Morgunblaðið - 19.01.1967, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR IflOT.
Ætfir Austfirhinga
8. og sihasta bindið komib út
SíATTUNDA bindi af „Ættum
)Austfirðinga“, eftir Einar Jóns-
#on, prófast á Hofi í Vopnafirði,
ker nýkomið út. Aðalútgefandi er
iAustfirðingafélagið í Reykjavík,
;®n um útgáfuna sáu Einar
Ejarnason, ríkisendurskoðandi
og Benedikt Gíslason frá Hof-
teigi.
„Með þessu bindi er lokið út-
gáfu á hinu mikla ættfræðisafn-
riti Einars prófasts Jónssonar á
Hofi í Vopnafirði", segir Bene-
dikt Gíslason í eftirmála. „Hún
hefur staðið síðan litlu eftir
1950 að undirbúningur hófst, en
fyrsta bindið kom út árið 1953
á aldarafmæli höfundarins".
Þá getur Benedikt ýmissa
manna, sem gerðu útgóifuna
kleifa og færir þeim þakkir, en
útgáfa þessa rits er fyrst og
fremst verk Benedikts. Verkið
allt er jrfir 1500 bls. og sést bezt
af því í hvað hefur verið ráðizt.
— Kina
Framhald af bls. 1
gagnrýndur harðlega af Rauðu
varðliðunum, sem bæru honum
é brýn, að hann væri afturhalds
sinni og ynni að pólitísku leyni
makkL
Hu Ghi var fyrir skömmu skip
eður yfirmaður fréttastofunnar
Nýja Kína, eftir að fyrirrennári
hans í því starfi hafði verið rek-
inn, ákærður fyrir þátttöku í
óróðursklíku þeirri, sem fyrrver-
endi áróðursmálaráðherra, Tuo
Chu á að hafa komið á fót. Hu
Chi er einnig vararitstjóri við
málgagn hersins. Hann er ákærð
ur fyrir að hafa komið á fót
andbyltingarsinnuðum samsæris-
hópi, að hafa gert tilraun til þess
«ð spilla menningarbyltingunni
innan hersins fylgt aftur-
haldskenndri borgarastefnu við
málgagn hersins.
í frétt AFP-fréttastofunnar
írá Hong Kong segir, að nú
eé í fyrsta sinn, síðan kínverska
menningarbyltingin hófst, and-
■tæðingum Maos beinlínis ógnað.
Fram til þessa hefur það verið
Btefna Maos að halda þvi fram,
að skoðanamun í sambandi við
byltinguna ætti að uppræta með
því að fá þá, sem hlut ættu að
máli til þess að skipta um skoð-
un en ekki með aðgerðum af
hálfu yfirvaldanna. En samkv.
frétt, sem fengin var frá frétta-
ritara fréttastofunnar í Peking
og á að vera komin frá miðstjórn
kommúnistaflokiksins, þá er á-
standið að komast á nýtt stig í
þessu tilliti. Öryggislögreglan
Jiefur fengið fyrirmæli um að
bafa upp á fólki, sem í menn-
Ingarbyltingunni framdi morð
og glæpi, á að hafa dreift röng-
um áróðri, framið skemmdarverk
á samgöngukerfinu og látið út-
lendingum í té leynilegar upp-
lýsingar.
— Skotkeppni
f Fram'hald af bls. 30.
ýmissa hinna reyndarl skot-
manna hversu margir hinna
jyngstu meðlima félagsins sýndu
'Jjarna góða frammistöðu.
j Edda hefur reyndar fengið
Bkæðan keppinaut einnig af hinu
ffagra kyni er það Guðleif Vig-
ifúsdóttir sem komst í lokaúr-
Blitin, en hún byrjaði að æfa
fyrst 1 vetur. Fari svo að fleiri
íEvudaetur sýni jafnmikinn dugn
Bð sem þessar tvær er ekki ó-
ijíklegt að innan tíðar verði hægt
að koma á sérstakri kvenna-
fceppni. í vetur kom á æfingu
ihjá félaginu sænsk fegurðardís
(em alkunn er í heimalandi sínu
fyrir skotsnilli og stundar meira
pegja kennslu meðal hermanna
!f skotfimi. Ekki töldu sumir
í|>arna á æfingunni ólíklegt að
Blíkar heimsóknir yrðu til þess
ftð fleiri eiginkonur færu að
fylgja mönnum sínum eftir á
fkotæfingar því skotin eru víst
margs konar og ekki öll úr
markrifflunum er geta þó verið
markviss.
