Morgunblaðið - 19.01.1967, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANUAR 1967.
Pr, phil Hákon Stangerup, próffesssr;
TIMES OG FYRSTI El
MEÐ AÐALSTIGN
FRÁ 1. janúar 1967 að telja, er „drottning blaðanna", Lundúna-
blaðið „Ihe Times“, komið í eiffu eins manns, blaðakóngsins
Thomsons lávarðar. Þetta hefur vakið miklar umræður og tals-
verðar áhyggjur um Ieið. í þessari grein segir dr. phil. Hakon
Stangerup, prófessor, söguna af því, hvernig fór, síðast, er The
Times gerðist máigagn voldugs einstaklings eða þegar North-
cliffe lávarður kom blaðinu í „íyrri Babýlonar-herleiðingu“ þess.
I.
Hinn 1. janúar 1987 tók kana-
díski blaðakóngurinn Thompson
lávarður við The Times og bætU
þessu blaði, sem kallað hefiir
verið „drottning blaðanna" við
þau hundrað blöð, sem hann á
og stjórnar. Times er ekki leng-
ur sjálfseignarstofnun, eins og
það hefur verið síðan 1922, held
. ur er komið í eigu einstaklings.
Þetta hefur vakið mörg harma-
kvein og miklar áhyggjur hafa
verið látnar í Ijós um framtíð
blaðsins.
Enginn veit, hvernig þetta fer,
en það getur verið vel viðeig-
andi að rifja upp, hvernig hefur
farið hjá Times, þegar líkt stóð
á og nú. Einnig þá missti blað-
ið sjálfstæði sitt, er blaðalávarð-
ur keypti það. Einnig þá höfðu
menn áhyggjur stórar, og sum-
ir kölluðu þetta „Babýlonarher-
leiðingu“.
Þetta hófst árið 1908. Og eins
og nú, voru þá slæmar horfur
hjá Times. Að minnsta kosti ef
skyggnzt var í bókhaldið.
Drottning blaðanna var árið
1908 aflóga gömul kona. Blaðið
hafði verið öreigi árum saman,
upplagið var komið niður í
37.000, og útlitið og rithátturinn
var eins og um miðja 19. öld.
>að þurfti að keppa við heilan
hóp stórra blaða, og tvö þeirra,
. Daily Mail Northcliffes og Daily
Express Pearsons voru, hvort
um sig komin upp í milljón ein-
taka og voru auk þess horn-
steinninn í stóru blaða-heims-
veldi. >að eina, sem eftir var af
fornri frægð og glæsileik, var
nafnið; The Times, og heimilis-
fangið: Printing House Square,
en hvorttveggja vakti enn virð-
ingu.
Draumur Northcliffs
>egar árið 1900, er North-
eliffe heimsótti Pulitzer í New
York, hafði hann trúað hinum
ameríska stéttarbróður sínuin
fyrir því, að leyndur draumur
hans og heitasta ósk væri að
kaupa Times. C. Arthur Pearson
var ekki lærisveinn Northcliftes
^n stældi hann hinsvegar. Hann
hafði sniðið vikublöðin sín eftir
forskriftum Northcliffe-fyrir-
tækjanna, en dagblað sitt eftir
fyrirmynd Daily Mail. Nú var
hann kominn svo nærri hinni
miklu íyrirmynd sinni, að hann
var farið að dreyma sömu
drauma og fyrirmyndin. Og
draumar hans voru næstum
farnir að rætast — en það hefði
valdið lengra reiðikasti hji
Northcliffe, en hin næstum sam-
hangandi reiðiköst voru, er hann
fékk síðustu árin, sem hann
lifði.
Arthur Waltei, aðalerfingi
Times var loks kominn á þá
skoðun, að blaðið yrði að selja.
