sem eðli-
legt væri, að samtök ungra
Sjálfstæðismanna fjöliuðu um
og mörkuðu nýja framtiðar-
stefnu. Tvö þessara verkéfna,
menntamál og húshæðismál
snerta sérstaklega unga fólkið I
landinu, en að sjálfsögðu er eðli
legt að stjórnmálasamtök ungs
fólks fjalli ekki einungis um
slik mál, heldur og önnur þau
mál, sem miklu skipta fyrir þjóð
félagið í heild. Þegar að slikum
verkefnum er staðið af hálfu
stjórnmálasamtaka ungra manna
er nauðsynlegt, að á ríkjandi á-
stand á hverju sviði sé litið
gagnrýnisaugum, hvaða flokkur
sem þar hefur átt hlut að máli,
því að nýir tímar gera nýjar
kröfur og það sem kann að hafa
hentað á einum tíma getur ver-
ið orðið úrelt síðar, ekki síst i
þeim miklu breytingatímum, sem
við nú lifum á. Þannig er nauð-
synlegt, að ungir Sjálfstæðis-
menn taki t.d. atvinnumálin i
heild til athugunar með það
fyrir augum að kanna hvort
skipulag og ástand atvinnuveg-
ana sé nú á þann veg, að þeir
verði færir um að fullnægja þeim
kröfum, sem til þeirra verða
gerðar á næstu áratugum. í þeim
efnum hljóta ungir menn að
spyrja margra spurninga og leita
svara við þeim. Hefur t.d. þróun
in í landbúnaði verið nægilega
hröð á undanförnum árum? Er
tæknivæðing landbúnaðarins
nægilega mikil? Geta færri bú
með minna vinnuafli en aukinni
tæknivæðingu framleitt sama
magn af landbúnaðarvörum og
nú er gert með fleiri búum og
meiri starfskröftum? Hvaða hætt
ur eru fólgnar í þróun sjávar-
útvegsins á undanförnum árum?
Hvaða ráðstafanir þarf að gera
til þess að halda hæfilegu jafn-
vægi milli hinna einstöku þátta
sjávarútvegsins, svo sem bolfisk
veiða og síldveiða? Eru frysti-
húsin og aðrar fiskverkunarstöðv
ar orðnar of margar? Er nauð-
synlegt að hefja algjöra nýsköp-
un í frystiiðnaðinum til þess að
standazt harðnandi samkeppni
erlendis? Hvernig er ástandið í
iðnaði og verzlun? Hefur hag-
ræðing og tæknivæðing náð að
þróast nógu vel í þessum tveimur
þýðingarmiklu atvinnugreinum
eða er meira hægt að gera? Slík
um og öðrum spurningum í sam-
bandi við atvinnumál ber ung-
um mönnum að spyrja sjálfan
sig og leita svara við. í þeim
efnum verða menn að líta gagn-
rýnisaugum á það sem fyrir er
og leita allra leiða til þess að
marka þá stefnu sem fullnægja
mun kröfum framtíðarinnar.
Stjórnkerfið
Þá hljóta ungir Sjálfstæðis-
menn einnig að taka það verk-
efni tii athugunar, hvort núver-
andi stjórnkerfi landsins á öll-
um stigum þess megni að standa
undir þeim sívaxandi kröfum,
sem mikið framfaratímabil gerir
til þess. Er stjórnkerfi landsins í
grundvallaratriðum rétt eða
þarfnast það breytinga? Er nú-
verandi skipting landsins á sveit-
arfélög rétt eða þarf e.t.v. hugs-
stækka þau mjög? Er e.t.v. hugs
anlegt að veita einstökum lands-
fjórðungum aukið sjálfdæmi um
t.d. hvernig opinberu fram-
kvæmdafé er varið í hverjum
fjórðungi eða er eðlilegt að það
sé fyrst og fremst í höndum
stjórnvalda í höfuðborginni? Slik
um og öðrum spurningum á
þessu sviði verða ungir Sjálf-
stæðismenn að svara. Framþró-
unin í heiminum er svo gifurlega
ör að hver sú þjóð, sem ekki legg
ur sig í lima við að fylgjast með
henni, egra sér grein fyrir kröf-
um framtíðarinnar og vera und-
ir það búinn að verða við þeim
hlýtur að dragast aftur úr.