Morgunblaðið - 09.02.1967, Síða 28
Lang stærsta
og fjölbreyttasta
blað landsins
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1967
Helmingi útbreiddaia
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Þriðja banaslysið
Kona lézt af slysförum í fyrradag
ÖUDRUÐ kona, Jónína Ragn-
hildur Jónsdóttir, lézt í fyrra-
dag vegna meiðsla, sem hún
hlaut í umferðaslysi hinn 27.
janúar s.l.
Jónína, sem var 75 ára að
aldrei, varð fyrir lítilli fólks-
bifreið á gatnamótum Höfða-
túns og Borgartúns, og hlaut
hún slsemt höfuðhögg. Var hún
fyrst flutt í Landakot, en síðar
í Landsspítalann. Þetta er þriðja
banaslysið í Reykjavík á þessu
ári, en þau hafa öll orðið í
janúar.
Kirkiugarðuruitn
í Fossvogi að
verða fullnýttur
Síðasta spildan tekin í notkun
Ðæmigerð ösikudagsmynd. Það er ekki svo lítið æsandi að koma öskupoka á vegfarendur. Eftir
svipnum á strákunum að dæma, er það ennþá m eira spennandi en hasarmynd í bíói.
Utanfararsjóður hjart-
veikra barna stofnaður
15. JANÚAR sl. birtist í Morgun-
blaðinu grein eftir séra Garðar
Svavarsson þess efnis að fjögra
ára drengur í Reykjavík þyrfti
að ganga undir hjartaaðgerð í
sjúkrahúsi í Chicago, vegna al-
varlegs hjartagalla. Var fólk
hvatt til að styðja foreldra
drengsins fjárhagslega, því slík
ferð og læknishjálp er mjög
kostnaðarsöm. Hefur almenning-
ur brugðizt mjög vel við beiðn-
inni og hafa Morgunblaðinu bor-
izt 500,000 kr. rúmar. En þar
sem kostnaður við för drengsins
og þess er honum fylgir nemur
um kr. 210,000 hefur það orðið
úr að stofna sjóð af afgangi fjár-
ins og mun sjóðurinn bera heitið
UTANFARARSJÓÐUR HJART-
VEIKRA BARNA. Hafa Morgun
blaðinu nú borizt þakkir og
greinagerð frá séra Garðari, sem
hér fer á eftir:
Það var þann 16. janiúar sJ. að
ég vakti athyg'li á fjiögra ára
Framhald á bls. 27
Afftur fært norður
og vlðast hvar um landið
NÚ ER aftur orðið fært fyrir alla
bíla um Holtavörðuheiði og alla
Ráðinn sérstakur
búveðurfræðingur
VEÐURSTOFAN auglýsir nú
eftir búveðurfræðingi, og verður
það í fyrsta skipti, sem sérstak-
uir veðurfræðingur verður hér
starfandi á því sviði. Á hann
einkum að vinna að verkefnum,
sem varða landibúnaðinn, og
að ýmsum veðurfræðilegum at-
hugunum í smærri einingum en
hingað til hefur verið gert.
Búveðurfræði er m. a. beitt
með tilliti til ræktunar, t. d. at-
huganir gerðar um hvar hentug-
as sé að hafa garðrækt með til-
liti til veðurfræðilegra skilyrða,
jarðvegsraka og fleira. ©g þá
gjarnan tekin fyrir ákveðin
svæði.
Svolítið hefur verið byrjað á
slíkum athugunum hjá Veður-
stofunni, eri nú er ætlunin að
ráða sérstakan mann til að vinna
þær og skipuleggja. Er þetta
brautryðjendastarf hér eða nán-
ast tilraunastarfsemi.
leið til Akureyrar. Eftir skaf-
renninginn í fyrradag var aðeins
fært fyrir stóra bíla, þrátt fyrir
hjálp vegagerðarinnar á Holta-
vöðuheiði. En síðan þiðnaði og
er færðin nú orðin ágæt.
Yfirleitt er færð prýðileg um
Suðurland, og bæði yfir Hellis-
heiði og um Þrengslin. Eins er
ágætlega jeppafært um Borgar-
fjörð, Dali og Snæfellsnes. Og á
Vestfjörðum er yfirleitt fært inn
ansveitar, en ekki yfir fjallveg-
ina.
Stórum bílum er víðast fært
um Norðurland, til Húsavíkur og
jeppafært um Þingeyjarsýslur.
Sama er að segja um Austurland
nema yfir Oddsskarð og Fjarðar-
heiði. En flutningar yfir Fjarðar
heiði fara fram með snjóbílum.
BRÁTT líður að því að kirkju
garðurinn í Fossvogi sé fullnýtt-
ur. Er nú verið að stækka hann
til vesturs um nálægt hálfan
hektara og er það síðasta mögu-
lega landspildan á þessum stað.
Á hún að duga næstu 3 árin, að
því er borgarverkfræðingur tjáði
Mbl. í gærkvöldi.