Hann gerði leynisamning við
"Pearson, og 1, janúar 1908 lá
samningurinn tilbúinn til undir-
ritunar. Nú var eitt fyrir öllu:
að ekkert fréttist um þetta,
hvorki til ritstjóra, forstjóra né
starfsmanna Times, og heldur
ekki til almennings — fyrr en
samningurinn væri undirritaður.
En heillastajrna Northcliffes
brást honum ekki þarna fremur
•a endranær. Hún beindi för
hans eitt kvöldið í hús góðs vin-
ar hans, þar sem Paderewski
hélt hljómleika. í einu hléinu
talaði Northcliffe við kaupsýslu
mann, sem var nákominn Pear-
son, og þeim hinum sama varð
það á að lyfta einu horni hulunn
ar, sem faldi leynisamningana.
I Að minnsta kosti sagði hann nóg
til þess að Northcliffe skildi, að
eitthvað væri á seiði. Og þá
beitti hann hinu mikla kænsku-
bragði sínu.
Meistaralegt bragð
Fyrsti leikur hans vár frétta-
klausa í The Observer, sem
Northcliffe réð yfir um þess-
ar mundir. Hún leit ósköp mein-
leysislega út; þar sagði aðeins,
að orðrómur væri uppi um, að
til stæði að selja Times þekkt-
um „framtakssömum eiganda
vinsælla dag- og vikublaða".
Starfsmenn Times urðu ótta-
slegnir, og framkvæmdastjóri
blaðsins, Moberley Bell, varaði
Walter alvarlega við Pearson, og
fór síðan leynilega til North-
cliffe, til þess að bjóða honum
þjónustu sína. Northcliffe þekkt
ist það boð, og næst kom hið
meistaralega skákbragð hans.
Til þess að Pearson skyldi ekki
gruna rieitt, sendi hann honum
heillaóskaskeyti frá París — því
að Northcliffe fór alltaf til
Parísar, þegar hann þurfti að
brugga kænskubrögð sín — og
skrifaði síðan lofgrein um hinn
nýja eiganda Times í Daily
Mail. Pearson hrærðist af þessu
og símaði á móti: „Göfuglyndi
yðar er hrífandi og ég met það
mikils“. Hann ætlaði alveg að
springa af hreykni — nú hefði
hann skotið Northcliffe ref fyr-
ir rass. Og í klúbbum Lundúna-
borgar lét hann hylla sig sem
hinn nýja einvalda Times.
En á meðan voru trúnaðar-
menn Northcliffes önnum kafn-
ir, undir forystu Moberley Ðell.
>essi starfsemi fór fram á leyni-
fundum, undir gervinöfnum í
síma, á dulmáli — og á margan
annan hátt. >etta var hreinasti
glæpareyfari, sem lauk með því,
að Bell keypti Times fyrir fé,
gem honum hafði verið fengið
til umráða af ónefndum aðila,
„hr. X“. Starfsmenn blaðsins
höfðu lengi enga hugmynd um,
hver „hr. X“ var — en auðvitað
var það Northcliffe.
Stór áform
Northcliffe hafði fyrirætlanir
stórar í sambandi við Times. í
fyrstunni lét hann lítt á sér
bera, en síðar herti hann takið
á blaðinu, þangað til hann hafði
næstum kyrkt það. Hann var
hinn mesti ógnvaldur í sögu
blaðsins við allar hinar heilögu
meginreglur, sem höfðu gert
blaðið að því, sem það var —
The Times — sjálfstæði ritstjór-
anna gagnvart eigendunum. En
um leið bjargaði hann blaðinu
frá glötun með því að gera ný-
tízkulegt blað úr fortíðardraug
og reisa við fjárhag þess, en með
því uppfyllti hann engu ómerk-
ara sjálfstæðisskilyrði blaðsins,
sem sé það, að það bæri sig sem
fyrirtæki. Samband Northcliffes
og Times morar þannig af þver-
sognum og spennu, svo að ekki
er unnt að færa það undir neina
ákveðna reglu. Utan frá séð leit
þetta út eins og fimmtán ára
styrjöld milli ritstjórnar og eig-
anda. Veitti ýmsum betur en
hafi ritstjórnin ef til vill ekki
alltaf haft á réttu að standa, þá
er hitt jafnvíst, að það var ó-
sjaldan Northcliffe, sem kom
rneð hugmyndir — og það stund
um ritstjórnarlegar — sem- urðu
þlaðinu að gagni.
