Morgunblaðið - 09.02.1967, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. FEBRUAR 1967,
FH tapaði síðari
leiknum með 22:28
Budapest, 8. febr.: —
ÍSLANDSMEISTARAR FH léku
„aukaleik" í heimsókn sinni til
Ungverjalands á þriðjudags-
kvöld og mættu þá liðinu Uj-
pesti Dozsa, sem er í öðru sæti
í 1. deild í Ungverjalandi, næst
á eftir meisturunum Honved. —
Ungverjarnir unnu leikinn, eftir
mjög spennandi baráttu um tíma,
28:22.
Ungverjarnir áttu mun betri
byrjun og náðu öruggu forskoti,
en FH tók síðan að vinna á og í
hálfleik .munaði aðeins einu
marki. Var staðan 11:10 Ungverj
unum í hag.
Snemma í síðari hálfleik náði
FH að jafna og var um skeið
mjög jöfn barátta milli liðanna.
En undir lokin náðu Ungverjarn
ir undirtökunum og sigruðu sem
fyrr segir með sex marka mun.
Dómari í leiknum var ungversk
ur.
Markhæsti maður leiksins var
Ungverjinn Klein með 8 mörk.
Mörk FH skoruðu: Geir 7, Auð-
unn 5, Páll 5, Jón 3 og Árni 2.
xxx
FH-ingar áttu að halda heim-
leiðis á miðvikudagsmorgun og
þá til Kaupmannahafnar, og eru
væntanlegir heim í kvöld. Á
sunnudag leika þeir síðari leik
sinn gegn Honved í íþróttahöll-
inni í LaugardaL
EINS og skýrt hefur verið frá
var ósiitin sigurganga sund-
knattleiksmanna Ármanns slit
in eftir 19 ár (ekki 23 eins
og þá stóð) er sundknattleiks-
flokkur KR varð Reykjavík-
urmeistari í greininni á dögun
um. Hér eru Reykjavíkur-
meistarar KR. Fremri röð frá
vinstri: Erik Köppel, Sigmar
Björnsson (fyrirliði), Valdi-
mar Valdimarsson, Hörður
Barðdal, Erlingur Þ. Jóhanns
son. Aftari röð frá vinstri:
Þorsteinn Hjálmarsson, þjálf-
ari; Pétur Johnsen, Logi Jóns-
son, Einar Sæmundsson, form.
KR; Gunnar Guðmundsson og
Benedikt Jóhannsson.
wvv*.
> V V V V V V V
Rangur texti
f GÆR urðu okkur á mikil mis-
tök í myndatexta undir mynd
frá kappleik Clays og Terrels og
■munu margir hafa áttað sig fljótt
á mistökunum. Það er Clay sem
gefur Terrell vel úti látið högg.
Myndin er tekin í 6. lotu kapp-
leiksins.
Víldng
ar
AÐALFUNDUR handknattleiks-
deildar Víkings verður haldinn í
félaggheimilinu í kvöld, fimmtu-
dag, kl. 9.30.
ÍTALSKA liðiff Bologna vann
enska liffiff West Bromwich
Albion 3—0 á miffvikudags-
kvöld í fyrri leik liðanna í
borgakeppni Evrópu. Leikur-
inn fór fram í Bologna og í
hálfleik stóff 2—0. Aðeins 5000
manns sáu leikinn.
Sigtryggur Sigurðss. vann
skjöldinn 3. sinn í röð
SKJALDARGLÍMA Ármanns
fór fram að Hálogalandi 1. febr-
úar sl. Hörður Gunnarsson form.
glímudeildar Ármanns setti
mótið. Glímustjóri var Gunn-
laugur J. Briem. Yfirdómari Sig-
fús Ingimundason, meðdómarar
voru þeir Sigurður Sigurjónsson
og Gunnar Pétursson.
Átta keppendur voru skráðir
og mættu allir. Fjórir fr. KR,
þrír frá Vikverja og einn frá Ár-
manni.
Úrslit urðu þessi:
1. Sigtryggur Sigurðsson KR
7 vinn.
2. Ingvi Guðmundsson U.V. 6 v.
3. Gunnar R. íngvarsson U.V.
6 vinn.
4. Þorvaldur Þorsteinsson Á.
4 vinn.
5. Hannes Þorkqlsson U.V. 3 v.
6-7. Garðar Erlendsson KR 2 v.
6-7. ómar Úlfarsson, KR 2 vinn.
8. Einar Kristinsson KR 0 v.
Sigtryggur Sigurðsson lagði
alla keppinauta sína og sigraði
nú í þriðja sinn í röð. Sigtryggur
var vel að sigrinum kominn.
Hann beitti 6 brögðum til úrslita
í 7 glímum, sem sýnir, að hann
kann mörg brögð. Sigtryggur
hefði mátt útfæra hábrögðin
betur með því að lyfta mönnum
meira upp, áður en hann útfærði
bragðið. Þetta ætti að lagast með
meiri æfingu, en Sigtryggur hef-
ur lítið æft í vetur vegna veik-
inda.
Ingvi Guðmundsson féll aðeins
fyrir Sigtryggi. Þrátt fyrir það,
að Ingvi er ekki á léttasta skeiði,
fer honum ennþá fram. Glíman
hans við Sigtrygg var hápunkt-
ur keppninnar, og drengilega
glímd úrslitaglíma af beggja
hálfu. Ingvi beitti lágbrögðum
sem heppnuðust oft ágætlega.
Gunnar R. Ingvarsson stendur
vel að glímunni. Hann notar
mikið lágbrögð. Einnig er hann
góður í vörnum.
Þorvaldi Þorsteinssyni hefur
farið mikið fram síðan í fyrra.
Hann er orðinn sterkur og
mjúkur í vörn og sókn.
