Morgunblaðið - 09.02.1967, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1967.
Sögulegt
sumarfrí
eftir Stephen
Ransome
— Ma8ur lifandi! sagði hann.
— Ég skal segja þér, Steve, að
hér er ég farinn að ala upp alveg
sérstaklega grimma hana. Áður
en langt um líður, skal ég koma
með kyn, sem slaer allt annað
út! í»eir skulu verða frægir í *ög
unni!
Hann sparkaði upp bakdyra-
hurðinni og þrammaði út í
myrkrið. Þar hafði verið grafin
gryfja I jörðina og skófla lá á
barmi hennar. Ég sá Brad fleygja
leifunum af fuglunum í gryfj-
una, riðhafnarlaust — og ég
fann til eihhvers óróa. . . . Venju
legir hanaræktarar gefa dauðu
hanana sína sjúkralhúsinu, þar
sem þeir eru matreiddir, en
Brad er hættur því nú, vegna
þess að hanarnir hans eru allir
stútfullir af allskonar hormón-
um og ensýmum úr tilraunafæð-
unni, og það er ekki þorandi
að gefa sjúklingum. Og til þess
að forðast slíkt, jarðar hann bara
vesalings fuglana, en gefur
sjúkralhúsunum jafnmargar
venjulega hana, daginn eftir.
Þegar ég horfði á Brad vera
að bauka yfir gryfjunni í myrkr
inu, datt mér í hug annar mað-
ur, sem laut yfir Kerry í myrkri.
með báðar hendur á kverkum
hennar........
— Já, ég skal segja þér, kall
minn, sagði Brad og fór inn eft-
ir fleiri hönum, — að þessir eru
þúsund dala virði hver um sig.
En þeir eru bara ekki orðnir
fullkomnir enn. Ég ætla að ala
þá enn betur framvegis, og er
þá mikið sagt. Þá drepa kjúkl-
ingarnir mínir hvað sem fyrir
kemur, skal ég segja þér.
— Hvar er Evvie? spurði ég
snöggt.
Hann snarstanzaði og hrifning
in hjá honum hjaðnaði niður.
Aftur var hann orðinn þessi var
færi, skjálfandi maður, sem ég
hafði séð fyrr um kvöldið.
— Ég veit ekki, hvar hún er.
Hún hefur ekki haft neitt sam-
band við mig og sannast að
segja er ég þvi feginn. En það
leggst í mig, að við munum bráð
um frétta eitthvað — en það
verða engar gleðifréttir.
— Af hverju heldurðu það?
— O, það er bara hugboð.
— Kerry finnst við ættum að
taka okkur til og reyna að finna
hana. áður en lögreglan skerst
í málið.
Það var eins og hann stirðn-
aði ofurlítið. — Nei. Við skulum
heidur vera klók og skipta okk-
ur alls ekkert af því. Ég skal
segja þér, hvernig þetta gekk
til. Ewie tók bílinn sinn og ók
á járnbrautarstöðina þetta kvöld
alein, og stökk svo upp í lestina
til borgarinnar. Svo einfalt var
það. Ég held ekki, að neitt mis-
jafnt hafi komið fyrir hana. Hún
er sennilega í felum og vonar,
að við verðum dauðhrædd um
hana. Hún hlýtur að koma fljót
lega aftur, þó ekki væri til ann-
ars en að láta á sér bera — vera
stjarnan í leiknum. Þér er óhætt
að trúa manni, sem hefur af
þessu leiðinlega reynslu — við
fréttum bráðlega af Evvie hinni
dásamlegu!
— Já, þú ættir náttúrlega bezt
að vita það. En Dick ætti að
minsta kosti ekki að vera að
Ieita og aðgæta skrárnar yfir
fólk, sem saknað er. Jæja, góða
nótt þá — eða góðan daginn,
eða hvað það nú kann að vera.
Ég gekk aftur inn í húsið og
velti því fyrir mér, að ef Brand
hafði svona einfalda skýringu á
málinu, hversvegna hann þurfti
þá að vera svona hvumpinn í
sambandi við það.
