Morgunblaðið - 19.01.1967, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANUAR 19OT.
I
Atvinna
Maður með próf úr farmannadeild Stýrimanna-
skólans er starfað hefir sem stýrimaður á fluttn-
ingaskipum, óskar eftir vinnu í landi.
Margt kemur til greina. — UppL í sima 20461.
Aðstoðarlæknisstaða
Staða aðstoðarlæknis við lyflæknisdeild Borgar-
spítalans, er laus til umsóknar. Staðan veitist frá
1. marz nk. til eins árs í senn.
Laun samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og
Læknafélags Reykjavíkur.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um námsferil og fyrri
störf sendist yfirlækni spitalans fyrir 20. febr. nk.
Reykjavík, 17. jan. 1967.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Útsala — Útsala
Terylenebuxur herra á kr. 598,00.
Terylenebuxur drengja frá kr. 400,00.
Dralonpeysur frá kr. 325,00.
Stretchbuxur frá kr. 295,00.
Vinnubuxur herra frá kr. 198,00.
Vinnubuxur drengja frá kr. 125,00.
Úlpur, skyrtur, nærföt og margt fleira
á sérlega hagstæðu verði.
Siggabúð
Njálsgötu 49.
Sölustörf
heima og erlendis
The Richards Company Inc. New York og
umboð þess á íslandi, Handbækur hf. óska
að ráða nú þegar ungt fólk til sérstakra
starfa við kynningu og sölu á alfræði-
bókaflokkum, sem hingað til hafa ekki ver
ið kynntir á íslandi. Hér er um að ræða
lifandi starf, vel borgað fyrir þá sem hæfi-
leika hafa til slíkra starfa.
Umsækjendur um slíkt starf þurfa að,
— vera vel að sér í ensku
— geta farið í ferðalög án langs fyrirvara
— vera á aldrinum 19 til 30 ára
— hafa lifandi og þægilega framkomu.
Fyrst og fremst er auglýst eftir fólki til
starfa í Reykjavík og úti á landi, en einn-
ig kemur til greina að ráða fólk til starfa í
eftirtöldum borgum erlendis þar sem Rich-
ards Company bjóða íslendingum til
starfa:
Kaupmannahöfn Osló, Gautaborg, Stokk
hólmi, Amsterdam svo og til flestra borga
í Bandaríkjunum.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrif-
stofu The Richards Company Inc. í Reykja
vík í dag eftir hádegi í símum 19261 og
19400.
HANDBÆKUR HF.
THE RICHARDS CAMPANYINC: á íslandi.
Tjarnargötu 14, Reykjavík,
Símar 19400 og 19261.
Haukur Hauks-
son skrifar um
sjónvarp
1 ENDA þótt nokkuð sé um lið-
ið vildi ég víkja nokkrum orð-
um að dagskrá sjónvarpsins
um áramótin. Ég verð að
segja, og það með allri virð-
ingu fyrir þeim sjónvarps-
mönnum, að ég komst að
þeirri niðurstöðu að þetta
yrði í fyrsta og síðasta sinn,
sem ég horfði á sjónvarp á
gamlárskvöld — burtséð frá
efnisgæðum dagskrár.
Ég hefi séð í sumum blað-
anna, að ýmsir telja að sjón-
varpið hafi átt sinn þátt í því,
að kvöldið hafi nú „verið ró-
legra og með meiri menning-
1 arblæ“ en nokru sinni áður.
Rétt er sjálfsagt, að aldrei
hefur það verið „rólegra", og
lögreglan hefur lýst ánægju
sinni yfir því, hve hún hafi
venju fremur haft lítið að
gera.
Ég er þeirrar skoðunar, að
lögreglan eigi að hafa mikið
að gera á gamlárskvöld. Ég á
þar ekki við, að lögreglumenn
eigi að vera á þönum með
menn inn í Síðumúla eða bæla
niður óeirðir, heldur upptekn-
ir við umferðarstjórn o. s. frv.
Á undanförnum gamlárskvöld
um í Reykjavík hefur naum-
ast verið hægt að þverfóta á
mörgum götum borgarinnar
fyrir prúðbúnu fólki með
börn sín á leið til að horfa á
brennur. Þetta hefur gefið
þessu kvöldi sérstæðan og há-
tíðlegan blæ, sem fjölmargir
kunna að meta og er ég í
þeirra hópi. Nú brá hinsvegar
svo við, að þar sem áður var
mannþröng, var nú mannfæð.
Við brennu, sem ég hefi horft
á nokkur undanfarin ár, var
a. m. k. tíu 'sinnum færra fólk
en áður. Að öllu samanlögðu
finnst mér lítill menningar-
auki í því, að hver bauki nú
í eigin horni við sjónvarps-
tæki sitt á gamlárskvöld, og
tel að sjónvarpið hafi spillt
kvöldinu sem slíku, burtséð
frá atvinnuháttum lögreglu-
manna.
Um dagskrána sjálfa um
áramótin er það að segja, að
hún var um margt ágæt og er
mér kunnugt um að margir
höfðu mikla skemmtan af
sprelli þeirra Steindórs Hjör-
leifssonar og félaga. En botn-
inn datt þó úr öllu saman, er
samnefnari norrænnar sam-
vinnu á sviði sjónvarpsmála,
Stjörnuspáin, birtist á skerm-
inum. Okkar tillag til þessa
þáttar, sem sýndur var á öll-
um Norðurlöndum, þ. e. Ómar
Ragnarsson, var skárst af
þessu öllu, og því er þó við
að bæta, að oft hefur ómar
Ragnarsson verið skemmti-
legri að miklum mun.