Formaður Skotfélagsins bað
blaðamann að lokum að geta
þess að æfingar verða í vetur
*em undanfarið á miðvikudags-
kvöldum kL 8:30 og auk þess
eru æfingar á hverjum sunnu-
(ðegi frá því kL 9:30 til hádegis.
— Sogsrafmagn
FramhaM af bis. 32
að fólk hefði sýnt mikinn þegn-
skap og ekki notað straum nema
til brýnustu nauðsynja.
Viðgerðin í gær hefur það í
för með sér að unnt er að hleypa
á Sogsstraumi fyrir aldt svæ'ðið
austan Brúarár, en þar eru sam-
tals 160—170 bæir. Eftir viðgerð
ina í fyrradag var unnt að
hleypa straumi á Biskupstungur
og hluta af Grímsnesi og var það
gert um kl. 14.
Guðjón sagði, að þverunin við
Rrúará yrði flutt á næsta s.umri
á staði sem standa ofar. Fyrir
2—3 árum briotnuðu staurar við
þverun yfir Hvítá og var hún
þá flutt á stað, sem shendur of-
ar, en áður átti Raforkuimála-
stjórnin í miklum erfiðleikum
með rafstrenginn þar.
I>að er trú kunnugra manna,
sagði Guðjón, a'ð fLóðahætta
befði aukizt við það að nýja
ibrúin á Iðu var byggð, enda mun
á'i-n hafa þrengat nokkuð við
tilkomu hennar og stíflar ís ár-
farþeginn í leysingum, segja
bændur í nágrenninu. Mun þver
uninni breytt, svo að sama sag-
an endurtaki sig ekki.
Á mörgum stöðum á laindinu
er við mikla erfiðleika að stríða
vegna þverana yfir ár, einkum
og sér i lagi á slétblendi, þar
sem hætta er á að árnar brjót-
ist úr farvegum sínum og ryðji
jökum upip á bakkana. I>á hefur
það komi’ð fyrir að ár hafa étið
upp bakka sína og fiel'lt staura,
sem hafa staðið allfjarri árbakk-
aniurru
— Tryggvi Helgas.
Framhald af bls. 32
hvaða stað sem er til Reykja-
vikur. Við höfum annazt flug-
ferðir á þessu svæði hingað til
og verkefnin eru sívaxandL Vest
anvert Norðurland er síður okk-
ar athafnasvæði og Vestfirðir og
Vesturland liggja miklu betur
við flugi til og frá Reykjavík.
Akureyri verður hinsvegar alltaf
kjarni og samgöngumiðstöð
Norður- og Austurlands.
— Hugmyndin er þá að taka
upp fastar Reykjavíkurferðir í
framtíðinnL
— Já, ég hefi stefnt að því í
sjö ár og geri enn. Ég tel að við
Akureyringar eigum fullan rétt
á að annast flugsamgöngur til
og frá okkar heimabæ við hvaða
stað sem er á íslandi að minnsta
kosti til jafns við aðra. Mark-
mið Norðurflugs er að byggja
upp öflugan flugrekstur með að-
albækistöð á Akureyri og eign-
ast fullkomnar flugvélar. Ég
mun halda áfram á þeirri braut
og hopa hvergi eða hika. Fram-
tíðin verður svo að skera úr um
hvað tekst og hvað mistekst.
— Sv. P.
Caracas, Venezuela, 18. jan. AP.
Leynileg útvarpsstöð hermdar
verkamanna, sem komið var
fyrir í miðri Caracas, hefur ver-
ið hertekin og fjórir menn hand-
teknir, að því er ríkisstjórn
landsins skýrði frá á þriðjudags-
kvöld. Er þetta önnur útvarps-
stöðin af þessu tagi, sem stjórn-
in nær á sitt vald á einni viku.
n
Styrkir Vísindasjóðs
VÍSINDASJÓÐUR hefur aug-
lýst styrki ársins 1967 lausa til
umsóknar og er umsóknarfrest-
ur til 1. marz n.k.
