Morgunblaðið - 19.01.1967, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1967.
15
Hákon Bjarnason
Merk og þörf bók
ÞORSTEINN JÓSEFSSON blaða
maður, ljósmyndari og ferðalang-
ur hefur nýlega sent frá sér
stóra bók, sem hann hefur valið
heitið Landið þitt.
1 bókinni eru lýsingar á nærri
2000 stöðum á landinu á 440
blaðsíðum. Slik bók hefur aldrei
verið gerð hér áður, og er þetta
því alger frumsmíð. Að baki
slíkri bók liggur feikna mikið
verk margra ára, og svona bók
getur enginn tekið saman nema
sá, sem víða hefur ferðast og
kynnzt landinu.
Bókin Landið þitt er staðfraeði,
þar sem lýst er einkennum og
sögu bæja, kennileita, hvera,
fjalla, fljóta o. s. frv. Að vísu
höfum víð átt um mörg ár
staðfræði eða topografiu Kr.
Kálunds, en hún mun nú aðeins
til á bókasöfnum,, og hún er ein-
göngu miðuð við íslendirigasög-
urnar, og því óskyld þessari. iÞessi
bók er uppsláttarbók en ekki
leiðarlýsing, og er staðarnöfnum
komið fyrir eftir stafrófsröð.
Skrá yfir staðanöfnin í hverri
sýslu gerir bókina auðvelda að-
gangs. öllum þeim, sem kynnast
vilja landinu, er ómetanlegur
stuðningur að þessari bók.
Eins og að likum lætur, þá
hafa ritdómarar lagt misjafnt
mat á bókina. En þess ber að
gæta, að þar sem hér er um
frumsmíð að ræða er varla við
Léttstíg öld — sögur
Jakob Thorarensen.
Léttstíg öld, sogur.
Helgafell 1966.
JAKOB Thorarensen, skáld,
komst yfir á níunda tug ævi-
áranna í vor er leið. Ljóðabók
kom út eftir harrn snemma á
árinu og nú á haustvertíð bók
með átta smásögum. Geri aðrir
beturl
Rúmlega sjötugur gekk Jakob
Fór með hönd-
ina í færihand
VINNUSLYS varð 1 síldarverk-
smiðjunni á Akranesi á mánu-
dag um kl. 15. Lenti maður að
natfni Ingimar Ólafsson, til heim
ilis að Háholti 2Ö, Akranesi, með
hendina í færiband og skadd-
aðist.
Ingimar var fluttur á sjúkra-
húsið á Akranesi, þar sem hann
liggur og líður honum etfir at-
vikum.
úr Migfirði suður Tvídægra til
Hvítársíðu í einum áfanga, lagði
sig aðeins útaf eftir hádegið og
sofnaði væran dúr í fjallakyrrð-
inni. Ekki mundi nú garpurinn
leggja upp í slíka ferð, til þess
hefur hann ekki fætur lengur,
en andans kraftur er óbilaður
og sýnir þessi nýja sögubók það.
Jakob er í fremstu röð skálda.
Þetta eru nú sögur. Ekki væri
nein þörf þess, að nafn höfund-
ar stæði í bókinni, hver maður
mundi þekkja handbragðið. Hið
sérkennilega, dálítið kaldhæðna
en þó skilningsríka viðhorf
skáldsins til meðbræðra og
systra, hispurslaus frásögn en
aldrei klúr, oft eins og hálfkveð-
in vísa og talað í hálfum hljóð-
um en þó ætíð vel skiljanlegt.
Málið mergjað en forðast þó til-
gerð og öll látalæti.
Ég ætla ekki að fara að skrifa
um hverja einstaka sögu en að-
eins benda mönnum á mjög at-
hyglisverða og læsilega bók sem
enginn verður svikinn af að lesa
vandlega og hugsa um. — Útgáfa
Helgafells er snotur.
Þorsteinn Jónsson.
Útsala — Útsala
Mikil verðlækkun á
HETTUKAPUM
^ckkabúíiH
Laugavegi 42. — Sími 13662.
* *
Utsala — Utsala
Buxnadragfir
Peysur pils o. m. fl.
Mikill afsláttur. — Aðeins fáir dagar eftir.
íOcÚ&a
öðru að búast. Menn hefur greint
á um , hvaða staði skuli nefna
og hvaða og hverskonar upplýs-
ingar skuli taka með. Af því að
bókin er samin af einum manni,
hlýtur það að vera hans eigið
mat, sem ræður, og um það tjáir
hvorki að sakast né deila. Flestir
munu sakna einihvers og telja
annað ofaukið.
Hin mikla sala bókarinnar hef-
ur sýnt, hvílík þörf var fyrir
slíka bók sem þessa. Satt að
segja er það næsta furðulegt, að
svo lengi hafi þurft að bíða is-
lenzkrar staðfræðibókar. Mér er
sagt, að endurprentun bókarinn-
ar sé hafin, og er það vel. Prent-
villur, sem því miður urðu alltof
margar vegna veikinda hötfund-
ar, verða þá leiðréttar og mynd-
irnar verða betur úr garði gerð-
ar, þannig að önnur útgátfa mun
taka fyrstu útgáfunni fram.
En þeg£U það upplag þrýtur
finnst mér það mætti verða verk-
efni Ferðafélags íslands að afla
sér útgáfuréttarins og halda
áfram á sömu braut. Mætti þá
t. d. skipta bókinni eftir fjórð-
ungum eða sýslum og gefa hana
út í nokkrum bindum, þannig að
menn gætu haft hana með sér á
ferðalögum og notað hana bæði
sem uppsláttarbók og ferðalýs-
ingu.
Verk sem þetta hlýtur að halda
áfram að koma út. Tímarnir
breytast og mennirnir með, og
því er nauðsyn á að breyta svona
bókum eftir því, sem þýðing
staða dvín eða eykst.
En hvað sem þessu líður, þá er
full ástæða til að þakka höfundi
fyrir elju hans við að koma bóíe
þessari saman og fá hana úi
gefna. Hann hetfur unnið þarft
og gott starf með þessu, sem
seint verður fulLþakkað.
Tökum upp i dag
nýja sendingu af
vetrarkápum með
án loðkraga.
Meðal annars fallegir
frakkar úr Lama- og
Kamelull. Einnig hina
margeftirspurðu þrí-
skiptu ALÚNDCÓ
jerseykjóla.
Tízkuverzlunin
uorun
Rauðarárstíg 1.
Sími 15077.
Verndið heilsuna, sitjið rétt
n
*
r\
„TAN-SAD" SKNIFSTOFUSTOLARNIR
komnir aftur. Úrval við allra hæfi. Sterkir, - þægilegir. -
ódýrir. — Einu sinni „Tan-sad". — Alltaf „Tan-sad“.
ÓLAFUR GÍSLASON & CO HF. — Ingólfsstræti 1A - Sími 18370.
Austurstræti 7. — Sími 17201.
HEIMDALLUR
FUS
Jóhannes Nordal
NÆSTI KLUBBFUNDUR
félagsins verður haldinn laugardaginn 21. janúar, kl. 12:30 í
Tjarnarbúð. — JÓHANNES NOllDAL, seðlabankastjóri, verður
gestur fundarins og talar um „ÍSLENZKA BANKAKERFIГ.
Að venju svarar fyrirlesari fyrirspurnum fundarmanna.
STJÓRNIN.