Morgunblaðið - 19.01.1967, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1«. JANÚAR 1967.
23
— Times og
Framhald af bls. 12.
um skoðunum. Ófriðarárin 1914-
1'918 eru meðal glæsilegustu
tímabila hjá Times.
Málpipa Chamberlains
I>að getur verið lærdómsrikt
að bera saman þetta tímabil í
sögu Times við árin 1933-1933.
3>á var Northcliffe löngu dáinn
og ritstjórinn, sem hann hafði
bæði ráðið og rekið, Geofírey
Dawson, stjórnaði blaðinu, al-
gjörlega óháður eigendum þess.
— En aftur á móti þrælbundinn
þáverandi pólitískum valda-
mönnum, og samneytti og var í
vináttu við hinar föstu klíkur
kring um Baldwin og Camber-
lain. Hann gerði Times að mál-
pípu þessara manna um þá und
anlátsstefnu gagnvart Þjóðverj-
um, sem ríkti næstum til upp-
hafs styrjaldarinnar 1939. í fyiri
styrjöldinni varð Times, með
Northcliffe við stýrið til þess að
vekja_ og hrista upp ensku þjóð-
ina. Á örlagaárunum fyrir 1939
var Times með hinn óháða
blaðamann, Dawson ristjóra,
næstum búið að svæfa þjóðina.
Þessa ber að minnast. Einnig
vegna þess, að endalok sögunnar
um Northcliffe og Times urðu
evo sorgleg. Northcliffe hafði
aldrei verið heilsuhraustur og
engir ósigrar höfðu dregið úr
tilhneigingu hans til sjálfsþótta,
á þessum ferli hans, *em var svo
glæsilegur á ytra borðinu. Und-
ir lok styrjaldarinnar hrakaði
honum greinilega, og mikil-
mennsku-ibrjálæðisköstin fóru
vaxandi. Síðasta árið sem hann
lifði, var hann ekki með öllum
mjalla. Árin 1919-1922 'höfðu
verið hrein martröð fyrir dagleg
an rekstur blaðsins og starfs-
menn þess. Símskeytablaðið áð-
urnefnda varð grenjandi stéypi-
flóð af tilkynningum og fyrir-
skipunum, en nú voru þær ringl
aðar og meinlegar, ólíkt því sem
áður var, og dagsskipunin gat
verið full úthugsaðrar illkvittni.
Þar var heimtað, að starfsmenn
væru reknir eða hækkaðir í
tign, Dawson var sparkað, en eft
irmaður hans, Henry Wickham
Steed, var rétt að því kominn að
yfirgefa blaðið, þegar North-
cliffe dó. Northcliffe hafði móðg
að hann sem mest mátti verða,
með því að fyrirskipa einum rit
ara sínum að lesa upp á rit-
stjórnarfundi, eina ósvífnustu og
brjáluðustu tilkynningu sína,
sem beindist beinlínis gegn fund
arstjóranum — aðalritstjóra
blaðsins.
Símskeyti af banasænginni
Times, sem var vitanlega ekki
annað en einn skiki af blaða-
heimsveldi Northcliffes, og gaf
tiltölulega lítið af sér samantbor
ið við gullnámuna, sem hin
ómerkari blöð voru, settist á
heilann í honum á þessum ár-
um, sem urðu æ myrkvaðri. En
þetta ber vott um hinn töfrandi
Stöðugt fleiri kjosa ELTRA...
Um meira en 30 ara bil hefur ELTRA
framleitt útvarpsviðtæki og síðustu 20 árin
einnigsjonvarps- |j °S
segulbandstæki. 11^1 BM'mli'lS 1
Tæknifræðileg reynsla sií, sem er grund-
völlur
sjön
bands
framleiðslu ELTRA á
varps-,iítvarps- og segul-
tækjum, er arangur víð-
tækrar tilraunastarfsemi og mötuð af tækni-
legri þröun og framf örum.
ELTRA hefur lagt áherslu ábað, með
bættu skipulagi og vísindalegum undir-
búningi framleiðslunnar, að vera brautryðj-
endurá sviðitækn IflSTSTl hmar.ELTRA
tækin fullnægja í |\^A.Ty dag ströng-
ustu kröfum, sem píUp^éhéJ hægt er að
geratilhljömfegurðar,skyrleikamyndflatar,
rekstursöryggis og endingar. - Þessvegna
verða ELTRA tækin altaf fyrir valinu,I>egar
|>að eru serfræðingar sem ráða fyrir um
innkaup.