Sjóðurin skiptist í tvær deild-
ir: Raunvísindadeild og Hugvís-
indadeild.
Raunvísindadeild annast styrk
veitingar á sviði náttúruvísinda,
þar með taldar eðlisfræði og
kjarnorkuvísindL efnafræði,
stærðfræði, læknisfræði, líf-
fræði, lífeðlisfræði, jarðfræðL
jarðeðlisfræðL dýrafræði, grasa
fræði, búvísindi, fiskifræði, vevk
fræði og tæknifræði.
Formaður stjórnar Raunvís-
indadeildar er dr. Sigurður Þór-
arinsson jarðfræðingur.
Hugvísindadeild annast styrk-
veitingar á sviði sagnfræði, bók-
menntafræði, málvísinda, félags-
fræði, lögfræði, hagfræði, heim
speki, guðfræði, sálfræði og upp
eldisfræði.
Formaður stjórnar Hugvísinda
deildar er dr. Jóhannes Nordal
bankastjóri.
Formaður yfirstjórnar sjóðs-
ins er dr. Snorri Hallgrímsson,
prófessor.
Hlutverk Vísindasjóðs er að
efla íslenzkar vísindarannsókmr
og í þeim tilgangi styrkir hann:
1. Einstaklinga og vísinda-
stofnanir vegna tiltekinna ranri-
sóknarverkefna.
2. Kandídata til vísindalegs
Blindravinafé-
lagi Islands berst
arfnr
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi frá Blindravinafélagi ís-
lands:
HJÓNIN Elín borsteinsdóttir, er
andaðist 5. apríl 1966 og >or-
valdur Friðfinnsson, útgerðar-
maður, Brekkugötu 13, Ólafs-
firði, er andaðist 7. des. 1947,
arfleiddu Blindravinafélagið að
jöfnu við barnaheimilið í Ólafs-
firði, að eigum sínum eftir sinn
dag. Elín dvaldi hjá systursyni
sínum, Adam Magnússyni,
Brekkustíg 2, Akureyri, síðustu
ár æfi sinnar og átti hann og
annað frændfólk Elínar drýgstan
þátt í þvi, að svo drjúgur skild-
ingur var eftir í þessu búi og er
félagið frændfólki Elínar inni-
lega þakklátt fyrir þátt þess í
þessari gjöf.
Hlutur félagsins varð kr.
102.624,80 og er það mikið fé,
sem félaginu er mikils virði að
fá til ráðstöfunar, þó er annað
abhyglisverðara, það er sá kær-
leiksandi og hjálpfýsi, sem ligg-
ur að baki þessari höfðinglegu
gjöf. Megi blessun gugs fylgja
þessum hjónum og frændum
þeirra
Þ.Bj.
sérnáms og þjálfunar. Kandídat
verður að vinna að tilteknum
sérfræðilegum rannsóknum eða
afla sér vísindaþjálfunar til
þess að koma til greina við
styrkveitingu.
3. Rannsóknarstofnanir til
kaupa á tækjum, ritum eða til
greiðslu á öðrum kostnaði í sam
bandi við starfsemi, er sjóður-
inn styrkir.
Umsóknareyðublöð, ásamt
upplýsingum, fást hjá deildarrit-
urum, í skrifstofu Háskóla fs-
lands og hjá sendiráðum íslands
erlendis. Deildarritarar eru Guð
mundur Arnlaugsson rektor, fyr
ir Raunvísindadeild, og Bjarni
Vilhjálmsson, skjalavörður, fyr-
ir Hugvísindadeild.
Afolhmdar
Ej mlislæðislél.
Stskbseyrar
Stokkseyri 17. jan.
AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfé-
lags Stokkseyrarhrepps var
haldinn 15. þ.m. Stjórnin var öll
endurkjörin, en hana skipa:
Helgi Jónsson, form., og með
stjórnendur þeir Bjarnþór
Bjarnason, Sigurjón Jónsson,
Jósep Zóphaníasson og Stein-
grímur Jónsson. Á fundinum
mætti Steinþór Gestsson bóndi
á Hæli. Mikill samhugur ríkti
á fundinum varðandi væntan-
legar alþingiskosningar á kom-
andi vori, og voru allir á einu
máli að stuðla að sigur flokks-
ins yrði sem mestur í þeim.