Nýr ritstjóri
Northcliffe var hvorttveggja í
senn hrifinn af starfsmönnum
blaðsins og argur í þeirra garð.
Hann kallaði þennan blaða-
manna- og ritstjórahóp, sem
hann tók við, „munkana". Árið
1911 skipaði hann sjálfur rit-
stjóra, Geoffrey Dawson. Og nú
skyldi eitthvað gerast. Hann
heimtaði styttri greinar, fleiri
fréttir, fjörlegri uppsetningu —
en þetta voru umbætur, sem
átu að afla blaðinu fleiri lesenda
og þá betri afkomu. Meðal til-
lagna hans var ein um gaman-
saman leiðara á eftir hinum al-
varlegri. Árið 1914 kom skeyti
frá honum frá París: „Bið allra
auðmýkst um leiðara í léttum
tón“. Upp af þessu skeyti spratt
hinn frægi „fjórði leiðari“ í
Times, Og sama ár tók hann
mikilvægt skref um rekstur
blaðsins. Hann lækkaði verðið á
því niður í eitt penny. Gömlu
mennirnir kveinuðu, aðvöruðu
og bentu á, að það hefði verið
trúarkenning hjá Walter-fjöl-
skyldunni, en ekki væri hægt
að reka Times sem ódýrt blað.
Northcliffe var það vel ljóst
sjálfum, að þarna lagði hann í
mikla áhættu. Væri ekki hægt
að gefa út nýja penny-blaðið i
að minnsta kosti 120.000 eintök-
um, var fyrirtækið oltið um koll,
og blaðinu yrði að hætta eða
þá selja það. En hann bar sigur
úr býtum. Upplagið þaut upp í
150.000. Nýja Times var uppris-
ið. í hinni opinberu sögu blaðs-
ins stendur: „Times getur þakk
að honum breytingu sína úr
gjaldþrota nítjándu-aldar fyrir-
tæki í blómlegt tuttugustu-aldar
blað. >að var hann, hugmyndir
hans, endurnýjanir og breyting-
ar, sem einar urðu til þess að
endurskapa fyrirtækið.
Ráðríkur eigandi
Times sökk ekki, en víst var á
því nokkur veltingur með North
cliffe við stýrið. Og það komu
fleiri skeyti en þau, er áður get-
ur. Heilar skriður af skipandi
skeytum. „Símskeytablaðið“ eins
og það var kallað á blaðiriu —
hvolfdist yfir ritstjórnina og
blaðstjórnina, báða aðila nokk-
urnveginn jafnt, og yfir einstakl
inga jafnt sem hópa. Á töí'.unni
hjá ritstjórninni var daglega
fest upp „dagsskipun" frá lávarð
inum, með klappi og skelium,
hrósi og ráðleggingum — góðum
og slæmum. Northcliffe hafði
aldrei ætlað sér að láta Times
standa í hesthúsinu sínu sem
einhvern skrauthest — hann
skyldi fá að taka til fótanna —
og eigandinn skyldi skipa fyrir,
í hvaða átt. En þar urðu hrotta
legir árekstrar með honum og
ritstjórninni. Flestir gátu verið
sammála eigandanum hvað
snerti hagstjórnarreglur hans
um blaðaútgáfu og hinar mörgu
góðu hugmyndir, sem hann
fékk — að minnsta kosti nægði
árangurinn til þess að sannfæra
þá. En þegar um var að ræða
stefnu blaðsins og afstöðu þess
gagnvart pólitískum stórmálum,
kom upp ágneiningur. Sam-
kvæmt erfðakenningum blaðsins
var það íhaldssamt og studdi
ríkisstjórnina eins og hún var á
hverjum tíma, og embættis-
mannavaldið. Northcliffe gaf
fjandann í hershöfðingja og ráð
herra í ríkisstjórninni, ef hon-
um fannst þeir hafa á röngu að
standa. Og það höfðu þeir, að
hans áliti, á heimsstyrjaldarár-
unum fyrri. >vert ofan í ráðlegg
ingar ritstjóra sinna og sam-
verkamanna, hóf hann í blöðurn
sínum — einnig í Times — aí-
hjúpanir sínar á skotfæra-
hneykslinu: að England fram-
léiddi ekki almennilegar sprengj
ur og ekki nægilegar sprengjur
handa herjunum á vesturvig-
stöðvunum. Landið komst allt í
uppnám og hann var sakaður um
að ljóstra upp leyndarmálum.