Síðastliðin 2-3 ár hefur verið
í athugun að fá annan stað und
ir kirkjugarð. Er verið að kanna
önnur svæði og verður væntan-
lega tekin ákvörðun um hvert
þeirra endanjega verður fyrir
valinu á þessu ári.
Mjög mikið landrými fer undir
kirkjugarða hér í Reykjavík mið
að við aðra staði af svipaðri stærð
Jóhann Hafstein
á rabbfundi
í KVÖLD kl. 20,30 efnir Heim-
dallur til rabbfundar í Valhöll
v/Suðurgötu. Jóhann Hafstein,
dómsmálaráðherra, rabbar við
(Heimdallarfélaga um fram-
kvæmdavald og stjórnsýslu rik-
isins.
Heimdallarfélagar eru hvattir
til að fjölmenna.
En það kemur til af því hve fáir
láta brenna sig og er hhitfallið
milli þeirra, sem grafnir eru og
brenndir, öfugt miðað við, það
sem er í öðrum löndum. Er því
nægt rými enn í Fossvogskirkju
garðinum fyrir þá sem brenndir
eru. Auk þess kemur það til að
í Reykjavík eru grafnir um 80%
allra landsmanna.
Fékk borgarráð erindi um
þetta frá forstjóra kirkju«arð-
anna, Hirti Guðmundssyni, og
var það 'agt fram á síðasta fundi
ráðsins.
Reknetabelgir
um allar f jörur
Sægur af rússneskum rekneta-
belgjum hefur fundizt í fjörum
á Álftanesi, Akranesi og víðar.
Ekki er vitað hvaðan þeir koma
en talið er líklegt að skip hafi
misst þá útbyrðis í óveðri, og
svo straumar og stormar borið
þá hér upp að landinu.
Henry Hálfdánarson hjá Slysa-
varnafélaginu sagði að vel gæti
verið, að belgimir hefðu farið í
sjóinn fyrir mörgum mánuðum
og verið að velkjast um síðan.
Fimm innbrot i fyrrinótt
INNBROT voru framin á fimm
stöðum í Reykjavík aðfaranótt
miðvikudags, en uppskera þjóf-
anna verður að teljast lítil í öll
skiptin.
Stærsta innbrotið var í
Glaumbæ. Þar hafði verið farið
inn um þakglugga, og var 12—
15 vínflöskum, að verðmæti 7—8
pús. krónur stolið úr vínskáp á
fyrstu hæð veitingahússins. Við
rannsókn málsins hefur komið
í ljós að áþekku magni hefur
verið stolið úr veitingahúsinu
aðfaranótt 30. janúar.
Þá var brotizt inn í skrifstofu-
húsnæði „Bræðurnir Ormsson",
Lágmúla 3, og hurfu þaðan um
500 kr. í peningum. Ennfremur
var brotizt inn í húsgagnaverk-
stæði Kristjáns Siggeirssonar,
og þaðan stolið nokkrum hundr-
uðum króna. Loks var brotizt
inn í snyrtiklefann í undirgöng-
unum á Miklubraut, en þaðan
hurfu aðeins 50—60 krónur í
peningum.
Fyrirspurnatími í Sameinuðu þingi ■ gær:
Lögreglan kannar
veitingasölu
félagsheimila
LÖGREGLAN í Reykjavík hef-
ur að undanförnu kannað starf-
semi félagsheimila í Reykjavík
og nágrenni, þar sem kæra hef-
ur borizt frá Sambandi veitinga-
og gistihúsaeigenda þess efnis,
að félagsheimili rækju ólöglega
veitingasölu. í samtali við Mbl.
staðfesti lögreglustjóri þetta, en
sagði að hvergi hefði orð-
ið vart við ólöglega veitingasölu
i félagsheimilum, sem lögregl-
«ui hefði kannað.
Staðgreiðslukerfi skatta
— krefst víðtækra breytinga á skattalöggjöfinni
— verður dýrara I framkvæmd
— sagði Magnús Jónsson, f jdrmálaráðherra
í FYRIRSPURNATÍMA í
Sameinuðu Alþingi í gær,
skýrði Magnús Jónsson, fjár-
málaráðherra, frá þeirri und-
irbúningsvinnu, sem fram
hefur farið á vegum ríkis-
stjórnarinnar til þess að
unnt verði að taka upp stað-
greiðslukerfi skatta hér á
landi, Komu upplýsingar ráð
herrans fram vegna fyrir-
spurnar Eðvarðs Sigurðsson-
ar um þetta mál.
Fjármálaráðherra sagði, að
ríkisstjórninni hefði í sept.
1966 borizt skýrsla, annars
vegar um staðgreiðslukerfið
í allmörgum Evrópulöndum,
hins vegar um þau sérstöku
vandamál, sem við væri að
glíma hér á landi. í fram-
haldi af því hefði ríkisstjórn-
in skipað nefnd, fulltrúa
ríkis og sveitarfélaga, til þesa
að undirbúa málið frekar og
hefði nefnd þessi unnið
stanzlaust að málinu síðan.
Búast mætti við að nefnd
þessi lyki störfum í lok mán-
aðarins og mundi málið þá
Framntokl á bk. 16