Morgunblaðið - 19.01.1967, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1967.
21
Þórir Einarsson form.
Bandalags háskóiam.
AÐA LFU ND U R Bandalags há-
skólamanna (BHM) fyrir árið
1966 var haldinn fyrir skömmu.
Fráfarandi formaður Banda-
lagsins, Sveinn Björnsson, verk-
fr., flutti skýrslu stjórnarinnar
fyrir sl. starfsár. Kom fram í
!henni, að aðildarfélög Bandalags
ins eru nú 11 að tölu með um
l. 360 félagsmönnum. Nam fjölg-
un félagsmanna á árinu um 50.
Á liðnu starfsári beindist starf
BHM, eins og reyndar undan-
farin ár, öðru fremur að því að
afla Bandalaginu samningsrétt-
ar til jafns við BSRB handa ná
skólamenntuðum mönnum í
þjónustu ríkisins.
Af öðrum málum, sem Banda
lagið lét til sín taka á árinu,
má nefna, að á vegum þess var
m. a. starfandi nefnd til að at-
Ihuga og skila áliti um forgangs-
rétt háskólamanna til starfa og
ura lögvernd akademískra lær-
dóms- og starfsheita. Bandalag-
ið, sem er fulltrúi íslenzkra há-
skólamanna gagnvart hliðstæð-
um samtökum erlendis, át'ti á ár
inu töluverð samskipti við syst-
urfélög sín á Norðurlöndum og
Nordisk Akademikerrád, sem
það er aðili að. Átti BHM m.a.
fulltrúa á fundi ráðsins, sem
Ihaldinn var í Svfþjóð sl. sumar.
í janúar n.k. mun fulltrúi frá
!BHM verða gestur SAOOs, syst
ursambands BHM í Svíþjóð, á
smóti sænskra háskólamanna.
Bandalagið gaf á árinu tvisvar
út fréttabréf, sem sent var til
allra háskólamanna innan vé-
banda BHM. Loks má geta þess,
að á vegum BHM er nú starfað
að skoðanakönnun meðal ís-
lenzkra háskólamanna, sem bú-
settir eru erlendis, í því skyni
að komast að raun um, hvað
valdið hefur búsetu þeirra og
starfsvali._Hefur á þriðja hundr-
að háskólamönnum verið skrif-
að og svör borizt frá um helm-
Ingi þeirra. Gefa svörin ástæðu
til að ætla, að niðurstöður skoð-
anakönnunarinnar verði bæði
gagnlegar og fróðlegar og komi
jhnislegt á óvart.
Fráfarandi formanni, Sveini
Björnssyni, voru þökkúð störf
hans fyrir Bandalagið sl. 4 ár,
•vo og þeim Bjarna B. Jóns-
mytá og dr. Matthíasi Jónassyni,
•em einnig gengu úr stjórn. í
■tað þeirra voru kjörnir Þórir
■inarsson, viðskfr., formaður,
Brlendur Jónsson, kennari, og
Jónas Jónsson, náttúrufr. Fyrir
voru í stjórninni Arinbjörn Kol-
beinsson, læknir, og Ólafur W.
Stefánsson, lögfr.
Frkvstj. BHM er ólafur S.
Valdimarsson, viðskfr.
Aðildafélög Bandalags háskóla
manna eru Dýralæknafélag ís-
lands, Félag háskólamenntaðra
Skólarítvélin
BROTH ER
er komin aítur!
6d.vra.sta of bezta skóla- og
ferðaritvéiiu á markaðinum.
Verð aðeins kr. 2750,..
Pantanir sækist fyrir
fyrir 1. febrúar.
BorgarfeH hf.
Laugaveg 18. Sími 11372.
Mótmæla að veitt
verði undanþáp;a
HREPPSNEFND Stokkseyrar-
hrepps samþykkti nýlega eftir-
farandi tillögu:
Út af framkomnu áliti togara-
nefndar um auknar veiðiheim-
ildir fyrir togara innan 12 mílna
landhelginnar vill hreppsnefnd
Stokkseyrarhrepps mjög eindreg
ið og afdráttarlaust mótmæla því
að slíkar veiðiheimildir verði
auknar. Væru slíkar aðgerðir ef
til kæmi beinlinis ógnun við lífs-
afkomu fólksins, sem byggir
plássin hér við suðurströndina,
og einnig tilveru þeirra sem út-
gerðarstöðva. Jafnframt skorar
hreppsnefndin á Alþingi og rík-
isstjórn að fella allar slíkar til-
lögur, ef fram koma.
Á aðaiirundi sjómannadeildar
V erkalýðsfélags Grindaivíkur,
sem Ihaldinn vair 2. janiúar sl. var
samlþjdtkt svöhljóðandi ályktun:
„Út af f.ramkomnu áliti tog-
aranefndar .um auknar veiðiiheim
ildir Æyrir togara innan 12 míllna
íandlhe'lginnar, vúll sjiómanna-
deild VerkalýðíSfélags Grindavík
ur mjög eindregið og afdrátltar-
laiust mótmæla þvií, að slákar
Vieiðiilheimildir verði auknar
Væru slíkar aðger'ðir, ef ti'l
kæmu, beinlínis ógnun við lif;
afkomu Grindwíkinga og tilveru
Grindavikur sem verstöðivar.
Eins teliur sjómannadeildin að
ekki beri að lleyfa itogveiðar vél-
báta í 'landhélginnii, sem við-
gengst og veldur háskalegru virð
inigarleysi f.yrir liögum og rétti.