Times var brenndur í kauphöll-
inni, og upplagið minnkaði. Og
þó var gerð harðari hríð að
Northcliffe, er hann réðst að
þjóðhetjunni, Kitchener lávarði,
og heimtaði hann settan af,
vegna þess, að hann væri orðinn
of gamall og duglítill sem yfir-
hershöfðingi í nútíma stórstyrj-
öld. Við ritara sinn sagði North-
cliffe: — „Mér er fjandans sama,
hvað þeir gera við mig og mér
er líka sama þó að Daily Mail
komist niður í tvö eintök og
Times niður í eitt. >að er skárra
að tapa upplögum en stríðinu."
En þróunin sannaði fljótlega
mál Northcliffes. Áður hafði
hann verið hæddur og úthrópað
ur sem landráðamaður, en nú
varð tillag hans til ófriðarins lof
að af þakklátri þjóð. >ó að eng-
inn Northcliffe hefði verið,
hefði England sennilega fengvð
betri skotfærabirgðir, nýja yfir-
stjórn hersins, herskyldu og
Lloyd George til valda. En pað
hefði bara dregizt miklu meir á
langinn og töfin hefði kostað
gífurlegar blóðsúthellingar á víg
vellinum. Northcliffe gegndi
þannig miklu hlutverki í sög-
unni, af því að hann var óhrædd
ur og ótoundinn. Blaðamennsku-
ferill hans náði hámarki sínu,
þegar hann í trássi við samverka
menn sína, stýrði Times og
Daily Mail þvert gegn viðtekn-
Framhald á bls. 23.
Vegna jarðarfara verður verzlunin
lokuð
föstudaginn 20. janúar kl. 12—16.
Verzlunin BJÖRN KRISTJÁNSSON
Ritfangaverzlun.
Skattaframtöl
Veiti framtalsaðstoð.
ÞORSTEINN JÍTLÍUSSON HDL.
Laugavegi 22 (Inng. frá Klapparstíg). Sími 14045.
4ra herb. íbúðarhæð
Höfum til sölu nýlega 4ra herb. íbúð (120 ferm.)
á 3. hæð við Brekkulæk. Tvöfalt gler. — Stofur og
skáli teppalögð. — Aðeins tveir um þvottahús og
inngang. Sérhitaveita, bílskúrsréttindi.
Skipa- og fasteignasalan
Á Seltjarnarnesi
Höfum til sölu glæsilegt einbýlishús á eignarlóð við
Lindarbraut. Húsið er 197 lerm. að stærð 6 herb.,
eldhús og bað og selst fokhelt en múrhúðað að utan
og er tilbúið til aíhendingar strax. Innbyggður
bilskúr.
Nýlegt einhýlishús 146 ferm. á einni hæð á eignar-
lóð við Vallarbraut. Húsið er 6 herb., eldhús, bað
og W. C. bílskúrsréttindi. Skipti á 4ra—5 herb. íbúð
arhæð einnig möguleg.
Skipa- og .fdsteighasalan