Stjörnuspáin var í sem fæst-
um orðum löng og leiðinleg,
og margt illa unnin. Hún
hefði strax skánað ef lófatak
og önnur viðbrögð „falsks"
áheyrendahóps hefði verið
fellt inn í þáttinn. Slíkt er
algengt í sjónvarpsframleiðslu
um heim allan, þótt sú tækni
virðist ekki hafa haldið inn-
reið sína hjá frændum vorum
norrænum. Eftir að hafa séð
þetta hátíðaprógram skandin-
avísks sjónvarps held ég að
öllum sé Ijóst að við þurfum
lítið eða ekkert þangað að
sækja. Vel má vera, að
Skandinavar hafi um sumt
þokkalegt sjónvarp fyrir sjálfa
sig — en þeir hafa vissulega
lítið handa öðrum.
En þó var að vissu leyti
fengur í að íslendingar sæju
þessa dagskrá. Þarna settu
þeir aðilar, sem allajafna
skrifa mest og tala um svd-
kallaða ameríkaníseringu á ís-
landi, á svið sameiginlegt
skemmtiefni ætlað Norður-
landabúum. Og hvað skeði!
Stór hluti efnisins var fluttur
á ensku. Hræddur er ég um
að þotið hefði í einhverjum
menningarskjánum hér, ef Is-
lenzkir skemmtikraftar hefðu
leyft sér slíkt. En þversögnin
Flugvirkjar
20 ára afmælisfagnaður Flugvirkjafélags
íslands verður 1 Þjóðleikhúskjallaranum
föstudaginn 20. þ.m. og hefst stundvís-
lega kl. 19.
Aðgöngumiðar fást hjá Edvard Geirssyni,
Flugfélagi íslands, Flugverk hf. og Oddi
Pálssyni, sími 40823.
Borðpantanir eftir kl. 14 í dag, 18. jan.
NEFNDIN.
Aðstoðarstúlka
óskast
á tannlækningastofu við Miðborgina. —
Tilboð með upplýsingum um aldur, fyrri
störf og mynd, sem endursendist, merkt:
„Aðstoðarstúlka — 8722“ sendist afgr.
Mbl. fyrir 23. þ. m.
I þessu er þó sú, að það eru ?
einmitt þessir menningarskjá-
ir sem í viðræðum við kollega
sína á Norðurlöndum hafa
alltaf málað fjandað á vegg-
inn varðandi hina svokölluðu
ameríkaníseringu hér. Það eru
þeir, sem hafa svo lengi talið
Skandinövum trú um að hér
væri allt að sligast í tyggi-
gúmmíi og amerískum slögur-
um, að þeir eru farnir að trúa
því. Og þeir boða ennfremur,
að „eðlilegra sé“ að við höf-
um menningarsamskipti við
Norðurlönd en Engilsaxa. En
nú hafa þau undur sem sagt
gerzt, að 1 framtíðinni má
helzt búast við þvi að amerík-
aniseringin berist hingað frá
Svíþjóð — a.m.k. ef íslenzka
sjónvarpið fær fleiri þætti á
borð við Stjörnuspána. Nóg um
þann leiðindaþátt.
Nú hefur verið ákveðið að
sjónvarpa fjóra daga í viku L
fljótlega, og Útvarpsráð sam- J
þykkt að sex daga sjónvarp í
verði að veruleika seint á ár- I
inu. En það er eitt að sam-
þykkja, annað að framkvæma,
og • að því er mér skilst má
margt breytast varðandi inn-
anhússhagi sjónvarpsins áður
en hægt verður að ráðast í
sex daga sjónvarp svo vel sé.
En sjálfsagt er að vona það
bezta.
Ég get ekki sagt, að ég hafi
séð mikið af íslenzka sjón-
varpinu að undanförnu, en
það mun hafa gengið sinn
vanagang með sínum föstu
þáttum. Ég minnist þó kvik-
myndarinnar um Canaris, sem
ég sá að hluta, og er að mín-
um dómi sú bezta, sem sjón-
varpið hefur sýnt til þessa.
Færi vel á því að hún yrði
endurtekin við tækifærL
Sama kvöld sýndi sjónvarp-
ið langloku um Leikfélag
Reykjavíkur í umsjá Sigurðar
A. Magnússonar. Þessi þáttur
var alltof langur og reyndist
raunar lengri, en ráðgert
hafði verið. Langar upptaln-
ingar úr sögu félaga, jafnvel
þótt merk séu, gera þeim lít-
inn greiða í sjónvarpi. Látum
svo spjalli þessu lokið að
sinni.
Haukur Ilauksson.
Kinshasa, Kongo, 18. jan. AP.
Bertin Mwamba, fyrrverandi
póstmálaráðherra Kongos hefur
verið handtekinn, ásakaður um
að hafa dregið sér fé, sem nem-
ur 570.000 dollurum, á einu
ári, sem hann gegndi embætt-
inu. Skýrðu stjórnarvöld lands-
ins frá þessu í dag. Mwamba er
35 ára að aldri og lét af embætti
sínu á sl. ári, er breytingar fóru
fram á ríkisstjórninni.
H«fum kaupanda að
2ja herb. íbúð á góðum stað
í borginnL Mikil útborgun.
Höfum Laupanda að
3ja herb. íbúð ásamt bil-
skúr í Austurborginni eða
góðum stað í Vesturborg-
innL
Höfum kaupanda að
4ra—5 herb. íbúð, mætti
vera í Kópavogi eða Hafn-
arfirði, með bílskúr eða bíl-
skúrsréttL
Höfum kaupanda að
góðri hæð eða einbýlishúsi.
5—6 herbergi og bílskúr.
Mikil útborgun.
Skip og fasteigmr
Austurstræti 18. Sími 21735.
Eftir lokun 36329