Þá má einnig á það ibenda, að
fiskimiðin úti af Grindavík og
á Selvogs'banka éru mjög þýð-
ingarmiíkil fyrir vétibátaútveginn
á IHúnaflóa — og Suðvestuiúands
svæðinu, enda <fá vem'tiö’ð'varniar
á þessu svæði verulegan hluta
af afla sánum af iþessum miðum
á vetrarveritíð.“
kennara, Félag íslenzkra fræða,
Félag íslenzkra náttúrufræðinga,
Félag íslenzkra sálfræðinga,
Hagfræðafélag íslands, Lyfja-
fræðingafélag íslands, Lækna-
félag íslands, Lögfræðingafélag
íslands, Prestafélag íslands og
Verkfræðingafélag íslands.
(Fréttatilky nning).
Bannsóknar-
styrkir á
vegum FAO
MATVÆLA- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna
(FAO) veitir árlega nokkra
rannsóknarstyrki, sem kenndir
eru við André Mayer. Hefur nú
verið auglýst eftir umsóknum
um styrki þá, sem til úthlutun-
ar koma á árinu 1967. Styrkirnir
eru bundnir við það svið, sem
starfsemi stofnunarinnar tekur
til, þ.e. ýmsar greinar landbúnað
ar, skógrækt, fiskveiðar og mat-
vælafræði, svo og hagræðilegar
rannsóknir á þeim vettvangi.
Styrkirnir eru veittir til allt
að tveggja ára, og til greina
getur komið að framlengja það
tímabil um 6 mánuði hið lengsta.
Fjárhæð styrkjanna er breytileg
eftir framfærslukostnaði í hverju
dvalarlandi, eða frá 150—380
dollarar á mánuði, og er þá við
það miðað, að styrkurinn nægi
fyrir fæði, húsnæði og öðrum
nauðsynlegum útgjöldum. Ferða
kostnað fær styrkþegi og greidd-
an. Taki hann með sér fjölskyldu
sína, verður hann 'hins vegar að
standa straum af öllum kostnaði
hennar vegna, bæði ferða- og
dvalarkostnaði.
Umsóknum um styrki þessa
skal komið til menntamálaráðu-
neytisins, Stjórnarráðshúsinu við
Lækjartorg, fyrir 15. febrúar
næstkomandi. Sérstök umsóknar
eyðublöð fást í menntamálaráðu
neytinu. Þar fást einnig nánari
upplýsingar um styrkina, ásamt
skrá um rannsóknarverkefni, sem
FAO ihefur lýst sérstöum áhuga
á í sambandi við styrkveitingar
að þessu sinni. Umsókn skulu
fylgja staðfest afrit af póstskír-
teinum, svo og þrenn meðmæli.
Það skal að lokum tekið fram,
að ekki er vitað fyrirfram, hvort
nokkur framangreindra styrkja
kemur í hlut íslands að þessu
sinni. Endanleg ákvörðun um val
styrkþega verður tekin í aðal-
stöðvum FAO og tilkynnt i vor.
Röskur sendill
óskast strax hálfan daginn.
Sveánn Egiflsson flif
Laugavegi 105.
Iðnaðarhúsnæði
óskast til leigu, ea. 70—100 ferm.
Upplýsingar í síma 17642.
Afar ódýr frímerki
frá Austurríki
Tvö þúsund og átta hundruð falleg, mismunandi
safnfrímerki og sérfrímerki, raunverulegt verð-
mmti urn 320 mörk en í auglýsingaskyni aðeins
300,00 ísienzkar krónur, gegn póstkröfu, svo lengi,
sem birgðir endast. — Póstkort nægir.
MARKENZENTRAI.E, Dempschergasse 20,
1180 Wien.
Sniðkennsla
Byrja síðdegisnámskeið 25. janúar. Kenni tvo daga
i viku frá kl. 2—5, aðeins 6 í flokki.
Innrita einnig í næsta kvöldnámskeið.
SIGRÚN Á. SIGURÐARDÓTTIR,
Drápuhlíð 48. — Sími 19178.
V estmannaeyingar
V estmannaeyingar
Kvenfélagið Heimaey heldur árshátíð sína í Sig-
túni, laugardaginn 21. janúar kl. 19:30.
Aðgöngumiðar afhentir föstudaginn 20. jan. kl. 4
til 7 síðdegis í Sigtúni. *
SKEMMTINEFNDIN.
Kjötiðnaðarmaður óskast
Gott kaup. — Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 25.
janúar nk., merkt: „Kjöt — 4070“.
\
Sendisveinar óskast
á afgreiðslu blaðsins.
Vinnutími fyrir hádegi.
BLAÐBURÐARFÓLK I
1 EFTIRTALIN HVERFl:
VANTAR
Skerjafjörður —
sunnan flugv.
Túngata
Lambastaðahverfi
Vesturgata I
Miðbær
Fá'kagata
Snoirabraut
Laugav. - efíi
Lynghagi
Sjafnargata
Langholtsvegur II
TaliÖ við afgreiðsluna, sími 22480
Prentnemi
LTngur, duglegur maður óskast sem nemi í prentiðn.
Algjör reglusemi áskilin.
PLASTPRENT H F
Skipholti 35.
Til sölu
3ja herbergja íbúð við Vífilsgötu. Sérhitaveita.
íbúðin getur verið laus til íbúöar nú þegar.
SIGURÐUR REYNIR PÉTURSSON
hæstaréttarlögmaður — Óöinsgötu 4.
Símar 21255 og 20750.
Skrifstofnstúlka
Stúlka óskast hálfan daginn til enskra bréfaskrifta
og bókhaldsstarfa.
PLASTPRENT H F . Skipholti 35.