En ég gat bara ekki trúað, að
málið væri svona einfalt. Brad
var að leyna mig einhverju —
leyna því fyrir öllum, jafnvei
Kerry, alveg eins og Kerry var
að Ieyna fyrir öllum — jafnvel
Brad — svöðusárinu sem hún
var með á síðunni eftir árásina.
Eg sneri mér við. Brad stanz-
aði og hélt i hendinni á fiðr-
uðum leifum af hönunum, og
horfði á mig, þögull og kvíðinn
á svip. Það var óviðkunnanlegt,
að þessi maður, sem hafði þekkt
7
mig sem sannan vin frá barn-
æsku, færi að verða tortrygginn
gagnvart mér.
— Brad, ég ætla ekki að fara
að segja það neinum öðrum, en
ég verð að segja þér, að þetta
er í annað sinn, sem ég kem hing
að í rannsóknastofuna síðan sam
kvæminu lauk. Fyrra skiptið var
fyrir svo sem klukkutíma. Þá
varstu ekki í húsinu og heldur
ekki hérna.
Hann stóð kyrr og þagði.
— Ég var á leiðinni að húsinu.
þegar ég heyrði mannamál. Það
var ofurlítil gola, sem bar það
til mín úr áttinni frá kjúklinga-
görðunum. Mér fannst annað
vera þín rödd, en gat ekki greint
hver hin var, né heldur, hvað
sagt var — enda þótt samtalið
væri all-hávært. En því lauk
næstum á sömu stundu og ég
varð þess var. Eigandi hinnar
raddarinnar virtist hverfa út 1
buskann, en þú komst gangandi
og með gremjusvip.
— Hann hélt áfram að glápa
á mig.
— Get ég hjálpað þér nokkuð,
Brad?
— Já, með því að gleynia
þessu.
— En ef þetta var nú Evvie,
sem með þér var.......?
— Gleymdu því, gleymdu því.
Eina svarið, sem ég gat gefið
við þessari áfþökkun á hjálpar-
boði mínu, var að fara leiðar
minnar.
Brad kom inn í húsið fljótlega
á eítir mér og fór beint í rúm-
ið. Nú var allt húsið 1 fasta
svefni, að Kerry meðtaldri og að
mér einum undanteknum. Áður
en mínúta er liðin dett ég líka
út af og læt næturverkinu vera
lokið.
Morgunin er grár og þögull —
nema hvað hanarnir eru byrjað
ir að gala. Úti í hlöðunni eru
sigurvegararnir að æpa sigur-
óp yfir gröfum hinna föllnu.
5. kafli.
Sunnudagur síðd. kl. 3.10.
„Ef réttvísin fær á annað borð
fest fingur á svona leynistarf-
semi þá dugir stundum ekki sak
leysið eintómt til að bjarga
manni úr klípunni — það getur
líka verið þörf á góðum lögfræð
ingi'..... Þannig skrifaði ég í
fyrsta kafla þessarar skýrslu.
Við vorum þegar farin að
finna þörfina á góðum lögfræð-
ingi. Ekkert okkar er fullkom-
lega saklaust eftir lagabókstafn-
um, en Brad er sýnilega í mestu
hættunni, hvað það snertir.
Þessi skýrsla mín getur þá kom
ið lögfræðingnum að gagni, þeg-
ar við náum í hann — þessi
minnisgrein um pað, hvernig á-
standið hjá Evvie versnaði um
allan helming morguninn eftir
— svo var Kerry og góðum ásetn
ingum hennar fyrir að þakka.
Fyrir nokkrum mínútum rauk
Kerry út í vonzku — bara af
því að ég sagði við hana og
kannski rneð svolitlum ákafa: —
Fjandinn hafi það, Kerry, nú
ættirðu framvegis að hafa vit á
að skipta þér ekki af þessu meir.
— Víst skipti ég mér af því,
hvæsti hún framan í mig. — Ég
verð að vita, hvað hefur raun-
verulega gerzt — og ég komst
vissulega að nokkru, sem Evvie
snertir.
— Víst gerðirðu það. en þetta
kann nú ekki að vera eins slæmt
og það lítur út fyrir....... Það
getur verið enrvþá verra.