Hannes Þorkelsson sýndi nú
eina beztu glímu, er hann hefur
sýnt lengi. Hann vantar þó meiri
samvinnu handa og fóta.
Sigtryggur Sigurffsson
Frœgusfu knattspyrnulið Evrópu 4.
í Evrópukeppni eftir 15 ára baráttu
VOJVODINA, knattspyrnulið
ið frá Novi Sad heldur á lofti
fána Júgóslavíu í Evrópu-
keppni meistraliða, hefur
eldrei verið sterkara en nú.
Saga félagsins nær nú yfir 53
ár, liðið er stofnað 1914. Á s.l.
ári náði það meistaratitli —
og það sem kannski enn meira
var um vert fyrir félagíð, var
að það hagnaðist um 50 þús-
und dali á keppnisferð um
Bandarikin og með því að
selja einn af sínum beztu
liðsmönnum, Takac, til er-
lends félags.
Vojvodina hóf keppni í 1.
deild í Júgóslavíu 1932. Eftir
heimsstyrjöldina skipti félagið
um nafn og var þekkt undir
nafninu Sloga 1950 tók það
aftur upp eldra nafn sitt,
Vojvodina — sem er nafn
landbúnaðarhéraðsins þar
sem Novi Sad er höfuðborg.
Vojvodina vann júgóslav-
nesku meistarakeppnina í
fyrsta sinn á s.l. ári. Þrátt
fyrir það átti félagið fleiri
menn í landsliði Júgóslavíu á
árunum 1952 til 1960 en það
á í dag.
Mesti sigur Vojvodina ?
þeim frægðarárum var að
komast í úrslit um Mitropa
bikarinn en í úrslitunum tap-
aði liðið fyrir Vasas Ung-
verjalandi. Frægur sigur
vannst einnig er Vojvodina
vann Inter Milan 1961 í
Borgakeppni Evrópu.
1 fyrra vann liðið júgóslav-
nesku keppnina með 5 stigum
umfram Sarajevo. Nú mætir
liðið Glasgow Celtic í 16 liða
úrslitum um Evrópubikar
meistaraliða — í Novi Sad 1.
margz og í Glasgow 8. marz.
I þeirri keppni hefur Vojvo-
dina fram til þessa sigrað
Admira frá Austurríki og
Atlentico Madrid.
Frægustu leikmenn liðsins
nú eru Pantelic markvörður,
sem ætíð vekur athygli fyrir
að verja erfið skot.
Radovic, v. bakvörður sem
hefur góða reynslu og er mjög
sókndjarfur bakvörður og
skorar iðulega mörk. M.a. af
30 m. færi í leiknum gegn
Atlentico Madrid.
Brzic, miðvörður. Stjarna
júgóslavneka landsliðsins,
mjög sterkur „skalla“-maður.
Sakeres, framvörður, einnig
sjálfsagður landsliðsmaður.
Hann er reyndastur Vojvo-
dina-liðsmanna tekniskur og
skipuleggjari góður.
Þá er hópur yngri manna,
sem sagðir eru líklegir til að
lyfta júgóslavneskri knatt-
spyrnu enn meir en orðið er.
Garðar Erlendsson fékk ekki
eins mikið út úr sínum glímum
og styrkleikinn segir um. Garð-
ar hefur mjúkar og skemmtileg-
ar hreyfingar í glímunni.
Ómar Úlfarsson tók nú í fyrsta
skipti þátt í Skjaldarglímunni.
Hann er sterkur, en lét nokkur
góð tækifæri ganga sér úr
greipum.
Einar Kristinsson keppti einn-
ig í fyrsta skipti í Skjaldarglím-
unni. Einar er mjúkur í hreyfing
um. Með örlítilli heppni hefði
hann getað fengið einn til tvo
vinninga. Án efa á Einar eftir að
ná langt í glímunni, ef hann æfir
vel í framtíðinni.
Gunnar Eggertsson form. Ár-
manns afhenti verðlaun og sleit
mótinu.
Dómararnir sluppu betur en
oft áður frá hlutverki sinu.
Um framkvæmd mótsins má
segja, að það var afar illa aug-
lýst, og ættu mótsnefndir glímu-
móta að sjá sóma sinn í því að
auglýsa mótin mun betur en gert
var í þessari glímu. Framkvæmd
mótsins, þegar sjálf glíman fór
fram, var nokkuð góð.
S undmeis taramó t
Keflavíkur
SUNDMEISTARAMÓT Kefla-
víkur verður haldið í Sundlhöll
Keflavikur sunnudaginn 12. febr.
kl. 2. e.h.
Keppt verður í eftirtöldum
sundgreinum:
100 metr. skriðsundi karla,
100 metr. bringusund Karla, 100
metr. baksund karla, 50 metr.
flugsund karla, 100 metr. bringu
sundi kvenna, 100 metr. skrið-
sundi kvenna, 100 metr. bak-
sund kvenna, 66% metr. fjór-
sund karla 66% metr. fjórsund
kvenna, 4x50 metr. fjórsund
karla (boðsund), 3x50 metx. þrí-
sund kvenna boðsund.
Unglingasundgreinar:
50 metr. bringusund sveina, 14
ára og yngrí,, 50 metr. skriðsund
sveina 14 ára og yngri, 50 metr.
bringusund telpna 14 íu-a og
yngri, 50 metr. skriðsund telpna
14 ára og yngri, 50 metr. skrið-
sund drengja 15 og 16 ára, 50
metr. flugsund drengja 15 og 16
ára, 50 metr. baksund drengja
15 og 16 ára, 50 metr. baksund
telpna 15 og 16 ára, 50 metra flug
sund telpna 15 og 16 ára.
Þátttökutilkynningar skulu
berast til Sundráðts Keflavíkur
fyrir 10. febr.