Einnig voru mikið rædd ýmis
héraðs og innansveitarmál, og
nokkrir nýir félagar voru teknir
í-félagið. — FréttaritarL
Árekstur milli
vélhjóls og bíls
Árekstur varð í gærdag miili
vélhjóls og bifreiðar á akbraut-
inni að Iiáskólanum með þeim
afleiðingum að ökumaður vél-
hjólsins slasaðist.
Áreksturinn varð með þeim
hætti að bifreið var ekið aust-
ur Hringbraut, og var henni
beygt inn á akbrautina heim að
Háskólanum. í sömu svifum kom
piltur á vélhjóli vestur Hring-
brautina. Hann reyndi að heanla,
en gat efcki forðað árekstri. Er
hann reyndi að hemla snerist
hjólið þannig að vinstri fótur
piltsins varð á milli bifreiðar-
innar og vélhjólsins. Pilturinn
var fluttur í Slysavarðstofuna,
en hann kvartaði undan eymsl-
um í vinstra fætL
Fór í þyrlu til
að fá sér kaffisopa
ANDRI Heiðberg fór rejmslu-
flug á nýju þyrlunni sinni í
fyrradag. Flaug hann á Sand-
skeiði og þar í grennd. Reyndist
þyrlan í alla staði hið bezta.
Þegar Andri var á leið til
Reykjavíkur datt honum í hug
að lenda við húsið sitt í Hafnar-
firði og fá sér kaffisopa. Það
gerði hann með pomp og pragt
og vakti athygli margra í Hafn-
arfirði, því það gerist sjaldan,
jafnvel í bæjum stærri en Hafn-
arfirði, að menn komi fljúg-
andi heim til sín til að fá sér
kaffisopa!
(Ljósm. Egill Stardal.)
— Ky i Ástraliu
Framhald af bls. 1
Ky neitaði því, að hann vævl
neinn einræðisherra og að hann
væri því andsnúinn, að viðræð-
ur um frið færu fram. Hann neit
aði því einnig, að hann væri því
fylgjandi, að innrás yrði gerð í
Norður-Vietnam.
Harold Holt, forsætisráðherra
Ástralíu, fór mjög lofsamlegum
orðum um Ky og sagði, að hann
væri maður hreinskilinn, sem
gerði það, sem í hans valdi stæði
til þess að fá enda bundinn á
ófriðinn og að koma á lýðræði í
landinu. „Barátta yðar og sam-
landa yðar gegn árásarmönnun-
um“, sagði Holt, „er barátta fyr
ir frelsi, sem háð er á mörgum
stöðum í heiminum".
Fyrir utan gistihúsið voru
fjórir menn handteknir og munu
þeir verða ákærðir fyrir að
trufla almenningsfrið. Samtímis
var því lýst yfir af hálfu lög-
reglunnar, að þar ríkti ánægja
yfir því, að allt hefði samt farið
fram án óspekta að mestu.
Umfangsmiklar öryggisráðstaf
anir voru gerðar fyrir komu Kys
forsætisráðherra, en hann kom
með flugvél til flugvallarins í
Fairbairn, sem var umkringdur
fjölmennu lögregluliði, sem var
með varðhunda. Inni í Canberra
höfðu verið gerðar sérstakar var
úðarráðstafanir í kringum gisti-
húsið, þar sem Ky átti að búa
og í kringum þinghúsið.
Útvarpsstöð í Sidney fékk
ónafntilgreinda tilkynningu með
morðhótun gagnvart Ky. Var
þetta gert með símhringingu,
og sagði sá, sem að henni stóð,
að hann myndi koma sér inn í
hús það í Sydney, þar sem Ky
á að búa, meðan hann dvelur
þar, og myrða Ky eða eiginkonu
hans.
Bangkok, 18., jan. AP.
Frá því var greint í dag, að
stjórn Thailands væri að ráð-
gera að fá framgengt breyting-
um á löggjöf landsins, svo að
unnt verði að grípa til öflugri
ráðagerða gegn þvþ að komm-
únistar komist inn í landið til
þess að vinna þar að uppreisn.