Hún kipraðr saman augun. —
Verður ekki að ganga út frá því,
að þú sért sérfræðingur í þessu
öllu saman, Steve — manna-
hvarfi, morðum og því um líku?
Það er víst einmitt á þínu sér-
sviði, er það ekki? Jæja þá,
hvers vegna siturðu þá með
hendur í skauti og gerir gys að
mér fyrir það, að ég er að reyna
að verða að einhverju gagni?
Hvers vegna tekurðu þig ekki til
og hefst eitthvað að?
Kerry út. Skellir á eftir sér
hurðinni.
Það bezta, sem hægt er að
gera í þessu Evvie-máli, er, að
skipta sér bókstaflega ekkert af
því. Þrátt fyrir þessa sannfær-
ingu mína hafðist ég engu að síð
ur nokkuð að fyrr í dag — sann-
ast að segja fyrir morgunverð.
Ég ók til Crossgate og fór
beint í Limdlarkrána og hitti
George við skenkiborðið, þar
sem hann var að fá sér kaffi-
sopa og telja saman tekjur gær-
dagsins. Ég beindi skrafi okkar
að þessum dularfulla gesti með
páfagaukinn.
Svo virtist sem McNeary hefði
mikinn áhuga á byggingarlist-
inni í byggðarlaginu okkar.
Hann situr tímunum saman úti
í forskálanum að kránni og dá-
ist að pósthúsinu, ráðhúsinu 'og
almenningsbókasafninu handan
við götuna. Og hann hefur líka
mikinn áhuga á landslaginu.
Hann ekur langar fsrðir um
sveitina og fer sér hægt — en
mest þó að næturlagi. Ekki veit
George, hvers vegna McNeary
kann bezt við landslagið I
tunglsljói, en það gerir hann mi
samt. Jafnvel þó ekkert tungls-
ljós sé, þykir honum það falleg-
ast að næturlagi, — eins og til
dæmis í gærkvöldi.
McNeary var úti ! allt gær-
kvöld, og kom ekki heim fyrr
en seint, að hann er George sagði.
Til minnis: Spyrja Brad, hvaða
áhuga hann hafi á McNeary.
Þegar ég kom aftur heim til
Race, leit ég inn í hlöðuna. Haw
ley, goskarlinn, var að taka til.
Og þar eð hann hafði verið
þarna dyravörður í allt gær-
kvöld, hafði ég spurningar að
leggja fyrir hann.
Enskunámskeið í Englandi
Enskunámskeið í English Language Summer
Schools í Bournemouth, Brighton, Torquay, East-
bourne og Hastings, hefjast 23. júní og lýkur
8. september.
Valdir kennarar annast kennsluna, og nemendur
dvelja á góðum enskum heimilum.
Námskeiðin miðast aðallega við nemendur á aldr-
inum 14 — 25 ára.
Umsóknir þurfa að berast sem allra fyrst.
Allar upplýsingar í síma 3 37 58, kl. 19 — 20.
KRISTJÁN SIGTRYGGSSON.
Útvarpsvirkjun
Viljum bæta við nema í útvarpsvirkjun.
Eiginhandarumsóknir ásamt meðmælum
og upplýsingum um fyrri störf óskast
afgr. Mbl. fyrir 11. þ.m. merkt: „8766“.
™^o
Rafmagnstalíuitr
Höfum fyrirliggjandi
200 — 400 — 500 og 1000 kg.
rafmagnstaliur
Útvegum stærri talíur með
stuttum fyrirvara.
Laugavegi 15,
sími 1-16-20
og 1.33-33
Ljósprentunar-
tækið
DLtPLOMAT leysir vandann.
EINFÖLD
FLJÓTVIRK
ÓDÝR
OPTIMA
Laugavegi 116 - S 16788.
Neodon og DLW gólfteppi
Verð pr. ferm. 298 á Neodon,
Verð pr. ferm. 345 á DLW,
LITAVER. Grensásvegi 22
Símar 30280 og 32262.
Heimilisíólk yðar og gestir njóta
gœðanna