ELTRA tcekin eru byggð samkvœmt nýj•
ustu tœknílegu reynslu-og að útliti eru þau
falleg, (látlausum, dönskum húsgagnastQ,
dýrðarljóma, sem fylgdi nafni
blaðsins og hinu fræga heim-
ilisfangi. í bréfum sínum kvartar
Northcliffe sífellt yfir því, að
Times sé eina fyrirtækið sitt,
sem valdi sér gremju, Blaðið
tekur meiri tíma en „jafnvel
stærstu fyrirtæki, sem ég hef
átt þátt í“. Af banasænginni
sendi hann símskeyti og hringdi
til hærri sem lægri á blaðinu.
Hann hafði það til stundum að
hóta, að nú kæmi hann sjálfur
og skytí þennan eða hinn. Stjórn
endur blaðsins urðu að biðja lög
regluna að halda vörð við húsið,
svo að eigandinn kæmi ekki
með skammbyssuna sína...........
Hann var þó löngu orðinn svo
máttfarinn, að hann fór hvorki
þangað né annað. Síðasta verk
hans var að kaupa nokkur hluta
bréf af Walter, til þess að auka
eignarhluta sinn í blaðinu enn
meir. Á banabeðinum las hann
lækninum fyrir erfðaskrá sína,
og síðasta vilja. Hann átti sér
aðeins tvær óskir. Önnur var sú
að verða grafinn við hlið móður
sinnar, sem hann hafði elskað
heitt. Hin önnur hljóðaði þann-
ig: „Ég vil fá eina síðu í Times
með yfirliti yfir ævi mína eftir
einhvern, sem þekkir hana vel
og einn leiðara eftir bezta mann
inn, sem verður tiltækur í þann
svipinn."
S jálf seignarstof nun
Mikið hafði hann elskað þetta
blað!
Og það svo, að jafnvel eftir
dauðann lét hann sér annt um
forlög þess. Þegar árið 1908, þeg
ar hann fékk yfirráðin yíir
Times, gerði hann uppkast að
skipulagi, sem skyldi tryggja
blaðið eftir lát hans. Times
skyldi verða sjálfseignarstofnun,
undir stjórn óháðra manna,
valdra úr hópi beztu manna þjóð
arinnar. Ritstjórnin skyldi hafa
fullt sjálfræði. Tilgangur blaðs-
ins skyldi ekki íyrst og fremst
vera að græða fé, beldur vera
einskonar trygging fyrir heiðri
Bretlands og heimsveldisins. Það
var þetta uppkast sem fylgt var
— næstum út í æsar — af hinum
nýju eigendum Times, er þeir
sömdu skipulagsskrá blaðsins
sem sjálfstæðrar sjálfseignar-
stofnunar.
Og nú er sú stofnun hætt
störfum. Times er aftur komið
í einkaeigu. Það verður forvitni
legt að fylgjast með ferli blaðs-
ins í Babýlonarherleiðingunni
síðari. Kemúr nýi eigandinn,
Thompson lávarður, eins miklu
góðu og illu til leiðar og sá
gamli, Northcliffe lávarður?
Hann þarf að minnsta kosti að
láta hendur standa fram úr erm
um ef árangur hans — í hvaða
átt sem hann kynni að stefna
— á að Vera jafn stórkostlegur
og hjá forvera hans.
<§nlinenial
hjólbarðaverksmiðjurnar nota eingöngu þessa vél við að snjó-
negla alla sína vetrarhjólbarða.
GÚMMÍVINNVSTOFAN HF.
Skipholti 35 — Reykjavík — Slmi 3 10 55.
BIFREIÐASTJÓRAR - NÝJUNG
Höfum fengið fullkomna, sjálfvirka vél til að snjónegla hjól-
baröa. Látið eingöngu setja snj ónagla í hjólbarða yðar, með full
komnustu vél, sem nú er kostur á. Reynslan mun sýna að það
borgar sig.
Seljum CONTINENTAL snjóhjólbarða í öllum stærðum.
Viðgerðarverkstæði okkar opið aila daga kl. 7,30 til kl. 22.
LTSALA
á teppa- og gardínubútum, mikill
afsláttur, gerið góð kaup
Austurstræti 22.
Sími Í4190.